Morgunblaðið - 11.05.2020, Síða 16
16 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MAÍ 2020
Smiðjuvegi 4C | 200 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is
HAGBLIKK
Álþakrennur
& niðurföll
Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi
Þær eru einfaldar í uppsetningu
HAGBLIKK
Ryðga ekki
Brotna ekki
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt
silfurgrátt og dökkgrátt
F
yrir nokkrum árum
kom kór Mennta-
skólans við Hamra-
hlíð til Víkur og söng
með okkur messu í
Víkurkirkju á 4. sunnudegi eftir
páska. Það var ógleymanleg stund.
Þar kom fram að sá sunnudagur
hefur latneska yfirskrift sem vísar
til þess sem fjöldi fólks hefur haft
svo mikla ánægju af á meðan sjúk-
dómur af völdum lítillar veiru fer
hamförum um heiminn. Við þurfum
ekki lengi að skoða dagskrá ljós-
vakamiðlanna um
þessar mundir til að
finna í dagskrá þeirra
þetta sem hefur glatt
fólk um allan heim í
einsemdinni sem
fylgir veiruvörnunum.
Yfirskrift þessa um-
rædda sunnudags á
latínu er: Cantate,
sem útleggst á ís-
lensku: Syngið! Fögur
orð á tveimur tungu-
málum, í boðhætti,
sem svo ótal margir
hafa tekið bókstaflega
á öllum öldum. Orðið
„cantate“ er m.a. að
finna í 98. Davíðs-
sálmi þar sem segir:
„Syngið Drottni nýj-
an söng, því að hann
hefir gjört dásemdar-
verk.“
Johann Sebastian
Bach líkt og svo
margir höfundar
kirkjutónlistar tók
þetta alvarlega og
bókstaflega og samdi
dásamlegar kantötur
sem ég veit að margir þekkja vel.
Hann eins og svo margir snillingar
á sviði tónlistarinnar skildi hvernig
tónar og hljómar geta myndað
fagra og heilsteypta lofgjörð og
þökk til Guðs sem kristnir menn
trúa að hafi lagt grunn að lífinu,
hafi mótað því farveg frá öndverðu
eftir eilífri og ótrúlega nákvæmri
reglu, sem um aldir og eilífð mun
hafa sigur yfir hvers kyns óreiðu
líkt og tilburðir litlu veirunnar hef-
ur haft í för með sér.
Og skáldið í Davíðssálmum bætir
við: „Látið gleðióp gjalla fyrir
Drottni, öll lönd, hefjið gleðisöng,
hrópið fagnaðaróp og lofsyngið.
Leikið fyrir Drottni á gígju, á gígju
með lofsöngshljómi, með lúðraþyt
og básúnuhljómi, látið gleðióp
gjalla fyrir konunginum, Drottni.
Hafið drynji og allt sem í því er,
heimurinn og þeir sem í honum
búa. Fljótin skulu klappa lof í lófa,
fjöllin fagna öll saman fyrir augliti
Drottins því að hann kemur til að
ríkja yfir jörðinni, ríkja yfir heim-
inum með réttlæti, yfir þjóðunum
með réttvísi.“
Kristin kirkja hefur sem betur
fer skilið orð skáldsins í Davíðs-
sálminum og auðgað helgihald sitt
með tónlist frá öndverðu, vitandi
vits að orðin ein nægja ekki þegar
vegsama á Guð. Túlkunin á þeim
veruleika sem við nefnum Guð hef-
ur frá ómunatíð fundið sér ótal far-
vegi í lífi og listum mannkynsins og
mun gera áfram.
Stundum heyrum við að kirkjan
sé þreytt stofnun og stöðnuð. Syngi
eldgamla texta við leiðinleg lög.
Sumir vilja breyta og taka upp létt-
ari kirkjusöng og kannski er það
málið, en þá þarf að hafa í huga að
nútíminn er aðeins mínútan sem nú
er að líða.
Hvernig sem við högum söngn-
um í kirkjunni, hvort hann er gam-
all eða nýr skiptir kannski ekki öllu,
heldur hitt að kirkjuhúsið sé staður
þar sem við eigum athvarf og get-
um hvílst í lofgjörðinni til Guðs. Ég
hef oft fundið hvað það er gott að
geta gengið að ein-
hverju vísu í lífinu,
jafnvel eins og það var
í gamla daga, því þá
finn ég ró og nota-
kennd fylla hugann.
Ég kann raunar ekki
að lýsa þessari tilfinn-
ingu en ég þykist vita
að þú kannist líka við
þetta.
Sá sem ann og skil-
ur tónlist finnur vel
hvernig hún snertir
streng í brjóstinu sem
ekkert annað nær að
gera á sama hátt.
Þannig vitnar Guð um
sjálfan sig að mínum
dómi. Þannig vinnur
andi sannleikans
innra með okkur, svo
oft án þess að við ger-
um okkur grein fyrir
því.
Það er gott að
íhuga stundum hvers
vegna við förum í
kirkju eða þá hvers
vegna við gerum það
ekki sé sú reyndin.
