Skessuhorn


Skessuhorn - 19.02.2020, Page 22

Skessuhorn - 19.02.2020, Page 22
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 202022 Árið er 1949 og við erum í Reykja- vík þegar Anna Sigríður Steins- dóttir, klæðskeradóttir frá Vest- mannaeyjum, og Tryggvi Ólafsson frá Litluhlíð á barðaströnd, eignast son sem fær nafnið Trausti. Trausti er mikið náttúrubarn, handlag- inn og mikill dýravinur. Hann ólst upp í Reykjavík og gekk í Laugar- nesskóla þar sem áhugi hans fyr- ir handverki kviknaði. Þegar hann var 17 ára kynntist hann stúlku frá Stykkishólmi, Kristborgu Haralds- dóttur, og þá var ekki aftur snú- ið. Hann varð ástfanginn og flutti skömmu síðar með stúlkunni í Stykkishólm þar sem þau búa enn og hafa alið upp dætur sínar þrjár, tvíburasysturnar Önnu Sigríði og Oddfríði Kristínu og yngstu dótt- urina Ritu Hvönn. Trausti lærði húsasmíði og vann við smíðar hjá Trésmiðjunni Ösp í nærri tvo áratugi áður en hann tók allt aðra stefnu og gerðist bryti á breiðafjarðarferjunni baldri árið 1986 þar sem hann vann næstu átta árin. Spurður hvort hann sé kokkur að mennt svarar hann; „bara af guðs náð.“ Þegar Trausti hætti á baldri tók hann enn aðra stefnu og fór að kenna. Hann lærði kennslufræði og byrjaði að kenna við Grunn- skólann í Stykkishólmi árið 1994. Hann hafði þó aðeins reynt fyrir sér í kennslunni áður þegar hann kenndi einn vetur í barnaskólan- um á Hallormsstað þar sem Krist- borg var skólastjóri. Trausti, Krist- borg og Oddfríður dóttir þeirra eru öll kennarar að mennt. „Við Odd- fríður fórum saman í Kennarahá- skólann,“ segir hann. en áhuga- málin hafa alltaf verið Trausta mik- ilvæg og eins og hann segir sjálfur: „Ég hef eiginlega verið á fullu alla ævi við að sinna áhugamálum mín- um og sjálfum mér, en vinnan hef- ur verið bara svona eitthvað til að flækja málin og borga allt gaman- ið.“ Alltaf haft áhuga á fuglum eins og fyrr segir er Trausti nátt- úrubarn af guðs náð. Áhugi hans á fuglum byrjaði æði snemma en þegar hann var barn fór hann oft með föður sínum á silungsveiðar. Þar voru það helst fuglarnir sem hann hafði áhuga á að fylgjast með og spurði hann föður sinn út í alla fuglana, hvað þeir hétu og slíkt. „Hann var nú ekki alltaf örugg- ur á því kallinn. einn daginn þeg- ar hann var að lesa blöðin sá hann auglýsingu um fuglanámskeið og ákvað að senda mig. Þar jókst áhugi minn bara og ég er enn fastur í þessu áhugamáli,“ segir Trausti og hlær. Á þessum tíma kynntist hann Ævari Petersen og leiddi það til samstarfs þar sem Trausti safnaði upplýsingum um íslenskt náttúrulíf í um þrjátíu ár. Spurður hvað það væri við fuglana sem heillaði svona segir hann ómögulega vita það. „Ætli það megi ekki rekja þetta til móður minnar og Vestmannaeyja. Mamma ólst upp í Vestmannaeyj- um og þó ég hafi ekki alist þar upp sjálfur var ég þar mikið á sumrin, þaðan kemur hrekkjalómurinn í mér,“ segir hann og hlær. „Í Vest- mannaeyjum eru alltaf allir klifr- andi og ég hef alltaf verið mikill klettaklifrari, já eða þar til ég náði þeirri þyngd sem ég er í dag, það er erfitt að klifra á rúmum 100,“ segir hann í hæðni. „Ég var bara alltaf að klifra í björgum og taka myndir af fuglum og ætli þetta tvennt tengist því ekki bara svona.“ Hvítmáfur erfiðastur Trausti var lengi að merkja fugla fyrir Náttúrufræðistofnun Íslands. „Ég var að merkja allar stærðir fugla, bæði á jafnsléttu og í klettum. Maður fer af stað þegar ungarnir eru komnir úr hreiðrum og eltir þá uppi, á láglendinu notaði ég mikið hunda til að hafa uppi á ungunum fyrir mig,“ útskýrir hann og bæt- ir því við að í um áratug var hann markvisst að merkja arnarunga. en var hann ekkert hræddur við örn- inn? „Alls ekki. Ungarnir bíða bara eftir að maður kom til þeirra og haförninn er ekki grimmur. Hann á það til að demba sér niður að manni en hann fer aldrei í mann, þó hann geti það vissulega,“ svarar Trausti og bætir því við að hvítmáf- urinn hafi verið erfiðastur. Hann er hættur að merkja fugla í dag en fer þó enn út til að skoða þá og fylgjast með. „Þetta er í blóðinu svo ég er alltaf með hugann við þetta,“ seg- ir Trausti. fuglarnir eru þó ekki það eina sem hann hefur áhuga á í náttúrunni heldur skoðar hann líka plöntur og skordýr og hefur í gegn- um árin sent erlingi Ólafssyni, hjá Náttúrufræðistofnun Íslands, ýmis skordýr sem hann hefur fundið sem skera sig úr hér á landi. Hann seg- ist þó ekki hafa dottið niður á sára- sjaldgæfar plöntur en stundum hef- ur hann fundið afbrigði af hefð- bundum plöntum. „Það eru þá helst albínóar eða eitthvað svoleið- is,“ útskýrir hann. Barðist til að fá að hafa hund Trausti er mikill dýravinur og hefur alla tíð verið með dýr á heimilinu, hunda, dúfur, gullfiska og kanínur auk einstaka kattar. „Þetta er bónd- inn í mér. Ég ætlaði alltaf að verða kúabóndi en það varð ekkert úr því,“ segir hann. Dýrahaldið hefur þó ekki alltaf verið auðvelt en þeg- ar þau hjónin fluttu í eigið húsnæði, árið 1972, fengu þau sér hund. Þar sem hundahald var bannað í Stykk- ishólmi á þessum tíma fengu þau oft heimsókn frá lögreglunni og einn daginn árið 1974 sendi sýslumað- ur sína menn að aflífa alla hunda í bænum. „Það sluppu tveir hundar þennan dag, minn hundur því við vorum ekki heima, og hundur hjá Nýtir tímann til að sinna fjölmörgum áhugamálum auk kennslu Rætt við Trausta Tryggvason kennara, smið, handverksmann og fuglaáhugamann Trausti sýnir ljósmyndara Skessuhorns inn á verkstæðið sitt. Ljósm. sá. Álfur sem Trausti er að vinna að. Ljósm sá. Brot af fuglasafni eftir Trausta. Ljósm. sá. Mýs og sveppir sem Trausti hefur tálgað. Ljósm. úr einkasafni. Heldur gæfur þessi skógarþröstur. Ljósm. úr einkasafni.

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.