Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 8

Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 8
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 20208 Datt í hálku GRUNDARFJ: Slys varð við Kirkjufellsfoss um kl. 14:00 á laugardag þegar ferðamað- ur datt í hálku á brúnni við Kirkjufellsfoss. Óttast var að maðurinn hefði hugsanlega farið úr mjaðmarlið. Lög- regla og sjúkralið var sent á staðinn og maðurinn fluttur á heilsugæsluna í Grundarfirði. Þaðan var hann síðan sendur áfram á sjúkrahús á Akranesi. -kgk LÍN kemur til móts við náms- menn LANDIÐ: Stjórn Lánasjóðs íslenskra námsmanna hefur samþykkt heimild fyrir sjóð- inn til að taka til greina ann- ars konar staðfestingu skóla á ástundun nemenda en vott- orðum um loknar eining- ar. Þetta er gert til þess að bregðast við aðstæðum nem- enda sem mögulega geta ekki sinnt námi sínu vegna rösk- unar á hefðbundnu skóla- starfi vegna COVID-19 veir- unnar. „Þessar aðstæður kalla á sveigjanleika af hálfu allra í okkar samfélagi. Ég tel það víst að þessi ákvörðun muni létta áhyggjur margra,“ seg- ir Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. -mm Aflatölur fyrir Vesturland 7.-13. mars Tölur (í kílóum) frá Fiskistofu Akranes: 5 bátar. Heildarlöndun: 21.015 kg. Mestur afli: Eskey ÓF: 16.386 kg í þremur róðrum. Arnarstapi: 2 bátar. Heildarlöndun: 32.880 kg. Mestur afli: Kristinn HU: 17.156 kg í einni löndun. Grundarfjörður: 7 bátar. Heildarlöndun: 607.043 kg. Mestur afli: Drangey SK: 184.827 kg í einni löndun. Ólafsvík: 12 bátar. Heildarlöndun: 595.590 kg. Mestur afli: Steinunn SH: 200.258 kg í fimm róðrum. Rif: 11 bátar. Heildarlöndun: 742.112 kg. Mestur afli: Tjaldur SH: 195.462 kg í tveimur lönd- unum. Stykkishólmur: 4 bátar. Heildarlöndun: 158.116 kg. Mestur afli: Þórsnes SH: 153.708 kg í tveimur róðr- um. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Drangey SK - GRU: 184.827 kg. 11. mars. 2. Tjaldur SH - RIF: 106.461 kg. 7. mars. 3. Þórsnes SH - STY: 93.738 kg. 11. mars. 4. Tjaldur SH - RIF: 89.001 kg. 12. mars. 5. Sigurborg SH - GRU: 86.256 kg. 8. mars. -kgk Óvenju mörg umferðarmál VESTURLAND: Um- ferðareftirlit var áberandi í verkefnum Lögreglunn- ar á Vesturlandi í liðinni viku. Fjölmargir voru tekn- ir ljóslausir, að tala í sím- ann undir stýri, á of mikl- um hraða eða nokkrir voru ekki í öryggisbelti. Einn var stöðvaður við Lyng- brekku á 116 km/klst. og hlaut 80 þús. króna sekt og annar á sama stað á 111 km/klst. sem fékk 50 þús. króna sekt. Einn var tekinn á 109 km/klst og var ekki með ökuskírteini meðferð- is. Hlaut hann því samtals 60 þús. króna sekt. Lög- regla harmar fjölda um- ferðarmála í liðinni viku í ljósi þess að færðin var erf- ið á köflum. Segir lögregla því með ólíkindum að fólk sé að keyra of hratt og jafn- vel ljóslaust á öllum tímum sólarhringsins við slíkar að- stæður. -kgk Faldi sig í rjóðri BORGARNES: Lögregla hafði afskipti af ökumanni við Borgarnes á mánu- daginn, sem reyndist aka án ökuréttinda. Maðurinn stakk af og reyndi að fela sig inni í rjóðri við Borg á Mýrum. En hann fannst og var handtekinn. Auk þess að aka án réttinda reynd- ist bíllinn sem hann ók vera ótryggður. -kgk Út um allan veg HVALFJ.SV: Haft var samband við lögreglu og Neyðarlínu laust fyrir kl. 17:00 á sunnudag og til- kynnt um undarlegt akst- urslag bifreiðar á Vestur- landsvegi. Tilkynnandi sagði að bílnum væri ekið út um allan veg og litlu hefði munað að ökumað- urinn hefði valdið stór- slysi. Lögregla fór til móts við ökumanninn og stöðv- aði för hans. Strokpróf sem framkvæmt var á vettvangi gaf jákvæða svörun á kóka- ín og amfetamín. Maður- inn var því handtekinn, fluttur á lögreglustöð og gert að gefa blóðsýni. -kgk Stútur undir stýri SNÆFELLSNES: Klukk- an