Morgunblaðið - 12.05.2020, Side 27

Morgunblaðið - 12.05.2020, Side 27
ÍÞRÓTTIR 27 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 2020 Sennilega hefur kveðjuleikur hjá ís- lenskum íþróttamanni sjaldan vakið jafnmikla athygli og þegar Ásgeir Sigurvinsson lagði fótboltaskóna á hilluna fyrir nákvæmlega 30 árum, 12. maí árið 1990. Þann dag lék hann kveðjuleik sinn með Stuttgart í lokaumferðinni í Vestur-Þýskalandi, á heimavelli gegn Homburg, og lauk sautján ára ferli sem atvinnumaður með Stutt- gart, Bayern München og Standard Liege. Fjallað var um Ásgeir í miðopnu Morgunblaðsins og þýskir fjölmiðlar skrifuðu mikið um kveðjustundina, enda hafði hann verið einn af bestu leikmönnum Bundesligunnar í átta ár. Var reyndar valinn besti leik- maður deildarinnar 1983-84, eftir að hafa leitt Stuttgart til þýska meist- aratitilsins og var í lykilhlutverki í úrslitaleikjum Stuttgart og Napoli í UEFA-bikarnum vorið 1989. Ásgeir lék 460 deildaleiki sem at- vinnumaður í Þýskalandi og Belgíu og eini Íslendingurinn sem hefur spilað fleiri leiki erlendis er Eiður Smári Guðjohnsen. Þá var Ásgeir tvívegis valinn Íþróttamaður ársins hérlendis, 1974 og 1984. vs@mbl.is Kvaddi Ítarlega var fjallað um Ásgeir Sigurvinsson í Morgunblaðinu eftir kveðjuleik hans með Stuttgart í lokaumferðinni í Vestur-Þýskalandi. Þrjátíu ár frá kveðju- leiknum í Stuttgart  Ásgeir Sigurvinsson hætti vorið 1990 Félagið mitt í enska fótbolt- anum var í efsta sæti B- deildarinnar þegar öllum leikjum var frestað. Eftir 16 ár í B- og C- deild virtist liðið mitt loksins ætla upp í deild þeirra bestu. Þá kom heimsfaraldur. Ólíklegt þykir að deildin verði leikin til loka og verður nú- verandi staða væntanlega látin standa. Þá er mitt lið á leiðinni upp. Flestir leikmenn og félög í ensku úrvalsdeildinni virðast spennt fyrir því að leika tímabilið til enda. Leikmenn vilja komast út á völl á ný og stuðningsmenn vilja fótbolta í líf sitt á nýjan leik. Þá vilja eigendur félaganna pen- ingana sem fylgja því að klára tímabilið. Liðin í fallbaráttunni vildu klára tímabilið, svo lengi sem þau gætu ekki fallið. Þau voru s.s. alveg til í að fá peningana fyrir sjónvarpsréttinn, en ekki til í að taka afleiðingunum ef illa gengi á vellinum. Þótt heimsfar- aldur hefði hugsanlega getað komið í veg fyrir að liðið mitt færi upp um deild, hef ég haldist mjög rólegur. Það eru töluvert mikilvægari hlutir í þessum heimi. Það eina sem hefur farið í taugarnar á mér er hegðun félag- anna í neðstu sætum úrvals- deildarinnar og hvað peningar hafa blindað þau. Það er vissu- lega áhættusamt að byrja að spila fótbolta á nýjan leik í landi sem veiran hefur verið skæð í, en félögin í neðri hlutanum voru til í að taka þá áhættu, svo lengi sem þau tapa ekki peningum á því með því að falla niður um deild. Með því eru þau að viðurkenna að peningar eru mikilvægari en heilsa fólks. Sem betur fer hefur enska knattspyrnusambandið ákveðið að þrjú lið muni falla. BAKVÖRÐUR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is FJÖLNIR Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Bergsveinn Ólafsson, 28 ára fyrirliði knattspyrnuliðs Fjölnis, lagði skóna óvænt á hilluna fyrir helgi. Sagði hann að hungrið fyrir knattspyrn- unni væri ekki lengur til