Morgunblaðið - 11.05.2020, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2020
SMÁRALIND – DUKA.IS
Stedge hillur
Hillukerfi (2 hillur) 60 cm: 39.900,-
Hillukerfi (2 hillur) 80 cm: 42.900,-
Aukahilla (AddOn) 60 cm: 21.900,-
Aukahilla (AddOn) 80 cm: 24.900,-
Fegrum heimilið
Eik & Svartbæsuð Eik
Sendiherra Rússlands minntist umhelgina hér í blaðinu loka síðari
heimsstyrjaldar, eða föðurlands-
stríðsins mikla, eins og styrjöldin er
nefnd í Rússlandi.
Rússar, og aðrir
sem þá heyrðu
undir Sovétríkin,
drógust inn í styrj-
öldina árið 1941,
nokkru síðar en
önnur Evrópuríki,
eftir að nasistar
sviku gerða samn-
inga. Þau fjögur ár sem liðu frá inn-
rásinni í Sovétríkin og til stríðsloka
börðust Rússar og aðrir Sovétmenn
hetjulega við heri nasista og áttu
mikilvægan þátt í sigrinum á þeirri
illsku sem riðið hafði yfir í Evrópu
og víðar.
Að stríði loknu tók við lokunSovétríkjanna og ófrelsi íbú-
anna, sem síðan hefur verið losað
um. Vonandi fá allir íbúar fyrrver-
andi Sovétríkja til allrar framtíðar
að njóta ávaxta sigursins yfir nas-
istum með frelsi, lýðræði og vel-
megun.
Margt annað áhugavert var ritaðum þessi tímamót um helgina
og má þar nefna ágæta umfjöllun
Atla Steins Guðmundssonar blaða-
manns á mbl.is um frelsisdaginn,
frigjøringsdagen, í Noregi. Þar var
meðal annars rifjuð upp hetjuleg
andspyrna Norðmanna, en líka sú
staðreynd að um 16.000 Norðmenn
voru á lista grunaðra landráða-
manna eftir stríðið.
Quisling er auðvitað þeirra þekkt-astur, en hann var fjarri því
einn um að falla fyrir mannvonsk-
unni sem lagði undir sig Noreg og
stóran hluta Evrópu. Um leið og sig-
ursins er minnst er gott að minnast
þess hve margir lögðust á sveif með
illskunni, jafn augljóst og eðli henn-
ar var. Það er ekki síst mikilvægt að
draga lærdóm af þeirri óhugnan-
legu staðreynd.
Margs að minnast
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Þriðja árs leiklistarnemar við
Borgarholtsskóla setja upp leik-
verkið Yngismeyjar í dag klukkan 17
og 19. Um er að ræða lokaverkefni
nemendanna, en verkið er byggt á
skáldsögunni Little Women eftir
Louisu May Alcott frá árinu 1868.
Kórónuveirufaraldurinn hefur gert
nemendunum erfitt fyrir við upp-
setningu leikverksins, enda hefur
kennsla í framhaldsskólum landsins
að mestu farið fram með rafrænum
hætti síðan 23. mars. Sýningarnar
fara fram í Elliðaárdalnum og eru
áhorfendur hvattir til að klæða sig
eftir veðri og taka með sér teppi og
tjald- eða klappstóla á sýninguna.
Little Women segir frá ástum og ör-
lögum March-systranna Jo, Beth,
Amy og Meg á tímum borgarastyrj-
aldarinnar í Bandaríkjunum. Sagan
hefur verið færð oftar en einu sinni á
hvíta tjaldið ásamt því að gerðir hafa
verið sjónvarpsþættir.
Sýningin Yngismeyjar
undir berum himni
Morgunblaðið/Sigurður Unnar
Leiklist Nemendur Borgarholtsskóla við æfingar á Yngismeyjum.
Skipulagsstofnun hefur fallist á
umleitan Stofnfisks um stækkun
fiskeldis við Vogavík með skil-
yrðum sem til sendur að fjalla um
í frummatsskýrslu.
Stofnfiskur óskaði eftir því að
stækka fiskeldið í allt að 450
tonna framleiðslu, en núverandi
afkastageta fyrirtækisins er 300
tonn. Meginhluti framleiðslunnar
er laxahrogn en einnig laxa- og
hrognkelsaseiði.
Í umsögn Skipulagsstofnunar
kemur fram að leitað hafi verið
umsagna hjá Sveitarfélaginu Vog-
um, Fiskistofu, Heilbrigðiseftirliti
Suðurnesja, Matvælastofnun,
Minjastofnun Íslands, Náttúru-
fræðistofu Íslands, Orkustofnun
og Umhverfisstofnun.
Í umsögninni kemur m.a. fram
að þörf sé á að tryggja upp-
sprettu ferskvatns til vinnslunnar
ef af stækkun verði.
Þá þurfi að meta ólík áhrif út-
færsla á frárennsliskerfi frá
vinnslunni auk þess sem Nátt-
úrufræðistofnun Íslands og Um-
verfisstofnun benda á að stækk-
unin nái til 0,25 ha svæðis á
nútímahrauni sem njóti sér-
stakrar verndar. Fjalla þurfi
um áhrif framkvæmdarinnar á
jarðmyndanir umhverfis vinnsl-
una.
vidar@mbl.is
Samþykkja stækkun gegn skilyrðum
Stofnfiskur hefur uppi áform um stækkun vinnslunnar um 150 tonn
Stofnfiskur Stækkun stendur til.