rúmlega 4:00 aðfarar- nótt sunnudags var tilkynnt um rásandi aksturslag öku- manns á ferð milli Ólafs- víkur og Grundarfjarðar. Bíllinn rásaði, ók á öfugum vegarhelmingi og á end- anum missti ökumaðurinn stjórn á bílnum og hafn- aði utan vegar. Maðurinn var ómeiddur en greini- lega ölvaður, að því er fram kemur í dagbók lögreglu. Var hann því handtekinn og gert að gefa blóðsýni. -kgk Ingi Tryggvason lögmaður er skiptastjóri í þrotabúi Ísfisks ehf. sem síðustu tvö árin var með starf- semi á Akranesi. Fyrirtækið var eins og kunnugt er úrskurðað gjald- þrota í byrjun ársins. Í auglýsingu í Skessuhorni í síðustu viku bauð skiptastjóri til sölu fiskvinnsluvél- ar og búnað úr þrotabúinu. Þar má nefna flökunarvélar, flokkara, slæg- ingarvélar, hausara, saltsprautuvél, vogir, færibönd, þvottakör, fiskkör og fleira. Varðandi skoðun og nán- ari upplýsingar er hægt að hafa sam- band við Inga í síma 860-2181 eða senda póst á ingi@lit.is. Tilboðum í búnaðinn þarf að vera búið að skila 31. mars næstkomandi. mm Skipin Drangey SK 2 og Málmey SK 1 voru bæði í Grundarfjarðar- höfn á mánudaginn. Skipin voru að landa hátt í fjögurhundruð tonnum af afla þar sem megin uppistaðan var þorskur. Drangey SK 2 landaði einnig í Grundarfirði miðvikudag- inn 11. mars en þá var landað úr því 193 tonnum af afla. Það hefur því töluvert aflamagn farið um hafn- arvigtina síðustu daga og hafnar- starfsmenn staðið í ströngu. tfk Byggmjólk sem Kaja Organic á Akranesi hefur byrjað framleiðslu á er fyrsta alíslenska jurtamjólkin sem fer á markað hér á landi. „Þeg- ar ég segi íslensk byggmjólk þá erum við að tala um íslenskt bygg en sú jurtamjólk sem gerð var til- raun með að framleiða áður var úr erlendum höfrum blönduð ís- lensku vatni. Hér erum við með ís- lenskt lífrænt bygg frá Vallanesi,“ segir Karen Jónsdóttir í samtali við Skessuhorn. Hún hefur nú haf- ið framleiðslu og markaðssetningu á vörunni og voru fyrstu mennirn- ir til að neyta hennar síðastliðinn miðvikudag þeir Ólafur Sveinsson, forstöðumaður atvinnuráðgjafar SSV og Páll S Brynjarsson, fram- kvæmdastjóri SSV sem skáluðu við Karen í verslun hennar á Akranesi. Hún fékk fyrir tveimur árum út- hlutað svokölluðum Öndvegisstyrk frá Uppbyggingarsjóði Vesturlands til að vinna að vöruþróuninni og því þótti við hæfi að fá til frumsýn- ingar vörunnar þá Pál og Ólaf. „Vöruþróun og nú framleiðslu hef ég sinnt samhliða rekstri míns fyrirtækis og því er ég stolt og glöð að hafa náð þessum áfanga. Loks- ins náði ég að klára þennan áfanga. Útkoman er þessi eðaldrykkur sem fer í sölu í þessari viku,“ segir Kar- en. „Byggmjólkin verður seld í tak- mörkuðu upplagi til að byrja með því næsta skref er að auka fram- leiðslugetuna með hentugri vél- búnaði. „Byggið er einstaklega hollt enda inniheldur það mikið af beta-glukana sem lækkar kólest- eról, er gott gegn stressi og styrk- ir ofnæmiskerfið. Því til viðbótar myndar byggið gel sem fóðrar og mýkir magann og nærir slímhúð ristilsins. Næstu skref eru svo bygg- mjólkur drykkir og fleiri afurðir, m.a. jurtajógúrt,“ segir Karen. Hún segir það nokkuð merki- legt við íslenska byggið að það þarf einungis 6,8% bygg til þess að ná þessu öfluga bragði á meðan Evr- ópa er með allt að 12 til 17% bygg í sínum drykkjum. „Ég sel bygg- mjólkina í glerumbúðum. Bæði er það gert upp á geymsluþol vörunn- ar og svo umhverfissjónarmið,“ sagði Karen að endingu. mm Búnaður og fiskvinnsluvélar Ísfisks til sölu Málmey SK 1 er nær og Drangey SK 2 þar fyrir aftan mánudaginn 16. mars. Skagfirðingar landa í Grundarfirði Páll S Brynjarsson, Karen Jónsdóttir og Ólafur Sveinsson skála í fyrstu alíslensku byggmjólkinni. Skáluðu í fyrstu alíslensku byggmjólkinni

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.