Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 30.05.2020, Blaðsíða 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 30. MAÍ 2020 ✝ Sigríður Svav-arsdóttir fædd- ist í Húsum, Fljóts- dal, N-Múlasýslu 6. janúar 1945. Hún lést á nýrnadeild Landspítalans 18. maí 2020. Foreldrar hennar voru Lilja Hall- grímsdóttir, f. 27.3. 1926, d. 4.5. 2013, og Svavar Bjarnason, f. 12.12. 1915, d. 8.8. 1995. Systkini Sigríðar eru Sigmar, f. 1946, d. 2017, Kári, f. 1950, Mar- grét Hólmfríður, f. 1952, Rósa Gerða, f. 1953, og Björk, f. 1957. Börn Sigríðar eru: 1) Grétar Berg, f. 12.7. 1965, börn hans eru a. Viktor Berg. b. Karen Birta. 2) Jón Ágúst, f. 31.1. 1968, kvæntur Ingibjörgu Þórólfsdóttur. Börn Jóns eru a. Heiðdís Björk, í sam- ið 1968 réð hún sig sem ráðskona á Kverná í Eyrarsveit hjá Þor- steini Ásmundssyni bónda. Þar kynntist hún Víði Jóhannssyni og þau giftust hinn 11.5. 1969. Þau hófu búskap í Grundarfirði. Árið 1975 slitu þau samvistum og Sig- ríður flutti til Reykjavíkur með börnin. Árið 1977 kynntist hún Garðari Kjartanssyni og bjó með honum uns leiðir skildi árið 1990. Í gegnum árin vann Sigríður ýmis verslunarstörf. Síðustu starfsárin vann hún sem síma- dama á Borgarbílastöðinni. Upp úr tvítugu fór Sigríður að kenna sér meins heilsufarslega. Kom þá í ljós að hún var með nýrnasjúkdóm. Sjúkdómurinn ágerðist og árið 2000 fékk hún ígrætt nýra frá Danmörku. Hún glímdi við veikindi til dauðadags. Sigríður hafði alla tíð gaman af bóklestri. Seinni ár undi hún sér vel heima við, við hannyrðir, bók- lestur og spilamennsku. Árið 2018 flutti Sigríður í Foldabæ í Grafarvogi. Útförin fór fram frá Fossvogs- kirkju 25. maí 2020 í kyrrþey að ósk hinnar látnu. búð með Guðmundi Andra, barn þeirra Emil Orri. b. Hafþór Örn. 3) Kristín Hólmfríður, f. 22.10. 1969, gift Hermundi Pálssyni. Börn þeirra eru a. Fanný Lilja, barn hennar er Hera Kristín. b. Arn- ór Yngvi, kvæntur Maríu Kúld, börn þeirra eru Baltasar Kúld, Arney Kúld og Móeiður Kúld. c. Ellert Þór. 4) Hafrún Lilja, f. 22.6. 1971, börn hennar eru a. Jóhann Dagur, b. Magnús Máni. 5) Helena Hafdís, f. 4.11. 1974. Sigríður ólst upp á Seyðisfirði og bjó þar til tvítugs, að undan- skildum fimm árum sem hún dvaldi í sveit hjá góðu fólki á bæn- um Saurbæ í Hvalfjarðarsveit. Ár- Elsku mamma, nú kveð ég þig í hinsta sinn. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig, kennt mér og fyrir að vera ávallt til staðar. Ég mun geyma í hjarta mínu allar góðu stundirnar. Sunnudagar voru okkar dagar þar sem við spiluðum dollara og fengum okkur vöfflur með rjóma eða annað góðgæti. Það er skrítin tilfinning að nú get ég ekki hringt í þig eða hitt til að spjalla. Það var alltaf svo gott að tala við þig og ræða við þig um vandamál eða það sem var að ger- ast í heiminum. Þú varst alltaf svo hnyttin og skemmtileg. Þú hafðir mikinn baráttuvilja og þrautseigju en líkaminn byrjaði hægt og rólega að bregðast þér og þú áttir erfitt með hreyfingar. Það var mikill léttir fyrir okkur systkinin þegar þú fékkst herbergi á Foldabæ þar sem þú fékkst