Það verður aldrei þannig að allt
sem fram fer í kirkjunni nái eyrum
allra. Stundum skiljum við ekki
textana og predikunin fer stundum
fyrir ofan garð og neðan, stundum
eru sálmarnir þungir og dapurlegir.
Það er engin trygging til fyrir því
að messur séu skemmtilegar. Þær
eru bara eins og þær eru og mér
líður svo ljómandi vel með það.
Í þessu sambandi segi ég stund-
um sögu sem ég heyrði eitt sinn og
ætla að leyfa ykkur að heyra: Ung-
ur maður hitti eitt sinn gamla konu
og sagði við hana eitthvað á þessa
leið: Því miður gat ég ekki farið í
kirkju í gær. Hvað sagði presturinn
í ræðu sinni? - Æ, það man ég ekki
en ræðan var góð, sagði sú gamla. -
Til hvers ertu að fara í kirkju ef þú
manst ekki hvað presturinn segir?
Gamla konan horfði á hann um
stund og sagði svo: - Gerðu mér
svolítinn greiða. Skrepptu með
tágakörfuna þá arna út í læk og
komdu með hana fulla af vatni. -
Ertu galin, það tollir ekki dropi af
vatni í körfunni. - Það er sjálfsagt
satt, mælti gamla konan og brosti, -
en karfan kemur hreinni aftur.
Elsku vinir. Ég man vel hvað tá-
gakarfan mín hreinsaðist við að
hlusta á kórinn úr Reykjavík hér
fyrir nokkrum árum.
Verum dugleg að hlusta á söng-
inn sem streymt er frá kirkjum
landsins í fjölbreyttu helgihaldi
þessara óvenjulegu tíma, frá heim-
ilum fólks, gegnum ljósvakamiðl-
ana og svo víða, og ég er viss um að
tágakörfurnar okkar hreinsast svo-
lítið á meðan.
Gleðin og birtan munu aftur ná
völdum í landinu okkar fallega og
hingað mun brátt hópast fólk úr öll-
um heiminum til að virða fyrir sér
dýrð Guðs og sköpun.
Kirkjan til fólksins
Ljósmynd/HMK
Víkurkirkja að sumri.
Cantate – Syngið!
Hugvekja
Haraldur M.
Kristjánsson
Höfundur er sóknarprestur og
fyrrverandi prófastur í Vík.
srhmk@simnet.is
Haraldur M.
Kristjánsson
Orðið „cantate“
er m.a. að finna
í 98. Davíðs-
sálmi þar sem
segir: „Syngið
Drottni nýjan
söng, því að
hann hefir gjört
dásemdarverk.“
Í október nk. verða
22 ár frá því að Skjár
1 fór með formlegum
hætti í loftið á þáver-
andi örbylgjukerfi,
sem náði yfir Faxa-
flóasvæðið með ein-
hverjum holum. Stöð-
in þótti marka ákveðin
tímamót í sjónvarps-
sögu landsmanna.
Það hefur staðið til
í langan tíma að
endurvekja þessa stöð eins og hún
var hugsuð þá, en önnur verkefni á
þessum langa tíma hafa ávallt ýtt
þessu verkefni til hliðar. Hug-
myndin var ávallt sú að ná beint til
notenda, en tæknin sem þarf til við
að miðla efni beint um snjalltæki
og tölvur er í raun bara nokkuð ný-
tilkomin, hvað varðar aðgengi al-
mennings að slíku allavega.
Í svona útsendingu þarf gíf-
urlega bandbreidd þar sem þús-
undir geta horft í einu án þess að
allt hökti eða hljóð fari úr sam-
bandi við mynd, auk þess að geta
endurvarpað mynd í stærri við-
tæki. Þetta verkefni er nú loksins
komið aftur í gang á eigin vef-
svæði.
Mér hugnast ekki að notast við
IPTV-dreifileiðir símafyrirtækj-
anna um myndlykla vegna þess
þröskulds sem felst í endurgjaldinu
sem krafist er, sem hleypur á mörg
hundruð þúsundum króna á hvert
símafyrirtæki. Þeir sjá ekki það
sem ég sé, ókeypis aðgengi al-
mennings, heldur reka heildsölu
fyrir aðrar stöðvar á dreifikerfum
sínum og selja því aðgengi að við-
skiptavinum sínum. Sé þessi leið þó
farin kallar hún á aðra nálgun,
nefnilega sölu auglýsinga á milli
dagskrárliða, jafnvel inni í dagskrá
eins og þekkist; það er annað og
erfiðara viðfangsefni. Frístöð ber
það varla nema með miklu manna-
haldi.