staðar. Ás- mundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, viðurkennir að ákvörðunin hafi kom- ið honum á óvart og nokkurn veginn upp úr þurru. „Þetta kom algjörlega flatt upp á okkur. Það var enginn undanfari á þessu fyrir okkur. Hann sagðist hafa hugsað þetta lengi en þetta var mjög óvænt þegar hann kom til okkar á fimmtudaginn og tilkynnti okkur þessa ákvörðun. Við ræddum heil- lengi við hann og reyndum að fá hann til að hugsa málið aðeins,“ sagði Ásmundur við Morgunblaðið. Bergsveinn tók ákvörðunina í kjölfar þess að hann meiddist og henni varð ekki breytt. Ákveðinn á sínu „Hann meiddist fyrr í vikunni og við vildum leyfa honum að taka sér sinn tíma og hugsa hvort þetta væri virkilega það sem hann vildi. Hann var ákveðinn á sínu og leið svona. Þá er ekkert annað að gera en að virða það,“ bætti Ásmundur við. Fjölnir hafnaði í öðru sæti í 1. deildinni síðasta sumar og tryggði sér sæti í deild þeirra bestu eftir eins árs fjarveru. Síðan þá hafa þrír reynslumiklir lykilmenn horfið á brott. Daninn Rasmus Christiansen er kominn aftur í Val, en hann var að láni hjá Fjölni á síðustu leiktíð. Bergsveinn er hættur og Albert Brynjar Ingason er farinn í Kór- drengi. Þeir léku allir 21 af 22 leikj- um Fjölnis síðasta sumar. Ásmund- ur viðurkennir að Fjölnir þyrfti helst að styrkja sig, en vegna ástands síð- ustu vikna verður það ekki auðvelt. Ekki auðveldur markaður „Við höfum misst svolítið úr reynslubankanum í liðinu en erum með marga unga og hæfileikaríka fótboltamenn sem við þurfum að gera gott lið úr. Auðvitað skoðum við það ef eitthvað er í boði. Það er ekki auðveldur markaður að bæta við sig reynslu á þessum tímapunkti. Við skoðum eins og við getum en ef ekk- ert kemur reynum við að gera eins gott lið og við getum úr því sem við höfum,“ sagði Ásmundur. Leikmannahópur Fjölnis í Lengjubikarnum í vetur var ungur og með brotthvarfi Bergsveins verð- ur hann enn yngri. Meðalaldurinn í byrjunarliði liðsins gegn Vestra í byrjun mars var 23,7 ár og meðal- aldur varamanna aðeins 19 ár. „Þetta eru kornungir peyjar og það verður áskorun að takast á við deildina, en það er spennandi áskor- un,“ sagði Ásmundur, sem er óviss hvort félagið bæti við sig erlendum leikmanni fyrir tímabilið. „Maður veit ekki hvernig það kemur til með að virka. Ég held það sé mjög flókið í dag og það eru sóttkvíarreglur fyrir þá sem koma til landsins. Mér finnst það mjög ólíklegt en þó ekki útilokað að við fáum einhvern að utan.“ Vill festa Fjölni í sessi í efstu deild á nýjan leik Frá og með afléttingu samkomu- bannsins 4. maí mega lið æfa saman en þó með takmörkunum. Fram að því þurftu leikmenn að æfa einir síns liðs. „Við vorum í ágætissambandi þeg- ar við máttum ekki æfa saman en þetta er það sem menn voru að bíða eftir; að fá að komast inn á völlinn að æfa. Nú bíða menn eftir að geta æft venjulega en ekki bara sjö saman. Það er mikill léttir yfir því að við séum byrjaðir aftur.