Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 30

Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 30
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 202030 Skallagrímsmenn mættu ofjör- lum sínum þegar þeir heimsóttu topplið Hattar austur á Egils- staði í 1. deild karla í körfuknatt- leik á fimmtudagskvöld. Skalla- grímsmenn náðu að hanga í Hetti í fyrri hálfleik en í þeim síðari tóku heimamenn öll völd á vellinum í og sigruðu að lokum örugglega, 85-66. Heimamenn höfðu yfirhönd- ina framan af fyrsta leikhluta og komust mest átta stigum yfir. Þá tóku Borgnesingar góða rispu og náðu að minnka muninn í eitt stig áður en leikhlutinn var úti, 16-15. Borgnesingar jöfnuðu metin í upphafi annars leikhluta áður en Höttur náði forystunni að nýju. Skallagrímur minnkaði muninn í fimm stig seint í leikhlutanum en heimamenn áttu lokaorðið í fyrri hálfleik og leiddu með sjö stigum í hléinu, 40-33. Heimamenn juku forskot sitt í 13 stig snemma í seinni hálfleik og þannig var staðan um það bil þangað til um miðjan þriðja leik- hlutann. Eftir það skildu leiðir og Höttur var 22 stigum yfir fyr- ir lokafjórðunginn, 66-44. Borg- nesingar löguðu stöðuna lítið eitt í fjórða leikhlutanum en sigur heimamanna var aldrei í hættu. Loktaölur voru 85-66, Hetti í vil. Kristófer Gíslason var stiga- hæstur í liði Skallagríms með 18 stig og átta fráköst að auki. Hjalti Ásberg Þorleifsson skoraði 16 stig, Kenneth Simms var með 14 stig, 13 fráköst og sex stoðsendingar, Bergþór Ægir Ríkharðsson skor- aði átta stig, Davíð Ásgeirsson var með fjögur og þeir Arnar Smári Bjarnason, Kristján Örn Ómars- son og Marinó Þór Pálmason skoruðu tvö stig hver. Matej Karlovic skoraði 19 stig fyrri Hött, Ásmundur Hrafn Magnússon var með 16, Dino Stipcic skoraði tólf stig, gaf tíu stoðsendingar og tók sjö fráköst og David Guardia Ramos skoraði ellefu stig og tók sex fráköst. Borgnesingar sitja í sjöunda sæti deildarinnar með sex stig, tveimur stigum meira en Sindri og Snæfell í sætunum fyrir neðan en tíu stig- um á eftir Selfyssingum. Borgnes- ingar áttu að leika síðasta leik sinn í deildinni á morgun, fimmtudag- inn 19. mars. Þeim leik hefur hins vegar verið frestað um óákveð- inn tíma, eins og öðrum leikjum í tveimur efstu deildum karla og kvenna vegna kórónaveirunnar. kgk Íslandsmótinu í körfuknattleik er lokið í 2. deild karla og kvenna, 3. deild karla, unglingaflokki karla, stúlknaflokki, drengjaflokki, 10., 9., 8., og 7. flokkum drengja og stúlkna sem og í minnibolta 9, 10 og 11 ára drengja og stúlkna. Enginn deildar- eða Íslandsmeistari verður krýnd- ur í þessum deildum og flokkum. Mótanefnd og stjórn Körfuknatt- leikssambands Íslands ákváðu að svo skyldi verða, í ljósi heimsfar- aldurs COVID-19 kórónaveirunn- ar og fjögurra vikna samkomub- anns sem lýst var yfir vegna hennar á föstudaginn. Þau meistaraflokkslið á Vestur- landi sem þessi ákvörðun hefur áhrif á eru ÍA og Grundarfjörður. Skaga- menn ljúka því keppni í 10. sæti 2. deildar karla og Grundfirðingar í 7. sæti 3. deildar karla. Auk þess hefur ákvörðunin vitaskuld áhrif á keppni allra þeirra yngri flokka liða í lands- hlutanum sem taldir voru upp hér að framan. Efstu deildum frestað Keppni í Domino‘s deildum karla og kvenna sem og 1. deildum karla og kvenna hefur verið frestað á meðan samkomubann er í gildi. Endanleg ákvörðun um framhald deildanna verður tilkynnt í dag, miðvikudaginn 