Morgunblaðið - 12.05.2020, Page 32
Öflugur háhraðablásari, u.þ.b.
10 sek. þurrktími, hljóðlátur
80db, Bakteríudrepandi
yfirborð. 540 km/klst. 80db/2
mtr, kolalaus mótor, HEPA-sía
hreinsar loftið og skilar því
hreinna út.
Litir: Silfur, hvítt og svart
Verð: 166.780 kr.
Starmix T-C1 1000W,
345 km/klst. 71db/2 mtr
Litir: Hvítt, svart
Verð: 31.589 kr.
Kraftmikill og neyslugrannur
blásari (950w), 12 sek. þurrkun.
HEPA-sía hreinsar loftið og
skilar því hreinna út. SteriTouch
bakteríueyðandi fletir, sterk-
byggður (varinn gegn
skemmdarverkum).
Litir: Ryðfrítt stál, hvítt og svart.
Mjög sterkir og endingargóðir.
Hentugir þar sem skemmdar-
verk eru möguleg eða krefjandi
umhverfi. 2100 w, 160 km/klst.,
74 db/2 mtr. 15 sek. þurrktími.
2300w. 10 ára ábyrgð (5 ára á
skynjara). Litir: Hvítt, ryðfrítt
stál og pólerað ryðfrítt (króm).
Ferskir vindar
– grænni lausn
Handþurrkublásarar eru mun ódýrari í rekstri og
umhverfisvænni en pappírsþurrkur sem krefjast mikillar
vinnu við þrif og umsjón. Loftið í handþurrkublásara fer
hreinna út en það kemur inn og ef hann er búinn HEPA-síu
hreinsast loftið nánast fullkomlega.
Mikið úrval ogmargir verðflokkar.
Sterkur og flottur. 1550w,
345 km/klst, 71db/2 mtr
Litur: Ryðfrítt stál
Verð: 61.969 kr.
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
World Dryer mAirMax
Sjálfvirkur
Starmix T-C1 M
Starmix XT 3001
Starmix Airstar T-C1
World Dryer VERDEdri
Sjálfvirkur
Verð: 86.769 hvítt
Verð: 86.769 svart
Verð: 99.169 ryðfrítt stál
Verð: 53.940 kr. hvítt
Verð: 68.820 kr. ryðfrítt stál
og pólerað ryðfrítt (króm)
Sópransöngkonan Sigrún Hjálmtýsdóttir, Diddú, og pí-
anóleikarinn Anna Guðný Guðmundsdóttir koma fram í
óvenjulegri Kúnstpásu í Norðurljósasal Hörpu í dag kl.
12.15 og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá með þekktum
aríum og sönglögum. Allir eru velkomnir á meðan hús-
rúm leyfir en þess verður gætt að tveir metrar séu á
milli gesta í sal og komast því aðeins 100 gestir að. Því
þarf að tryggja sér miða á www.harpa.is. Kúnstpásu
verður einnig streymt til allra landsmanna á Facebook-
síðu Íslensku óperunnar.
Diddú og Anna Guðný koma fram í
Kúnstpásu í Norðurljósasal Hörpu
ÞRIÐJUDAGUR 12. MAÍ 133. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Bergsveinn Ólafsson, 28 ára fyrirliði knattspyrnuliðs
Fjölnis, lagði skóna óvænt á hilluna fyrir helgi. Sagði
hann að hungrið fyrir knattspyrnunni væri ekki lengur
til staðar. Ásmundur Arnarsson, þjálfari Fjölnis, viður-
kennir að ákvörðunin hafi komið honum á óvart og
nokkurn veginn upp úr þurru. Fjölnismenn hafa misst
þrjá lykilleikmenn frá því síðasta sumar, er liðið endaði
í öðru sæti í 1. deild og tryggði sér sæti í deild þeirra
bestu á nýjan leik eftir eins árs fjarveru. Erfitt er fyrir
félagið að ná í nýja leikmenn. »27
Brotthvarf fyrirliðans kom flatt
upp á þjálfarann og Fjölnismenn
ÍÞRÓTTIR MENNING
Val og eiga í tímabundnum fjárhags-
erfiðleikum. Ég lagði til við göngu-
garpana að þeir tækju 109 hringi í
kringum Friðrikskapellu í tilefni af-
mælisins og þeir létu sig hafa það.“
Það tók Líkfylgdina um 40 sek-
úndur að ganga hvern hring og því
var um rúmlega klukkutíma gang að
ræða. „Þeir treystu sér ekki til að
taka þetta í einni lotu og skiptu
hringjunum því á þrjá daga, laug-
ardag, sunnudag og mánudag,“ seg-
ir Lárus, en í gönguhópnum eru
Halldór Einarsson, Þórarinn Val-
geirsson, Viðar Elíasson og Gunnar
Kristjánsson.
