Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 31

Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 31
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 31 Skallagrímskonur máttu játa sig sigraðar gegn KR á útivelli á mið- vikudagskvöld. KR-ingar réðu ferðinni nánast frá fyrstu mínútu og sigruðu að lokum með 15 stig- um, 65-50. Skallagrímskonur skoruðu fyrstu stigin í leiknum og voru yfir þeg- ar sex mínútur voru liðnar af leikn- um, 8-9. Þá tóku KR-ingar góða rispu og leiddu með níu stigum eft- ir fyrsta leikhluta, 19-10. Borgnes- ingar náðu sér ekki á strik í öðrum leikhluta og skoruðu aðeins átta stig gegn 23 stigum KR-inga, sem leiddu því með 24 stigum í hléinu, 42-18. Skallagrímskonur náðu aðeins að minnka muninn í þriðja leik- hluta, skoruðu 19 stig gegn tólf stigum KR en það dugði skammt. KR hafði örygga forystu fyrir loka- fjórðunginn, 54-37. Þar breyttist lítið, munurinn hélst um það bil sá sami allt til leiksloka. KR sigr- aði með 65 stigum gegn 50 stigum Sakllagríms. Keira Robinson var atkvæðamest í liði Skallagrímsmeð 16 stig og átta fráköst. Emilie Hesseldal skoraði 15 stig og tók átta fráköst, Mathilde Colding-Poulsen var með ellefu stig og Sigrún Sjöfn Ámundadóttir var með níu stig og átta fráköst. Sanja Orazovic var stigahæst í liði KR með 21 stig og tólf fráköst að auki. Danielle Rodriguez skor- aði 19 stig, tók sex fráköst og gaf sex stoðsendingar og Margrét Kara Sturludóttir skoraði ellefu stig og tók ellefu fráköst. Skallagrímskonur sitja í fjórða sæti deildarinnar í mikilli baráttu um sæti í úrslitakeppninni. Þær hafa 30 stig, tveimur stigum minna en Keflavík í sætinu fyrir ofan en tveimur stigum meira en Haukar í sætinu fyrir neðan. Öllum leikjum í tveimur efstu deildum karla og kvenna hefur verið frestað vegna kórónuveirunnar. kgk/ Ljósm. úr safni/ kgk. Íslandsmóti unglinga í keilu lauk á sunnudag. Keiluspilarar úr Keilu- félagi Akraness náðu þar góðum árangri og sneru heim með tvo Ís- landsmeistaratitla í farteskinu. Í 3. flokki stúlkna áttu ÍA öll sæt- in á verðlaunapallinum og gott bet- ur en það, því Skagastúlkur röðuðu sér í öll fjögur efstu sætin. Sóley Líf fagnaði sigri, Viktoría Hrund varð önnur, Jóhanna Dagný þriðja og Nína Rut í því fjórða. Hlynur Helgi hampaði Íslandsmeistaratitl- inum í 2. flokki og Ísak Birkir náði fjórða sæti og bætti sinn besta árang með leik upp á 234. Haukur Leó og Friðmey Dóra kepptu í 5. flokki, en þar fá allir þátttakendur viðurkenningu og Ísak Freyr hafnaði í öðru sæti í 4. flokki pilta. Matthías Leó hreppti silfr- ið í 3. flokki pilta og Tómas Freyr hafnaði í fimmta sæti. Matthías Leó komst jafnframt inn í keppni í opn- um flokki, en þrír meðaltalshæstu eftir forkeppnina ná þangað inn óháð aldri. Þar hreppti Matthías bronsið eftir bráðabana. kgk/ Ljósm. Keilufélag Akraness. Snæfellskonur unnu Grinda- vík örugglega, 79-65, þegar liðin mættust í Domino‘s deild kvenna í körfuknattleik. Leikið var í Stykk- ishólmi á miðvikudagskvöld og það voru Snæfellskonur sem höfðu yfir- höndina nánast frá fyrstu mínútu. Leikurinn fór heldur rólega af stað. Snæfellskonur leiddu 6-5 þeg- ar fyrsti leikhluti var hálfnaður. Eft- ir það náðu þær góðum kafla, skor- uðu 13 stig gegn fimm og leiddu með níu stigum eftir upphafsfjórð- unginn, 19-10. Snæfell jók forystu sína jafnt og þétt framan af öðrum leikhluta