Morgunblaðið - 12.05.2020, Qupperneq 21

Morgunblaðið - 12.05.2020, Qupperneq 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 ✝ Guðbjörg JónaJónsdóttir fæddist í Reykja- vík 8. mars 1935. Hún lést á Sjúkra- húsinu á Selfossi 27. apríl 2020. Foreldrar Jónu voru Jón Jóhanns- son, f. 1911, d. 1967 og Ingvör Anna Guðbjörns- dóttir, f. 1911, d. 1965. Systkini Jónu voru: Jóhann Hafliði Jónsson, f. 1930, d. 1998, Sigríður Erla Jónsdóttir, f. 1933, d. 1999, Gunnar Jónsson, f. 1938, d. 1991, Ingibjörg Jónsdóttir, f. 1943 og Gísli Sigurður Jóns- son, f. 1945, d. 2013. Ingibjörg lifir systkini sín. Jóna eignaðist Önnu Bryn- hildi Bragadóttur árið 1953 með Braga Sigfússyni, f. 1935, d. 2003. Maki hennar er Guð- jón Ingvi Jónsson. 7. ágúst 1954 giftist hún Konráði Ragnari Sveinssyni og eignaðist með honum 5 börn: Kristínu Konráðsdóttur, f. 1955, maki hennar var Krist- ján Ólafur Kristjánsson, f. 1958, d. 3. maí 2020, Svein Konráðsson, f. 1957, d. 2004, Svanhvíti Konráðsdóttur, f. 1958, maki hennar er Ingvar Grétar Ingvarsson, Konráð Ragnar Konráðsson, f. 1962, maki hans er Sigríður Guð- brandsdóttir, Arnar Konráðs- son, f. 1971, maki hans er Dav- id Andrew Laski. Synir Önnu og Guðjóns eru Sævar Örn Guðjónsson, f. 1969 og Hrafn Leó Guðjónsson, f. 1978. Sævar er kvæntur Önnu Vilborgu Sölmundardóttur, saman eiga þau Guðjón Kára og Brynhildi Ásu. Sævar hafði áður eignast Unu Rós. Hrafn Leó er kvæntur Örnu Rún Ses- arsdóttur og eiga þau saman Bergrúnu Emblu og Kristófer Cesar. Áður eignaðist Hrafn Aron og Ásdísi Maríu. Kristín og Krist- ján eiga dótturina Margréti Krist- jánsdóttur, maki hennar er Andreas Andersen og búa þau í Noregi. Fyr- ir átti Kristín Evu Björgu Sigurð- ardóttur. Maki Evu er Finnur Björn Harðarson og eiga þau börnin Daníel Arnar, Hildi Elvu, Atla Má og Kristínu Ástu. Sveinn eignaðist 3 syni með fyrrverandi eiginkonu sinni, Hafdísi Kristinsdóttur, en þeir eru: Konráð Ragnar Sveinsson, f. 1980 sem á 2 syni með fyrr- verandi eiginkonu,Tinnu Garð- arsdóttur, þá Svein og Garðar Loga. Maki Konráðs er Fanný Norðfjörð. Gunnar Örn Sveins- son, f. 1983, á þrjú börn með konu sinni Söru Kristjáns- dóttur: Unu Jódísi, Kristján Tý og Arnar Frey. Jón Arnar Sveinsson, f. 1988, maki hans er Eydís Sjöfn Kjærbo. Konráð og Sigríður eign- uðust dótturina Dagbjörtu Karlottu og eru þau öll búsett í Danmörku. Jóna og Konráð bjuggu lengst af í Háagerði 25 í Reykjavík, húsi sem þau byggðu og fluttu inn í árið 1957. Árið 2001 söðluðu þau um og byggðu nýtt Háagerði í Grímsnesi þar sem þau bjuggu í nágrenni dætra sinna. Kon- ráð Ragnar lést árið 2006. Seinna kynnist Guðbjörg Sig- urði Jónssyni sem var lífs- förunautur hennar til æviloka. Jóna var heimavinnandi húsmóðir á meðan börn henn- ar uxu úr grasi. Seinna vann hún hjá Alþýðublaðinu, Síldar- og fiskimjölsverksmiðjunni Kletti og síðustu starfsárin sem aðstoðarkona á tann- læknastofu. Útför Jónu fer fram í kyrr- þey að eigin ósk. Svenni, hann Himmi er kom- inn. Það voru ófá skiptin sem þessi orð féllu þegar ég mætti í Háagerði 25. Heimili Konna og Jónu var