Morgunblaðið - 30.05.2020, Side 27

Morgunblaðið - 30.05.2020, Side 27
UMRÆÐAN 27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 Hafnargata 29, í miðbæ Keflavíkur Nánari upplýsingar á skrifstofu s. 420 6070 eða eignasala@eignasala.is Nýjar fullbúnar íbúðir í vönduðu fjölbýli. Sjávarútsýni í meirihluta íbúða Stæði í bílakjallara fylgir öllum íbúðum. Verð frá aðeins kr. 39.900.000.- Jóhannes Ellertsson Löggiltur fasteignasali – s. 864 9677 Júlíus M Steinþórsson Löggiltur fasteignasali – s. 899 0555 SÖLUSÝNING SUNNUDAGINN 31. maí frá kl. 14-15 Skáklífið á Íslandi braust úrgreipum COVID-19 farald-ursins þegar Íslandsmótið ískólaskák fór fram í Rima- skóla um síðustu helgi. Teflt var í yngri og eldri flokki grunnskóla- nemenda. Í yngri flokki, sem skip- aður var nemendum 1.-7. bekkjar, sigraði Vatnsendaskóli í Kópavogi eftir aukakeppni við Landakots- skóla, en báðar sveitirnar hlutu 24 vinninga af 32 mögulegum. Sveit Háteigsskóla kom rétt á eftir með 22½ vinning. Í sigursveit Vatns- endaskóla – sjá mynd – tefldu Arnar Logi Kjartansson, Guðmundur Orri Sveinbjörnsson, Mikael Bjarki Heið- arsson, Jóhann Helgi Hreinsson og Tómas Möller. Í eldri aldursflokknum, 8.-10. bekk, sigraði sveit Ölduselsskóla með nokkrum yfirburðum, hlaut 23½ vinning af 28 mögulegum. Hörðuvalla- skóli varð í 2. sæti með 18½ vinning og Háteigsskóli, sem var með sömu sveit í báðum keppnunum, varð í 3. sæti með 17½ vinning. Í sveit Ölduselsskóla tefldu bræðurnir Óskar Víkingur og Stefán Orri Davíðssynir, Baltasar Máni Wedholm Gunnarsson og Birgir Logi Steinþórsson. Móta- hald þetta heppnaðist með miklum ágætum. Mótasyrpa Magnúsar Carlsen Þó að opnað hafi verið fyrir hefð- bundin skákmót hér á landi er ástandið annars staðar í heiminum því miður með allt öðrum hætti og óvissa ríkir um það t.d. hvenær áskorendamótið verður til lykta leitt, en því var slitið í miðjum klíð- um í mars síðastliðnum. Sú mótasyrpa sem Magnús Carl- sen og hans menn standa fyrir er ör- lítil sárabót. Heimsmeistarinn rétt marði það að komast í átta manna hópinn en svo komst hann almenni- lega í gang. Í átta manna úrslitunum náði hann fram langþráðum hefnd- um fyrir niðurlæginguna í Fischer- random einvíginu við Wesley So í fyrra því að hann vann 5:1 og í fyrri hluta einvígisins við Nakamura á fimmtudaginn vann hann allar þrjár skákirnar og virðist öruggur með að komast í úrslitaeinvígið við Kínverj- ann Liren Ding eða Rússann Daniil Dubov. Í sjöttu skákinni réð hann betur við flækjur tafls: Wesley So – Magnús Carlsen Katalónsk byrjun 1. Rf3 d5 2. d4 Rf6 3. c4 e6 4. g3 dxc4 5. Bg2 Bb4+ 6. Bd2 a5 7. O-O O-O 8. Ra3 Bxa3 9. bxa3 b5 Sú aðferð að reyna að halda í c4- peðið er að mörgum talin eina leið svarts til að tefla til vinnings gegn katalónsku byrjuninni. 10. Db1 c6 11. e4 h6 12. g4!? Með hugmyndinni 12. … Rxg4 13. e5 en svartur á betri reit fyrir þenn- an riddara. 