Skessuhorn - 19.02.2020, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 19. febRúAR 2020 31
Geysisbikar kvenna verður í borgarnesi næsta árið hið
minnsta, eftir magnaðan sigur Skallagrímskvenna á KR í bik-
arúrslitaleiknum á laugardag, 66-49. Skallagrímur er því bik-
armeistari í körfuknattleik í fyrsta skipti og er þetta fyrsti stóri
titill félagsins frá því borgnesingar urðu Íslandsmeistarar
kvenna árið 1964.
Vörnin vinnur titla
Grunninn að sigrinum lögðu Skallagrímskonur á eigin vallar-
helmingi. Þær léku frábæra vörn allan leikinn og héldu sterku
liði KR undir 50 stigum, eitthvað sem engu liði hefur tekist að
gera í vetur, hvorki í deild né bikar.
Spennustigið var hátt og lítið skorað framan af leiknum,
en mikið jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik. KR leiddi
11-13 eftir fyrsta leikhltuann og leikurinn var í járnum í öðr-
um fjórðungi. Skallagrímskonur náðu undirtökunum undir
lok fyrri hálfleiksins og leiddu með þremur stigum í hléinu
eftir að hafa sett niður flautuþrist úr horninu, 27-24.
Skallagrímskonur skoruðu fyrstu sjö stig síðari hálfleiks-
ins og náðu þar með tíu stiga forystu. Vesturbæjarliðinu gekk
illa að fóta sig í sókninni gegn sterkri vörn borgnesinga, sem
héldu þeim í tíu stigum í þriðja leikhluta. Þær náðu þó smá
rispu og minnkuðu muninn í fjögur stig, en Skallagrímskonur
svöruðu og gott betur en það. Þær enduðu þriðja leikhlutann
á mjög góðum kafla og stóðu með pálmann í höndunum fyrir
lokafjórðunginn, ellefu stigum yfir, 45-34.
Skallagrímskonur stigu ekki feilspor í lokaleikhlutanum.
Þær léku góða vörn og gekk vel í sókninni. Þegar skammt
var eftir af leiknum voru þær komnar 21 stigi yfir og sigurinn
í höfn. KR-ingar löguðu stöðuna aðeins undir lokin en það
breytti engu um úrslitin. Skallagrímskonur eru bikarmeistarar
kvenna í körfuknattleik 2020!
Keira maður leiksins
Keira Robinson tók stjórn leiksins í sínar hendur í síðari hálf-
leik og var valin mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins. Hún
skoraði 32 stig fyrir Skallagrím og tók ellefu fráköst. Mat-
hilde Colding-Poulsen skoraði ellefu stig, emilie Hesseldal
skoraði tíu stig og tók átta fráköst, Sigrún Sjöfn Ámundadótt-
ir var með níu stig og 14 fráköst og Maja Michalska skoraði
fjögur stig.
Danielle Rodriguez var atkvæðamest í liði KR með 22 stig
og sjö fráköst. Hólmarinn Hildur björg Kjartansdóttir skor-
aði tíu stig og tók sjö fráköst, Unnur Tara Jónsdóttir var með
sjö stig og sex fráköst, Sanja Orozovic skoraði fjögur stig, tók
sjö fráköst og gaf sex stoðsendingar og þær Sóllilja bjarna-
dóttir, Perla Jóhannsdóttir og Þóra birna Ingvarsdóttir skor-
uðu tvö stig hver.
„Bikarinn yfir brúna“
Guðrún Ósk Ámundadóttir, þjálfari Skallagríms, var að von-
um ánægð með leik sinna kvenna þegar Skessuhorn ræddi við
hana rétt eftir að bikarinn fór á loft. Hún sagði tilfinninguna
að verða bikarmeistari með Skallagrími afar góða. „Þetta er
geggjuð tilfinning, sérstaklega góð tilfinning að ná að gera
þetta fyrir heimabæinn sinn,“ sagði Guðrún að leik loknum.
blaðamaður hafði orð á því að Skallagrímur hefði leikið afar
vel í leik dagsins. Þjálfarinn mótmælti því ekki og kvaðst afar
ánægð með frammistöðu liðsins. „Ég er með svakalega ein-
beitta leikmenn og atvinnumenn í mínu liði sem eru forrétt-
indi. Markmiðið var að halda í við þær fram að hálfleik og
byrja mjög sterkt í þriðja leikhluta. Sem tókst og við gáfum
svo bara í í þeim fjórða,“ segir hún. „Nú tökum við bikarinn
yfir brúna og það verður fagnað í kvöld,“ segir Guðrún Ósk
ánægð að endingu.
kgk
Skallagrímskonur eru bikarmeistarar
Bikarmeistarar kvenna í körfuknattleik 2020. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir og Maja Michalska hefja bikarinn á loft. Ljósm. þe.
Keira Robinson var valin mikilvægasti leikmaður úrslitaleiksins.
Ljósm. þe.
Maja Michalska lætur vaða á körfuna.
Keira setur niður tveggja stiga stökkskot. Ekki það
eina í leiknum.
Mathilde Colding-Poulsen setur
flautuþrist úr horninu sem tryggði
Skallagrímskonum þriggja stiga for-
skot í hálfleik.
Leikmenn fagna með áhorfendum í Laugardalshöllinni. Ljósm. þe.
Skallagrímskonur fallast í faðma að leik loknum.
Bikarfjölskylda úr Borgarnesi. F.v. Sigrún Sjöfn Ámundadóttir,
Ragnheiður Guðmundsdóttir, Ámundi Sigurðsson, Arna Hrönn
Ámundadóttir og Guðrún Ósk Ámundadóttir. Ljósm. þe.