Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 19
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 19 150 KR/STK 490 KR 500 KR Nú tími til ad leika! Elís� Dalbraut 16 - Akranesi - Sími: 666-5110 OPIÐ ALLA VIRKA DAGA FRÁ KL. 16- 17 Maren 500 KR FRÍ HEIMSENDING EF VERSLAÐ ER FYRIR 10.000 EÐA MEIRA 1.200 KR/STK 1.490 KR/STK 2.390 KR/STK 1.000 KR/STK 3.200 KR/STK 2.900 KR/STK 150 KR/STK 150 KR/STK 390 KR/STK 390 KR/STK 390 KR/STK 490 KR/STK 100 KR/STK FRÍT T VIKU PLAN (A4 ) FYLG IR M EÐ ÖLLU M PÖ NTU NUM ÞES SA V IKUN A! NÝJAR VÖRUR VIKULEGA! SMALL TIL 5XL! Þegar samkomubanni verður aflétt ætla þær systur að halda námskeið á Akranesi. okkur alveg stundum nammi og förum í veislur og borðum kökur. Bara borða hollt í 80-90% tilvika og annað í hófi. En velja óhollstuna vel og sleppa því t.d. helst að borða óholla vöru sem okkur finnst ekki einu sinni bragðgóð,“ segir Gréta. Hafa áhyggjur af koffínneyslu Aðspurðar segjast þær ekki hafa alist upp við mikla umræðu um næringu og heilsu þó vissulega hafi mamma þeirra reynt að kenna þeim góðar venjur er varða mataræði. „Eitt sem ég er rosalega þakklát mömmu fyr- ir er að hún var alltaf með reglu- lega matmálstíma og við máttum ekkert vera að ganga í skápana þess á milli. Við vöndumst því að borða bara þegar það var matur og höfum haldið því áfram á fullorðinsárum, svona að mestu. Þetta er örugg- lega einn besti vani sem við get- um kennt börnunum okkar,“ seg- ir Ólöf og Gréta bætir þá við að matarvenjur barna og unglinga í dag séu alls ekki nógu góðar og þá sérstaklega er varðar koffínneyslu. „Alltof mörg ungmenni eru orð- in háð koffíni vegna orkudrykkj- anna og við þurfum að sporna við þeirri þróun. Ég myndi vilja sjá meiri fræðslu um þetta bæði fyr- ir krakkana og foreldrana. Ég hef miklar áhyggjur af þessari þróun enda getur koffínneysla unglinga aukið kvíða, svefnleysi, óróleika og fleira,“ segir Gréta. Fáum of lítið af trefjum Ekki getum við spjallað um mat- aræði og matarvenjur án þess að minnast á ketó og lágkolvetna mataræði sem hefur verið vinsælt mataræði síðustu ár. Þær segja kolvetni hafa fengið á sig slæman stimpil sem þau eiga ekki endilega skilið. „Kolvetni geta alveg verið slæm, eins og hvítur sykur og mik- ið hvítt hveiti, en svo eru trefja- rík kolvetni í ávöxtum, grænmeti og heilkornavörum sem eru okkur nauðsynleg,“ segir Ólöf og bæt- ir við að Íslendinga skorti gjarnan trefjar og borði of mikið af mett- aðri fitu og að ketó æðið hjálpi ekki til við að sporna við þeirri þróun. „Trefjarnar eru fyrst og fremst í fæðu sem inniheldur kolvetni svo við erum þá oft að minnka trefjar enn frekar. Og svo er fólk gjarn- an á þessu mataræði að borða mikið af unnum vörum sem inni- heldur mettaða fitu og mikið salt sem er einmitt það sem við þurf- um að minnka,“ segir Gréta og þær bæta við að ekkert mataræði sé þó alslæmt. Sé vel hugsað um gæði matvælanna og að borða sem fjölbreyttast geti lágkolvetnafæði hentað sumum. „Ef fólk er með- vitað um góða næringu og borð- ar fjölbreytta og hreina fæðu getur lágkolvetna mataræði alveg verið í lagi,“ segja þær. Jákvæð tengl við mat er lykillinn Aðspurðar segja þær lykilinn að hollum lífstíl vera að ofhugsa ekki mataræðið og borða skynsamlega. Öll vitum við nokkurn veginn hvað er óhollt og hvað ekki og ef við velj- um oftar grænmeti og ávexti, grófa brauðið frekar en það hvíta, hreint kjöt í staðinn fyrir unnar kjötvörur og forðumst mettaða fitu, sykur og salt eins og við getum ættu að sögn systranna allir að vera í nokkuð góð- um málum. „Þetta hljómar kannski einfalt en við vitum vel að það er það ekki því við erum ekkert nema van- inn og það er svo mikið af ruglandi skilaboðum um mataræði í gangi. En þá er gott að leita sér bara aðstoð- ar og það er hægt að koma til okk- ar á námskeið eða í einstaklingsráð- gjöf og við getum hjálpað fólki skref fyrir skref. Svo er líka kjörið að fá fræðslu fyrir vinnustaðinn eða jafn- vel saumaklúbbinn. En fyrsta mark- miðið er alltaf að skapa jákvæð tengsl fólks við mat, það er lykillinn að öllu hinu,“ segja þær að endingu. Hægt er að finna systurnar á Fa- cebook undir nafninu 100g Næring: Þjónusta-Fræðsla-Ráðgjöf, á heima- síðunni www.100g.is eða í gegnum netfangið 100g@100g.is. arg „Ef allir færu nokkurn veginn eftir ráðleggingum Landlæknis værum við í góðum málum,“ segir Gréta. Meðfylgjandi mynd er af vestlenskum mat og er úr safni Skessuhorns.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.