eins og nokkurs konar Hlemm- ur stoppistöð. Þar var stórt heimili fullt af börnum og alltaf opið. Þetta var heimili vinnandi fólks sem þurfti að hafa fyrir hlutunum og þar voru hlutirnir ræddir. Hvort sem vangaveltunar voru um leynistaðinn undir tröppunum bakvið hús og hverjir fengu að fara þar inn eða þegar við Svenni fengum að fara að vinna á Kletti 13-14 ára og urðum moldríkir eftir eina páska. Alltaf var Jóna til stað- ar, hún var jú bara ein af vin- unum og árin liðu, seinna á lífs- leiðinni urðum við Jóna vinnufélagar þegar ég fór að vinna vaktir á Kletti og Jóna stóð vaktina í eldhúsinu, traust og úrræðagóð. Þegar þau fluttu í Sveitina komu nýir tímar og lífið leiddi okkur aftur meira saman. Oft fórum við félagarnir úr Háa- gerði í Sogið að veiða og var þá regla að fara fyrsta kvöldið til Jónu til að gleðjast og hlæja úr sér augun. Stórt var höggið í þessari fjölskyldu nú þegar Jóna kvaddi og Stjáni stuttu síðar, ég vil hugsa að Jóna hafi viljað vera til staðar hjá Konna og Svenna til að taka á móti Stjána þegar hann mætti, til að hella upp á fyrir mannskapinn. Við sem eftir sitjum hugsum með hlýhug og þakklæti til þeirra beggja, það er skrítið að geta ekki fylgt þeim síðasta spölinn en svona er lífið núna. Kæra fjölskylda, samúðar- kveðjur frá okkur. Hilmar og Ágústa (Gústa). Guðbjörg Jóna Jónsdóttir Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Erna Vilbergs-dóttir fæddist 17. febrúar 1948 í Reykjavík. Hún lést 1. maí 2020. Foreldrar henn- ar voru Vilberg Skarphéðinsson framkvæmdastjóri og Sveinsína Kristbjörg Guð- mundsdóttir mat- reiðslukona. Systkini Ernu eru Sigrún Vilbergsdóttir, f. 29.12. 1945, d. 20.4. 2009 og Valgerður Vil- bergsdóttir, f. 7.10. 1952. Eiginmaður Ernu var Sverr- ir Sæmundsson, f. 17.6. 1945. Erna var fædd í Reykjavík og ólst upp í Steinagerði 4 og gekk í Breiðagerðisskóla og síðar Réttarholtsskóla. Hún vann til margra ára á Morg- unblaðinu og síðar heimavinn- andi og sá um heimili og börn. Einnig vann hún í heildverslun föður síns og aðstoðaði hann við rekstur fyrirtækisins. Börn Ernu og Sverris eru Þór- unn Sverrisdóttir, f. 1968, gift Ólafi Baldurssyni og eiga þau fimm börn. Vilberg Sverrisson, f. 1972, giftur Hörpu Arn- ardóttur og eiga þau þrjú börn. Benedikt Sverrisson, f. 1973, kona hans er Helga Kristín Stefánsdóttir og eiga þau tvö börn og eitt barna- barn. Bjarki Már Sverrisson, f. 1978, giftur Kolbrúnu Ósk Jónsdóttur og eiga þau þrjú börn. Útför hennar fór fram í Frí- kirkjunni í Reykjavík 11. maí í kyrrþey. Elsku hjartans systir og frænka. Þegar við sitjum hér og hugs- um til þín finnst okkur svo óraun- verulegt og sárt að þú skulir ekki vera hér á meðal okkar lengur. Á þessari stundu er svo margt sem kemur upp í hugann og okkur langar til að segja þér. Sem systir varstu alltaf svo ábyrg og traust og áttum við svo einstakt og náið samband. Það er skrítið að hugsa til þess að við munum nú ekki heyrast daglega lengur. Sem frænka varstu alltaf svo góð við okkur krakkana og síðar börnin okkar, dekstraðir við okkur öll af ást og umhyggju. Það var