fé- lagsskap og þar var hugsað vel um þig síðustu tvö árin. Þín verður sárt saknað. Þú ert gull og gersemi góða besta mamma mín. Dyggðir þínar dásami eilíflega dóttir þín. Vandvirkni og vinnusemi væntumþykja úr augum skín Hugrekki og hugulsemi og huggun þegar hún er brýn. Þrautseigja og þolinmæði – kostir sem að prýða þig. Bjölluhlátur, birtuljómi, barlóm lætur eiga sig. Trygglynd, trú, já algjört æði. Takk fyrir að eiga mig. (Anna Þóra) Hvíl í friði, elsku mamma. Þín Helena. Elsku elsku mamma mín, þá ertu farinn í draumalandið og þótt ég viti að þú sért hvíldinni fegin er söknuðurinn svo sár og minning- arnar streyma. Ætti ég að láta linna lof um Guð minn, hann, sem er læknir allra meina minna, mig í líknarskauti ber? Allt, sem hans í hjarta bærist, heit er ást og blessuð náð, gjöf er hans og gæskuráð, að ég lifi, er og hrærist. Allt fær brugðist annað skjótt, aldrei Drottins kærleiks gnótt. (Gerhardt/Helgi Hálfdánarson) Ástarkveðja Þinn Jón Ágúst. Elsku amma. Ótrúlega þykir mér leiðinlegt að skrifa til þín á þennan hátt, ég sem hlakkaði svo mikið til að eyða meiri tíma með þér þar sem við Hera Kristín erum loks fluttar á höfuð- borgarsvæðið. Þú varst einstök kona; þrjósk, beinskeytt og sast alls ekki á skoð- unum þínum. Við vorum ekkert alltaf sammála en þótti alltaf gott að vera saman þrátt fyrir það. Ég man svo vel eftir því þegar ég var lítil hversu gaman það var að koma til þín og fá brauð í ör- bylgjuofni og hálfan molasykur með kaffidreitli. Þegar ég eltist þótti mér bara frábært að sitja með þér, spjalla um daginn og veginn og jafnvel spila nokkra Dollara. Það var svo gaman að fylgjast með þér og litlu Heru Kristínu. Þú varst svo ánægð með hana og það geislaði af þér þegar þið voruð saman. Ég er svo ánægð með að hafa tekið fallegar myndir af ykkur saman til að sýna henni í framtíð- inni. Ég er svo þakklát fyrir allan þann tíma sem við áttum saman, sérstaklega þessi síðustu ár. Elsku amma, ég vona að þú hafir það gott þarna uppi. Knús frá okkur mæðg- um. Fanný Lilja Hermundardóttir. Elsku mamma mín. Það er sárt að hugsa til þess að þú sért farin frá okkur, aðeins 75 ára gömul. Nú þegar ég er loksins flutt til Reykjavíkur og var farin að hlakka til að njóta með þér meiri samveru, þá dettur þú og brotnar og áður en ég veit af ertu dáin. Ég hefði svo viljað að þú hefðir fengið fleiri góð ár þar sem þér var farið að líða svo vel á Foldabæ, þangað sem þú fluttir fyrir tæpum tveimur árum. Í fyrstu fannst þér erfitt að vera þar, þar sem þú hafð- ir alltaf hugsað um þig sjálf þrátt fyrir heilsubrest. Ég hafði það á til- finningunni að þér fyndist að við værum að svipta þig sjálfræðinu. En fljótt sástu að þessi lausn var þér bara til bóta. Þar hafðir þú félagsskap, gast spjallað við konurnar, saumað í og hlustað á útvarpið. Við krakkarnir droppuðum inn og þá gátum við spilað og spjallað. Á meðan þú dvaldist á sjúkra- húsinu leið ekki sú stund að þú minntist ekki á það að þú ættir heima á Foldabæ og þangað ætl- aðir þú að fara aftur. Fá þér kaffi og sígó. Já, það var sko