Morgunblaðið - 12.05.2020, Side 12

Morgunblaðið - 12.05.2020, Side 12
12 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 Smiðshöfða 9, 110 Rvk. logoflex@logoflex.is 577 7701 www.logoflex.is Skiltagerð Ljósaskilti, álskilti, umferðarmerki LogoFlex sérhæfir sig í framleiðslu skilta, prentunum og smíði úr plasti ásamt efnissölu á plexigleri og álprófílum 12. maí 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 146.19 Sterlingspund 180.96 Kanadadalur 104.8 Dönsk króna 21.246 Norsk króna 14.298 Sænsk króna 14.869 Svissn. franki 150.5 Japanskt jen 1.3746 SDR 199.38 Evra 158.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 190.8347 Hrávöruverð Gull 1688.65 ($/únsa) Ál 1450.0 ($/tonn) LME Hráolía 29.6 ($/fatið) Brent ● Landsbankinn og Seðlabanki Ís- lands hafa komist að samkomulagi um veitingu viðbót- arlána sem fyrir- tæki, sem orðið hafa fyrir verulegu tekjutapi vegna út- breiðslu kórónu- veirunnar, geta sótt um að til- teknum skilyrðum uppfylltum. Er lán- unum ætlað að gera fyrirtækjum kleift að sækja aukið laust fé og forðast þar með rekstrarvanda sem þau að öðrum kosti hefðu lent í. Með lánunum er ætl- unin að draga úr áhrifum af útbreiðslu faraldursins á atvinnulíf og atvinnustig í landinu. Ríkisábyrgð af lánunum getur numið allt að 70% af höfuðstóli lán- anna. Í tilkynningu frá Landsbankanum er haft eftir Lilju Björk Einarsdóttur bankastjóra að bankinn hafi frá upphafi faraldursins lagt áherslu á að koma til móts við og aðstoða fyrirtæki sem lent hafi í vanda vegna faraldursins. „Með samningnum við Seðlabankann um veitingu viðbótarlána geta fyrirtæki sem uppfylla skilyrðin fengið enn frek- ari aðstoð sem getur reynst mikilvæg við þessar erfiðu aðstæður.“ Gera samning um veitingu viðbótarlána Lilja Björk Einarsdóttir STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Gríðarleg aukning hefur orðið í sölu á veiðivörum í versluninni Veiðihorninu á síðustu vikum, miðað við sama tíma í fyrra. Ólafur Vigfússon, annar eig- enda verslunarinnar, segir að seinni- partinn í apríl hafi margir dagar verið eins og júlídagar í venjulegu árferði, en júlí er jafnan söluhæsti mánuður ársins hjá Veiðihorninu. Ástæðan fyrir söluaukningunni er að stærstum hluta sú að nú þegar stefnir í að fólk geti ekki ferðast til út- landa í sumar, vegna kórónuveirufar- aldursins, leitar það í auknum mæli í afþreyingu innanlands eins og sport- veiði. Eins og Ólafur nefnir gerðist það sama eftir hrun 2008, en þá varð einnig mikil söluaukning á veiði- vörum. Næstu tvö sumur á eftir, sumrin 2009 og 2010, ferðaðist fólk að mestu innanlands, og stundaði veiðar af kappi í íslenskum ám og vötnum. „Þetta er mikil sprenging í sölu. Birgðastaðan hefur lækkað verulega en við eigum þó enn nóg fyrir alla. Það spilar inn í að flutningaleiðir eru orðn- ar stopulli, og það tekur því lengri tíma að fá vörur til landsins,“ segir Ólafur, en vörur verslunarinnar eru pantaðar hvaðanæva úr heiminum, frá Bandaríkjunum, Evrópu og Asíu. Þrýstingur á verðhækkanir Ólafur segir að árið 2009 hafi orðið mikil sölusprenging í ódýrari vörum, en nú seljist bæði ódýrar vörur og þær sem eru dýrari og vandaðari. „Það selst mikið af ódýrum fjöl- skylduvænum vörum eins og kast- veiðisettum. Þá er mikil aukning í sölu á vöðlum.