18. mars, „þeg- ar íþróttahreyfingin hefur feng- ið rými til að ræða frekar við sótt- varnalækni og almannavarnir um þá stöðu sem er uppi og með hvaða hætti samkomu- og nálægðarbann hefur áhrif á íþróttahreyfinguna,“ segir í tilkynningu frá KKÍ. kgk/ Ljósm. úr safni/ jho. Öllum knattspyrnuleikjum á veg- um Knattspyrnusambands Íslands hefur verið frestað í ljósi samkomu- banns sem lýst var yfir á föstudag. Stjórn KSÍ ákvað því að fresta öll- um leikjum á vegum sambandsins, landsliðsæfingum og tengdum við- burðum á meðan samkomubann er í gildi. Stjórnin hvatti aðildarfélög sín til að fara í öllu eftir tilmælum stjórnvalda varðandi útfærslu á sínu starfi, viðburðum og æfingahaldi. Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur frestað öllum mót- um yngri landsliða til 14. apríl. Umspilsleik karlalandsliðsins um mögulegt sæti í lokakeppni EM hefur verið frestað fram í júní og lokakeppni EM hefur verið frestð um eitt ár. Fótbolti.net greinir frá því að líklega muni ekki gefast tími til að ljúka keppni í Lengjubikarn- um í ár en hins vegar verði upp- hafi Íslandsmótsins ekki frestað að svo stöddu. Enn er stefnt að því að keppni í Pepsi Max deild karla hefjist 22. apríl og Pepsi Max deild kvenna 30. apríl. „Grundvöllurinn á þessari ákvörðun er þetta fjög- urra vikna samkomubann. Hvað verður svo, verður að koma í ljós,“ er haft eftir Klöru Bjartmarz, fram- kvæmdastjóra KSÍ, á vef Fótbolta. net. kgk Snæfellingar steinlágu gegn sterku liði Breiðabliks, 114-69, þegar lið- in mættust í 1. deild karla í körfu- knattleik. Leikið var í Kópavogi á fimmtudagskvöld. Blikar réðu ferðinni frá fyrstu mínútu og náðu snemma öruggri forystu. Snæfellingar áttu slaakan upphafsfjórðung á meðan Breiða- blik lék á als oddi. Heimamenn leiddu með 34 stigum gegn tólf eftir fyrsta leikhluta. Snæfelling- ar náðu aðeins að minnka muninn í upphafi annars leikhluta en það dugði skammt. Breiðablik sótti í sig veðrið á nýjan leik og var 33 stigum yfir í hálfleik, 62-29. Síðari hálfleikur var einstefna eins og sá fyrri. Blikar leiddu 90-44 eftir þrjá leikhluta og því forskoti héldu þeir meira og minna óbreyttu í lokafjórðungnum. Þegar lokaflaut- an gall hafði Breiðablik skorað 114 stig gegn 69 stigum Snæfells. Brandon Cataldo skoraði 24 stig og reif niður 19 fráköst í liði Snæfells. Anders Gabriel Andersteg var með tólf stig, sex stoðsendingar og fimm fráköst, Ísak Örn Baldursson skoraði tólf stig, Benjamín Ómar Kristjáns- son var með níu stig, Ellert Þór Hermundsson var með sjö stig og Aron Ingi Hinriksson skoraði fimm. Árni Elmar Hrafnsson var stigahæstur í liði Breiðabliks með 28 stig og sjö stoðsending- ar að auki. Larry Thomas skoraði 25 stig, tók 17 fráköst og gaf sex stoðsendingar, Dovydas Strasuns- kas skoraði 16 stig og tók fimm fráköst og Hilmar Pétursson var með 13 stig og fimm fráköst. Snæfellingar verma botnsæti deildarinnar með fjögur stig, jafn mörg og Sindri í sætinu fyrir ofan. kgk/ Ljósm. úr safni/ sá. Frá leik ÍA og KA í efstu deild karla síðastliðið sumar. Ljósm. úr safni/ gbh. Knattspyrnuleikjum frestað Snæfellingar burstaðir Keppni hætt í mörgum deildum og flokkum Tveimur efstu deildum karla og kvenna frestað Skallagrímsmenn mættu ofjörlum sínum fyrir austan. Ljósm. úr safni/ Skallagrímur/ Gunnhildur Lind Photography. Borgnesingar lágu gegn toppliðinu

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.