Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 41
ÍÞRÓTTIR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 Það er orðið ansi margt ís- lenska handboltafólkið sem ætl- ar að yfirgefa Danmörku og leika annars staðar næsta vetur. Í einhverjum tilfellum hafa þessir leikmenn komið heim en í einhverjum tilfellum farið til Þýskalands. Nú síðast ákvað Arnar Birkir Hálfdánsson að fara frá Danmörku til Þýskalands. Bendir þetta til þess að fólk treysti því ekki að umhverfið í danska handboltanum verði traust næsta vetur. Hinn möguleikinn í stöðunni gæti svo verið að dönsku félögin séu skynsöm og dragi saman seglin í kreppu. Eins og eðilegt er að gera. Séu ekki að lofa góðum samningum upp í ermina ef tæpt er að við þá verði stað- ið. Ef til vill gæti þessi síðasta setning hljómað eins og latína í eyrum einhverra þeirra sem fara fyrir félögum í boltagreinunum á Íslandi. Þessir aðilar hafa margir hverjir kallað á fjármagn frá hinu opinbera í kreppunni. Það getur hins vegar ekki verið stemning fyrir því að nota al- mannafé til að borga fólki fyrir að keppa í íslensku deildunum. Ekki veit ég hversu oft í gegn- um árin þjálfarar og leikmenn í boltagreinunum hér heima hafa sagt manni að þau fái greitt seint, illa eða eigi inni hjá fé- lögum þegar þau ákveða að fara annað. Aldrei vill fólk þó láta hafa það eftir sér í fjölmiðlum. Vilja halda friðinn. Ekki hefur þurft farsóttir eða eldgos til að þessi staða komi upp. Íþróttaheimurinn er oft undarlegur. Í atvinnulífinu hefur fólk yfirleitt einhvern rétt ef ekki er staðið við gerða samn- inga og getur leitað réttar síns. Íþróttafólkið er lítið í því. BAKVÖRÐUR Kristján Jónsson kris@mbl.is Knattspyrnu- samband Íslands hefur greitt 100 milljónir króna af eigin fé sam- bandsins til að- ildarfélaganna til að aðstoða þau vegna kórónu- veirufaraldurs- ins sem sett hef- ur strik í reikning íþróttahreyfingarinnar undanfarna mánuði. Öll aðildarfélög KSÍ, bæði þau sem eru með barna- og unglinga- störf og félög án þess, fá þar að auki niðurfellingu ferðaþátt- tökugjalds og þátttökugjalds í mót á vegum sambandsins. KSÍ birtir á heimasíðu sinni lista yfir greiðslur til allra knattspyrnufélaganna. KSÍ greiðir 100 milljónir til félaganna Guðni Bergsson Þýskaland A-deild kvenna Wolfsburg – Köln..................................... 4:0  Sara Björk Gunnarsdóttir lék allan leik- inn með Wolfsburg. A-deild karla: Freiburg – Leverkusen ........................... 0:1 B-deild: Darmstadt – Greuter Fürth ................... 1:1  Guðlaugur Victor Pálsson lék allan leik- inn með Darmstad. KNATTSPYRNA KA Jóhann Ingi Hafþórsson johanningi@mbl.is Húsvíkingurinn Hallgrímur Mar Bergmann Steingrímsson er á leiðinni í sitt ellefta tímabil hjá knattspyrnuliði KA á Akureyri. Hefur hann leikið með KA linnulaust frá árinu 2010, að und- anskildu einu tímabili hjá Víkingi Reykjavík árið 2015. Eins og flest ann- að knattspyrnufólk landsins er Hall- grímur spenntur fyrir Íslandsmótinu sem hefst eftir tvær vikur. Fyrsti leik- ur KA er gegn ÍA á útivelli hinn 14. júní næstkomandi. „Stemningin á Akureyri er mjög góð og það eru allir hressir með að þetta sé loksins komið af stað og menn farnir að æfa saman. Stemningin er því mjög góð og veðrið er að koma til, eins og völlurinn,“ sagði Hallgrímur í samtali við Morg- unblaðið, en hann hefur spilað 209 