Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
Glæsilegar og vandaðar íbúðir fyrir 60 ára og eldri
Íbúðirnar eru frá 44,7 m2
Verð frá: 42,5 millj.
Hlíðasmári 6. Sími: 510 7900. lind@fastlind.is
Nánari upplýsingar
60 ÁRA OG ELDRI
Einstaklings-, 2ja og
3ja herbergja íbúðir
Vandaðar innréttingar
og tæki frá
Bræðrunum Ormsson
Steinborðplötur
Votrými flísalögð
Mynddyrasímar
Stæði í bílakjallara
með flestum íbúðum
Glæsilegt útsýni og
stutt í útivist og alls
kyns þjónustu
LÁRA ÞYRI
EGGERTSDÓTTIR
Lögg. fasteignasali
B.A. í lögfræði
899 3335
lara@fastlind.is
STEFANÍA BJÖRG
EGGERTSDÓTTIR
Viðskiptafræðingur
895 0903
stefania@fastlind.is
Hraunbær 103 (a, b, c.)
OPIÐ
HÚS
laugard.
30. maí
og sunnu
d. 31. ma
í
kl. 15:00-
16:00
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Við vildum hafa tvær ferðir á dag
eins og vanalega. Ég myndi segja að
það hafi verið varnarsigur að ná þó
einni ferð á dag enda eru rekstrar-
forsendur Sæferða allt aðrar í sumar
en undanfarin ár,“ segir Jakob
Björgvin Jak-
obsson, bæjar-
stjóri í Stykkis-
hólmi.
Fyrr í vikunni
var útlit fyrir að
Breiðafjarðar-
ferjan Baldur
myndi ekki sigla í
sumar. Sæferðir,
fyrirtæki í eigu
Eimskips, sem
reka ferjuna
töldu ekki forsendur fyrir útgerðinni
vegna hruns í komu ferðamanna.
Sæferðir hafa notið ríkisstyrks til
siglinga Baldurs á veturna en ferjan
hefur siglt á markaðsforsendum á
sumrin. Úr varð að stjórnvöld
hjuggu á hnútinn og samið var við
Vegagerðina um framlag sem trygg-
ir siglingar í sumar. Aðeins verður
um eina ferð á dag að ræða en ekki
tvær eins og verið hefur. Hins vegar
er gert ráð fyrir að hægt sé að bæta
við fimmtán aukaferðum á álags-
tímum í sumar.
Hagsmunaaðilar eru uggandi yfir
þessari fækkun ferða þó þeir fagni
því að samgöngur séu tryggar. „Það
er ánægjulegt að búið sé að tryggja
eina ferð á dag en hvort það er nóg
er ekki komið í ljós. Við höfum
áhyggjur af því að þetta hafi áhrif á
straum ferðamanna á Vestfirði,“
segir Gerður Björk Sveinsdóttir,
staðgengill bæjarstjóra í Vestur-
byggð.
Guðmundur Ragnarsson veit-
ingamaður, sem tók nýverið við
rekstri Hótels Flateyjar, segir að
þetta séu kaldar kveðjur. Hann hafi
lækkað verð og aukið framboð á
gistingu til að anna komum íslenskra
ferðamanna í sumar en nú sé fyrir-
séð að færri komi en ella.
Jakob, bæjarstjóri í Stykkishólmi,
segir að ef vel gangi í sumar sé eðli-
leg krafa að Sæferðir endurskoði
sína þjónustu og bæti í. „Þetta er
líka byggðamál því íbúar í Flatey
þurfa að fá sitt vatn, olíu og nauð-
synjar sem og húseigendur í Flatey.
Eins þarf að horfa til vöruflutninga á
svæðinu og hlutverks Baldurs í
tengslum við ferðaþjónustu. Baldur
skipar mjög stóran sess í þessum
samfélögum hér. Þetta er okkar
þjóðvegur um Breiðafjörð,“ segir
hann. „Það hefði verið óásættanlegt
ef Sæferðir hefðu ekki siglt því það
bera allir samfélagslega ábyrgð í
svona stöðu, bæði ríkið og fyrirtæki.
Sæferðir og Eimskip geta ekki skýlt
sér alfarið á bak við ástandið. Það
verða allir að axla ábyrgð í stöðu
sem þessari.“
Aðeins ein ferð á dag í sumar
Útgerð Breiðafjarðarferjunnar Baldurs í sumar tryggð með viðbótarframlagi
Hagsmunaaðilar ósáttir við að aðeins verði siglt einu sinni á dag en ekki tvisvar
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Baldur Aðeins verður ein ferð á dag með Breiðafjarðarferjunni í sumar í stað tveggja eins og verið hefur.
Jakob Björgvin
Jakobsson
Litlu munaði milli frambjóðenda í
embætti formanns Samtaka fyrir-
tækja sjávarútvegi (SFS) á aðal-
fundi samtakanna í gær. Hlaut
Ólafur Helgi Marteinsson, fram-
kvæmdastjóri Ramma hf., 49,99%
atkvæða en Ægir Páll Friðberts-
son, framvæmdastjóri Brims hf.,
49,05%.
Ólafur Helgi er því nýr formaður
samtakanna, en Jens Garðar Helga-
son hefur gegnt embættinu frá
stofnun SFS árið 2014 eða sex ár,
en samkvæmt samþykkt samtak-
anna er ekki heimilt að gegna emb-
ættinu lengur en sex ár.
Ólafur Helgi kvaðst í samtali við
mbl.is í gær ánægður með úrslitin
og benti á að Ægir Páll muni gegna
embætti varaformanns. „Þannig að
það er góð sátt á milli okkar og við
munum vinna þetta saman, gera
okkar besta fyrir samtökin,“ sagði
formaðurinn. gso@mbl.is
Ljósmynd/SFS
Skipti Fráfarandi formaður og nýr.
Ólafur Helgi
nýr formað-
ur SFS
Sigraði með
naumindum