Gangan í gær gekk vel fyrir sig.
Óttar Felix Hauksson sá um að svo-
kallaðir Melavallarmarsar frá tíð
Baldurs Jónssonar vallarstjóra
hljómuðu meðan á göngunni stóð.
Stefán Jóhannsson frjálsíþrótta-
þjálfari ræsti göngumennina og Óli
Pétur Friðþjófsson útfararstjóri fór
fyrir þeim í byrjun. Allir voru
klæddir í takt við Tom Moore. Að
átakinu loknu veitti Valur Bene-
diktsson fyrir hönd skipulags-
nefndar þátttakendum medalíur fyr-
ir afrekið. „Þetta tók á en var vel
þess virði,“ sagði Halldór eftir göng-
una, en enn má styrkja átakið
(reikningur: 513-26-7385, kt. 670269-
2569).
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Knattspyrnufélagið Valur í Reykja-
vík átti 109 ára afmæli í gær og af
því tilefni efndi gönguhópurinn Lík-
fylgdin til áheita til styrktar Frið-
rikssjóði. Hópurinn gekk 109 hringi í
kringum Friðrikskapellu á Hlíðar-
enda að hætti Toms Moores, og var
takmarkið að safna 180.000 krónum
en reikna má með að söfnunarféð
hafi að minnsta kosti tvöfaldast.
Um nýliðin mánaðamót vakti Tom
Moore, fyrrverandi ofursti í breska
hernum, heimsathygli þegar hann
ákvað í tilefni 100 ára afmælis síns
30. apríl að
safna þúsund
pundum, um
180.000 kr. á
gengi dagsins,
til styrktar
breska heil-
brigðiskerfinu
vegna kórónu-
veirufaraldurs-
ins. Hann fór í
betri fötin, setti á sig heiðursmerkin
og með stuðningi göngugrindar
gekk hann 100 hringi í garðinum
heima á nokkrum dögum fyrir af-
mælið. Innan sólarhrings hafði hann
náð takmarkinu og þegar yfir lauk
hafði hann safnað um 30 milljónum
sterlingspunda, um 5,4 milljörðum.
Lárus Loftsson greip hugmynd-
ina á lofti að hætti matreiðslumanns-
ins. „Líkfylgdin er sérstakur og fá-
mennur gönguhópur, sem hefur
gengið saman tvisvar í viku, hægt og
stutt í einu,“ útskýrir hann og bendir
á að nafnið sé tilkomið vegna göngu-
lagsins. Hann bætir við að blóðið
renni varla í þeim á gönguferðum,
vöðvarnir nái ekki að hitna og garp-
arnir viti ekki hvað teygjur eru.
Til styrktar góðu málefni
„Þegar ég sá þennan aldna Breta
ganga til styrktar góðu málefni tók
ég eftir að hann var með sama
göngulag og Líkfylgdin og ef eitt-
hvað var fór hann aðeins hraðar yfir
enda með göngugrind sér til að-
stoðar,“ heldur Lárus áfram. „En
öllu gamni fylgir nokkur alvara og
ég sá að þarna var kjörið tækifæri
fyrir Líkfylgdina til að láta gott af
sér leiða fyrir Friðrikssjóð, sem
styrkir fjölskyldur sem eiga börn í
Líkfylgdin í spor Toms
Gekk umhverfis Friðrikskapellu til styrktar Friðrikssjóði
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Takið ykkur stöðu Stefán Jóhannsson ræsir göngumennina, sem eru frá
vinstri Þórarinn Valgeirsson, Viðar Elíasson og Halldór Einarsson.
Þreyttir Valur Benediktsson færir Halldóri, Viðari og Þórarni medalíur.