Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 202024
Sólveig Sigurðardóttir, eða Sissa
eins og flestir þekkja hana, fékk
heilablóðfall í september 2006 sem
umturnaði lífi hennar. Sissa lamað-
ist í vinstri hlið líkamans auk þess
sem það blæddi yfir á sjónsviðið
hjá henni svo hún getur ekkert séð
vinstra megin við sig. Ef allt geng-
ur eftir gæti líf Sissu enn á ný tek-
ið nýja stefnu en nú til betri veg-
ar. Hún á bókaðan tíma í læknis-
meðferð í Bandaríkjunum 23. apríl
næstkomandi sem gæti hjálpað
henni að öðlast fyrri færni á ný.
Afgreitt með mígreni
eða vöðvabólga
Sissa er fædd og uppalin á Akra-
nesi og býr þar í dag en bjó í 16 ár í
Grindavík. Hún hafði gengið milli
lækna í marga mánuði, áður en hún
fékk heilablóðfallið, vegna mikilla
verkja í höfði. Alltaf voru verkirn-
ir afgreiddir sem annað hvort mí-
greni eða vöðvabólga og fékk hún
því bara lyf til að meðhöndla það.
Þann 16. september 2006 breytt-
ist allt þegar kom í ljós að verk-
irnir voru ekki vegna mígrenis eða
vöðvabólgu og það blæddi inn á
heila Sissu. „Ég treysti bara því sem
læknarnir sögðu og sættist á þess-
ar ástæður fyrir verkjunum. Sjálfri
datt mér engin önnur ástæða í hug
og svo bara treystir maður læknum.
En ég er sannarlega vitur eftir á og
í dag veit ég að ég hefði átt að biðja
um myndatöku og að blóðþrýsting-
urinn væri mældur og fleira en ég
vissi ekkert af þessu þá. En ég reyni
að vera vitur eftir á fyrir aðra núna
og hika ekki við að benda fólki á að
biðja um nánari skoðun hja lækn-
um ef þess þarf,“ segir Sissa í sam-
tali við Skessuhorn.
Allt eða ekkert
Eins og fyrr segir missti Sissa mátt
í vinstri hlið líkamans og allt sjón-
svið til vinstri, á báðum augum.
Hún hefur í dag öðlast smávegis
kraft aftur í líkamann en sjónin hef-
ur ekkert lagast. „Það má segja að
ég sé allt eða ekkert týpa og ég tók
þetta heilablóðfall alla leið,“ seg-
ir Sissa með smá kímni í röddinni
en þegar hún talar um veikindi sín
gerir hún það með húmor og seg-
ir mikilvægt að geta hlegið að að-
stöðu sinni. „Ég á alveg góðar sög-
ur,“ segir hún og hlær. „Þegar ég
fór í iðjuþjálfun á Grensás rúllaði
ég inn í hjólastólnum mínum. Ég
var spurð hvað ég vildi gera og mér
fannst ég nú ekki geta gert margt
og ákvað að fara bara aðeins í tölv-
una. Mér var sagt að velja tölvu og
ég rúllaði bara upp að þeirri næstu.
Svo leit ég á lyklaborðið og hugs-
aði með mér að þetta væri nú alveg
mín heppni, að lenda á tölvu með
gallað lyklaborð en það vantaði al-
veg helminginn af því. Ég náttúru-
lega benti á þetta og þá var mér
sagt að snúa hausnum bara aðeins
og horfa betur, þá kom lyklaborð-
ið í ljós, það var ekkert hálft heldur
sá ég bara ekki vinstri helminginn,“
segir Sissa.
Mikil vinna að
vera öryrki
Sissa hefur síðustu 14 ár ekki sleg-
ið slöku við og vann hart að því að
fá einhvern mátt til baka og halda
honum. „Þetta er alveg dagskrá hjá
mér, stanslausar æfingar, sjúkra-
þjálfun og sund. En maður ger-
ir það sem þarf í þessari stöðu, það
er svo mikilvægt. En ég hefði aldrei
trúað því hversu mikil vinna það er
að vera öryrki,“ segir Sissa og hlær.
Þrátt fyrir að hafa misst máttinn í
hluta líkamans segir Sissa það vera
skerta sjónin sem hamli henni mest
og hún vonist til að fá aftur. „Sjónin
skiptir bara svo miklu máli. Eins og
fyrst þegar ég var að byrja að ganga
á ný gaf ég engan gaum að því sem
var vinstra megin við mig og slóst
ég því í allt sem var vinstra megin
við mig. Þetta truflar mann tölu-
vert við að reyna að ganga, jafn-
vægið verður helmingi minna og
maður er einhvern veginn í þoku,“
útskýrir hún. Sissa hefur mikinn
áhuga á myndlist og fór á nám-
skeið eftir heilablóðfallið. Þar mál-
aði hún mynd og kallaði svo alsæl
á kennarann þegar hún hafði lokið
við myndina. „Ég var þarna þvílíkt
ánægð með mig að vera búin með
myndina en kennarinn kom svo
og spurði hvor ég vildi ekki klára.
Ég skildi ekkert í honum og spurði
hvað hann væri nú að meina, ég
væri sko búin með þessa mynd. Þá
þurfti ég bara aðeins að snúa höfð-
inu til að sjá vinstri helminginn af
myndinni, sem ég var bara alls ekk-
ert búin með,“ segir Sissa og hlær.
Vonar að hún geti
keyrt á ný
Sissa var brött þegar blaðamað-
ur Skessuhorns heyrði í henni og
eins og fyrr segir hafði hún mik-
inn húmor fyrir ástandinu. „Maður
venst þessu og lærir að maður þurfi
að snúa hausnum meira til að sjá.
