Morgunblaðið - 12.05.2020, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 12.05.2020, Qupperneq 17
UMRÆÐAN 17 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 Vel tókst til við að ráða við fyrstu bylgju COVID-faraldurs á Ís- landi með snöggum og hörðum aðgerðum. Má ætla að undirbúnings- vinna almannavarna og heilbrigðisyfirvalda síðustu 15 ár í áætl- anagerð og æfingar við náttúruhamförum og hamfaraveikindum hafi skilað þessum frábæra árangri. Íslenska þjóðin líður núna fyrir skort á undirbúningi, skipulagi og samhæfingu efnahagsaðgerða. Hvert er tjónið? Viðskiptaráð gerir ráð fyrir að landsframleiðsla minnki um 13% 2020 og landsfram- leiðsla verði 1.120 milljörðum lægri en áður var áætlað 2020-2021. Ef forsendur Viðskiptaráðs standast ekki, þá gera neikvæðar forsendur þeirra ráð fyrir að hagvöxtur drag- ist saman um 20% árið 2020 og það verði hægur bati næstu ár. Þetta þýðir samtals 2.705 milljörðum króna lægri þjóðarframleiðslu eða sem nemur rekstri Landspítalans í 38 ár. Þetta þýðir að núverandi for- sendur fjárlaga, forsendur lífs- kjarasamninga, rekstrarlegar for- sendur atvinnulífsins og væntingar almennings standast ekki. Versta sviðsmyndin væri ef ríkið örvaði ekki hagkerfið og önnur at- vinnustarfsemi hægði líka á sér og við lentum í vítahring mjög slæmr- ar kreppu. Seðlabanki Englands varar við að án mikillar örvunar hagkerfisins þar í landi geti þessi COVID-kreppa orðið sú versta í 300 ára sögu Seðlabanka Englands. Staðan er því sú að við erum komin í efnahagskreppu. Efnahags- horfur eru slæmar. Skaðinn er: lægri tekjur ríkis- sjóðs, lægri tekjur sveitarfélaga, að minnsta kosti 50.000 atvinnulausir, lægri tekjur flestra fyrirtækja, eða engar tekjur fyrirtækja í ferða- eða flugþjónustu. Meta má að skaðinn sé sá kostnaður sem þarf að brúa til að halda þjóðfélaginu gangandi og lágmarka skaðann af COVID- kreppunni. Hvað er til ráða? Stóra spurn- ingin er: hvernig deilum við þessum skaða? Hver borgar? Ef atvinnulífið þarf að taka þetta áfall á sig þá fara mörg fyrirtæki í gjald- þrot og kreppan versnar. Ef ríkissjóður er ekki notaður til að vinna á móti krepp- unni sem við erum komin í, þá versnar kreppan. Einkaneysla 2019 var 50,8% af landsframleiðslu, al- menningur hefur dreg- ið saman einkaneyslu vegna óvissu um framhaldið hvað varðar fram- færslu sína og heilsu. Ríkissjóður getur haldið uppi einkaneyslu, að minnsta kosti að hluta til, með því að tryggja framfærslu. Örva þarf innlenda eftirspurn. Til að komast út úr kreppunni eða að minnsta kosti minnka neikvæð áhrif hennar þarf ríkissjóður að tryggja lág- marksframfærslu þeirra sem ekki hafa atvinnu, bæta þarf þeim við í atvinnuleysiskerfið sem falla utan núverandi atvinnuleysiskerfis. Gera má ráð fyrir að það taki nokkur ár að komast á sama stað hvað varðar fjölda atvinnulausra og var í desember 2018 en þá voru 5.299 manns atvinnulausir [Vinnumála- stofnun]. Kostnaður ríkissjóðs vegna at- vinnuleysisbóta til 50.000 manns fram á sumar 2021 og vonandi minna atvinnuleysi í framhaldi gæti kostað ríkissjóð 2020-2021 allt að 300 ma. Kostnaður ríkissjóðs vegna ým- issa sértækra aðgerða á ýmsum áskalistum og stuðnings við sveit- arfélög gæti numið allt að 100 milljörðum á árunum 2020-2021. Kostnaður ríkissjóðs vegna beinna styrkja til fyrirtækja í ferðaþjónustu og þeirra sem var gert að hætta eða minnka starf- semi, með lágmarkskostnaði þar til þessir aðilar geti haldið úti starf- semi sinni eftir að hafa aðlagað sig að lægri tekjum; fljótt á litið má áætla þennan kostnað 100 ma. svo þau verði rekstrarhæf sumarið 