Morgunblaðið - 12.05.2020, Side 26

Morgunblaðið - 12.05.2020, Side 26
STJARNAN Bjarni Helgason bjarnih@mbl.is Kvennalið Stjörnunnar í handknatt- leik fékk gríðarlegan liðstyrk í gær þegar landsliðskonurnar Eva Björk Davíðsdóttir og Helena Rut Örvars- dóttir skrifuðu báðar undir tveggja ára samning við félagið. Báðar eru þær 25 ára gamlar og að snúa aftur heim úr atvinnu- mennsku en þær hafa verið fasta- menn í íslenska landsliðinu und- anfarin ár. Helena Rut er uppalin í Garða- bænum og hóf meistaraflokksferil sinn með Stjörnunni árið 2012. „Það var margt sem spilaði inn í þá ákvörðun mína að koma heim,“ sagði Helena í samtali við Morgun- blaðið í gær. „Ég tók góðan tíma í að hugsa þetta fram og til baka en ég vil ekki meina að kórónuveirufaraldurinn hafi átt stóran þátt í þeirri ákvörð- un minni að koma heim, þótt hún hafi kannski gert það að einhverju leyti. Mér stóð til boða að spila áfram erlendis en það er ákveðinn pakki líka að þurfa flytja og byrja á núll- punkti ef svo má segja. Það voru margir að koma heim, deildin að styrkjast, og að lokum fannst mér mest spennandi í stöðunni að koma heim í Stjörnuna.“ Stjarnan fyrsta val Helena gekk til liðs við norska fé- lagið Byåsen árið 2017. Hún fór svo til Dijon í Frakklandi í janúar 2019 áður en hún samdi svo við Sönder- jyskE í Danmörku sumarið 2019 en hefur nú ákveðið að snúa heim í Garðabæinn. „Ég er uppalin í Garðabænum og Stjarnan var alltaf mitt fyrsta val. Rakel Dögg Bragadóttir, þjálfari liðsins, hafði samband við mig og hennar hugmyndafræði fyrir næsta tímabil heillaði mig mikið. Hún vildi styrkja skyttusvæðin og það hentaði því vel fyrir mig að koma aftur til uppeldisfélagsins. Þessi þrjú ár mín í atvinnu- mennsku voru afar lærdómsrík og ég kem heim reynslunni ríkari. Ég er með mikinn metnað fyrir næsta tímabili og ég ætla mér að æfa eins mikið og ég mögulega get. Vonandi get ég svo bara haldið áfram að bæta mig sem íþróttamaður.“ Óútreiknanleg deild Margar landsliðskonur hafa ákveðið að snúa aftur heim úr at- vinnumennsku á undanförnum árum og á Helena Rut von á mjög jafnri og skemmtilegri úrvalsdeild á næstu leiktíð. „Eitt af því sem heillaði mig einna mest við það að koma heim var hversu margir leikmenn hafa verið að snúa aftur til Íslands úr atvinnu- mennsku að undanförnu. Það er líka gaman að sjá hvernig þessir leik- menn hafa dreift sér í liðin í efstu deild. Það verður erfitt að segja fyrir um úrslit leikja á næsta ári og ég á von á mun jafnari keppni en oft áð- ur. Það verður því mjög forvitnilegt að sjá hvernig næsta leiktíð þróast,“ bætti Helena við. Rétti tíminn til að snúa heim Eva Björk er uppalin hjá Gróttu á Seltjarnesi og hefur leikið sem at- vinnumaður frá árinu 2016. Hún við- urkennir að það sé ákveðið hark að vera atvinnumaður í handbolta og hún hafi fundið það innra með sér að það hafi verið kominn tími á að snúa aftur til Íslands eftir fjögur ár á er- lendri grundu. Ég var farin að leiða hugann að því að snúa aftur heim snemma á þessu ári,“ sagði Eva í samtali við Morgunblaðið. „Þegar það varð ljóst að ég yrði ekki áfram hjá Skuru ákvað ég fljótlega að ég vildi snúa aftur heim til Íslands. Það er mikill pakki að þurfa að flytja og hefja nýtt líf með nýju liði í nýju landi. Ég er búin að gera það þrisvar á fjórum árum og mér fannst ég tilbúin að snúa aftur heim og ég er mjög ánægð að vera búin að skrifa undir í Garðabænum.