Skessuhorn - 19.02.2020, Side 9
DAGSKRÁ:
19.30 - SKÓLASTJÓRNENDUR BREKKUBÆJARSKÓLA, GRUNDASKÓLA OG
HEIÐARSKÓLA OPNA FUNDINN.
19.40 - BRYNDÍS JÓNSDÓTTIR, VERKEFNASTJÓRI HEIMILIS OG SKÓLA
OG HEIÐRÚN JANUSARDÓTTIR FORVARNARFULLTRÚI MEÐ
ERINDI UM GAGNSEMI OG FORVARNARGILDI FORELDRASAMSTARFS.
20.15 – FORMLEG STOFNUN SAMTAKANNA OG KAFFI OG KAKA. REGLUR
SAMTAKANNA KYNNTAR OG KOSIÐ FORMLEGA Í STJÓRN.
21.00 - FUNDI SLITIÐ.
Það er okkar markmið að búa til öflugt tengslanet foreldra,
bæði innan skólanna þriggja, en einnig brúa bilið á milli
þeirra þar sem krakkarnir okkar tilheyra allir sama
samfélaginu og munu flestir fara í sama framhaldsskóla að
grunnskólagöngu lokinni.
Rannsóknir sýna að foreldraþátttaka skiptir sköpum í
forvörnum, sem felst m.a. í því að foreldrar þekki ekki bara
vini barna sinna, heldur foreldra þeirra líka.
Við kynnum með stolti stofnun nýrra foreldrasamtaka fyrir grunnskólana á Akranesi og í Hvalfjarðarsveit:
AK-HVA foreldrasamtökin.
Það eru stjórnir foreldrafélaga grunnskólanna svæðinu, Brekkubæjarskóla, Grundaskóla og Heiðarskóla, sem standa að
stofnun þessara samtaka með stuðningi Heimilis og skóla.
Tilgangurinn með því að stofna þessi samtök er að búa til vettvang fyrir foreldrasamtal og foreldrasamstarf á svæðinu.
Samtökin munu styðja við það foreldrastarf sem er fyrir í skólunum og standa fyrir ýmis konar fræðslu fyrir okkur
foreldra um forvarnir, menntun og fleira.
Okkur langar því að bjóða ykkur, kæru foreldrar, innilega velkomna á stofnfundinn okkar og hjálpa okkur að setja tóninn í
foreldrasamstarfi hér á svæðinu. Samtakamáttur okkar foreldra getur áorkað svo miklu og saman getum við myndað þétt
öryggisnet í kringum krakkana okkar.
Við viljum sérstaklega bjóða velkomna alla starfsmenn í skóla- og frístundastarfi á svæðinu!
Stofnfundur AK-HVA foreldrasamtakanna verður haldinn þann 25. febrúar á sal Brekkubæjarskóla kl. 19.30. Boðið verður
upp á kaffi og köku til að fagna og munu nemendur frá skólunum þremur sjá um skemmtiatriði.
Taktu þátt í að skapa öflugt foreldranet í samfélaginu okkar!
Ekki láta þig vanta á þennan mikilvæga viðburð!
STOFNFUNDUR 25 . FEBRÚAR
KL . 19 . 30 Í BREKKUBÆJARSKÓLA
AK-HVA Foreldrasamtökin
KÆRU FORELDRAR!