hluti af þínu lífi, kaffi og sígó. Kaffið varð að vera með mjólk og svo mola, mátti sko alls ekki gleyma molanum. Aldrei hef ég drukkið kaffi en það voru ófáir hálfir molar sem ég borðaði í bernsku sem búið var að dýfa í kaffið hennar mömmu. Lífið hefur ekki alltaf verið þér gott. Áföll á æskuárum mörkuðu þig út lífið. En hvað sem á bjátaði þá stóðstu upp og hélst áfram. Þú varst ótrúlega seig kona, vinnusöm og dugleg. Ólst upp fjögur börn svo til ein, fæddir okkur og klæddir. Það voru nú ekki alltaf til peningar í þá daga en einhvern veginn bjargaðist þetta allt. Það er margs að minnast en ég geymi minningarnar í hjartanu og varðveiti þær vel. Elsku mamma mín, nú er komið að kveðjustund. Ég vil trúa því að núna sértu verkjalaus og þér líði vel. Ég veit að núna ert þú hjá ömmu Lilju og Svavari afa. Spilar við ömmu dollara og þið hlæið og rífist til skiptis. Ég kveð þig með þessum fallega texta/lagi sem minnir mig á þig. Takk fyrir allt, elsku mamma mín, ég elska þig. Hún bar þig heiminn og hjúfraði að sér. Hún heitast þig elskaði og fyrirgaf þér. Hún ávallt er vörn þín, þinn skjöldur og hlíf. Hún er íslenska konan sem ól þig og helgar sitt líf. Með landnemum sigld’ ún um svarrandi haf. Hún sefaði harma, hún vakt’ er hún svaf. Hún þerraði tárin hún þerraði blóð. Hún var íslenska konan sem allt á að þakka vor þjóð. Hún þraukaði hallæri, hungur og fár. Hún hjúkrað’ og stritaði gleðisnauð ár Hún enn í dag fórna sér endalaust má. Hún er íslenska konan sem gefur þér allt sem hún á. Og loks þegar móðirin lögð er í mold þá lýtur þú höfði og tár falla á fold. Þú veist hver var skjól þitt þinn skjöldur og hlíf. Það var íslenska konan sem ól þig og gaf þér sitt líf. En sólin hún hnígur og sólin hún rís. Og sjá þér við hlið er þín hamingjudís, sem alltaf er skjól þitt, þinn skjöldur og hlíf. Það er íslenska konan, tákn trúar og vonar, sem ann þér og helgar sitt líf. (Ómar Ragnarsson.) Þín Kristín (Stína). Mig langar að minnast Sigríðar tengdamömmu og þakka henni um leið. Fyrst langar mig að þakka fyrir móttökurnar þegar ég kom inn í fjölskylduna og er ég þakklát fyrir allar samverustundirnar. Það var alltaf gott að koma til þín, það var alltaf kaffi á könnunni og meðlæti í skúffunni, kex, kökur og alls kyns góðgæti. Þú undir hag þínum vel heima fyrir á fallega heimilinu þínu og varst dugleg við ýmsar hannyrðir og hafðir alltaf gaman af því að lesa góðar bækur. Ég lærði nú aldrei spilið sem þú spilaðir við börnin þín, þegar þið spiluðuð með tvo spilastokka. Það var ætíð stutt í húmorinn hjá þér, varst jákvæð og dillandi hláturinn var alltaf svo smitandi. Elsku Sigga, sorgin er sár og söknuðurinn mikill en minningarn- ar eru góðar og lifa áfram í hjörtum okkar. Fósturlandsins Freyja, fagra Vanadís, móðir, kona, meyja, meðtak lof og prís! Blessað sé þitt blíða bros og gullið tár; þú ert lands og lýða ljós í þúsund ár! (Matthías Jochumsson) Takk fyrir allt. Ingibjörg Þórólfsdóttir. Sigríður Svavarsdóttir Þeim Siggu og Fidda kynntist ég fyrir hartnær 30 ár- um þegar við Magga fórum að