2021. Kostnaður ríkissjóðs við að veita atvinnulífinu beina styrki í gegnum nýtt dótturfélag Seðlabanka Ís- lands, eins og Seðlabanki Banda- ríkjanna og fleiri landa gerir, sem kemur út eins og fyrirtækin hefðu keypt eftir á rekstrarstöðvunar- tryggingar; þetta gæti kostað ríkis- sjóð 2020-2021 allt að 200 ma. Þá ætti ríkissjóður líka að veita bein langtímalán til fyrirtækja í gegnum sama feril, líkleg upphæð 400 ma. Þetta yrði gert, ekki í gegnum bankakerfið eins og núverandi hug- myndir eru með 80% ríkisábyrgð, heldur 100% ríkisábyrgð. Mark- miðið væri að staða fyrirtækjanna / atvinnulífsins í lok 2021 væri nægi- lega góð til að viðskiptabankarnir gætu veitt þessum viðskiptavinum sínum venjulega fyrirgreiðslu. Kostnaður ríkissjóðs vegna fjölg- unar starfa í nýsköpunarfyrir- tækjum með styrkjum. Mögulegt ætti að vera að fjölga störfum um 10.000 á 3 árum. Kostnaður ríkis- sjóðs í formi styrkja væri um 200 ma. Tekjur ríkissjóðs lækki um að minnsta kosti 400 ma. 2020-2021. Þrátt fyrir það ættu ríki og sveitar- félög að halda úti sömu starfsemi 2020-2021. Samtals gerir þetta 2020-2021 um 900 ma. í bein ríkisframlög til atvinnulífsins, 400 ma. til að halda áfram óbreyttum rekstri ríkissjóðs og 400 ma. í lán til atvinnulífsins, til að brúa þau í gegnum kreppuna. Þetta verði fjármagnað með því að ríkið fái 300 ma. til baka 2020-2021 með venjulegri skattheimtu [tekju- skattar og virðisaukaskattur sem komi til vegna aukinnar veltu í samfélaginu], ríkið lækki eigið fé ríkisbankanna um 300 ma. strax og selji svo ríkisbankana 2023-2025 fyrir 400 ma. Það sem eftir stendur verði fjármagnað með lántöku ríkissjóðs. Örvi ríkið ekki hagkerfið í þess- ari COVID-kreppu lendum við í enn verri kreppu, eins og gerðist eftir 2008. COVID, lækning hagkerfisins Eftir Holberg Másson » Vel tókst til að ráða við fyrstu bylgju COVID-faraldurs á Ís- landi með snöggum og hörðum aðgerðum. Holberg Másson Höfundur er framkvæmdastjóri. Það sem öðru frem- ur skilur borgir frá bæjum hvar sem er í heiminum er það menningarlíf sem þar þrífst. Og forsenda blómlegs menningar- lífs er ekki veraldlegt ríkidæmi samfélagsins – fyrirtækjanna, ein- staklinganna eða sveitarfélagsins held- ur sameiginleg hug- mynd um mikilvægi þess að leggja rækt við menninguna. Slíkir inn- viðir eru til marks um ákveðið hug- arfar íbúanna og fela í sér kröftuga yfirlýsingu af þeirra hálfu um hvers konar samfélag það er sem þeir vilja byggja upp. Sinfóníuhljómsveitir, leikhús og listasöfn eru kennileiti í hinu menn- ingarlega landslagi. Fjallstindar sem klífa má til að njóta útsýnis og skógar þar sem finna má skjól fyrir hinum hversdagslega næðingi. Þetta er hin raunverulega ástæða þess að borgir kappkosta að styðja við listastarfsemi. Ekki má þó gleyma hinum hversdagslega ábata sem er af slíkri starfsemi. Kalla þarf sérfræðinga til starfa, hvort sem þar eru listamenn, tæknifólk eða rekstraraðilar. Afurðirnar fara líka út í samfélagið, fólk fer í leik- hús og á tónleika og hjól atvinnu- lífsins snúast. Menningarmiðstöðin Akureyri Sinfóníuhljómsveit Norðurlands (SN) er önnur sinfóníuhljómsveitin sem verður til á Íslandi sem rekin er fyrir opinbert fé. Ef til vill sýn- ist einhverjum að hún hafi orðið til svo til áreynslulaust, næstum eins og grasið sem grær á vorin. Hið rétta er þó að þar liggur að baki mikil og óeigingjörn vinna fjölda fólks allt frá stofnun hennar. Árið 2015 hóf SN að hlúa að kvikmynda- tónlistarverkefninu SinfoniaNord. Frá þeim tímamótum hefur hljóm- sveitinni vaxið fiskur um hrygg á nýjan og sjálfstæðan hátt, án þess að