Morgunblaðið - 11.05.2020, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 11.05.2020, Blaðsíða 29
MENNING 29 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2020 Nánari upplýsingar um sýningartíma á sambio.is SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI SÝND MEÐ ÍSLENSKU OG ENSKU TALI VINSÆLASTA GRÍNMYND ALLRA TÍMA Á ÍSLANDI KOMIN AFTUR Í BÍÓ TIL AÐ KOMA OKKUR Í HLÁTURGÍRINN ! Sigríður Hagalín Björnsdóttir rit- höfundur mælir með listaverkum sem hægt er að njóta innan veggja heimilisins meðan kófið vegna kór- ónuveirunnar stendur yfir. „Samkomu- bannið ætti að vera gósentíð bókaorma, en það virðist valda mörgum of miklu eirðarleysi og innilokunar- kennd til að geta fest hugann við lestur, að ein- hverju leyti vegna takmarkaðra tækifæra til ferðalaga í sumar. Ég legg til að fólk semji í staðinn ferðaáætlun um hillur bókasafnanna úr því að þau hafa verið opnuð, og noti hana til að vitja gamalla eftirlætisbóka. Til dæmis gæti verið sniðugt að taka hálftíma á dag til að lesa ljóð, hálf- tíma í bækur á erlendu tungumáli sem maður er orðinn ryðgaður í, klukkutíma í bækur sem maður var hrifinn af fyrir tvítugt, og svo fram- vegis. Þetta er líka upplagt tæki- færi til að lesa bækur sem maður hefur aldrei gefið sér tíma fyrir áður. Ég mæli með því að fólk endurnýi – eða stofni til nýrra kynna – við breska rithöfundinn John Fowles. Bæði Ástkona franska lautinantsins og The Magus eru dásamlegar skáldsögur, spennandi og leyndar- dómsfullir heimar sem hægt er að gleyma sér í tímunum saman. Margaret Atwood tekst í bókum sínum að fjalla um mögulega fram- tíð mannkyns þannig að þær kallast á við samtíma okkar hverju sinni. Saga þernunnar er auðvitað fræg- ust, en í Oryx og Crake fjallar hún um afleiðingar erfðatilrauna. Uppá- haldið mitt er samt The Blind Assassin, um tvær systur og ástar- samband annarrar þeirra við rót- tækan vísindaskáldsöguhöfund. Suðurafríski nóbelsverðlaunahöf- undurinn Doris Lessing skrifaði líka bráðskemmtilegar vísinda- skáldsögur með bókasafnsþema, það er orðið langt síðan ég las Shik- asta og Briefing for a Descent into Hell, en þær eru á kórónulistanum mínum. Rússnesku stórveldin liggja vel við höggi á tímum samkomubanns, og ég mæli eindregið með Önnu Karenínu eftir Tolstoj. Magnús Ásgeirsson þýddi hana um 1940 ásamt Karli Ísfeld, og þýðingin heldur ótrúlega vel enn þann dag í dag. Líf rússneska aðalsins á 19. öld er líka ágætt móteitur við inni- lokunarkennd. Það er líka gaman að lesa Endastöðina, skáldsögu Jay Parinis um síðustu æviár Tolstojs, sem Gyrðir Elíasson þýddi, og Meistarinn og Margaríta eftir Mikhaíl Búlgakov er til í frábærri þýðingu Ingibjargar Haraldsdóttur. Að lokum mæli ég með Gamla manninum sem las ástarsögur eftir síleska höfundinn Luis Sepúlveda. Hann lést af völdum COVID-19 á dögunum, og fátt er meira viðeig- andi en að heiðra minningu hans með því að lesa þessa stuttu, skrítnu regnskógarsögu.“ Mælt með í kófinu Látinn Luis Sepúlveda. „Gósentíð bókaorma“ Sigríður Hagalín Ádeila Mikhaíl Búlgakov. Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is „Ég skrifaði þessa bók árið 2017 til að skilja eitthvað eftir mig ef ég skyldi svipta mig lífi,“ segir Ólíver Þorsteinsson rithöfundur, sem sendi frá sér persónulega skáldsögu á dögunum, bókina Í hjarta mínu. Ólíver hafði glímt við sjálfs- vígshugsanir daglega í sex mánuði þegar hann hófst handa við skrif- in og segist hafa verið kom- inn á sinn enda- sprett. „Þetta viðfangsefni snertir mig mjög djúpt og marga vini mína svo mér fannst mikilvægt að skrifa um þetta. Ég skoðaði bókina ekki í þrjú heil ár vegna þess að ég treysti mér ekki til þess andlega,“ segir Ólíver. Í desember í fyrra fann hann nægan andlegan styrk til þess að líta aftur á bókina og vinna í henni. Hann ákvað að gefa bókina út hjá eigin forlagi. „Ég vildi ekki að neinn annar hefði réttinn á sögunni því þetta er mín saga.“ Að sögn Ólívers er bókin einlæg saga um togstreituna á milli ham- ingju og þunglyndis, nokkurs konar gamanharmleikur, en í henni leikur tilbúna persónan Ómar Pétursson, 43 ára gamall karlmaður sem hefur tekið ákvörðun um að svipta sig lífi, aðalhlutverk. Óskar endurspeglar í raun þann mann sem Ólíver ímyndaði sér að hann myndi verða þegar honum leið sem verst. „Bókin byrjar þannig að hann segir systkinum sínum frá því að hann ætli sér fyrirfara sér og þau reyna allt sem þau geta til að ýta honum á betri stað,“ segir Ólíver. Mikilvægt að sækja sér aðstoð Foreldrar Ólívers voru klettur hans í gegnum erfiðleikana rétt eins og systkini mannsins. Foreldrar hans fengu hann til að leita sér að- stoðar og segir Ólíver að það hafi skipt sköpum. „Ég náði að opna mig og því meira sem ég talaði um þetta, þeim mun frjálsari varð ég. Ég þurfti ekki að vera í einhverju lokuðu rými fullu af þunglyndi og skömm.“ Spurður hvort það hafi ekki verið erfitt að opinbera svo persónulega sögu segir Ólíver: „Ég er algjörlega berskjaldaður í þessu. Ég segi frá mistökum og hlut- um sem maður myndi ekki vilja opinbera en svo er það líka ákveðið frelsi að geta fyrirgefið sjálfum sér fyrir að líða svona og gera hræðilega hluti.“ Ólíver segir að hann hafi í raun skilið við þennan erfiða kafla í lífi sínu með því að gefa bókina út. „Núna líður mér vel, ég er hraust- ur andlega og ég ætla aldrei að fara aftur á þennan stað sem ég var á þegar ég skrifaði þessa bók.“ Ólíver segir gífurlega mikilvægt að umræðu um geðheilbrigði sé haldið á lofti og bókin sé innlegg í þá umræðu. „Það er svo margt ungt fólk sem og fullorðið fólk sem upplifir þung- lyndi og kvíða daglega. Sumir fara í þennan pakka að gefast upp. Sumir ná að komast frá því en sumir ekki, sem er virkilega sorglegt. Þessi um- ræða verður að vera opinská og er gífurlega mikilvæg.“ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Erfitt Ég skoðaði bókina ekki í þrjú heil ár vegna þess að ég treysti mér ekki til þess andlega,“ segir Ólíver Þorsteinsson um bók sína Í hjarta mínu. „Ég er algjörlega berskjaldaður“  Ólíver Þorsteinsson glímdi við sjálfsvígshugsanir daglega í sex mánuði  Skrifaði bók til að skilja eitthvað eftir sig

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.