Morgunblaðið - 16.05.2020, Blaðsíða 38
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þetta er búið að vera ótrúlegt ár,“
segir Arna Kristín Einarsdóttir. Hún
tók við starfi framkvæmdastjóra
Kanadísku þjóðarhljómsveitarinnar
(National Arts Centre Orchestra)
sem starfar í Kanadíska menningar-
húsinu í Ottawa (National Arts
Centre) 1. maí 2019 eftir að hafa
gegnt stöðu framkvæmdastjóra Sin-
fóníuhljómsveitar Íslands frá árinu
2013.
„Þetta byrjaði afar vel. Mér var
tekið opnum örmum hér í Kanada,
jafnt af hljómsveitinni, samstarfs-
fólki og samfélaginu í kringum
hljómsveitina,“ segir Arna Kristín og
rifjar upp að stuttu eftir að hún tók
til starfa hafi menningarhúsið og
hljómsveitin fagnað 50 ára starfs-
afmæli. „Hljómsveitin fór meðal ann-
ars í mikla og flotta tónleikaferð til
Evrópu, enda var öllu tjaldað til í til-
efni afmælisins,“ segir Arna Kristín
og líkir því við magalendingu þegar
kórónuveirufaraldurinn braust út og
sett var á útgöngubann í Kanada
föstudaginn 13. mars. „Síðan þá hef
ég unnið við borðstofuborðið heima
hjá mér og stýrt stofnuninni þaðan,“
segir Arna Kristín sem býr ásamt
eiginmanni og tveimur sonum á aldr-
inum 10 og 15 ára í Ottawa.
Tónleikar í beinu streymi
„Það er mjög erfitt að vinna úr
þeirri stöðu sem upp er komin,“ seg-
ir Arna Kristín sem er þó ýmsu vön
þegar kemur að krísustjórnun. „Ég
hef auðvitað reynt ýmislegt,“ segir
Arna Kristín og vísar þar til efna-
hagshrunsins 2008 og eldgossins í
Eyjafjallajökli 2010. „Það verður
hins vegar mun flóknara að greiða úr
núverandi stöðu vegna þess hversu
óvissan er mikil,“ segir Arna Kristín
og tekur fram að vandasamt sé að
stýra stofnun sem reiði sig á sam-
komur meðan samkomubann ríki.
„Líkt og margar aðrar sinfóníu-
hljómsveitir í heiminum höfum við
nýtt tæknina og netið til að ná til
áheyrenda okkar,“ segir Arna Krist-
ín. Hljóðfæraleikarar NAC hafa m.a.
leikið á hádegistónleikum alla virka
daga sem nefnast „Lunch break“ og
streymt er á netinu heiman frá þeim.
„NAC fór svo í samstarf við Face-
bookCanada til að skapa vettvang
þar sem tónlistarfólk getur sótt um
að halda tónleika í beinu streymi og
fá greitt fyrir, en þetta var meðal
annars hugsað til að bæta upp tekju-
tap vegna aflýstra tónleika. Um er að
ræða 45-60 mínútna tónleika heima í
stofu í beinu streymi á Face-
book-síðu NAC,“ segir Arna Kristín
og rifjar upp að verkefnið hafi fyrst
aðeins átt að standa yfir í nokkrar
vikur en verið framlengt um óákveð-
inn tíma vegna þess hversu góðar
viðtökurnar hafi verið en um 3,6
milljónir hafi séð streymið.
„Svo höfum við verið í vikulegu
beinu sambandi við áskrifendur okk-
ar og sent þeim hljóðritanir með
vídeóskilaboðum frá aðalhljóm-
sveitarstjóranum, Alexander Shel-
ley. Að auki hafa hljóðfæraleik-
ararnir sinnt öflugu fræðslustarfi,
boðið upp á yfir 200 einkatíma, hóp-
tíma og þjálfun í prufuspilun í gegn-
um netið og Alexander verið með
listamannaspjall og kennt hljóm-
sveitarstjórnun. Í liðinni viku kom
síðan út nýr geisladiskur,“ segir
Arna Kristín og vísar þar til disks
þar sem Kanadíska þjóðar-
hljómsveitin leikur verk eftir Robert
og Clöru Schumann og Johannes
Brahms undir stjórn Alexanders
Shelley.