keppnisleiki fyrir KA og skorað í þeim 60 mörk. Fjórtán af þeim komu á síð- ustu leiktíð, en hann hefur aldrei skor- að eins mikið á einu tímabili. Með kærustunni til Hollands Hallgrímur hefur lítið spilað síð- ustu mánuði þar sem hann tók aðeins þátt í tveimur af ellefu leikjum KA á undirbúningstímabilinu, áður en kór- ónuveirufaraldurinn skall á hér á landi. Fór Hallgrímur með kærust- unni sinni til Hollands, þar sem hún sækir nám. „Þetta var smá vesen fyr- ir mig því ég var 1/3 af vetrinum í Hollandi að æfa einn og með liði þar, þar sem kærastan mín er þar í námi. Ég kem síðan heim, næ tveimur leikj- um og allt er komið í lás aftur. Maður fór nánast í sama farið aftur, svo það var smá þreytandi en maður reyndi að gera gott úr þessu. Þetta var smá erfitt í lokin þegar maður fór að hlaupa út um allan bæ og í ein- hverjum brekkum og tröppum einn síns liðs. Þetta var ekki skemmtilegt, en þetta varð strax skárra þegar við fengum að æfa í litlum hópum. Maður var svo eins og krakki á jólunum þeg- ar við fengum að æfa allir saman aft- ur,“ sagði Hallgrímur. Hann hafði áhuga á að semja við félag í Hollandi, en það gekk ekki eftir. „Ég fékk leyfi frá KA til að fara í fjóra mánuði til að vera þar og æfa. Ég æfði með liði í fjórðu efstu deild og það var fínasta lið og tempóið á æf- ingunum var mjög gott. Ég fékk að æfa með þeim til að halda mér í formi. Þá var planið að koma heim í mars og taka fullan þátt í undirbúnings- tímabilinu fyrir sumarið. Það var því fyrst og fremst út af kærustunni sem maður fór út, en svo var maður eitt- hvað að þreifa fyrir sér úti en það fór of seint af stað.“ Fimmta sætið hjálpar KA endaði í fimmta sæti Pepsi Max-deildarinnar á síðustu leiktíð. Liðið lenti í miklum hremmingum um mitt mót og sat m.a. í fallsæti í júlí og í ágúst eftir einn sigur í sjö leikjum. KA tapaði hins vegar ekki í sjö síð- ustu leikjum sínum og vann fjóra af þeim. Þegar upp var staðið voru KA- menn nær Evrópusæti en fallsæti. „Þetta endaði vel hjá okkur í fyrra. Það eru margir að tala um að þetta fimmta sæti skipti ekki máli því það voru mörg lið ekki að keppa um neitt í lokin. Fimmta sætið er hinsvegar alltaf fimmta sætið og það mun klár- lega hjálpa okkur inn í sumarið núna. Við stefnum að sjálfsögðu á að vera þarna uppi að berjast við þessi stóru sex sem talað er um.“ Nokkuð er um breytingar á milli ára hjá KA. Leikmenn eins og Alex- ander Groven, Callum Williams, Daniel Cuerva, Iosu Villar og Torfi Tímóteus Gunnarsson eru horfnir á braut. KA nældi hinsvegar í Gunnar Örvar Stefánsson frá Magna og Ro- drigo Gomes frá Grindavík. Þá fékk KA sömuleiðis tvöfaldan liðsstyrk frá Danmörku; Jibril Abubakar kom að láni frá Midtjylland og Mikkel Qvist frá Horsens, sömuleiðis á lánssamn- ingi. „Ég veit ekki hvort þetta verður öðruvísi lið en það eru nokkrar breyt- ingar á hópnum. Callum er kominn aftur heim til Englands og við miss- um Torfa aftur til Fjölnis. Elfar er svo meiddur. Við erum samt með flottan og sprækan hóp og það eru ungir strákar sem eru að koma inn í liðið núna sem eru spennandi og fá meiri ábyrgð en í fyrra. Ég er spennt- ur að sjá stráka eins og Nökkva [Þeyr Þórisson], Bjarna Aðalsteinsson og fleiri. Við erum líka komnir með menn eins og Rodri, Gunna, Mikkel og Jibril,“ sagði Húsvíkingurinn. Það vakti sérstaka athygli þegar framherjinn Jibril