alltaf svo gott að koma til ykkar Dedda, ávallt drekkhlaðið borð af heima- tilbúnum kræsingum enda erum við fullviss um að þeir sem þig þekktu munu minnast þín af mik- illi matarást. Þið Deddi áttuð svo einstakt samband, voruð svo samtaka í öllu sem þið gerðuð og meðal annars í því að öllum liði einstaklega vel sem til ykkar komu. Þú varst einstök mann- eskja og umvafðir alla sem þú elskaðir kærleika og hlýju skil- yrðislaust. Við kveðjum þig elsku Erna okkar með miklum söknuði en góðar og ljúfar minningar um þig munu lifa með okkur þar til við komum yfir til þín. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sönn var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Við vottum elsku Dedda okkar, börnum ykkar og öllum ykkar af- komendum okkar dýpstu samúð- arkveðjur. Valgerður (Vala systir), Sveinn, Soffía og Hildur. Mig langar með nokkrum orð- um að kveðja Ernu frænku mína í hinsta sinn. Ernu hef ég þekkt allt mitt líf, en hún var 7 ára þeg- ar ég fæddist. Móðir mín og Vil- berg faðir Ernu voru systkini og voru þau alla tíð mjög náin. Vil- berg og Sveinsína, foreldrar Ernu, eignuðust þrjár dætur, Sigrúnu, Ernu og Valgerði, sem lifir systur sínar. Mikill samgang- ur var á milli heimila okkar þegar við vorum að alast upp og frænk- urnar þrjár voru mér sem systur alla tíð. Erna hafði mjög hlýja og góða nærveru og það var alltaf gaman og gefandi að hitta hana og Sverri. Þau voru mjög samhent hjón og höfðu mikinn stuðning hvort af öðru. Þau hjónin eiga fjögur uppkomin börn, tengda- börn og barnabörn sem þau eru mjög stolt af. Erna var mikil fjöl- skyldukona og þótti fátt betra en að hafa fjölskylduna í kringum sig. Þau kveðja nú yndislega konu, móður og ömmu sem fór alltof fljótt. Að leiðarlokum er margs að minnast og margt að þakka fyrir. Minningarnar eru margar og fal- legar sem koma upp í hugann á þessum tímamótum. Ernu frænku minni vil ég þakka fyrir allt sem hún var mér og fjöl- skyldu minni. Ég og fjölskylda mín þökkum samfylgdina og kveðjum Ernu með miklum söknuði og þakklæti fyrir liðnar stundir. Við sendum Sverri, eiginmanni Ernu, Þór- unni, Vilberg, Benedikt, Bjarka Má og fjölskyldum þeirra okkar innilegustu samúðarkveðjur. Blessuð sé minning Ernu Vil- bergsdóttur. Sigríður Magnea Njáls- dóttir og fjölskylda. Þegar gott fólk sem staðið hef- ur manni nærri stóran hluta æv- innar hverfur á braut minnir það mann á að allt er breytingum undirorpið. Erna var ekki ein af þeim sem létu mikið á sér bera. Hún lét hag sinna nánustu sig miklu varða og sýndi það líka í verki á sinn hæg- láta og þægilega hátt. Börnin fjögur og barnabörnin öll nutu þess að eiga bakhjarl í þeim Ernu og Sverri, en þau voru einstak- lega samheldin og farsæl hjón í hverju því sem þau tóku sér fyrir hendur. Minnisstætt er hversu þétt Erna stóð að baki Sverris í veik- indum hans fyrir nokkrum árum og hún tók líka virkan þátt í end- urhæfingu hans, með daglegum göngutúrum í hvaða veðri sem var. Ef veðrið eða færðin var slæm, þá var gengið innanhúss í Egilshöllinni, það var hugsað í lausnum. Undanfarnar vikur og