12. … Rh7 13. h4 e5! Sókn á væng skal svarað með gagnárás á miðborði er gömul kenning. 14. Rxe5 Dxd4 15. Bf4 He8 16. Dc1 Dc5 17. Hd1 Ra6 18. Rxc6! Óvæntur leikur eftir mislukkaða byrjun. Nú hefjast miklar flækjur. 18. … Dxc6 19. e5 Dc5 20. Bxa8 Bxg4 21. Be3 Dxe5 22. Hd4 Rf6 23. Bc6 He6 24. Bg2 Rc5 25. Dc3 Kh7 26. Dxa5 Rd3 27. Hb1! Með mikilli útsjónarsemi í erfiðri stöðu er hvítur enn með í leiknum. 27. … Df5 28. Hxb5 Dg6 29. Da8 Re5 30. Hd8! Skyndilega hótar hvítur máti á h8. En svartur hefur undirbúið vörn sem felur sér lævísa gildru. 30. … Re8 31. Hxe8?? Þetta mátti hann aldrei gera en tíminn var naumur.Eftir 31. Kh1 meta „vélarnar“ stöðu hvíts mun betri! 31. … Hxe8 32. Dxe8 Rf3+! 33. Kh1 Dd3 Hvítur er varnarlaus gagnvart hótuninni 35. .. Dd1+. 34. Bd2 Dxd2 - og So gafst upp. Skákin komst aftur á skrið á Íslandsmóti grunnskólasveita Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Ari Márus Johnsen fæddist 30. maí 1860 á Ísafirði. For- eldrar hans voru Daníel Johnsen, þá verslunarstjóri á Ísafirði, og Anna Guðrún Du- us. Ari átti eina systur og fluttist fjölskyldan til Kaup- mannahafnar þegar Ari var barn að aldri. Hann lærði verslunarfræði og söng í Kaupmannahöfn en nam síð- an söng í Þýskalandi um tví- tugt. Ari hefur verið nefndur fyrsti íslenski óperusöngv- arinn. Hann náði miklum frama og söng í óperuhúsum í Berlín, Hamborg og London og fyrir þýsku keisarah- irðina. Hann var barí- tónsöngvari. Ari kom til Íslands árið 1901 og hélt tónleika í Góð- templarahúsinu í Reykjavík við hrifningu landsmanna. Í ritdómi Hannesar Þorsteins- sonar, ritstjóra Þjóðólfs, seg- ir: „Þeir voru margir, er ekki þóttust fegurri söng heyrt hafa, en þetta kvöld.“ Eftir að ferli Ara lauk var hann söngkennari í Ham- borg. Hann var vellauðugur maður eftir ferilinn en missti allar eigur sínar í verð- hruninu 1918. Hann flutti þá til Kaupmannahafnar og hélt áfram kennslu þar. Ari var ókvæntur og barn- laus. Ari Johnsen lést 17.6. 1927. Merkir Íslendingar Ari Johnsen Morgunblaðið/SÍ Íslandsmeistarar í eldri flokki F.v.: Birgir Logi, Baltasar Máni, Stefán Orri, Óskar Víkingur og Björn Ívar Karlsson liðsstjóri. Morgunblaðið/SÍ Sigurlið Vatnsendaskóla með liðsstjóranum Kristófer Gautasyni. Hugur minn og bænir hafa að sjálfsögðu verið hjá og fyrir þeim sem veiktust illa af Covid 19 og eru jafnvel enn að bíta úr nálinni með eft- irköstin. Þá ekki síður aðstandendum þeirra sem látist hafa úr sjúk- dómnum. En yfir 350.000 manns eru sagð- ir hafa látist í heiminum úr faraldrinum. Líklega þó mun fleiri. Fólk af holdi og blóði en ekki bara tölur á blaði. Það er svo þungt að missa, hvað þá við svona aðstæður eins og verið hafa og það er alltaf sárt að sakna. Föðuramma mín, Gróa Bjarnadóttir, dó úr spænsku veikinni í nóvember 1918 frá sjö börnum, eins til níu ára. Og enda þótt lífið hafi haldið áfram og börnin verið svo gæfusöm að komast til manns með Guðs hjálp og góðra kvenna og manna