Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 23
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 23
Frestun Aðalfundar
Aðalfundur Kjalar stéttarfélags starfsmanna
í almannaþjónustu hefði átt að vera haldinn
fimmtudaginn 19. mars 2020 í Hömrum í
menningarhúsinu Hofi á Akureyri, en honum hefur
verið frestað um óákveðinn tíma.
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
0
www.kjolur.is
Aðalfundur
Kjölur stéttarfélag | Skipagötu 14 - 3.hæð | 602 Akureyri | Sími 525 8383 | kjolur@kjolur.is
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt lögum félagsins
2. Kosning fulltrúa á þing BSRB
3. Önnur mál
Veitingar og happdrætti.
Akureyri 5. mars 2018
Stjórn Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu
Pappírslaus fundur en öll gögn hans er að finna á heimasíðu Kjalar
www.kjolur.is
Kjalar Stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu
verður haldinn þann 20. mars 2018 kl. 16:30
í Skipagötu 14, 4. hæð Akureyri.
Eðalfiskur ehf • Vallarási 7-9, 310 Borgarnesi • S: 437-1680
sala@edalfiskur.is • www.edalfiskur.is
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
01
8
Starfsfólk
Leitum að duglegum, stundvísum og hressum einstaklingum til
starfa. Um er að ræða ýmis störf við framleiðslu á laxi.
Viðkomandi þarf að geta unnið meira þegar á þarf að halda.
Grunnvinnutími er frá kl. 07:00 - 15:10.
Áhugasamir sendi ferilskrá á edalfiskur@edalfiskur.is
(Kristján)
We are looking into hiring hard working, punctual and energetic
individuals in our salmon processing workplace.
Applicants do need to be able to work more when needed.
Basic work hours from 07:00 - 15:10
Please send resume and CV if you are interested to
edalfiskur@edalfiskur.is (Kristján)
S
K
E
S
S
U
H
O
R
N
2
02
0
Prestar prestakallsins sinna
sálgæsluþjónustu
Það eru margir sem finna til kvíða og
vanlíðunar í þessum erfiðu aðstæðum.
Ef þú vilt samtal við prest þá er bæði hægt að hafa
samband í síma eða í gegnum tölvupóst.
sr. Þráinn Haraldsson sóknarprestur –
866-0112 / thrainn@akraneskirkja.is
sr. Jón Ragnarsson prestur –
862-4253 / jon.ragnarsson@kirkjan.is
Meðan á samkomubanni stendur
munu prestar birta hugvekjur á heimasíðu
kirkjunnar www.akraneskirkja.is
Togskipið Helgi SH hefur verið
seldur frá Grundarfirði og er kaup-
andinn Aurora Seafood ehf. Verð-
ur Flateyri heimahöfn bátsins og
fær hann nafnið Tindur ÍS 235 og
verður gerður út á sæbjúgnaveið-
ar. Guðmundur Runólfsson hf. í
Grundarfirði keypti bátinn árið
2000 og gaf honum Helganafnið
sem hann bar í 20 ár.
Eins og kunnugt er festi Guð-
mundur Runólfsson hf. kaup á tog-
skipinu Bergey VE 544 af Bergi-
Huginn ehf. í Vestmannaeyjum á
síðasta ári. Bergey fékk nafnið Run-
ólfur SH 135 og leysti hann Helga
af hólmi. af
Í síðustu viku settum við á vef
Skessuhorns tímabundna skoðana-
könnun í tvo daga. Hún var síðan
tekin úr birtingu þegar svarenda-
fjöldi var kominn í nákvæmlega
500. Spurt var: „Hvaða ráðherra er
að standa sig best?“ Niðurstaðan
var nokkuð afgerandi. Lilja Dögg
Alfreðsdóttir mennta- og menn-
ingarmálaráðherra uppskar 22%
atkvæða, en í öðru sæti varð Katrín
Jakobsdóttir forsætisráðherra með
14%. Kristján Þór Júlíusson sjáv-
arútvegs- og landbúnaðarráðherra
rak svo lestina.
Niðurstaðan í heild var þessi:
Lilja Dögg Alfreðsdóttir
(22%, 112 Atkvæði)
Katrín Jakobsdóttir
(14%, 69 Atkvæði)
Ásmundur Einar Daðason
(13%, 63 Atkvæði)
Svandís Svavarsdóttir
(10%, 50 Atkvæði)
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir
(10%, 49 Atkvæði)
Bjarni Benediktsson
(9%, 45 Atkvæði)
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir
(7%, 37 Atkvæði)
Sigurður Ingi Jóhannsson
(5%, 26 Atkvæði)
Guðmundur Ingi Guðbrandsson
(5%, 25 Atkvæði)
Guðlaugur Þór Þórðarson
(4%, 20 Atkvæði)
Kristján Þór Júlíusson
(1%, 4 Atkvæði) mm
Síðastliðinn fimmtudag var Vel-
ferðarstefna Vesturlands gefin út.
Samtök sveitarfélaga á Vesturlandi
hafa í auknum mæli farið í stefnu-
mótunarvinnu fyrir landshlutann
og eru velferðarmál hluti af þeim
verkefnum. Við vinnslu velferðar-
stefnunar var skipaður starfshóp-
ur aðila í velferðarmálum á Vest-
urlandi. Í honum sitja fulltrú-
ar frá Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands, dvalar- og hjúkrunarheimil-
um, æskulýðs-, tómstunda- og for-
varnarfulltrúar, frá stjórnsýslunni,
stjórn SSV og frá Starfsendurhæf-
ingu Vesturlands. Auk þessara full-
trúa sátu starfsmenn SSV í hópn-
um sem starfsmenn hans. Í velferð-
arstefnunni er tekið á eftirfarandi
þáttum: Heilbrigðisþjónustu, öldr-
unarþjónustu, félagsþjónustu og
þjónustu við fatlaða einstaklinga,
starfsendurhæfingu auk æskulýðs-
og forvarnarmálum.
„Stefnan er byggð upp á grein-
ingarvinnu hvernig staða velferð-
armála er í landshlutanum í dag
og var m.a. stuðst við íbúakönn-
un Vífils Karlssonar hagfræðings
hjá SSV. Starfshópurinn setti svo
fram stefnumótandi framtíðar-
sýn og markmið í velferðarmálum
Vesturlands. Velferðarstefna Vest-
urlands er hönnuð af Antoni Jón-
asi Illugasyni, grafískum hönnuði
frá Ólafsvík, og er skýrslan prent-
uð í Steinprenti í Ólafsvík. Prentað
eintak má nálgast á skrifstofu SSV
en hægt er að nálgast stefnuna raf-
rænt á heimasíðu samtakanna, ssv.
is. Stefnt er að því að halda mál-
þing um Velferðarstefnuna og mál-
efni henni tengdri og verður sá við-
burður auglýstur síðar,“ segir í til-
kynningu.
mm
Velferðarstefna Vesturlands komin út
Helgi á leið til Flateyrar og
fer á sæbjúgnaveiðar
Lilja talin standa sig best