rugla reyt- um okkar saman. Fyrstu viðbrögð hennar við að sjá mig voru að tjá mér að ég væri fölur og horaður en síðan var það aldrei rætt aftur og við urðum hinir mestu mátar og ræddum oft saman um lífið og tilveruna. Fyrir mér voru það alltaf gæða- stundir að fara í Laugarhvamm til þeirra hjóna, fyrst og fremst að sitja og spjalla yfir kaffibolla og alltaf var til eitthvert bakkelsi, litla sundlaugin í hvamminum var vinsæl viðkomustaður hjá okkur og það var ekki ónýtt að geta svo sest inn í spjall á eftir. Ég kunni alltaf vel við þann samskiptamáta sem Sigga notaði, og oft vorum við búin að taka rimmur á hreinni íslensku en allt- af í góðu og fram á okkar síðasta fund sem var 1. mars síðastliðinn var ég svo einstaklega heppinn að eiga vináttu hennar alltaf vísa. Eftir að Sigga kom út á Krók til langtímaveru á sjúkrahúsinu lágu leiðir okkar mjög oft saman og fyrir mér voru það gæðastundir þegar hún sagði mér sögur af fólki sem ég kannaðist við úr sveitinni eða fjölskyldunni, oft týndi ég tím- anum því frásagnir hennar af at- burðum í lífi hennar voru svo ljós- lifandi og minni hennar með ólíkindum gott. Sögur af barnæsku sinni sagði hún með skemmtilegu orðalagi og maður sá í augum hennar hvað hún hafði gaman af að rifja upp samtöl og atburði frá fyrri tíð, og Sigríður Magnúsdóttir ✝ Sigríður Magn-úsdóttir fædd- ist 20. júlí 1925. Hún lést 9. maí 2020. Útförin fór fram 29. maí 2020. seinna voru það fjöl- skyldan og öll börnin sem voru henni svo kær, Þó var skuggi á þessu, og þrátt fyrir að vera mjög opin og bein í samskiptum var ekki alltaf því að sælda að allir væru sammála í kringum hana, í seinni tíð tók þetta mikið á hana og hún sagði mér stundum hvað henni þætti þetta erfitt en gæti bara ekkert gert í þessu lengur, „ég bara skil þetta ekki“ sagði hún. Handverkið hennar Siggu er búið að gleðja marga, og á sá sem þetta skrifar nokkra fallega gripi sem hún málaði og gaf okkur hjón- um, svo ekki sé talað um marglitu ullarsokkana sem hún laumaði gjarnan að mér eftir gott spjall og lét oftar en ekki fylgja að senni- lega væri ekkert gagn í þeim, en sennilega hef ég aldrei notað aðra sokka eins mikið og þá sem hún hefur gefið mér í gegnum tíðina. Í seinni tíð fannst henni hún vera hálf léleg, en þrátt fyrir það lét hún sjaldan verk úr hendi falla. Það var því eðlilega erfitt fyrir hana að kyngja því að geta ekki lengur gert eitthvað með höndum eða lesið sér til dægrastyttingar. En til hennar komu margir og stundum var litla herbergið henn- ar þétt setið af fólki sem henni þótti svo vænt um. Við fjölskyldan kveðjum lang- ömmu, ömmu og tengdaömmu og vin, og þökkum fyrir allar gæða- stundirnar sem okkur voru gefnar saman, á jólunum þegar hún kom og borðaði með okkur, rúntar um sveitina, við fórum saman í brúð- kaup, á þorrablót, og svo bara allt hitt sem minningabankinn geymir um ókomna tíð. Kári Heiðar, Margrét og fjölskylda. Í veiðitúrum kynnist maður innsta eðli annarra, það er mín bjargföst trú. Það eru hartnær 30 ár síðan ég fór í fyrsta veiðitúrinn með Stjána