og lifa sínu ágæta lífi til hárrar elli var þessi reynsla alltaf í bakpokanum og fylgdi þeim sem skuggi alla tíð. Það segir sig sjálft að það hefur ekki verið auðvelt að standa þrjátíu og þriggja ára einn uppi með sjö ung börn í slíkri stöðu. Þessari reynslu lýsir föðurafi minn og alnafni, sem þá rak ásamt félaga sínum Verzl- unina Vísi við Laugaveg 1, einmitt ágætlega í öðru bindi sjálfsævisögu sinnar, Himneskt er að lifa, sem gefin var út 1968. Landspítali og heilbrigðis- starfsfólk til fyrirmyndar Hugur minn hefur einnig verið hjá heilbrigðisstarfsfólki. Læknum, hjúkr- unarfræðingum og öllu því góða og magnaða fagfólki sem starfar Land- spítalanum eða í tengslum við heil- brigðisþjónustuna. Þannig vill til að ég hef hin síðari ár verið fastagestur á göngudeild krabbameins- og blóðlækn- inga á spítalanum og hef af þeim sök- um einnig þurft að koma víða við á spít- alanum vegna alls kyns æfinga því tengdra, til dæmis vegna uppskurðar, geislameðferðar, lyfjameðferða, blóð- mælinga, myndataka og viðtala auk alls annars. Á undanförnum vik- um og mánuðum á Co- vid-tímanum hefur það vakið athygli mína og aðdáun hversu starfsemi spítalans hefur verið vel skipulögð í erfiðum að- stæðum. Viðmót fag- fólks og alls starfsfólks til mikillar fyrirmyndar og allt fyrirkomulag haganlegt þar sem ýtr- ustu varfærni hefur ver- ið gætt. Þar sem þjón- usta og þægindi skjólstæðinga hafa verið í fyrirrúmi í aðstæðum sem eru hreint ekki allt- af þær auðveldustu sök- um húsakosts og ann- arra annmarka. Þá hefur hugur minn einnig verið hjá þeim fjölmörgu sem misst hafa störf sín á undanförnum vikum og mánuðum vegna ástandsins í þjóð- félaginu. Fólk með fjölskyldur og skuldbindingar sem bíður milli vonar og ótta og enginn veit einhvern veginn hvað verður. Það vill til að ég kannast við svipaðar aðstæður þar sem ég var fenginn til starfa sem ráðgjafi og fyr- irlesari hjá Vinnumálastofnun árin 2010 og 2011, á árunum eftir efnahags- hrunið, þar sem ég sá meðal annars um kynningu á verkefni sem stjórn- völd og stofnunin komu þá tímabundið á laggirnar: ÞOR, Þekking og reynsla. Héldum við á þeim tíma um 140 fundi og horfði ég í augun á yfir sex þúsund manns. Það var mikil reynsla og get ég því gert mér í hugarlund hvernig fólki kann að líða núna. Hugur minn er því einnig hjá starfsfólki Vinnumálastofn- unar sem gerir nú sitt besta, veit ég, í snúinni stöðu, þar sem úrlausnarefnin kunna að vera afar krefjandi og flókin. Kærleikur Guðs, náð, friður og blessun fylgi öllu þessu fólki og hópum sem ég hef hér talið upp og okkur öll- um alla tíð, alla leið. Með samstöðu-, friðar- og kærleik- skveðju. – Lifi lífið! Hugsum hlýlega hvert til annars Eftir Sigurbjörn Þorkelsson » Það er svo þungt að missa og svo sárt að sakna. Sigurbjörn Þorkelsson Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur og aðdáandi lífsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.