Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 30
30 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020
✝ Bjarný, eðaBaddý eins og
hún var ætíð köll-
uð, fæddist á Mos-
felli í Ólafsvík 15.
nóvember 1941.
Hún lést á Heil-
brigðisstofnun
Vesturlands á
Akranesi 20. maí
2020.
Foreldrar henn-
ar voru Sigtryggur
Sigtryggsson, f. 6.8. 1898 á Ríp í
Skagafirði, d. 16.4. 1978, og
Guðbjörg Jenný Vigfúsdóttir, f.
11.10. 1902 á Kálfárvöllum í
Staðarsveit, d. 10.8. 1982.
Bjarný var yngst sjö systkina og
eina stelpan, en bræður hennar
voru eftir aldursröð Haukur,
Sverrir, Þráinn, Sveinbjörn,
Vigfús og Hafsteinn, og eru þeir
allir látnir.
Eiginmaður Baddýjar var
Ríkarð Magnússon, fæddur 23.
apríl 1933 á Hlaðseyri við Pat-
reksfjörð og ólst hann þar upp.
Foreldrar Ríkarðs voru hjónin
Magnús Jónsson skipstjóri og
bóndi, f. 13.6. 1889, d. 1970, og
Kristín Finnbogadóttir hús-
móðir, f. 14.10. 1909. d. 31.5.
1998. Ríkarð lést á dvalarheim-
ilinu Jaðri Ólafsvík 13. sept-
ember 2017.
Bjarný og Ríkarð, eða Baddý
og Rikki eins og þau voru ætíð
kölluð, gengu í hjónaband 26.
desember 1964.
Börn þeirra hjóna eru: 1)
Guðbjörg Jenný, f. 6. janúar
1962. Gift Hafsteini Garð-
arssyni. Eiga þau tvo syni: Garð-
ar, f. 1981, og Tryggva, f. 1985.
2) Bylgja Sjöfn, f. 31. maí 1963.
Fyrrverandi sambýlismaður
Arnór Vikar Arnórsson. Dætur
þeirra eru Bjarný Björg, f. 1980,
og Alma Ösp, f. 1986. 3) Magnús,
f. 20. ágúst 1964.
Giftur Önnu Huldu
Long. Eiga þau
fjögur börn: Helenu
Ósk, f. 1986, Sól-
veigu Rut, f. 1988,
Ríkarð, f. 1990, og
Unni Ástrós, f.
1999. 4) Ríkarð, f.
23. maí 1968. Börn
hans eru fjögur:
Andri Freyr, f.
1988, Birgitta Ýr, f.
1999, Oddný Sjöfn, f. 2004, og
Vibekka, f. 2010. Uppeldisdóttir
Ríkarðs er Amelíja Katalina, f.
2000. 5) Díana Harpa, f. 24. sept-
ember 1972. Gift Vigfúsi Magn-
ússyni. Eiga þau tvö börn: Alex-
ander, f. 1997, og Erlu Sól, f.
2003.
Fyrir átti Rikki dótturina
Bjarneyju Birgittu, f. 1. febrúar
1958. Ólst hún upp hjá móð-
urforeldrum sínum í Neskaup-
stað. Bjarney er gift Axel Að-
alsteinssyni. Eiga þau þrjú börn:
Ríkarð Svavar, f. 1978, Unni
Maríu, f. 1982, og Ársæl f. 1990.
Barnabarnabörnin eru 20.
Baddý og Rikki byrjuðu bú-
skap 1961 að Sandholti 10 Ólafs-
vík. Árin 1964-65 bjuggu þau í
Grundarfirði, þar sem Rikki var
skipstjóri á bátnum Blíðfara.
Fluttu þau síðan aftur til Ólafs-
víkur og byggðu sér hús að
Sandholti 38, þar sem þau
bjuggu allt þar til þau fluttu á
dvalarheimilið Jaðar 1. sept-
ember 2017.
Baddý fór að vinna úti eftir
að börnin voru stálpuð og vann
hún í fiskvinnslu hjá Hraðfrysti-
húsi Ólafsvíkur í allmörg ár, en
síðustu 24 starfsárin vann hún á
dvalarheimilinu Jaðri, Ólafsvík.
Útför Baddýjar fer fram frá
Ólafsvíkurkirkju í dag, 30. maí
2020, klukkan 14.