“ Ásmundur stýrði Fjölni fyrst frá 2005 til 2011 og kom liðinu upp í efstu deild sumarið 2007. Sumarið eftir endaði liðið í sjötta sæti úrvals- deildarinnar en sumarið 2009 féll það aftur niður í 1. deild. Nú, rúmum áratug síðar, fær hann tækifæri til að stýra liðinu aftur í deild þeirra bestu. Hann segir að fyrsta markmið sé að halda Fjölni í efstu deild en svo sé hægt að byggja á það í framtíð- inni. „Við þurfum að byrja á því að búa til lið sem getur haldið sér uppi í deildinni og reyna að festa Fjölni í sessi í efstu deild á ný. Auðvitað eru langtímamarkmið félagsins stærri og meiri og við viljum vera með öfl- ugt lið í efstu deild. Akkúrat núna er ekki annað raunhæft en að halda lið- inu uppi,“ sagði Ásmundur við Morgunblaðið. Kom algjör- lega flatt upp á okkur  Fyrirliði Fjölnis hættur  Reynslu- miklir menn farnir og erfiður markaður Morgunblaðið/Hari Grafarvogur Ásmundur Arnarsson stýrir skútunni hjá Fjölni í Grafarvogi. Englendingar stefna áfram á að hefja keppni í úrvalsdeildinni í knattspyrnu 12. júní. Möguleikarnir á því jukust í gær þegar breska ríkisstjórnin tilkynnti að eftir 1. júní verði leyft að halda menningar- og íþróttaviðburði án áhorfenda, þar sem tekið sé upp fyrir sjónvarp. Félögin eru hins vegar ekki búin að komast að samkomulagi um að halda áfram keppni og hvort leikið verði á hlutlausum völlum eða á heimavöllum. Enska knattspyrnusambandið sendi í gær skýr skilaboð til úrvals- deildarinnar um að útkljá verði tímabilið á þann hátt að meistarar verði krýndir og þrjú lið falli úr deildinni. Annaðhvort með því að spila leikina sem eftir eru eða með því að láta núverandi stöðu gilda sem lokastöðu. Nokkur af neðstu lið- unum hafa reynt að knýja í gegn að ekkert lið falli úr deildinni í sumar en það virðist ekki lengur í boði.  Þjóðverjar tilkynntu í gær að keppni í efstu deild kvenna færi af stað á ný 29. maí. Sara Björk Gunn- arsdóttir hjá Wolfsburg og Sandra María Jessen hjá Leverkusen léku síðast í deildinni 1. mars.  Danska úrvalsdeildin í karla- flokki fer af stað á ný 28. maí en fyrsti leikur eftir hléið verður grannaslagur Jóns Dags Þorsteins- sonar og félaga í AGF gegn Rand- ers. Englendingar enn með 12. júní í sigtinu Benedikt Guðmundsson er hættur störfum sem þjálfari kvennaliðs KR í körfuknattleik, en hann hefur stýrt liðinu undanfarin þrjú keppnis- tímabil með góðum árangri. Bene- dikt tók við KR-liðinu sumarið 2017 í 1. deild kvenna og það vann deildina með miklum yfirburðum tímabilið 2017-18. Liðið endaði í fjórða sæti úrvalsdeildarinnar 2018-19 og lék í undanúrslitunum um Íslandsmeist- aratitilinn. Í vetur var liðið í öðru sæti deildarinnar, á eftir Val, þegar keppni var hætt vegna kórónuveir- unnar, en þremur umferðum var þá ólokið og annað sætið nánast í höfn. Þá lék KR til úrslita í bikarkeppn- inni í vetur þar sem liðið sló Íslands- meistara Vals út í undanúrslitum en tapaði fyrir Skallagrími í úrslitaleik. Benedikt tók á síðasta ári við þjálfun kvennalandsliðs Íslands og það hef- ur leikið tvo leiki í undankeppni EM undir stjórn hans. Þá hefur Ólöf Helga Pálsdóttir verið ráðin þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Grindavík. Gerir hún þriggja ára samning við uppeldis- félagið. Grindavík leikur í 1. deild á næstu leiktíð eftir eitt ár í deild þeirra bestu. Ólöf lék með Grindavík upp alla yngri flokka og var lykilleik- maður í meistaraflokki um árabil. Þjálfaði hún síðast Hauka í tvö tíma- bil. Landsliðsþjálfarinn hættur hjá KR  Benedikt hættur með KR eftir þrjú ár  Ólöf Helga tekur við uppeldisliðinu Morgunblaðið/Hari Hættur Benedikt Guðmundsson er hættur sem þjálfari KR-inga.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.