Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 36
36 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
Raðauglýsingar 569 1100
Nauðungarsala
UPPBOÐ
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum, sem hér segir:
Kirkjuvegur 72A, Vestmannaeyjar, fnr. 218-4435, þingl. eig. Anton Þór
Sigurðsson, gerðarbeiðandi Vátryggingafélag Íslands hf., miðviku-
daginn 3. júní nk. kl. 14:00.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum
28. maí 2020
Borgartúni 7C, 105 Reykjavík
Sími 530 1400
www.rikiskaup.is
RÍKISKAUP
SKATTURINN OG SKATTRANNSÓKNARSTJÓRI (SRS) - LEIGUHÚSNÆÐI
21161 - Ríkiskaup f.h. ríkissjóðs óska eftir að taka á leigu húsnæði miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu fyrir nýjar
höfuðstöðvar Skattsins og SRS. Umsjónaraðili er Framkvæmdasýsla ríkisins.
Miðað er við að húsnæðið verði tekið á langtímaleigu til 30 ára, fullbúið til notkunar með föstum innréttingum
og búnaði, án lauss búnaðar. Gerð er krafa um sérhúsnæði á góðum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu,
gott aðgengi þ.m.t. fyrir hreyfihamlaða, hjólandi, gangandi og næg bílastæði bæði fyrir viðskiptavini og starfs-
fólk. Einnig er gerð krafa um að húsnæðið liggi vel við almenningssamgöngum m.a. fyrirhugaða borgarlínu.
Skilyrði er að húsnæðið verði tilbúið til notkunar eigi síðar en 18 mánuðum eftir undirritun leigusamnings.
Húsnæðisþörf Skattsins og Skattrannsóknarstjóra er áætluð um 9.800 fermetrar. Húsnæðið skal vera skrif-
stofu- og þjónustuhúsnæði sem miðast við þarfir Skattsins og SRS. Æskilegt er að húsnæðið sé ekki meira en
6 hæðir.
Tilboðsgjafar (leigusalar) mega setja fram í leigutilboði þann valkost að bjóða ríkinu að taka á leigu til viðbótar,
við áætlaða 9.800 fermetra fyrir Skattinn og SRS, allt að 2.000 fermetra af hefðbundnu skrifstofu- og þjónustu-
húsnæði á sömu lóð og er þá miðað við að aðrir ríkisaðilar myndu nýta umrædda 2.000 fermetra fyrir sína
starfsemi.
Frekari upplýsingar um þær kröfur sem húsnæðið verður að uppfylla verða aðgengilegar í rafræna kerfinu Tend-
Sign, á vefslóðinni https://tendsign.is/ miðvikudaginn 3. júní 2020.
Fyrirspurnir varðandi auglýsinguna (Skatturinn og SRS – Leiguhúsnæði) skulu sendar rafrænt í gegnum kerfið
TendSign og verða svör birt þar.
Fyrirspurnarfrestur rennur út 25. júní 2020 en svarfrestur er til og með 2. júlí 2020.
Leigutilboðum skal skila rafrænt í TendSign eigi síðar en kl. 12:00, fimmtudaginn 30. júlí 2020. Ekki verður tekið
við tilboðum eftir að tilboðsfresti lýkur. Tilboðsgjafar eru því hvattir til að skila tilboðum tímanlega.
Leiga á grundvelli þessarar auglýsingar er undanskilin lögum um opinber innkaup nr. 120/2016, sbr. a. lið 1.
mgr. 11. gr. Framboðið húsnæði þarf að vera komið vel áleiðis í byggingarfasa til að geta komið til álita. Skipu-
lag lóðar og ytri hönnun þarf jafnframt að liggja fyrir.
Gögn sem fylgja skulu tilboði þurfa m.a. að innihalda eftirfarandi upplýsingar:
• Afhendingartíma húsnæðis
• Staðsetningu, stærð og aldur húsnæðis og tillöguteikningar auk upplýsinga um efnisval s.s. veggjagerða,
gólfefna o.s.frv.