mánuði hafa hlutverkin snúist við, Sverr- ir hefur stutt Ernu dyggilega í gegnum veikindi hennar, en síð- ustu vikur í covid-19-ástandinu hafa ekki verið auðveldar, þegar jafnvel börn þeirra hafa þurft að halda fjarlægð, einmitt þegar þau hefðu viljað standa sem næst þeim og styðja. Missir þeirra allra er mikill. Það er ekki hægt að minnast Ernu án þess að nefna snilli henn- ar á sviði matreiðslu og baksturs. Það stóðu henni fáir á sporði þeg- ar kom að tertum og bakkelsi, þar var hún ókrýndur tertumeistari allra kaffiboða. Og þótt kan- elterta hafi kannski ekki þótt mikil áskorun fyrir hana, þá lét hún sig ekki muna um að skella í eina, bara til að gleðja kaneltertu- unnendur. Erna hafði einstaklega þægi- lega nærveru á sinn hógværa hátt og það var líka stutt í hláturinn ef svo bar undir, kímnin leyndi sér ekki undir hæglátu fasi hennar. Erna átti samheldna fjölskyldu og góða vini. Þau Sverrir hafa líka átt tryggan og góðan vinahóp í gegnum tíðina, sem hefur haldið saman og ferðast saman bæði innan lands og utan. Þar er nú einnig höggvið skarð. Við kveðjum Ernu, kæra mág- konu og svilkonu, með söknuði og vottum Sverri, Þórunni, Villa, Benna og Bjarka ásamt fjölskyld- um þeirra okkar dýpstu samúð. Smári og Ingibjörg Á kveðjustund, eftir 50 ára kynni, kemur margt upp í hug- ann. Erna kom inn í stóran vina- hóp þegar hún og Sverrir fóru að draga sig saman. Þessi hópur hef- ur haldið fast í vinaböndin í gegn- um árin, þótt vissulega hafi ákveðinn tími farið í barnaupp- eldi og að koma yfir sig þaki. Tengslin hafa þó frekar styrkst en slitnað með árunum. Margar ferðir hafa verið farn- ar, bæði innanlands og utan. Á heimili þeirra Sverris og Ernu eru til ótal ljósmyndir sem segja alla þessa skemmtilegu sögu, en þau voru óþreytandi að taka myndir. Við undirrituð fórum með þeim fjórtán sinnum til Glasgow, en þegar fimmtánda ferðin var farin síðastliðið haust kom- ust þau ekki með vegna veikinda Ernu. Við eigum okkar uppá- haldsveitingastaði sem gjarnan voru heimsóttir og á a.m.k. tveim- ur þeirra var spurt af hverju við værum ekki sex eins og venjulega og ósjaldan leituðum við að sex manna borði í stað fjögurra af gömlum vana. Því miður verða þessar ferðir ekki fleiri, en minn- ingin lifir. Við vorum með matarklúbb og alltaf var jafn gaman að koma til Ernu, en hún var afburðakokkur og naut sín vel í því hlutverki. Erna bjó börnum sínum og Sverri gott og fallegt heimili, þar var mikil gestrisni og gott að koma. Sverrir og Erna voru mjög samrýnd. Þegar Sverrir veiktist alvarlega fyrir tæpum 15 árum var hún kletturinn við hlið hans og vék varla frá honum. Nú kom það í hans hlut að styðja við hana þar til yfir lauk og hún fór yfir í Sumarlandið. Elsku Sverrir, Þórunn, Vil- berg, Benedikt, Bjarki Már og fjölskyldur. Ykkar missir er mik- ill, megi Guð vera með ykkur á þessum erfiðu tímum. Blessuð sé minning kærrar vinkonu. Þórunn, Eiríkur Bryndís og Björn. Erna Vilbergsdóttir Erna Marteins- dóttir, vinkona mín, er látin. Við Erna byrjuðum að starfa saman sumarið 1992 þegar ég var 18 ára gömul og var ráðin