“ Engin eftirsjá Eva Björk var í viðræðum við nokkur lið hér heima áður en hún ákvað að fara í Garðabæinn, en hún hélt út í atvinnumennsku árið 2016 þegar hún samdi við Sola í Noregi. Þar lék hún í eitt ár áður en hún samdi við Ajax Köbenhavn árið 2017. Hún lék í Danmörku í tvö tímabil áður en hún gekk til liðs við sænska úrvalsdeildarfélagið Skuru síðasta sumar. „Ég talaði við fleiri lið enda fannst mér mikilvægt að vera opin fyrir öllu því sem var í boði. Að lokum ákvað ég að velja Stjörnuna þar sem það var besti kosturinn í stöðunni. Ég ætla alls ekki að útiloka það að ég fari einhvern tímann aftur út en mér finnst engu að síður líklegt að ég sé komin til þess að vera hér heima. Heilt yfir er ég ánægð með minn atvinnumannsferil enda ekki auðvelt að fara ungur út og hoppa út í djúpu laugina. Þetta er pakki og ég er ekki bara sterkari leikmaður eftir tíma minn úti heldur líka sterkari ein- staklingur. Ég hef spilað í frábærum deildum með mjög góðum leik- mönnum og þjálfurum. Þetta voru fjögur góð ár og ég sé ekki eftir neinu.“ Minni liðin að brúa bilið Eva Björk varð tvívegis Íslands- meistari með Gróttu, 2015 og 2016, áður en hún hélt út í atvinnu- mennsku. Þá varð hún einnig bikar- meistari með Gróttu 2015 en hún á von á því að Fram og Valur verði ekki með eins mikla yfirburði í deild- inni í ár og á undanförnum árum. „Það eru fyrst og fremst frábærar fréttir að sjá hvað deildin er að styrkjast mikið. Það eru mörg lið að styrkja sig og burtséð frá þeim leik- mönnum sem eru að koma heim hafa hin liðin verið að brúa bilið á Fram og Val á undanförnum árum finnst manni. Það er fullt af ungum og efnileg- um stelpum sem spila hérna heima og það verður gaman að sjá hvernig þær eiga eftir að blandast saman við eldri og reyndari leikmenn næsta vetur. Heilt yfir á ég von á mjög skemmtilegu tímabili með mörgum hörkuleikjum,“ sagði Eva Björk í samtali við Morgunblaðið. Reynslunni ríkari eftir dvöl erlendis  Landsliðskonur sömdu í Garðabæ Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Svíþjóð Eva Björk Davíðsdóttir var í baráttu um sænska meistaratitilinn með Skuru í vetur og mætti Val í Evrópukeppninni í haust. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Danmörk Helena Rut Örvarsdóttir var í toppbaráttu með SönderjyskE í dönsku B-deildinni í vetur en lið hennar hafnaði í þriðja sæti. 26 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 12. maí 1984 Oddur Sigurðsson setur Norðurlandamet í 400 metra hlaupi karla á móti í Austin í Texas, þar sem hann hafnar í þriðja sæti á 45,36 sekúndum og bætir um leið vikugamalt Ís- landsmet sitt um 0,33 sek- úndur. Norðurlandamet Finnans Markku Kukkoaho frá úrslitahlaupi ÓL í Münc- hen 1972 var 45,49 sekúndur. Íslandsmet Odds stendur enn, 36 árum síðar, og þessi ár- angur hans hefði nægt til fjórða sætis á HM árið áður. 12. maí 1991 Magnús Ver Magnússon tryggir sér Evrópumeist- aratitilinn í -125 kg flokki í kraftlyftingum þegar hann lyft- ir samtals 962,5 kílóum á EM í Frakklandi. Hann sigrar með umtals- verðum yf- irburðum. Þá fær Hjalti Árnason bronsverðlaun í +125 kg flokki á mótinu. 