bróður, Kristjáni Kristjánssyni, þegar við fórum saman í veiðitúr með Vigga bróður, Egil bróður og Gunna frænda innanborðs og svo okkur félagana Óla Matt, Einar Þorvarðar og undirritaðan. Í svona karlatúrum með atvinnu- og hobbýkokka innanborðs verð- ur alltaf of mikið borðað, of mikið drukkið, of mikið blaðrað og of lítið veitt. Og menn kynnast. Stjáni bróð- ir var dæmigerður miðjubróðir með passlega athyglissjúka bræður fyrir framan og aftan, leyfði þeim að eiga sviðið en laumaðist inn með sinn frábæra húmor og elskulegheit. Hann var einn af þessum mönnum sem maður kynnist í lífinu, ef maður er heppinn, sem í rauninni geta allt. Frábær kokkur sem vílaði ekki fyrir sér að elda ofan í heilu vinnuflokkana, hagur í höndum, bólstraði heilu kirkjubekkina, hannaði húsgögn og smíðaði og Kristján Ólafur Kristjánsson ✝ Kristján ÓlafurKristjánsson fæddist 15. ágúst 1958. Hann lést 3. maí 2020. Vegna aðstæðna hefur bálför farið fram en útför hans verð- ur síðar. hafði mikið verksvit. Leigði út (og vann á) vinnuvélar sem hann keypti í gamla og nýja Merkúr og þannig lágu okkar leiðir einnig saman í áratugi. Í hátt í 20 ár höfum við verið í hjónaveiðiklúbbi með Stínu og Stjána og þá sá maður hve vel þau áttu saman og bættu hvort annað upp ef svo má að orði komast. Það var ljóst í nokkurn tíma í hvað stefndi hjá Stjána þótt hann bæri sig vel og hefði trú á að hann myndi hafa þetta af. Eftir forsýn- ingu á „Síðustu veiðiferðinni“, rétt í þann mund sem allt lokaðist út af Covid, hringdi ég í Stjána og gaf honum skýrslu um myndina og hlógum við að gömlum minn- ingum og hlökkuðum til nýrra í Flókunni í júní. Hann verður í hjörtum okkar viðstaddur með glas í hendi, pípustertinn í öðru munnvikinu og góðlátlega glottið sitt í hinu. Þegar ég hrindi í Vigga bróður til að votta honum samúð mína svaraði Viggi: „Sömuleiðis, hann var jú líka bróðir þinn.“ Það var málið, skyldir í áttunda lið sam- kvæmt Íslendingabók, ekki bara vinir, heldur bræður. Við Klara sendum Stínu og fjölskyldunni allri okkar innileg- ustu samúðarkveðjur. Minningin um góðan dreng mun svo sann- arlega lifa meðan við lifum. Þröstur Lýðsson. Elskuleg móðir okkar og tengdamóðir, amma og langamma, KRISTÍN BJARNADÓTTIR, Dvalarheimili HSN á Sauðárkróki, lést 24. maí. Útför hennar fer fram frá Sauðárkrókskirkju þriðjudaginn 2. júní klukkan 11. Þeir sem vilja minnast hennar vinsamlega látið HSN á Sauðárkróki njóta þess. Bjarni Pétur Maronsson Laufey Haraldsdóttir Sigurlaug Helga Maronsdóttir og fjölskyldur Elskulegur eiginmaður minn, HÖSKULDUR JÓNSSON, fyrrverandi forstjóri ÁTVR, lést á Kanaríeyjum 19. mars. Kveðjuathöfn fer fram í Grafarvogskirkju föstudaginn 5. júní klukkan 13. Vegna gildandi reglna um fjölda á samkomum er athöfnin aðeins opin boðsgestum. Fyrir hönd aðstandenda, Guðlaug Sveinbjarnardóttir Látinn er ÁRNI GRETAR FERDINANDSSON verslunarmaður. Útförin fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 3. júní klukkan 15. Fyrir hönd aðstandenda, Steinunn Ísfeld Karlsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.