• Fjölda bílastæða, aðkomu að lóð og byggingu
• Leiguverð per/m2 og heildarleiguverð
• Húsgjöld
• Gildandi deiliskipulag svæðis þ.e. lóðar og aðlægra lóða
• Tilvísun í gildandi aðalskipulag
• Skal leigusali leggja fram úttektarskýrslu (ástandsskýrslu), frá óháðum aðila, í henni skal m.a. skoða sérstak-
lega hvort húsnæðið sé myglulaust. Það skal gert áður en skrifað er undir leigusamning.
• Önnur gögn sem eru tilskilin til að uppfylla kröfur húslýsingar.
Nánar er fjallað um kröfur til tilboðsgjafa, um gagnaskil, leiguferli og matslíkan í köflum 3 til 6 í húslýsingu.
Leigutaki hefur skipað valnefnd til að meta innsend tilboð. Við val á hagkvæmustu lausn notast valnefnd við
fyrir fram skilgreint matslíkan þar sem búið er að skilgreina hvaða matsþættir eru lagðir til grundvallar og
hámarks vægi hvers og eins liggur fyrir. Þessir matsþættir eru:
• Leiguverð
• Gæði
• Staðsetning
• Nýsköpun & umhverfismál
Hér er því verið að vega saman ofangreinda matsþætti og eru tilboðsgjafar hvattir til að bjóða mismunandi
útfærslur í tilboðum sínum.
Leigutaki áskilur sér rétt til að taka hvaða tilboði sem er eða hafna öllum tilboðum.
Nánari upplýsingar um kröfur til leigusala, mat tilboða o.fl. koma fram í húslýsingu og fylgigögnum hennar.
Til að komast inn á vefsvæði verkefnisins í TendSign er bjóðendum bent á útboðsvef: www.utbodsvefur.is
LEIGUHÚSNÆÐI ÓSKAST
Reykja vík ur borg
Innkaupadeild
Borg artún 12-14, 105 Reykja vík
Sími 411 1042 / 411 1043
Bréfsími 411 1048
Netfang: utbod@reykjavik.is
Ný útboð í auglýsingu hjá Reykjavíkurborg:
• Rúv - reitur, yfirborðsfrágangur 2020, útboð nr. 14879.
• Sturlugata. Njarðargata-Bjargargata. Gatnagerð
og veitur, útboð nr. 14888.
• Endurgerð leiksvæða 2020. Jarðvinna - Öldugata,
Bogahlíð og Bústaðavegur, útboð nr. 14890.
• Endurgerð leiksvæða 2020. Jarðvinna - Snæland,
Seiðakvísl og Bollagöturóló, útboð nr. 14891.
Nánari upplýsingar er að finna á
www.reykjavik.is/utbod
ÚTBOÐ
Ríkiskaup
Allar útboðsauglýsingar eru birtar á
utbodsvefur.is
Utbodsvefur.is er sameiginlegur auglýsingavettvangur opinberra
útboða. Á vefsvæðinu eru birtar auglýsingar og eða tilkynningar
um fyrirhuguð innkaup opinberra aðila sem falla undir lög og
reglugerðir um opinber innkaup.
Útboð nr. 20309
Þjórsársvæði
Snjóhreinsun og umhirða
vega og svæða
Landsvirkjun óskar eftir tilboðum í
snjóhreinsun og umhirðu vega og svæða á
Þjórsársvæði, samkvæmt útboðsgögnum
nr. 20309.
Verkefnið felst í snjóhreinsun og umhirðu
vega og svæða, ásamt annarri þjónustu með
vinnuvélum og vörubílum á rekstrarsvæði
Þjórsársvæðis.
Gert er ráð fyrir að samningur taki gildi
1. september 2020.
Útboðsgögn eru aðgengileg á útboðsvef
Landsvirkjunar: https://in-tendhost.co.uk/
landsvirkjun/aspx/Home
Tilboðum skal skila í gegnum útboðsvef
Landsvirkjunar á slóðinni:
https://in-tendhost.co.uk/landsvirkjun/
aspx/Home fyrir klukkan 12:00 þriðjudaginn
30. júní 2020, niðurstöður tilboða, nöfn
bjóðenda og heildarfjárhæðir með vsk verða
birtar sama dag á ytri vef Landsvirkjunar.
Tilboð/útboð
atvinna@mbl.is
Pantaðu pláss fyrir þína atvinnuauglýsingu á