Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 20206
Upplýsingasíða
um Covid-19
LANDIÐ: Vefsíðan www.
covid.is er komin í loftið en
þar má finna nýjar upplýs-
ingar frá Embætti landlæknis
og Almannavarnadeild ríkis-
lögreglustjóra um sjúkdóm-
inn COVID-19. Á síðunni
eru allar helstu upplýsingar
og svör við algengum spurn-
ingum, svo sem hvernig hægt
sé að forðast smit, hvernig
einangrun í heimahúsi virk-
ar og fleira í þeim dúr. Á síð-
unni er einnig hægt að fylgj-
ast með tölulegum upplýs-
ingum eins og hversu mörg
smit eru staðfest eftir aldri,
kyni og landshluta. Þegar
síðan var opnuð í gær mátti
sjá að 225 staðfest smit voru
þá á landinu öllu, en engin
á Vesturlandi. Á sama tíma
voru 2192 í sóttkví og þar af
23 á Vesturlandi. -arg
Fastir ferða-
menn
VESTURLAND: Skömmu
eftir miðnætti 14. mars ósk-
uðu ferðamenn eftir að-
stoð þar sem þeir sátu fast-
ir á Fróðárheiði. Ekki náð-
ist í dráttarbílaþjónustur og
því var kallað eftir aðstoð
frá björgunarsveitarmönn-
um í Lífsbjörgu, sem fóru á
staðinn og komu fólkinu til
hjálpar. -kgk
Fékk höfuð-
högg
BORGARBYGGÐ: Um-
ferðarslys varð á Borgar-
fjarðarbraut þriðjudaginn
10. mars síðastliðinn. Öku-
maðurinn hlaut höfuðhögg
og þurfti að leita læknisað-
stoðar, sem hann gerði sjálf-
ur.
-kgk
Stýrivextir
lækkaðir
LANDIÐ: Vextir Seðla-
banka Íslands voru lækkaðir
um 0,5 prósentustig sl. mið-
vikudag. Megnivextir bank-
ans, vextir á sjö daga bundn-
um innlánum sem jafnan eru
kallaðir stýrivextir, verða því
2,25%. Peningastefnunefnd
Seðlabanka Íslands ákvað að
lækka meðaltalsbindiskyldu
innlánsstofnana úr 1% nið-
ur í 0%. Föst bindiskylda
verður áfram 1%. Lækkun
meðaltalsbindiskyldunnar
og breytt meðferð þess fasta
er ætlað að rýmka lausafjár-
stöðu bankanna, sem og að
auka svigrúm þeirra til að
bregðast við breyttum að-
stæðum í hagkerfinu. „Með
þessum aðgerðum er slak-
að nokkuð á taumhaldi pen-
ingastefnunnar í ljósi versn-
andi efnahagshorfa í kjöl-
far aukinnar útbreiðslu CO-
VID-19 veirunnar,“ segir í
tilkynningu peningastefnu-
nefndar.
-kgk
64 sóttu um
þrjár lóðir
AKRANES: Mikil eftir-
spurn er eftir byggingalóð-
um á Akranesi. Föstudag-
inn 6. mars síðastliðinn var
úthlutað tveimur raðhúsa-
lóðum og einni parhúsalóð
við Akralund. Bárust hvorki
fleiri né færri en 64 umsókn-
ir samtals í lóðirnar þrjár og
því þurfti að draga um lóð-
irnar. Raðhúsalóð að Akra-
lundi 8-14 kom í hlut Bjarg-
ar fasteignafélags ehf., en 18
umsóknir bárust í lóðina.
Alls sóttu 19 um raðhúsa-
lóðina við Akralund 20-26,
en við útdráttinn kom hún
í hlut Yls pípulagningaþjón-
ustu. Samtals sóttust 27 eftir
parhúsalóðinni við Akralund
16-18. Dregnir voru út þeir
Albert Páll Albertsson og
Markus Filip Gendek, sem
sóttu saman um lóðina.
