Skessuhorn - 19.02.2020, Page 27
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 2020 27
Gunnhildur Lind Hansdóttir ljós-
myndari flutti nýverið aftur heim á
æskuslóðirnar í borgarnesi og hef-
ur komið á fót eigin ljósmyndafyr-
irtæki þar í bæ. Hún hefur tekið
að sér ýmis verkefni við ljósmynd-
un undanfarin ár undir merkjum
Gunnhildur Lind Photography. Til
þessa hefur hún sinnt ljósmyndun-
inni samhliða störfum, en freist-
ar þess nú að geta starfað alfar-
ið sem ljósmyndari. „ef maður er
ekki 100% í einhverju þá er maður
í einhverjum skilningi bara að gera
það með hálfum hug,“ segir Gunn-
hildur í samtali við Skessuhorn.
„Mig langaði að prófa og sjá hvort
ég gæti unnið bara við ljósmyndun
og fólk var að hvetja mig til að láta
vaða,“ segir hún og er ánægð með
að hafa látið verða af því. „Mér
finnst gott að geta stjórnað mín-
um tíma sjálf og geta verið þar sem
ég vil vera, en ekki endilega bundin
af því að mæta einhvers staðar frá
átta til fjögur alla daga,“ segir hún.
„en í rauninni hefur lítið breyst,
fyrir utan það að ég er orðin verk-
taki og að ég get auðvitað tekið að
mér fleiri verkefni en áður. Mark-
miðið er ennþá það sama, að verða
fyrsta manneskjan sem fólk hugsar
til þegar það vantar ljósmyndara,“
segir Gunnhildur.
Fjölbreytt verkefni
ljósmyndara
Helstu verkefni Gunnhildar þessi
misserin og næstu eru af ýmsum
toga. „Ég er að fara í skemmtilegt
verkefni með Ullarselinu á Hvann-
eyri. Til stendur að gefa út prjóna-
blað og ég mun mynda fyrir blað-
ið,“ segir hún. „Svo er ég að fara að
taka þátt í skemmtilegu en öðruvísi
verkefni hjá Menntaskóla borg-
arfjarðar. Þar er verið að gefa út
skólablað og bragi skólameistari
lagði til að ég yrði nokkurs konar
leiðbeinandi. Ég hitti hópinn einu
sinni í viku og held þeim við efn-
ið og gef ráð. Ég er mjög spennt
fyrir því og þar mun reynslan sem
blaðamaður hjá Skessuhorni koma
að góðum notum,“ segir Gunnhild-
ur. „Það verður gaman að geta haft
góð og hvetjandi áhrif á yngra fólk-
ið í menntaskólanum, svo ég hljómi
eins og ég sé ógeðslega gömul,“
segir hún og hlær við. „en svo eru
fermingarmyndatökurnar fram-
undan á næstunni og svo eru það
brúðkaupin í sumar. Þar er ég bók-
uð flestar helgar og nóg að gera,“
segir ljósmyndarinn. „Næsta haust
reikna ég síðan með að bjóða upp
á haustmyndatökur fyrir fjölskyld-
ur. Ég gerði það í fyrra í borgar-
nesi, Akranesi og Stykkishólmi, þar
sem komust færri að en vildu. Mig
langar að bæta fleiri stöðum á Snæ-
fellsnesi við í ár,“ segir hún.
Margar hugmyndir
Með tíð og tíma langar Gunnhildi
að geta komið upp stúdíói í borg-
arnesi þar sem hún getur boðið
fólki að koma í myndatökur. einn-
ig vill hún gjarnan geta boðið upp á
að taka efni á myndband fyrir fólk í
framtíðinni. „Svo langar mig rosa-
lega mikið að fara út í svona áfanga-
staðamyndir. Til dæmis bjóða upp
á myndatökur fyrir fólk sem kem-
ur til Íslands til að gifta sig. Ég hef
prófað það einu sinni og það var
mjög gaman. Það er svo mikil nánd
og ekkert stress. fólk er gefið sam-
an en það er engin veisla sem bíð-
ur, heldur fer fólk bara út og fær
góðar brúðarmyndir af sér á ýms-
um fallegum stöðum,“ segir hún.
„Það væri gaman að setja upp svo-
leiðis ferðir hér í borgarnesi og
nágrenni, þá borgarfirði og Snæ-
fellsnesi,“ bætir hún við. „Ég sé
líka fyrir mér að bjóða upp á para-
myndir, þannig að pör sem eru hér
á ferðalagi gætu haft samband og
fengið myndir af sér í borgarnesi
hjá einhverjum sem þekkir staðinn.
Ég er einmitt að fara að mynda par
hér í næstu viku og það væri gaman
að geta gert meira af þessu,“ seg-
ir hún. blaðamaður heggur eft-
ir því að öll verkefnin hennar snú-
ast um fólk. Það segir ljósmyndar-
inn ekki vera tilviljun. „Það er allt-
af skemmtilegast að taka myndir af
fólki,“ segir Gunnhildur Lind að
endingu.
kgk
Sveitabrúðkaup í Eyja- og Miklaholtshreppi síðastliðið sumar.
Ljósm. Gunnhildur Lind Photography.
Ákvað að snúa sér alfarið að ljósmyndun
Gunnhildur Lind Hansdóttir, ljósmyndari í Borgarnesi. Ljósm. kgk.
Frá haustmyndatöku í Stykkishólmi síðasta haust.
Ljósm. Gunnhildur Lind Photography.