12. maí 1996 Íslenska karlalandsliðið í handknattleik sigrar Fær- eyinga, 29:20, í vináttulands- leik í Þórshöfn í Færeyjum. Ólafur Stefánsson skorar 8 mörk fyrir Ísland, Dagur Sig- urðsson og Bjarki Sigurðsson 5 mörk hvor. Ísland vann fyrri leik liðanna sólarhring áður, 29:19 en liðið er að búa sig undir undankeppni HM. 12. maí 1998 „Ég er rétt að átta mig á þessu núna,“ segir Auðunn Jónsson við Morgunblaðið eftir að hafa hreppt Evr- ópumeistaratitilinn í -125 kg flokki í kraftlyftingum á EM í Finnlandi. Hann er því annar Íslendingurinn, á eftir Magn- úsi Ver Magnússyni, til að verða Evrópumeistari í þess- um þyngdarflokki. Hann lyft- ir samtals 950 kílóum. 12. maí 2003 „Þessi sigur var fullkominn kveðjugjöf fyrir Guðna Bergs- son,“ segir Jay-Jay Okocha, landsliðsmaður Nígeríu og leik- maður Bolton, eftir að lið þeirra sigrar Middlesbrough 2:1, í loka- umferð ensku úrvalsdeildarinnar og tryggir sér áframhaldandi sæti í deildinni. Guðni spilar þarna sinn 449. og síðasta deilda- leik á ferlinum og kveður Bolton eftir átta ára dvöl hjá félaginu þar sem hann var fyrirliði síðustu árin. 12. maí 2015 „Ég hef séð pabba verða Ís- landsmeistara og hefur alltaf langað til að ná því sjálfur. Loksins er ég Íslandsmeist- ari. Þetta gæti ekki verið betra. Það eru 15 ár síðan pabbi náði þessu,“ segir Adam Haukur Baumruk, 21 árs skytta í handboltaliði Hauka, við Morgunblaðið eft- ir sigur á Aftureldingu í þriðja úrslitaleik liðanna um Íslandsmeistaratitilinn, 27:24. Þar með eru Haukar meist- arar í tíunda skipti en faðir Adams, Petr Baumruk, varð meistari með liðinu árið 2000. Á ÞESSUM DEGI Knattspyrnumaðurinn Hörður Árnason er hættur við að leggja skóna á hilluna og hefur samið við uppeldisfélag sitt HK um að leika áfram með því í ár. Hörður er leikjahæsti leikmaður HK í efstu deild frá upphafi. Hann lék 20 leiki með liðinu í deildinni árið 2008, fór til Stjörnunnar 2010, lék þar í átta ár og er fjórði leikjahæstur hjá Garðabæjarliðinu í deildinni með 128 leiki. Hörður sneri aftur til HK 2018, tók þátt í að koma liðinu upp í úrvalsdeild og lék síðan með því þar, 21 leik af 22 á síðasta ári. Hörður leikur áfram með HK Ljósmynd/HK Reyndur Hörður Árnason lék fyrst með HK-ingum árið 2008. Þóra María Sigurjónsdóttir er gengin til liðs við handknattleikslið HK og mun leika með liðinu í úr- valsdeild kvenna á næstu leiktíð. Þóra María skrifar undir tveggja ára samning við HK og kemur til fé- lagsins frá Aftureldingu sem féll úr efstu deild á síðustu leiktíð. Þóra er á meðal efnilegustu leikmanna landsins en hún skoraði 34 mörk fyrir Mosfellsliðið í fyrstu níu leikj- um tímabilsins áður en hún sleit krossband í hné í nóvember. Þá á Þóra leiki að baki með öllum yngri landsliðum Íslands. Þóra María í Kópavoginn Ljósmynd/HK Liðsauki Þóra María Sigurjóns- dóttir hefur samið við HK.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.