Elsku mamma mín er dáin; ég
spjalla ekki lengur við hana nán-
ast daglega eins og ég hef gert
allt mitt líf. Mamma mín var hús-
móðir af gamla skólanum. Pabbi
alltaf úti á sjó, svo hún sá um allt
ein sem kom að daglegum rekstri
heimilisins. Við systkinin krefj-
andi hvert á sinn hátt. En ómet-
anleg í öllu þessu amstri voru for-
eldrar og bræður mömmu, alltaf
á kantinum til aðstoðar.
Stórfjölskylda mömmu bjó öll í
Ólafsvík á mínum uppvaxtarár-
um en hún var langyngst sjö
systkina og eina stelpan. Svein-
björn bróðir hennar minntist
þess við dóttur sína að honum
hefði fundist sólskinið koma í bæ-
inn við fæðingu hennar, mér
finnst þessi lýsing svo undurfal-
leg og hlý. Mikill gestagangur
var heima þegar ég var krakki,
elstu bræðradætur mömmu leit-
uðu til hennar líkt og til stóru-
systur, þar komu líka allar vin-
konur mömmu og vinir okkar
systkina, og svo kom Badda syst-
ir á sumrin. Þessir dagar og
kvöld þegar húsið iðaði af fólki og
fjöri, sagðar voru sögur og tíðindi
úr bæjarlífinu, hlegið og hlustað
(stundum án leyfis) voru stundir
sem mamma elskaði.
Ekkert af okkur systkinum
settist að í Ólafsvík, æskuvinir
okkar búandi í Ólafsvík hafa
reynst mömmu og pabba vel og
rétt hjálparhönd þegar reynt hef-
ur á, fyrir það erum við ævinlega
þakklát, einnig fjölskyldu okkar á
staðnum.
Sumarbústaðurinn í Húsafelli
var mikill sælustaður fyrir
mömmu og pabba og okkur af-
komendur þeirra og margar góðar
minningar eigum við þaðan.
Ferðalög voru fastur liður á sumr-
in alla þeirra búskapartíð, með
okkur krakkana og síðan þau tvö
með tjaldvagninn. Fannst mér
stundum nóg um hvað þau, orðin
þetta fullorðin, lögðu á sig að sofa í
tjaldvagni. En þetta var líf þeirra
og yndi, þau ferðuðust líka erlend-
is, má segja að þau hafi verið lífs-
glöð hjón.
En Parkinsonsjúkdómurinn
sem mamma greindist með 58 ára
og var nokkuð viðráðanlegur
framan af versnaði með ári hverju
eftir sjötugt og skerti verulega
lífsgæði hennar. Pabbi var stoð
hennar og stytta, sameiginlegt
Bjarný Sólveig
Sigtryggsdóttir
Elsku Hjödda,
það er ekki hægt að
koma því í orð
hvernig okkur líður
að þú sért farin frá okkur. Bar-
áttuvilji þinn í veikindunum og
harkan sem þú sýndir í gegnum öll
þessi ár hafa kennt okkur svo
margt.
Þú varst ótrúleg kona, alltaf svo
Hjördís
Baldursdóttir
✝ Hjördís Bald-ursdóttir fædd-
ist 26. desember
1947. Hún lést 19.
maí 2020.
Útför Hjördísar
fór fram 29. maí
2020.
lífsglöð og glæsileg.
Elsku Hjödda,
takk fyrir allt, hvíldu
í friði.
Við elskum þig.
Elías Már og
Viktor Leó.
Elsku besta
Hjödda mín.
Ég kveð þig, hugann
heillar minning blíð,
hjartans þakkir fyrir liðna tíð,
lifðu sæl á ljóssins friðar strönd,
leiði sjálfur Drottinn þig við hönd.
(Guðrún Jóhannsdóttir)
Kristín Hannesdóttir.
Við önnumst alla þætti undirbúnings og fram-
kvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin.
Við þjónum með virðingu og umhyggju að
leiðarljósi og af faglegum metnaði.
