Sjómannadagsblaðið - 07.06.2009, Blaðsíða 23
237. JÚNÍ 2009 SJÓMANNADAGSBLAÐIÐ
Sendum íslenskum sjómönnum
árnaðaróskir á hátíðisdegi þeirra
ÁLTAK
Baldursnesi 6 • Akureyri • Sími 414 1050 • Fax: 414 1051 • tengi@tengi.is • Smiðjuvegi 76 • Kópavogi • Sími 414 1000 • Fax: 414 1001 • www. tengi.is
Hannaðu heimilið með Tengi
Blöndunartæki
Sendum íslenskum
sjómönnum
árnaðaróskir á
hátíðisdegi þeirra
Hrafnista í Reykjavík tók í
notkun tvær nýjar deildir að
undangengnu útboði Ríkiskaupa
þegar Ögmundur Jónasson
heilbrigðisráðherra og Pétur
Magnússon, forstjóri Hrafnistu,
skrifuðu undir samstarfssamning
um rekstur þeirra föstudaginn 3.
apríl síðastliðinn. Um er að ræða
20 skammtímahvíldarrými með
endurhæfingu og 30 dagvistarrými
með endurhæfingu. Rýmin eru ætluð
skjólstæðingum heimahjúkrunar
á öllu höfuðborgarsvæðinu og á
Landspítala. Á báðum deildunum er
lögð áhersla á líkamlega- og andlega
endurhæfingu þeirra sem nýta sér
þjónustuna, en mikil þörf hefur verið
á þessari þjónustu fyrir eldri borgara
í Reykjavík.
Einstaklingar sem koma í hvíldar-
innlögn með endurhæfingu eiga þess
kost að búa á Hrafnistu í allt að sex
vikur. Þar njóta þeir allrar þeirra
þjónustu sem Hrafnista hefur upp
á að bjóða en aðaláhersla er lögð á
einstaklingsmiðaða endurhæfingu
þeirra, m.a. með iðjuþjálfun,
sjúkraþjálfun og sundi. Markmiðið
með innlögnunum er m.a. að veita
einstaklingnum aukna færni til þess
að búa lengur í eigin húsnæði.
Þeim einstaklingum sem koma
í dagvistun með endurhæfingu
verður boðið upp á mjög markvissa
endurhæfingu en eiga þess jafnframt
kost að nýta sér alla aðra þjónustu
sem Hrafnista hefur upp á að bjóða.
Má þar nefna félagsstarf, sund
og listiðn. Þar sem um er að ræða
dagvistun hluta vikunnar geta fleiri
einstaklingar notið þjónustunnar
en sem nemur þeim þrjátíu rýmum,
sem samningurinn gerir ráð fyrir.
Þó svo að meginmarkmiðið með
dagvistinni sé endurhæfing verður
jafnframt lögð áhersla á að rjúfa
félagslega einangrun þeirra öldnu
með félagsskap, afþreyingu og
uppbyggingu á líkama og sál.
Að undanförnu hafa staðið yfir
umfangsmiklar framkvæmdir og
endurbætur á húsnæði Hrafnistu í
Reykjavík. Tilgangurinn er að koma
til móts við vaxandi kröfur nútímans
um aðbúnað aldraðra enda yfirlýst
markmið með starfi Hrafnistu að
vera leiðandi í þjónustu og umönnun
aldraðra. Herbergjum var fækkað og
þau stækkuð og öll gerð að einbýlum.
Þetta hefur leitt af sér fækkun
heimilismanna. Vegna þessa geta
faglegar stoðdeildir Hrafnistu, svo
sem iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun,
tekið að sér aðhlynningu þeirra
sem nýta sér þá þjónustu sem
heilbrigðisráðuneytið óskaði eftir.
Skammtímarými með
endurhæfingu og dagvist með
endurhæfingu hafa ekki verið áður
í boði hjá Hrafnistu í Reykjavík en
þessi þjónusta fléttast mjög vel inn í
þá fjölbreyttu starfsemi sem þar fer
fram.
Samið um hvíldarinnlagnir
og dagvistun fyrir aldraða
Ögmundur Jónasson
heilbrigðisráðherra og Pétur
Magnússon, forstjóri Hrafnistu
skrifuðu undir samninginn sem
Haraldur Hrafn Guðmundsson
frá Ríkiskaupum og Guðmundur
Hallvarðsson, formaður
Sjómannadagsráðs vottuðu.
S T O F N A Ð 1 9 8 6
KÓPAVOGUR