Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 Landssamband lögreglumanna lagði fram á sáttafundi hjá ríkissáttasemj- ara í fyrradag það sem formaðurinn, Snorri Magnússon, kallar leið að lausn „gamalla synda“. Segir hann að samn- inganefnd ríkisins hafi tekið við þess- um hugmyndum og reiknar hann með að heyra viðbrögð hennar í næstu viku. Það sem Snorri kallar „gamlar syndir“ er bókanir frá síðustu kjara- samningum sem lögreglumenn vilja að verði útkljáðar áður en hægt verður að ræða af alvöru um lífskjarasamning- inn. Bókanirnar voru að stærstum hluta gerðar í kjarasamningum lög- reglumanna á árinu 2014 en einnig í samningunum 2015. Ekki hafi verið unnið úr þeim. Snorri segir að bókanirnar snúist um greiðslur fyrir aukna ábyrgð, álag og breytt vinnufyrirkomulag. Sífellt sé verið að auka kröfur til lögreglu- manna, á öllum sviðum. „Menn geta ekki endalaust hlaupið hraðar. Það verður að koma til móts við fólk þannig að það fáist til að spretta úr spori,“ segir Snorri. Samningslausir í rúmt ár Lögreglumenn hafa verið samn- ingslausir í 14 mánuði. Snorri segir það ekkert nýtt. Frá því að verkfalls- réttur þeirra var afnuminn hafi þeir iðulega staðið í stappi með kjaramál sín og margítrekað lent í þeirri stöðu að vera með lausa kjarasamninga í heilt ár og meira. helgi@mbl.is Vilja gera upp „gamlar syndir“  Lögreglumenn benda á lausn á bókun varðandi þóknun vegna aukins álags Morgunblaðið/Eggert Lögreglumenn Lítið hefur gengið í samningum lögreglumanna og ríkisins. Útilistaverkið Römmuð sýn er óð- um að taka á sig mynd á jarðhita- svæðinu við Þeistareyki í Suður- Þingeyjarsýslu. Sjálfir ramm- arnir, sem mynda stærstan hluta verksins, voru nýlega fluttir á staðinn, að því er fram kemur á heimasíðu Landsvirkjunar. Landsvirkjun hefur ætíð látið vinna listaverk í tengslum við byggingu helstu mannvirkja sinna. Fyrir tveimur árum var efnt til hugmyndasamkeppni um listaverk í nágrenni við jarð- varmastöðina að Þeistareykjum. Jón Grétar Ólafsson arkitekt hlaut fyrstu verðlaun. Dómnefnd sagði að tillaga hans, Römmuð sýn, væri kröftug og djörf og vekti athygli á Þeistareykjum sem áningarstað. „Í verkinu er lands- lagið hafið upp og rammað inn á skemmtilegan hátt. Verkið býr yf- ir aðdráttarafli og vekur forvitni þeirra sem leið eiga um svæðið. Upplýsingar um nærumhverfið auka á upplifun verksins,“ sagði dómnefndin. sisi@mbl.is Ljósmynd/Landsvirkjun Römmuð sýn Rammarnir, sem mynda stærstan hluta verksins, settir upp. Römmuð sýn sett upp Kaja organic, Kalmansvellir 3, kajaorganic.com, kajaorganic@gmail.com Sölustaðir: Hagkaup, Fjarðarkaup, Melabúðin, Nettó, Heilsuhúsin, Vegan búðin, Fiskkompaní, Frú Lauga, Brauðhúsið og Matarbúr Kaju á Akranesi með súkkulaðibragði Engjateigi 5 // 581 2141 // hjahrafnhildi.is 20% af Gilbret yfirhöfnum Skoðið // www.hjahrafnhildi.is Verð: 35.980 Nú: 28.784 Skipholti 29b • S. 551 4422 Fylgið okkur á facebook Sumaryfirhafnir Gallabuxur NÝTT NETVERSLUNLAXDAL.IS

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.