Morgunblaðið - 11.05.2020, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.05.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2020 Jónhildur Halldórs- dóttir, fyrrverandi forstöðulífeindafræð- ingur á Landspítala (Borgarspítala) og hjúkrunarfræðingur, lést á heimili sínu laugardaginn 9. maí á áttugasta og sjötta aldursári. Jónhildur fæddist á Húsavík 30. septem- ber 1934, dóttir Hall- dóru Gunnarsdóttur, húsmóður og verka- konu, og Halldórs Ei- ríks Jónssonar, námu-, hafnar- og vegavinnu- verkamanns, er var síðast farsæll bæjarpóstburðarmaður. Jónhildur útskrifaðist frá Hjúkrunarkvennaskóla Íslands og hélt til Svíþjóðar til hjúkrunar- starfa og sérnáms í lífeindafræði (meinatækni) við sjúkrahús í Gautaborg og Stokkhólmi, og var einna fyrst íslenskra lífeindafræð- inga til að fá opinbera löggildingu. Hún starfaði nokkur ár í Svíþjóð en allan starfsferil sinn þess utan á Íslandi í vel yfir sex áratuga skeið í þágu heilbrigðiskerfisins á Íslandi. Jónhildur hélt áfram að sérmennta sig í lífeindafræði alla tíð og sótti virt al- þjóðanámskeið og ráðstefnur víða um heim. Hún hélt áfram störfum sem hjúkr- unarfræðingur eftir að hún komst á eftir- laun og starfaði fjöl- breytt í íslenska heilbrigðiskerfinu, einkum á næturvöktum. Jónhildur leiðbeindi miklum fjölda verðandi lífeindafræðinga, fræðilega og í starfsnámi, og lagði sig alla fram við að taka á móti er- lendum lífeindafræðingum sem til Íslands komu til starfa; einkum naut hún samskipta við franska líf- eindafræðinga. Eftirlifandi sonur hennar er Halldór Eiríkur Sigurbjörnsson Jónhildarson, cand.jur., M.C.L., LL.M og doktorsnemi um skeið. Andlát Jónhildur Halldórsdóttir Fallist á áfrýjun í deilum um lán Ranglega var sagt í frétt í Morgun- blaðinu á laugardag að Hæstiréttur hefði komist að þeirri niðurstöðu að tveir dómarar við Landsrétt hefðu verið vanhæfir í tveimur málum sem fjölluðu um lögmæti lána í erlendri mynt og að málunum hefði verið vísað aftur heim í hérað. Rétt er að Hæsti- réttur hefur fallist á beiðnir um að dómum Landsréttar í málunum verði áfrýjað til réttarins. Er beðist vel- virðingar á þessum mistökum. Málin hafa verið í gangi fyrir dóm- stólum lengi, en í þeim er m.a. deilt um hvort lán sem tekin voru upp- haflega árið 2005 og önnur lán sem tekin voru árið 2008 til uppgjörs á þeim fyrri hafi verið í erlendum gjald- miðlum eða í íslenskum krónum með ólögmætri gengistryggingu. Í báðum málunum hafði héraðs- dómur komist að þeirri niðurstöðu að Landsbankinn hefði ekki sýnt fram á að hann ætti lögvarðar kröfur í þeim en Landsréttur sneri dómunum við og taldi upphaflegu lánin hafa verið lögmæt lán í erlendum gjaldmiðlum. Meðal þeirra röksemda sem lagðar voru fyrir í málskotsbeiðnunum var meint vanhæfi dómara við Landsrétt. Annars vegar að sami dómari hefði dæmt mál um sama lánssamning fyr- ir bæði héraðsdómi og Landsrétti. Hins vegar að annar dómari hefði starfað sem lögmaður Landsbankans og gætt réttar hans í málum sem vörðuðu sama sakarefni og verið ráð- gefandi fyrir bankann í gengistrygg- ingarmálum. LEIÐRÉTT Landsréttur Málin hafa verið rekin fyrir dómstólum lengi. Viðar Guðjónsson vidargudjons@gmail.com Myndir ljósmyndara Morgun- blaðsins, þeirra Eggerts Jóhannes- sonar og Kristins Magnússonar, voru á meðal þeirra mynda sem valdar voru myndir ársins 2019. Mynd Eggerts var valin um- hverfismynd ársins en mynd Krist- ins íþróttamynd ársins. Ljósmynd Eggerts er af ísjaka, tekin í ís- könnunarleiðangri Landhelgisgæsl- unnar. Í umsögn dómnefndar er ís- jakinn sagður tignarlegur þar sem hann flýtur um í þokunni og að myndin gefi tilfinningu fyrir því sem sé að tapast en einnig fyrir styrk og mikilfengleika náttúr- unnar. Mynd Kristins er af Antoni Sveini McKee þegar hann stingur sér til sund í 50 metra bringusund- skeppni. Er hún sögð í umsögn dómnefndar fanga kjarna íþrótta- ljósmyndunar. „Góð myndbygging á hárréttu augnabliki.