Í fyrra þóttist ég hafa klárað
þetta verkefni með því að nota app
sem var sérstaklega smíðað erlend-
is fyrir Android og Apple, en metn-
aðurinn yfirtók skynsemina og úr
varð hálfgerður bastarður sem átti
að vera samnefnari fyrir stóra al-
hliða streymisveitu
með fjölbreytt stöð-
vaúrval. Það dæmi
endaði með tapi á alla
vegu en er um leið
dýrmæt reynsla sem
nýtist vonandi inn í
næstu ár. Gömul saga
og ný, kannski hefði
það dæmi gengið í dag
á tímum Covid, hver
veit, en ég ber gæfu
til að geta hætt ef
dæmið er ekki að
virka.
Sjónvarp árið 2020
Hvað varðar svona dæmi í dag
er hreinlega best að setja sig á sér
hillu sem er tóm fyrir. Opið og
ókeypis sjónvarp í línulegri dag-
skrá á fyrir fram ákveðnum tímum
er alls ekki normið í dag og ein-
hver myndi eflaust telja mig brjál-
aðan að reyna þessa nálgun, en
Stan Lee orðaði þetta svo sem
ágætlega þegar hann sagði: Ekki
hlusta á skoðanir úrtölumanna, ef
þú ert með góða hugmynd, fram-
kvæmdu hana. Og Spiderman varð
til.
Að fara í bíó á ákveðnum
sýningartímum er að sjálfsögðu vel
þekkt, bíósalurinn bíður ekki eftir
að þú mætir, heldur þarftu að vera
kominn tímanlega til að geta notið
myndarinnar frá upphafi. Skjáflakk
er ekki í boði svo þú getir notið
myndarinnar þegar þér hentar, af-
hverju? Jú, þetta er ekki Vod-leiga.
Ef þú vilt njóta myndar þegar þér
hentar, farðu þá í Vod-leiguna hjá
Vodafone og leigðu myndirnar mín-
ar, það er rétti markaðurinn fyrir
hliðrænt áhorf.
Hvernig er svo hægt að láta
dæmið ganga upp peningalega gæti
einhver verið að spyrja sig? Jú,
vefstiklur og „smell-auglýsingar“
eru allsráðandi þegar kemur að
spilun efnis á netinu, Skjár 1 þarf
jú að reka sig, þetta kostar allt
saman peninga, en þú færð stiklu
þegar þú smellir á spilarann á
næstunni, ég er bara að byggja
upp smá þekkingu og reynslu við
framsetningu og útsendinguna,
enda sit ég einn og stýri þessu
beint úr „bílskúrnum“ heima.
Ég þýði og texta myndina, smelli
henni í Vod-leiguna og nokkru síð-
ar er hún svo komin í keyrslu á
Skjá 1 sem er einmitt eins og ég
var að útskýra að ofan, að setja sig
á öðruvísi hillu í búðarglugganum,
hillu þar sem frítt er í bíó á fyrir
fram ákveðnum sýningartímum.
Hillu þar sem enginn er fyrir,
hvort þetta er hinn eini sanni „dis-
ruptor“ á sjónvarpsmarkaði árið
2020 skal ósagt látið, það kemur
væntanlega í ljós, en mér finnst
hugmyndin góð.
AVOD er þekkt dreifileið á efnis-
rétti erlendis, hún er ekki til staðar
hér, enn sem komið er, hvað svo
sem síðar verður, þetta er kannski
ein birtingarmynd hennar, en alla-
vega er staðan þessi að þegar ein-
hver fjárfestir í kvikmynd þarf að
vera grundvöllur til að sýna hana
og fá þann aur til baka. Símafyr-
irtækin taka veglega stóran hluta
leigutekna til sín fyrir að veita að-
gengi að viðskiptavinum um Vod-
leigurnar, kvikmyndahúsin vilja
ekki sýna myndir frá öðrum en
sjálfum sér, Stöð 2 og RÚV kaupa
ekki eina einustu mynd og eftir
standa smáir aðilar á markaði sem
koma sínu efni hvergi að og þá er
ekki um annað að ræða en að spýta
í lófana og redda sér sjálfur.
Á næstunni mun sjónvarpsmark-
aðurinn hér taka verulegum breyt-
ingum, Disney Plus er væntanlegt,
þá hverfa fjölskyldur þangað í
breiðan faðm Mikka, HBO Go er
að hugsa sér til hreyfings, Viaplay
er komið og nokkrar aðrar norræn-
ar streymisveitur eru væntanlegar.
Íslenskir efnisrétthafar þurfa að
draga línuna í sandinn og marka
sér sérstöðu. Skjár 1 er að því og
ætlar sér að standa vaktina með
frítt bíó á gömlu sýningartímum
kvikmyndahúsanna frá því fyrir
aldamót, 5, 7, 9, og 11 á netinu og
jafnvel einstaka sinnum á Face-
book. 22 ár eru fljót að líða en eitt
breytist ekki, Skjár 1 er alltaf
ókeypis, þá og nú.
Ný nálgun sjónvarps 2020
Eftir Hólmgeir
Baldursson » Ýmislegt hefur
breyst á síðustu 22
árum.
Hólmgeir Baldursson
Höfundur er áhugamaður
um sjónvarp.
Holmgeir@skjar1.is