Abubakar samdi við KA. Félög eins og Juventus og Leicester fylgdust með honum á tímabili, en hann hefur gert góða hluti með unglingaliði Midtjylland. Hallgrímur er spenntur að sjá hvað strákurinn ungi hefur fram að færa í sumar. „Ég hef ekki æft sérstaklega mikið með honum þar sem það fór eiginlega allt í lás um leið og ég kom til landsins. Þá var hann ekki kominn með leikheimild og gat ekki spilað þessa leiki. Maður sér það núna samt að hann er flottur strákur. Hann er enn bara 19 ára, en hann hefur margt fram að færa fyrir okkar lið. Hann er sterkur, fljótur og sterkur í loftinu líka. Það er spennandi að sjá hvernig hann kemur út. Það voru félög eins og Leicester að sýna honum áhuga og það verður spennandi að sjá hvað hann sýnir okkur í sumar.“ Ósáttur á Twitter Hallgrímur vakti athygli fyrr í mánuðinum þegar hann notaði sam- félagsmiðla til að greina frá óánægju með hve langan tíma takmarkanir voru á æfingunum hér á landi. Máttu aðeins sjö æfa saman þar til síðastlið- inn mánudag, þegar lið máttu æfa án takmarkana. „4 smit komin hingað til í maí og hann er hálfnaður, en nei, maður æfir enn í einhverjum 7 manna hópum með 1-2 metra á milli eins og hægt er. Guð minn einasti,“ skrifaði hann á Twitter. Hallgrímur við- urkennir að hann hafi verið eilítið fljótfær þegar hann lét skoðun sína í ljós. „Maður vill alltaf komast út í fót- bolta, en þetta var í fljótræði gert. Á þessum tímapunkti fannst mér ekki vera nein ástæða til að æfa ekki sam- an. Ég skrifaði eiginlega bara það sem ég var að hugsa, en ég var ekkert brjálaður. Þetta fékk ágæta athygli, sem er fínt og hefði mögulega getað flýtt fyrir,“ sagði Hallgrímur Mar við Morgunblaðið. Eins og krakki á jólunum  Mikill spenna fyrir sumrinu á Akureyri  Nokkuð breytt lið mætir til leiks  Hallgrímur lítið með á undirbúningstímabilinu  Vilja berjast við sex efstu Morgunblaðið/Þórir Tryggvason Akureyri Hallgrímur Mar Bergmann Steingrímsson fagnar með Daníel Hafsteinssyni og bróður sínum Hrannari Birni Bergmann Steingrímssyni. Ólsarar eru þessa dagana að þétta raðirnar fyrir knattspyrnusumarið. Englendingurinn Harley Willard hefur skrifað undir tveggja ára samning við Víking Ólafsvík og kemur til félagsins frá Fylki. Hann skoraði 11 mörk fyrir Víking í næstefstu deild í fyrra en fór í milli- tíðinni til Fylkis. Þá hefur Brynjar Kristmundsson verið ráðinn aðstoðarþjálfari meist- araflokks karla en Jón Páll Pálma- son er á leið inn í sitt fyrsta tímabil sem þjálfari Víkings. Tók hann við af Ejub Purisevic. sport@mbl.is Ólsarar þétta raðirnar Morgunblaðið/Hari Marksækinn Raðar Harley Willard inn mörkunum í sumar? Landsliðsmaðurinn Guðlaugur Vic- tor Pálsson lék allan leikinn með Darmstad er liðið gerði 1:1-jafntefli við Greuther Fürth á heimavelli í þýsku B-deildinni í fótbolta í gær- kvöld. Darmstad komst í 1:0 á 56. mínútu en gestirnir jöfnuðu í lokin og þar við sat. Darmstad er í 5. sæti deildarinnar með 43 stig, þremur stigum á eftir Hamburg sem er í umspilssæti um sæti í efstu deild. Í 1. deildinni stökk Leverkusen upp í þriðja sætið með 1:0-sigri á Freiburg. Er liðið átta stigum á eft- ir toppliði Bayern München. Misstu af dýr- mætum stigum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Þýskaland Guðlaugur Victor er í baráttu um sæti í efstu deild.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.