Jón G. Bjarnason,
umsjón útfara
Við erum til staðar
þegar þú þarft á
okkur að halda
Útfararþjónusta
& lögfræðiþjónusta
Vesturhlíð 2, Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is
Með kærleik og virðingu
Útfararstofa Kirkjugarðanna
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Móðir okkar, tengdamóðir og amma,
INGIBJÖRG HÖGNADÓTTIR,
lést á Hrafnistu Boðaþingi þriðjudaginn 19. maí.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Katrín Björk Guðjónsdóttir Sæmundur Árni Tómasson
Berglind Dögg Guðjónsdóttir Guðmundur Gunnarsson
og barnabörn
Hjartkær eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
ÁGÚST GUÐMUNDSSON
frá Djúpavík,
Strandvegi 30, Vestmannaeyjum,
lést í faðmi fjölskyldunnar aðfaranótt
23. maí. Útför fer fram frá Landakirkju föstudaginn 5. júní
klukkan 13. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð en
þeim sem vilja minnast hans er bent á söfnunarreikning sem
stofnaður hefur verið til handa Heru líknarþjónustu.
Kt. 021144-4449, reikningur 0185-05-44.
Ása Sigurjónsdóttir
Ester Fríða Ágústsdóttir Guðlaugur Ólafsson
Guðmundur Ágústsson Andrea Inga Sigurðardóttir
Ágúst Grétar Ágústsson Erna Ósk Grímsdóttir
Sæþór Ágústsson Rampai Kasa
barnabörn og barnabarnabörn
Astkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
ANNA SNORRADÓTTIR
frá Hlíðarhúsi, Siglufirði,
lést föstudaginn 15. maí.
Jarðarförin fer fram frá Siglufjarðarkirkju
laugardaginn 6. júní klukkan 11.
Hafdís Fjóla Bjarnadóttir Jóhann Þór Ragnarsson
Óskar Einarsson María Ben Ólafsdóttir
barnabörn og langömmubarn
Ástkær sambýlismaður minn, faðir okkar,
stjúpfaðir, tengdafaðir og afi,
GUÐNI ÞÓRÐARSON
byggingatæknifræðingur,
Sækambi vestri, Nesvegi 105,
lést á Landakoti mánudaginn 18. maí.
Útförin fer fram frá Neskirkju miðvikudaginn 3. júní klukkan 13.
Blóm eru vinsamlegast afþökkuð en þeim sem vilja minnast
hans er bent á Minningarsjóði Landspítalans.
Sjöfn Guðmundsdóttir
Hulda Rós Guðnadóttir Dennis Helm
Sunna Jóna Guðnadóttir
Brynja Þóra Guðnadóttir Andri Páll Pálsson
Guðrún Tómasdóttir
og barnabörn
FALLEGIR LEGSTEINAR
Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is
Á góðu verði
Verið velkomin
Opið: 13-16 virka daga
Innilegar þakkir sendum við öllum þeim
sem sýndu okkur samúð og hlýhug við
andlát ástkærrar móður okkar,
tengdamóður, ömmu, langömmu og
langalangömmu,
KRISTJÖNU JÓNSDÓTTUR
sem lést 4. maí.
Sérstakar þakkir fær starfsfólk dvalarheimilisins Höfða.
Jón Sigurðsson Emilía Ólafsdóttir
Þorvaldur Ólafsson
Þóra Sigurðardóttir Guðbjörn Tryggvason
Hlín Sigurðardóttir Guðni R. Tryggvason
og ömmubörnin
Ástkær eiginmaður, faðir, tengdafaðir
og afi,
ALFREÐ ÞORSTEINSSON
fv. borgarfulltrúi
og framkvæmdastjóri,
lést á Landspítala við Hringbraut
miðvikudaginn 27. maí.
Guðný Kristjánsdóttir
Lilja Dögg Alfreðsdóttir Magnús Óskar Hafsteinsson
Linda Rós Alfreðsdóttir
Eysteinn Alfreð
Signý Steinþóra
Guðný Gerður
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma
og langamma,
SVANFRÍÐUR SIGURLAUG
EYVINDSDÓTTIR
frá Siglufirði,
síðast til heimilis að Suðurgötu 53,
Hafnarfirði,
lést laugardaginn 16. maí á Hrafnistu í Hafnarfirði.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir eru færðar til starfsfólks Ægishrauns á
Hrafnistu fyrir góða umönnun og hlýhug.
Örn S. Einarsson Jóna R. Stígsdóttir
Steindór Gunnarsson Þorbjörg S. Gísladóttir
Katrín Fabbiano Gunnarsd. Louie Fabbiano
Kolbeinn Gunnarsson Anna Ásdís Björnsdóttir
Eyvindur Gunnarsson Hrafnhildur Jónsdóttir
og ömmubörnin