og enduðu fyrri hálfleik- inn á góðum kafla. Það skilaði lið- inu 20 stiga forystu í hléinu, 42-22 og Hólmarar með pálmann í hönd- unum. Munurinn á liðunum hélst meira og minna óbreyttur allan þriðja leik- hlutann. Snæfell leiddi 66-45 fyrir lokafjórðunginn og aðeins forms- atriði að klára leikinn. Grindavík náði aðeins að laga stöðuna í fjórða leikhlutanum en það breytti engu um úrslitin. Snæfell stjórnaði ferð- inni allan leikinn og sigraði að lok- um með 14 stigum, 79-65. Emese Vida var stigahæst í liði Snæfells með 16 stig og ellefu frá- köst að auki. Veera Pirttinen skor- aði 15 stig og tók fimm fráköst, Anna Soffía Lárusdóttir og Amarah Colemans skoruðu 13 stig hvor, Gunnhildur Gunnarsdóttir var með sjö stig, Helga Hjördís Björg- vinsdóttir og Tinna Guðrún Alex- andersdóttir skoruðu sex stig hvor og Rebekka Rán Karlsdóttir var með þrjú stig. Bríet Sif Hinriksdóttir skoraði 21 stig fyrir Grindvíkinga, Tania Pierre-Marie var með 15 stig og 15 fráköst og Elísabeth Ýr Ægisdóttir var með 15 stig og sjö fráköst. Snæfell siglir lygnan sjó í sjötta sæti deildarinnar með 16 stig, átta stigum á undan Breiðabliki en tólf stigum á eftir Haukum. Eins og með önnur lið er ekki ljóst hve- nær Snæfell leikur næst. Leikjum í tveimur efstu deildum karla og kvenna hefur nú verið frestað vegna heimsfaraldurs COVID-19 kórón- aveirunnar. kgk Valdís Þóra Jónsdóttir kylfingur úr GL náði á laugardaginn að ljúka leik á lokadegi Investec South AF- rican Women’s Open mótinu sem er hluti af Evrópumótaröð kvenna. Allan laugardaginn var Valdís í bar- áttunni um sigurinn en varð að lok- um að láta sér sjöunda sætið lynda. Á golfvefnum kylfingur.is var greint frá árangri Valdísar Þóru: „Fyr- ir daginn var Valdís fimm högg- um á eftir efstu manneskju en stað- an breyttist fljótt á fyrstu holun- um. Valdís nældi sér í tvo fugla á fyrri níu holunum og var þá kom- in á fjögur högg undir pari, aðeins höggi á eftir efsta sætinu. Á síð- ari níu holunum fékk Valdís aftur á móti tvo skolla sem gerði út um vonir hennar á að berjast um sig- urinn. Hún endaði því hringinn á 72 höggum, eða pari vallar, og end- aði hún mótið jöfn í sjöunda sæti á tveimur höggum undir pari. Að lokum endaði hún þremur höggum á eftir sigurvegara mótsins, Alice Hewson. Þetta er besti árangur Valdísar á árinu en aðeins þrjú mót hafa ver- ið leikin á þessu tímabili. Í fyrsta mótinu komst hún ekki í gegnum niðurskurðinn og í öðru mótinu endaði hún jöfn í 21. sæti. Þetta er jafnframt í fjórða skiptið sem hún endar á meðal tíu efstu og fjórði besti árangur hennar á mótaröð- inni. Hún hefur tvisvar sinnum endaði í þriðja sæti og einu sinni í fimmta,“ segir á kylfingi.is Stallsystir hennar, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, var einnig á með- al keppenda á mótinu í Suður Am- eríku, en hún komst ekki í gegnum niðurskurðinn. mm Fýluferð í Vesturbæinn Góður árangur á Íslandsmóti unglinga í keilu Matthías Leó (t.v.) varð annar í 3. flokki pilta og hreppti bronsið í opnum flokki. Keppendur ÍA röðuðu sér í öll verðlaunasætin í 3. flokki stúlkna og rúmlega það. F.v. Viktoría Hrund, Sóley Líf og Jóhanna Dagný. Valdís Þóra náði sínum fjórða besta árangri Tinna Guðrún Alexanders- dóttir á mikilli siglingu í leiknum gegn Grindavík. Ljósm. sá. Öruggur sigur Snæfells

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.