“ Valið var tilkynnt á laugardag og voru veitt verðlaun í sjö flokkum. Sigtryggur Ari Jóhannsson fékk verðlaun fyrir fréttamynd ársins af skólafólki að mótmæla aðgerð- arleysi í loftslagsmálum. Aldís Pálsdóttir fékk verðlaun fyrir bestu mynd ársins í tímariti. Heiða Helgadóttir hjá Stundinni var verð- launuð fyrir bestu mynd í flokknum daglegt líf. Er hún af Ragnari Em- ilssyni, skipstjóra á Mána. Eins fékk hún verðlaun fyrir bestu port- rettmynd ársins, sem var af Sif Baldursdóttur. Þá fékk ljósmynd- arinn Golli frá Iceland Review bæði verðlaun fyrir Mynd ársins sem og myndaseríu ársins. Mynd ársins var tekin í vorferð Jöklarannsókna- félags Íslands á Vatnajökul. Í um- sögn dómnefndar segir að myndin sýni á áhrifaríkan og táknrænan hátt loftslagsbreytingar af manna- völdum. Myndasería ársins er úr sömu ferð Jöklarannsóknafélags Ís- lands. Ljósmyndasýning hefst í dag Sjö dómarar völdu 96 myndir á ljósmyndasýningu í ár en alls bár- ust 826 myndir íslenskra blaða- ljósmyndara. Blaðaljósmyndarafélag Íslands var stofnað árið 1976 og starfar innan Blaðamannafélags Íslands. Ljósmyndasýningin Myndir ársins hefur verið haldin síðan árið 1979 og er sögð ein fjölsóttasta ljós- myndasýning landsins ár hvert. Ljósmyndasýningin verður opin í Ljósmyndasafni Reykjavíkur frá og með deginum í dag til 1. júní. Ljósmynd/Golli Ljósmynd ársins Ljósmynd Golla er sögð áhrifarík og táknræn mynd fyrir loftslagsbreytingar af manna völdum. „Myndin sýnir hversu smár maðurinn er í samanburði við náttúruna. Morgunblaðið/Kristinn Íþróttamynd ársins Ljósmynd Kristins Magnússonar, ljósmyndara Morgunblaðsins, þótti skara fram úr í flokki íþróttaljósmynda. Er myndin sögð fanga kjarna íþróttaljósmyndunar. Ljósmyndir ársins heiðraðar Morgunblaðið/Eggert Umhverfismynd ársins Mynd Eggerts Jóhannessonar var tekin í könnunarleiðangri Landhelgisgæslunnar. Þykir hún gefa tilfinningu fyrir því hvað hefur tapast en jafnframt fyrir styrk og mikilfengleika náttúrunnar.  Myndir Eggerts og Kristins þóttu m.a. skara fram úr Myndir ársins » Myndir ársins hafa verið heiðraðar frá árinu 1979. » Ljósmyndarar Morgunblaðs- ins fengu verðlaun fyrir íþróttamynd ársins og um- hverfismynd ársins. Samninganefndir Sambands ís- lenskra sveitarfélaga og sex aðildarfélaga Bandalags há- skólamanna undirrituðu sl. föstudag nýja kjarasamninga. Samningarnir eru sagðir vera í anda Lífskjarasamningsins sem þegar gildir á almennum vinnu- markaði. Samningarnir gilda frá 1. janúar sl. til 31. mars árið 2023. Samninganefnd Sambands ís- lenskra sveitarfélaga hefur nú lokið kjarasamningum við 46 stéttarfélög starfsmanna sveitar- félaganna. Samninganefnd ríkisins og tollvarðafélag Íslands undirrit- uðu í síðustu viku nýjan kjara- samning. Samningar liggja hins vegar ekki fyrir í viðræðum ríkisins og Landssambands lög- reglumanna. Í umfjöllun á vef félags lögreglumanna segir að enn mjakist hægt í samkomu- lagsátt. Síðasti fundur viðræðu- nefndanna 4. maí stóð í tíu klukkustundir. Viðræðum verður haldið áfram en næsti fundur hefur ekki verið bókaður hjá Ríkissáttasemjara. Boðað hefur verið til sátta- fundar í kjaradeilu ríkisins og Félags íslenskra hjúkrunarfræð- inga næstkomandi miðvikudag. Sveitarfélög semja við sex BHM-félög

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.