Morgunblaðið - 12.05.2020, Blaðsíða 1
Þ R I Ð J U D A G U R 1 2. M A Í 2 0 2 0
Stofnað 1913 111. tölublað 108. árgangur
LÆRDÓMSRÍK
ÁR Í ATVINNU-
MENNSKUNNI
HRYLLILEGA
STUTTAR
HROLLVEKJUR
ÞÚSUND PÍTSUR
SELST FYRSTU
DAGANA
LEIKUR SÉR MEÐ FORMIÐ 28 GENGIÐ VONUM FRAMAR 11KOMNAR Í STJÖRNUNA 26
A
ct
av
is
91
10
13
Omeprazol
Actavis
20mg, 14 og 28 stk.
Magasýruþolin hörð hylki ætluð fullorðnum til
skammtímameðferðar við einkennum bakflæðis
(t.d. brjóstsviða og nábít). Gleypið hylkin í heilu
lagi með hálfu glasi af vatni fyrir mat eða á
fastandi maga. Lesið vandlega upplýsingar á
umbúðum og fylgiseðli fyrir notkun lyfsins.
Leitið til læknis eða lyfjafræðings sé þörf á
frekari upplýsingum um áhættu og auka-
verkanir. Sjá nánari upplýsingar um lyfið á
www.serlyfjaskra.is
Þú getur unnið aftur og aftur í DAS Happdrætti. Með miða
í áskrift færð þú 52 tækifæri á hverju ári til að vinna.
Fornleifauppgröftur vegna vísinda-
rannsókna verður á að minnsta kosti
átta stöðum víðs vegar landinu í vor
og sumar. Þetta eru nær allt fram-
haldsrannsóknir frá síðustu árum.
Að auki stendur yfir viðamikill upp-
gröftur á baklóð Stjórnarráðshúss-
ins í Reykjavík vegna fyrirhugaðrar
nýbyggingar þar.
Samkvæmt upplýsingum frá
Minjastofnun eru rannsóknirnar
sem nú hafa fengið styrki og leyfi á
miðaldabýli á Mýrdalssandi, minjum
frá landnámsöld á Stöðvarfirði, forn-
skála á Auðkúlu, öskuhaugum í
Þjórsárdal, rústum í Ólafsdal, land-
námsminjum í Sandvík, bæjarstæð-
inu í Árbæjarsafni og skála við Hofs-
staði í Mývatnssveit.
Fleiri leyfi kunna að verða veitt á
næstu vikum. »14
Morgunblaðið/Valdís Thor
Rannsóknir Unnið verður við upp-
gröft fornleifa á nokkrum stöðum.
Uppgröftur
fornleifa á
níu stöðum
Landfestar varðskipsins Óðins voru leystar í gær
áður en siglt var úr Reykjavíkurhöfn í fyrsta
skipti í meira en áratug. Óðinn var tekinn í
notkun fyrir 60 árum og tók þátt í þremur þorska-
stríðum. Skipið er nú hluti af sýningu Sjóminja-
safnsins í Reykjavík og er án efa einn stærsti safn-
gripur landsins. Undanfarin ár hafa eldri
vélstjórar dyttað að vélum Óðins og reyndust þær
í góðu lagi á siglingu um Sundin í gær. »4
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Einn stærsti safngripur
landsins sigldi úr höfn
Ragnhildur Þrastardóttir
ragnhildur@mbl.is
Orlofsdögum flugmanna Icelandair
verður fækkað um allt að fimm og
laun þeirra verða ekki hækkuð árin
2021 og 2022. Tillögur um þetta eru á
meðal þess sem fulltrúar Icelandair
hafa borið á borð í kjaraviðræðum við
samninganefnd Félags íslenskra at-
vinnuflugmanna (FÍA), samkvæmt
heimildum Morgunblaðsins.
Flugfreyjur þurfa að bíða lengur
eftir launahækkunum ef tillögur flug-
félagsins um breytingar á kjara-
samningi þeirra ná fram að ganga, en
Icelandair leggur til að laun flug-
freyja verði ekki hækkuð fyrr en í
október 2023. Laun þeirra hafa ekki
hækkað síðan í maí 2018. Ef gert er
ráð fyrir hóflegri verðbólgu gæti ver-
ið um 13% kaupmáttarrýrnun að
ræða fyrir flugfreyjur á tímabilinu.
Icelandair leggur einnig til að flug-
freyjur fái eingreiðslu upp á 202.000
krónur en hún er háð því skilyrði að
af hlutafjárútboði verði.
Bæta við sig einu Evrópuflugi
Flugfélagið leggur til að föst laun
flugmanna, sem og 2% launahækkun
fyrir 60 ára og eldri, muni ekkert
breytast. Hið sama má segja um
desember- og orlofsuppbót.
Þá leggur Icelandair til að flug-
menn muni geta gengið að einu
helgarfríi vísu mánaðarlega í stað
eins og hálfs helgarfrís í mánuði og
tveggja helgarfría þriðja hvern mán-
uð. Svipaðar breytingar eru lagðar til
fyrir nýjan kjarasamning flugfreyja.
Í tillögum flugfélagsins felst að nú-
verandi kaupaukakerfi flugmanna,
sem byggir meðal annars á elds-
neytisnýtingu, verði skipt út fyrir
kerfi sem byggir á arðsemi sam-
steypunnar Icelandair Group.
Markmið þeirra breytinga sem
Icelandair leggur til á kjarasamningi
flugmanna er samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins að fjölga meðalflug-
tímum flugmanna um það sem nemur
ígildi eins viðbótar Evrópuflugs mán-
aðarlega.
Þannig leggur Icelandair til að úr
kjarasamningnum verði felld ákveðin
ákvæði um hámarksflugtíma, ákvæði
um auka tveggja klukkustunda
hvíldartíma þegar hvíld er tekin í
heimahöfn og ákvæði sem segir að
bæta skuli við hvíldartíma tímamis-
mun milli þeirra staða þar sem áhöfn
fær hvíld og tók síðast hvíld. Sömu-
leiðis hefur Icelandair lagt til að
kveða megi flugmann fyrr til starfa
daginn eftir frídag en leyft hefur ver-
ið til þessa.
FÍA hefur greint frá því opinber-
lega að flugmenn séu tilbúnir að taka
á sig 25% hagræðingu. Þær breyting-
ar á kjarasamningnum sem Icelanda-
ir hefur lagt til rúmast innan þess
svigrúms, samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins.
Frídögum fækki og laun fryst
Tillögur Icelandair í kjaraviðræðum Laun flugfreyja standi lengur í stað
MVilja betri nýtingu flugáhafna »2