í sum- arafleysingar við Heilsugæsluna í Garðabæ sem móttöku- og læknaritari. Við könnuðumst þó hvor við aðra áður þar sem hún vann með pabba og var svo al- mennileg og reddaði því í af- greiðslunni – fyrir tíma farsím- anna – þegar ég þurfti að ná í pabba á vinnutíma þótt það væri sjúklingur inni hjá honum. Við Erna unnum saman í samtals fimm sumur en vinskapurinn varði til hinsta dags. Hún varð Erna Aðalheiður Marteinsdóttir ✝ Erna Að-alheiður Mar- teinsdóttir fæddist 27. apríl 1936. Hún lést 16. mars 2020. Útför Ernu Að- alheiðar fór fram 7. maí 2020. mér dýrmæt og kær vinkona, sem var kannski ekki alveg fyrirséð í byrjun, þar sem á okkur var um 40 ára aldurs- munur og við á mis- munandi stað í líf- inu. Á Heilsugæsl- unni, sem var ein- stakur vinnustaður, einkenndust öll störf Ernu af mikilli fagmennsku og þjónustulund og var Erna vin- sæl og naut virðingar meðal sam- starfsfólks. Erna vann hálfan daginn, eftir hádegi, en fyrir há- degi var rútínan að fara m.a. í sund og synda einn kílómetra. Á Heilsugæslunni kenndi Erna mér ekki bara á símkerfið og að þjón- usta fólk sem þangað sótti ýmsa þjónustu. Margar aðrar leiðbein- ingar og ráðleggingar Ernu til mín sem voru gefnar í afgreiðsl- unni hafa reynst vel á lífsins göngu síðan. Má þar nefna til dæmis að sýna öllum sem sóttu þjónustu sömu virðingu og kurt- eisi, koma eins fram við alla óháð stöðu, kyni og aldri, umburðar- lyndi og síðast en ekki síst að tapa ekki gleðinni í lífinu. Þá var hún mjög hvetjandi og valdeflandi við mig, sem var að stíga mín fyrstu skref í skrifstofuvinnu á vinnu- stað þar sem voru bara fullorðnir. Við góða uppgötvun eða ákvarð- anatöku kom fyrir að hún kallaði upp yfir sig: „Jóhanna, þú ert svo skýr!“ eða: „Þú ert svo dugleg!“ Þegar ég hef notað sama hrós til samstarfsfólks míns síðan verður mér oft hugsað til Ernu með bros á vör og hversu mikilvæg hvatn- ing hennar og stuðningur var mér á sínum tíma. Oft var kátt á hjalla í kaffitímanum eftir hádegi og Magga læknaritari sá okkur fyrir kexi úr kexkassanum. Erna var mikill gleðigjafi, skemmtileg, félagslynd, með góð- an húmor og það mjög gaman að hlæja með henni. En það var aldrei á kostnað neins heldur hafði hún auga fyrir hinu já- kvæða og skemmtilega í lífinu. Á lífsins göngu hafði hún öðlast visku af margvíslegri reynslu sem hún miðlaði áfram í sam- skiptum og framkomu við annað fólk. Hún útbreiddi jákvæða orku í kringum sig. Hún var góður hlustandi og gott að fá álit hennar og ráð. Eftir að samstarfi okkar lauk og ég leitaði á önnur mið í sumarstörfum héldum við Erna þó alltaf sambandi og töluðum saman og hittumst af og til. Mér fannst Erna aldrei verða gömul kona og fannst mér hún alltaf ung í anda og sjálfstæð. Erna var mjög stolt af fjölskyldu sinni og afkomendum og talaði oft um þau með stolti. Að leiðarlokum þakka ég Ernu fyrir samfylgdina og dýrmæta vináttu í áranna rás. Fjölskyldu hennar, afkomendum og vinum votta ég mína dýpstu samúð. Minningin um góða konu lifir. Jóhanna Bryndís Bjarnadóttir Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.