reiða sig um of á opinbera styrki. Akureyrarbær og menntamála- ráðherrar hafa af stórhug stutt myndarlega við bakið á SN frá upphafi. En við aukin umsvif hljómsveitarinnar vegna aukinnar eftirspurnar frá almenningi og al- þjóðlega kvikmynda- og viðburða- iðnaðinum eru barnafötin tekin að þrengja að unglingnum. Til að sinna skyldum sínum og stefnu um að halda eina tónleika á mánuði yfir vetrartímann ásamt skólatónleikum og halda hljóm- sveitinni í æfingu fær hljómsveitin styrk sem leyfir að öðru jöfnu að- eins um þrenna meðalstóra sinfón- íutónleika á ári. Það er ljóst að það dugar ekki til að reka atvinnu- sinfóníuhljómsveit þó að hljóðfæra- leikarar hennar séu allir atvinnu- tónlistarmenn. Raunin er að hún sinnir fimmtán til þrjátíu stærri og minni verkefnum á ári hverju. SN tekst það með því að sérhæfa sig í upptökum á sinfónískri kvikmynda- tónlist í Hofi á Akureyri og með því að leigja út þjónustu sína til ann- arra tónleikaframleiðenda. Þannig býr SN sér og samfélaginu tekjur og meðlimum sínum reynslu og hæfni með aukinni tíðni verkefna. Sérstaða SN Gott dæmi um slík verkefni var nýverið þegar SN gat ein sinfóníuhljómsveita í heiminum á tímum Covid-faraldursins tek- ið að sér verkefni frá kvikmyndarisanum Netflix. Á sama tíma og allt tónleikahald liggur niðri, skólahald í lágmarki og þúsundir manna eru að missa vinnu sína fengu um sextíu tón- listarmenn, hljóðmenn og sviðs- stjórar aukavinnu við tvær stór- myndir fyrir Netflix. Ókostirnir við þetta fyrirkomulag eru að SN þarf stanslaust að leita sér viðbótartekna með því að grípa gæsir sem gefast og því ekki á vís- an að róa varðandi reglubundið tón- leikahald. Hljómsveitin hefur ekki fjárhagslegt bolmagn til að stunda reglubundnar æfingar, en þær eru nauðsynlegar til þess að sjötíu manns geti leikið saman sem ein heild á vandaðan listrænan hátt. Kostirnir Kallað er eftir því við hið háa Al- þingi að það styrki þessa ungu sin- fóníuhljómsveit með nægilegu fjár- magni til að sinna stofnskrár- bundnu hlutverki sínu. Til yrði fjöldi starfa og iðandi mannlíf sem gerir listafólki á Íslandi kleift að iðka list sína utan höfuðborgar- svæðisins. Drjúgur hluti fjármagns- ins mun skila sér aftur í gegnum aðskiljanleg opinber gjöld lista- mannanna og nýjar menningar- afurðir verða til, sem aftur eykur tekjur. Slíkur styrkur myndi hleypa enn meiri krafti í sjálfstæða starfsemi SN, þ.e. kvikmyndatónlistarverk- efnið SinfoniaNord, en tekjur þess eru oftast í formi gjaldeyris. Myndarleg fjárveiting til SN mun stuðla að meiri fjölbreytni í at- vinnulífi Norðurlands eystra því rekstur sinfóníuhljómsveitar fjölgar afleiddum störfum. Þar má nefna hljóðtæknimenn, ljósamenn, sviðsstjóra, upptöku- stjóra, sem og hótelrekstur, sam- göngufyrirtæki og veitingahús, að ógleymdum um áttatíu hljóðfæra- leikurum. SN auglýsti eftir hljóð- færaleikurum á verktakasamning árið 2017 og eitt hundrað manns sóttu um, slíkur er áhuginn og þörf- in. Almenningur í landinu hefur líka kveðið upp sinn dóm því árum sam- an hefur nánast alltaf verið hús- fyllir á tónleikum SN. Hugsum stórt og sköpum raun- verulegar forsendur fyrir atvinnu- sinfóníuhljómsveit á Akureyri. Akureyri þarf atvinnusinfóníu- hjómsveit Eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson » SN tekst það með því að sérhæfa sig í upptökum á sinfónískri kvikmyndatónlist í Hofi á Akureyri og með því að leigja út þjónustu sína Höfundur er tónskáld og fram- kvæmdastjóri kvimyndatónlistar- verkefnisins SinfoniaNord í Hofi á Akureyri. tod@mak.is Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.