En vissulega vill maður samt gera
allt til að fá meiri færni og meiri
sjón og þess vegna er ég að fara í
þessa meðferð til Bandaríkjanna.
Ég vona alveg sérstaklega að ég fái
sjónina aftur því þá gæti ég keyrt
bíl og það myndi gera mig mikið
frjálsari. Öll börnin mín búa fyrir
sunnan og ef ég gæti keyrt gæti ég
bara kíkt í heimsókn til þeirra þegar
ég vil, verið uppáþrengjandi amm-
an sem er alltaf að detta inn í heim-
sókn,“ segir hún og hlær, en Sissa á
ellefu barnabörn sem hún vildi óska
að hún gæti varið meiri tíma með.
Kostnaðarsöm meðferð
Læknameðferðin sem Sissa ætlar
í var uppgötvuð fyrir tilviljun og
þar sem læknirinn sem framkvæm-
ir hana er venjulegur heimilislækn-
ir, en ekki heilataugasérfræðingur,
er meðferðin ekki viðurkennd og
kostar því meira. „Þetta er í raun
bara ein sprauta þar sem gigtar-
lyfi er sprautað inn í mænugöngin
og svo er manni snúið og efnið lát-
ið flæða upp í heila. Læknirinn sem
framkvæmir þetta uppgötvaði með-
ferðina þegar hann var að reyna að
hjálpa sjúklingum með mígreni,“
útskýrir Sissa. Sprautan sjálf kost-
ar eina milljón króna og svo þarf
Sissa sjálf að borga fyrir ferðalag-
ið og uppihald fyrir sig og frænku
sína sem fylgir henni út. „Allt svona
er ótrúlega dýrt í Bandaríkjunum.
Maður hefur séð í bíómyndum
hvernig heilbrigðiskerfið þar virk-
ar fyrir þá sem ekki eru með trygg-
ingu í landinu en ég ímyndaði mér
aldrei að þetta væri svona í alvöru,
en það er það. Bara símaviðtal við
læknirinn þar sem ég bókaði tím-
ann og hann sagði mér hvað ég ætti
að gera, kostaði mig hundrað þús-
und krónur.“
Andrea safnar
Andrea Björnsdóttir, Skagamað-
ur ársins 2019, ákvað nýlega að
hefja söfnun fyrir Sissu til að hjálpa
henni að komast út. Andreu þekkja
margir en hún hefur selt lakkrís
og annað nammi til styrtar góðum
málefnum á Akranesi síðustu árin.
„Hún er engill í mannsmynd. Það
er ótrúlegt hvað ein manneskja get-
ur áorkað. Hún er svo hlý og góð
manneskja og maður finnur um-
hyggjuna streyma frá henni,“ seg-
ir Sissa. Fyrirhuguð ferð til Banda-
ríkjanna er 21. apríl en eins og ekki
hefur farið framhjá neinum hefur
COVID-19 sett strik í reikninginn
hjá öllum þeim sem ætla að ferðast
til Bandaríkjanna núna. Landið er
lokað fyrir Evrópubúum en Sissa
segist binda vonir við að land-
ið verði opnað aftur áður en hún
á flug út. Aðspurð segist hún von-
ast til að geta farið út í september
ef hún kemst ekki á tilsettum tíma
í næsta mánuði. „Ég stefni auð vitað
á tímann minn í apríl og krossa
fingur og vona að það hafist,“ seg-
ir hún.
Þakklát fyrir
stuðninginn
Í ljósi aðstæðna í heiminum get-
ur blaðamaður ekki annað en spurt
Sissu hvaða áhrif COVID-19 hefur
á hennar líf, að undanskilinni þeirri
hættu að hún missi af meðferðinni
sinni í næsta mánuði. „Ég hef ekki
alveg sett mig í sóttkví en vissulega
væri það slæmt ef ég smitast, bæði
því þá gæti það komið í veg fyrir
að ég komist út og svo er ég nátt-
úrulega veik fyrir. En ég passa mig
að vera ekki óþarflega mikið innan
um fólk og gæti vel að handþvotti
og vona það besta. Ég er að hugsa
um að fara samt og láta kíkja hvort
ég sé með veiruna, ég mun allavega
gera það áður en ég fer út,“ segir
hún brött. Þá vill Sissa þakka öllum
sem hafa lagt henni lið svo hún geti
komist út í meðferðina en hún bind-
ur miklar vonir við að öðlast betra
líf á eftir. „Ég er svo þakklát fyrir
allan stuðninginn og allt sem fólk
er tilbúið að gera fyrir mig. Margt
smátt getur sannarlega gert krafta-
verk og það er alveg með ólíkind-
um hvað fólk getur gert þegar það
kemur saman,“ segir Sissa þakklát.
Þeir sem vilja styðja Sissu svo hún
komist í meðferðina geta keypt sæl-
gæti af Andreu eða lagt inn á reikn-
ing Sissu: 0146-26-20207, kenni-
tala: 020761-4239.
arg
„Hún Andrea er engill í mannsmynd. Það er ótrúlegt hvað ein manneskja getur áorkað. Hún er svo hlý og góð manneskja og maður finnur umhyggjuna streyma frá
henni,“ segir Sissa. Hér er Andrea að selja lakkrís en hún safnar nú fyrir Sissu.
Á leið til Bandaríkjanna í meðferð sem gæti
bætt líf hennar svo um munar
- rætt við Sissu Sigurðardóttur sem glímt hefur við afleiðingar heilablóðfalls í fjórtán ár
Sissa Sigurðardóttir fer til Bandaríkjanna í lok apríl í læknameðferð sem gæti
breytt lífi hennar.