-kgk
Ætla að breyta
fjölbýlishúsa-
lóðum
BORGARNES: Sveitar-
stjórn Borgarbyggðar sam-
þykkti á fundi sínum síðast-
liðinn fimmtudag að aug-
lýsa breytingu á deiliskipu-
lagi fyrir lóð við Sóleyjar-
klett í Bjargslandi. Þar er
ætlunin að breyta tveimur
fjölbýlishúsalóðum, þar sem
gert er ráð fyrir 28 íbúðum,
í eina sameiginlega lóð fyr-
ir sex tveggja hæða fjölbýlis-
hús með samtals 30 íbúðum.
Stefnt verður á að byggja 24
ca. 90 fermetra íbúðir og sex
ca. 50 fm. Stærð sameigin-
legrar lóðar breytis ekki. Á
lóð skal gera ráð fyrir tveim-
ur bílastæðum fyrir hverja
íbúð af stærri gerðinni og
einu bílastæði fyrir fyrir
hverja íbúð af minni gerð og
eru þar með talið bílastæði
fyrir fatlaða.
-mm
Snjóflóð féll í Búlandshöfða á Snæ-
fellsnesi aðfararnótt síðasta mánu-
dags. Ekki var um stórt flóð að
ræða en samt það stórt að það náði
yfir þjóðveginn. Aðeins fjórhjóla-
drifnir bílar komust fram hjá því.
Er þetta annað snjóflóðið sem fell-
ur í vetur en það fyrra var tölu-
vert minna. Óalgengt er að það
falli snjóflóð í Búlandshöfðanum
og það gerist einungis í austan- og
suðaustanáttum og var einmitt suð-
austan átt með töluveðri snjókomu
þessa nótt.
þa
Á fundi byggðarráðs Borgarbyggð-
ar 5. mars síðastliðinn var sam-
þykkt að ganga að tilboði trygg-
ingafélagsins VÍS í tryggingar fyr-
ir sveitarfélagið. Sveitarstjórn tók
málið svo fyrir á fundi síðastliðinn
fimmtudag. Þar var ákveðið að vísa
málinu aftur til umræðu í byggð-
arráði. Davíð Sigurðsson lagði á
fundi sveitarstjórnar fram tillögu
þess efnis að málinu yrði vísað inn
í byggðarráð til frekari umfjöllunar.
„Það er ótækt að sveitarfélag geti
ekki valið að versla við fyrirtæki í
heimabyggð. Ef að sveitarfélagið
velur ekki sem fyrsta kost að versla
við fyrirtæki í heimabyggð hvernig
getum við þá ætlast til þess að fyrir-
tæki kjósi að setjast hér að,“ sagði í
bókun hans.
Eins og kom fram í frétt Skessu-
horns fyrr á árinu bauð VÍS 17,015
milljónir króna í tryggingapakk-
ann fyrir sveitarfélagið en tilboð
frá Sjóvá og TM voru 19,3 millj-
ónir og 19,9 milljónir. Kærunefnd
útboðsmála úrskurðaði í máli VÍS
gegn Borgarbyggð að sveitarfélagið
skyldi fella út úr útboðsskilmálum
ákvæði um að bjóðandi starfræki
starfsstöð í sveitarfélaginu. Eins
og kunnugt er lokaði VÍS starfs-
stöð sinni í Borgarnesi árið 2018
og það gerði raunar TM einnig um
síðustu áramót. Sjóvá er eina trygg-
ingafélagið sem rekur starfsstöð í
Borgarbyggð, en sveitarfélaginu
er óheimilt að ganga til samninga
við Sjóvá á þeim forsendum. Eftir
afgreiðslu sveitarstjórnar í síðustu
viku fer málið til nánari úrvinnslu
byggðarráðs áður en ákvörðun
verður tekin um við hvaða trygg-
ingafélag verður samið. mm
Snjóflóð þveraði veginn
við Búlandshöfða
Telja ótækt að sveitarfélag geti
ekki valið við hverja er skipt