„Þetta er fyrsti diskurinn af fjór-
um í þessari seríu og gaman að vekja
sérstaka athygli á tónlist Clöru,“
segir Arna Kristín, en á diskinum
leikur venesúelski píanóleikarinn
Gabriela Montero píanókonsert eftir
Clöru Schumann auk þess að tengja
verkin saman með frumsömdum
spuna. „Það er mjög dýrmætt að
geta sent eitthvað ferskt frá sér á
þessum tímum. Það hefur verið mik-
ið átak að koma allri starfseminni á
rafrænt form nánast á einni nóttu.
En það hefur verið þeim mun nauð-
synlegra, því þetta er eina leiðin til
að leyfa áhorfendum að njóta sköp-
unar hljómsveitarinnar,“ segir Arna
Kristín og tekur fram að það hafi
verið magnað að fylgjast með við-
brögðum og áhorfstölum síðustu
vikna. „Til lengri tíma litið verður
áhugavert að sjá hverju þessi raf-
ræna umbylting skilar. Stóra spurn-
ingin núna er hins vegar hvenær
áhorfendur treysta sér til að mæta á
tónleikastaði eftir að samfélagið opn-
ast á ný að kófi loknu,“ segir Arna
Kristín sem er í nánu samtali og
samráði við aðra stjórnendur sinfón-
íuhljómsveita vestanhafs.
Sláandi fundur stjórnenda
„Fyrir um mánuði tók ég þátt í
sögulegum símafundi American
League of Orchestras þar sem
stjórnendur allra stærstu og virtustu
hljómsveita Norður-Ameríku gáfu
stutta skýrslu um hvernig verið væri
að bregðast við stöðunni,“ segir Arna
Kristín, en um 700 hljómsveitir til-
heyra samtökunum. „Þetta var mjög
sláandi fundur þar sem hver stjórn-
andi á fætur öðrum lýsti vandanum
sem þeir standa frammi fyrir og
veltu fyir sér hvernig best mætti
tryggja áframhaldandi starfsemi og
viðspyrnu þegar hægt verður að taka
upp tónleikahald á ný,“ segir Arna
Kristín og bendir á að rekstur sin-
fóníuhljómsveita í Norður-Ameríku
standi almennt tæpt og megi við
litlum áföllum.
„Það er mikill munur á rekstrar-
fyrirkomulaginu í Ameríku annars
vegar og Evrópu hins vegar, ekki
síst á Norðurlöndum,“ segir Arna
Kristín. Aðspurð segir hún sjálfsafla-
féð, bæði í formi miðasölu og
styrktaraðila, þurfa að vera um 55%
af rekstrarfé NAC. „Flestar hljóm-
sveitir í kringum okkur fá mun lægra
framlag frá ríkinu,“ segir Arna
Kristín og bendir á að flestar hljóm-
sveitir reiði sig þannig á fjárstuðning
frá styrktaraðilum.
Óvissan mjög mikil
„Á öðrum fundi stjórnenda þrem-
ur vikum seinna kvað við annan og
jákvæðari tón. Í millitíðinni höfðu
fylkis- og ríkisstjórar brugðist við og
sett af stað úrræði til að bæta at-
vinnugreinum tjónið vegna heims-
faraldursins, m.a. með hlutabótaleið-
inni sem nýst hefur mörgum
hljómsveitum. Á sama tíma var mjög
jákvætt að heyra hversu vel sam-
félagið í kringum hverja og eina
hljómsveit hafði brugðist við með
það að markmiði að styðja fjárhags-
lega við hljómsveitir sínar með því til
dæmis að óska ekki eftir endur-
greiðslu miða þrátt fyrir að aflýsa
hafi þurft tónleikum. Á sama tíma
varð aukningar vart í áskriftarsölu
auk þess sem sterkir styrktaraðilar
brugðust tiltölulega hratt við. Þessi
stuðningur skiptir öllu við að koma
hljómsveitunum í gegnum þennan
þunga skafl sem kófið er,“ segir
Arna Kristín og bendir á að mestu
skipti auðvitað að tryggja öryggi og
heilsu starfsfólks sem og gesta. Seg-
ist hún ekki sjá fyrir sér að gerlegt
verði að halda sinfóníutónleika og
listaviðburði fyrir fullum sal áheyr-
enda fyrr en komið sé annaðhvort
bóluefni eða hjarðónæmi og því sé
óvissan mjög mikil.