“ Ólafur telur að ein ástæða mikillar sölu síðustu daga sé að þrýstingur sé kominn á verðhækkanir í samfélaginu vegna mikillar veikingar krónu á árinu, og fólk vilji kaupa vörur á „gamla genginu“. „Við höfum haldið að okkur höndunum í verðhækkun- um, og lagt áherslu á það í markaðs- málum okkar. En það er óumflýjan- legt að verð hækki þegar líða fer á sumarið, um kannski 15-20%.“ Bensínið stigið í botn Veiðihornið hefur ekki farið þá leið að minnka starfshlutfall starfsmanna eins og mörg fyrirtæki hafa gripið til vegna kórónuveirunnar, og hefur þvert á móti fjölgað starfsmönnum. „Við veltum fyrir okkur hlutabótaleið- inni og öðru slíku í lok mars, en ákváðum frekar að stíga á bensíngjöf- ina og auglýsa meira. Það svínvirkar. Hér vinna allir 100% vinnu, og við höf- um fjölgað starfsfólki,“ segir Ólafur. Verslanirnar eru tvær og starfs- menn fimmtán talsins, allt þrælvanir veiðimenn, eins og Ólafur útskýrir. „Starfsfólkið getur allt gefið við- skiptavinum góð ráð um réttan búnað og góða veiðistaði.“ Ólafur segist hafa orðið var við mörg ný andlit í hópi viðskiptavina, og talsvert sé af ungu fólki um tvítugt, körlum, konum og pörum. Hann segir að það sé afar ánægjulegt og gefandi. Líklega verður lítið um erlenda við- skiptavini í búðinni í sumar að mati Ólafs. Hann telur að það komi þó ekki að sök, íslenskir viðskiptavinir fylli það skarð. Gríðarleg aukning hefur orðið í sölu á veiðivörum Morgunblaðið/Árni Sæberg Sport Ólafur Vigfússon hjá Veiðihorninu segir að íslenskir viðskiptavinir muni koma í stað erlendra í sumar. Veiði » Fimmtán starfa hjá Veiði- horninu, í tveimur versl- unum. » Verslunin hefur bætt við sig fólki undanfarið og allir eru í 100% starfi. » Stefnir í verðhækkun upp á 15-20% síðla sumars vegna gengislækkunar krónu. » Mörg ný andlit og ungt fólk í versluninni. » Sú ákvörðun að auglýsa meira hefur skilað árangri.  Fólk hyggur á veiðiferðir innanlands í sumar  Vöðlur og kastveiðisett vinsæl Íslenska nýsköpunarfyrirtækið Geo- Silica, sem nýtir affallsvatn frá Hellisheiðarvirkjun til framleiðslu kísilsteinefna, hefur hlotið styrk úr Norræna verkefnaútflutningssjóðn- um (Nordic Project Fund) til þess að sækja inn á markaði utan Evrópu- sambandsins með vörur sínar. GeoSilica hefur um nokkurra ára skeið boðið vörur sínar íslenskum neytendum en frá árinu 2018 hefur fyrirtækið sótt inn á erlenda mark- aði, m.a. í Þýskalandi, Kína og Ástr- alíu. Eiga forsvarsmenn fyrirtækis- ins nú í viðræðum við mögulega samstarfsaðila víðar, m.a. í Banda- ríkjunum. Fida Abu Libdeh, framkvæmda- stjóri og stofnandi GeoSilica, fagnar stuðningi sjóðsins og segir að í hon- um felist viðurkenning á mikilvægi þess að leita sjálfbærra lausna á matvöru og næringarefnum. „Þetta er hvatning fyrir okkur að halda áfram að gera það sem okkur þykir vænt um fyrir heilsuna og um- hverfið,“ segir hún. Norræni verkefnaútflutnings- sjóðurinn styrkir fyrirtæki sem not- ast við grænar lausnir í sókn inn á al- þjóðlega markaði utan evrópska efnahagssvæðisins. Lítil og meðal- stór fyrirtæki geta sótt í sjóðinn. Hann var settur á laggirnar árið 1982 og er ætlað að styrkja sam- keppnishæfni norrænna fyrirtækja á alþjóðlegum mörkuðum. Hann er fjármagnaður með framlögum frá Norræna ráðherraráðinu en dagleg- ur rekstur hans er í höndum Nor- ræna umhverfisfjármögnunarfélags- ins (NEFCO). Morgunblaðið/RAX Geo Silica Fida Abu Libdeh stofnaði fyrirtækið með Burkna Pálssyni 2012. Hyggst sækja á Ameríkumarkað  GeoSilica fær styrk frá Nordic Project Fund

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.