Skessuhorn


Skessuhorn - 19.02.2020, Síða 14

Skessuhorn - 19.02.2020, Síða 14
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 202014 Verðlagseftirlit Alþýðusambands Íslands hefur safnað upplýsingum til að bera saman frístundastyrki í sextán stærstu sveitarfélögum landsins. Þar kemur fram að Hafn- arfjörður er með hæstu frístunda- styrkina árið 2020 eða 54.000 kr. á ári með fyrsta barni, en Ísafjarð- arbær og fjarðarbyggð bjóða ekki upp á neina frístundastyrki. Af þeim sveitarfélögum sem bjóða upp á slíka styrki eru þeir lægstir í borg- arbyggð, 20.000 kr. á ári með fyrsta barni og sama upphæð með hverju barni eftir það. Á Akranesi er frí- stundastyrkur 35.000 krónur með fyrsta barni, 39.375 með öðru barni og 44.479 með þriðja barni. Mörg sveitarfélög styrkja tóm- stundastarf barna með svokölluð- um frístundastyrkjum sem er yfir- leitt ákveðin peningaupphæð á ári sem fylgir hverju barni og er ætl- uð til niðurgreiðslu á tómstunda- starfi. „Rannsóknir sýna að þátt- taka í tómstundastarfi hefur áhrif á vellíðan barna og unglinga auk þess sem sýnt hefur verið fram á for- varnargildi tómstundastarfs og er það því hagur samfélagsins að börn hafi aðgang að slíku starfi. Tóm- stundir, hvort sem um er að ræða íþróttir, tónlistarnám eða annað, gegna því bæði því hlutverki að vera afþreying fyrir börn og ung- linga auk þess að hafa menntunar- og forvarnargildi. Tómstundir geta verið dýrar og fjölskyldur eru í mis- jafnri stöðu til að greiða fyrir þær. Styrkirnir stuðla að því að börn geti tekið þátt í tómstundastarfi óháð efnahag og félagslegum aðstæðum og jafna þeir tækifæri barna til tóm- stundaiðkunar,“ segir í tilkynningu frá ASÍ. mm Þriðjudaginn 11. febrúar síðast- liðinn var afhjúpaður minningar- skjöldur um Guðmund Kristinsson á slökkvistöðinni í Stykkishólmi. Við athöfnina sýndi slökkvilið- ið einnig tæki sem keypt voru fyrir gjafafé sem safnað var til minning- ar um Guðmund. Um frjáls fram- lög var að ræða og safnaðist á aðra milljón króna til tækjakaupa fyrir slökkviliðið. Peningarnir voru notaðir til kaupa á tveimur loftpúðasettum, bæði há- og lágþrýstisett. Púðana má nota til að lyfta ýmsum þungum hlut- um. Við athöfnina sýndu slökkvi- lið og viðbragðsaðilar hvernig nota má loftpúðana til lífsbjargar, þegar bíl var lyft með púðunum og gervi- manni bjargað undan honum. Að lokinni minningarathöfninni var slökkvistöðin opin öllum, en 112 dagurinn var haldinn hátíðlegur í Stykkishólmi eins og víða um land þennan þriðjudaginn. kgk/ Ljósm. sá. Að undanförnu hefur borg- arverk ehf. þurft að sprengja upp holt vegna fyrirhugaðr- ar gatnagerðar nýrrar götu sem nefnist Sóleyjarklett- ur, suðaustan við kaupfélag- ið við egilsholt í borgarnesi. fyrir hverja sprengingu hef- ur verið gefið hljóðmerki. Í tilkynningu frá borgarbyggð segir að síðustu sprenging- arnar hafi verið á mánudag og þriðjudag í þessari viku. Voru íbúar beðnir afsökun- ar á þeim óþægindum sem sprengingarnar hafa hugsan- lega valdið. mm Sjóminjasafnið á Hellissandi fékk tveimur styrkjum úthlutað frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands á dögunum. Annar þeirra var rekstrarstyrkur upp á 1.200.000 krónur sem gerir safninu kleift að hafa starfsemi næsta sumar. Hinn styrkurinn ber nafnið Kría í Rifi, en það verkefni snýst um fram- leiðslu á vandaðri kvikmynd um kríuvarpið í Rifi. Sjóminjasafnið fékk Halldóru Unnarsdóttur til samvinnu við sig áður en sótt var um styrkinn, en hún er mennt- uð kvikmyndagerðarkona. fjallað verður í myndinni um hvaðan krí- an kemur og líf hennar í svo nánu sambandi við byggð og umferð í Rifi. einnig er ætlunin að fá inn- sýn í líf hennar yfir sumarið og hvert hún fer til vetrardvalar. eru þær Halldóra og Þóra mjög ánægðar með að hafa fengið styrk til verkefnisins því krían í Rifi á skilið að fá verðskuldaða athygli ekki síst þar sem hún er fugl bæj- arfélagsins. þa Bera saman frístunda- styrki í stærstu sveitarfélögunum Halldóra og Þóra eru spenntar fyrir að undirbúa gerð kvikmyndar um kríuna í Rifi. Stefna á kvikmyndagerð um kríuna í Rifi Síðustu sprengingarnar afstaðnar Minningarskjöldur um Guðmund Kristinsson afhjúpaður Minningarskjöldurinn um Guðmund Kristinsson sem prýðir slökkvistöðina í Stykkishólmi. Viðbragðsaðilar sýndu hvernig loftpúðasettin virka með því að lyfta bíl og bjarga gervimanni undan honum. Börnin skoða sjúkra- bílinn á 112 deginum í Stykkishólmi.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.