Tækifæri til nýsköpunar
„Fyrst vorum við sannfærð um að
við yrðum komin aftur á svið með
áheyrendur í sal í september. Núna
erum við farin á horfa til þess að
mögulega gerist það ekki fyrr en í
nóvember, sumir segja janúar. Með-
an hljómsveitir geta ekki nýtt nema
hálfan salinn til að uppfylla tveggja
metra regluna þá er ljóst að tónleika-
haldið stendur ekki undir sér fjár-
hagslega,“ segir Arna Kristín og tek-
ur fram að í raun sé öll vinnan við
næsta starfsár rokin út í veður og
vind. „Við þurfum bara að byrja upp
á nýtt, og þreifa okkur áfram í óviss-
unni,“ segir Arna Kristín og bendir á
að flestir einleikarar og hljóm-
sveitarstjórar ferðist á milli landa og
komi fram með ólíku hljómsveitum.
„Við erum hluti af stóru alþjóðlegu
neti og mikill hreyfanleiki milli
hljómsveita,“ segir Arna Kristín og
bendir á að rætt sé um það í brans-
anum að hljómsveitarstjórar þurfi í
framhaldinu að hægja á sér og vera
lengur á hverjum stað í vinnutörnum
sínum. „En ástandið núna felur í sér
tækifæri til að gera hlutina öðruvísi
en áður og sprengja fastmótaða
formið sem við höfum svo lengi starf-
að innan. Nú er lag til að gera hlutina
með nýjum hætti,“ segir Arna Krist-
ín og tekur fram að undirstaðan sé
þó að rekstrargrundvöllur hljóm-
sveitanna sér tryggður.
Listamenn lykilstarfsmenn
„Vonandi átta stjórnvöld og sam-
félögin sig á virði menningar-
stofnana sinna og koma þeim til að-
stoðar þannig að þær verði tilbúnar
til starfa þegar kófinu léttir. Við get-
um aðlagast ýmsu, en fjárhagslega
mun dæmið ekki ganga upp meðan
samkomutakmarkanir eru í gildi,“
segir Arna Kristín og áréttar að listir
séu þó aldrei mikilvægari en einmitt í
krísum.
„Listirnar hafa veitt almenningi
andlega næringu í kórónuveiru-
faraldrinum og margsannað gildi
sitt. Í raun ætti að skilgreina lista-
menn sem lykilstarfsmenn. Lista-
menn munu eiga mikilvægan þátt í
því að efla andlega heilsu almennings
og græða sárin eftir þetta áfall og
sorgarferli sem heimurinn gengur í
gegnum vegna faraldursins,“ segir
Arna Kristín og tekur fram að það sé
á ábyrgð samfélagsins að hlúa að
menningarstofnunum og listum sem
tengi saman kynslóðirnar og söguna.
„Það þarf að passa upp á menning-
arverðmætin,“ segir Arna Kristín og
tekur að lokum fram að hún reyni að
halda í bjartsýnina og sjá tækifærin
sem felist í stöðunni. „Þó ljósin dofni
aðeins um tíma þá bíðum við spennt
eftir að geta boðið gesti aftur vel-
komna. Ég get ekki beðið eftir þeim
degi,“ segir Arna Kristín.
Ljósmynd/Hilmar Þorsteinn Hilmarsson
Virði „Vonandi átta stjórnvöld og samfélögin sig á virði menningarstofnana sinna og koma þeim til aðstoðar þannig
að þær verði tilbúnar til starfa þegar kófinu léttir,“ segir Arna Kristín Einarsdóttir sem býr og starfar í Kanada.
„Þetta er búið að vera ótrúlegt ár“
Arna Kristín Einarsdóttir, framkvæmdastjóri Kanadísku þjóðarhljómsveitarinnar, hlakkar til að
geta boðið tónleikagesti aftur velkomna þegar samkomutakmörkunum vegna heimsfaraldurs lýkur
38 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. MAÍ 2020
Klettagörðum 11 | 104 Reykjavík | Sími 568 2130 | verslun@et.is | Opið mánud.-föstud. kl. 8.00-18.00
Mikið úrval af
KÖSTURUM OG AUKALJÓSUM
fyrir allar gerðir bíla