Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 2020 9 FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF FASTEIGNAMIÐLUN OG RÁÐGJÖF Sími 570 4824 - valfell.is Sjammi ehf kynnir Fyrstu kaupa íbúðir – Asparskógar 13, Akranesi Glæsilegar fullbúnar fyrstu kaupa íbúðir í tveggja hæða fjölbýlishúsi, allar íbúðir eru með sérinngangi. Suðurverönd og suðursvalir. Íbúðirnar seljast fullbúnar, auk þess sem uppþvottavél og kæliskápur í eldhúsi fylgir með. Á baði fylgir þvottavél með innbyggðum þurrkara. Innréttingar eru frá HTH og tæki frá AEG. Gólfefni, innihurðir og flísar á baði frá Birgisson. 2ja herbergja íbúðirnar eru 47,8 til 48,6 fm og kosta frá 24.990.000 til 25.406.500. Stúdíóíbúðin er 37,2 fm og kostar 19.448.100. Íbúðirnar verða afhentar í s.l. 1. mars 2021. 7 íbúðir eftir Auðarskóli Ábyrgð – Ánægja – Árangur SK ES SU H O R N 2 02 0 Auðarskóli óskar eftir að ráða í eftirfarandi stöður kennara fyrir skólaárið 2020-2021 Kennarastöður við Auðarskóla Við Auðarskóla er laus 100% staða umsjónarkennara á unglingastigi og 100% staða umsjónarkennara á miðstigi fyrir skólaárið 2020-2021. Um er að ræða stöður til framtíðar. Einnig er laus til afleysingar 100% staða list- og verkgreinakennara skóla- árið 2020-2021. Umsjónarkennsla á unglingastigi, meðal kennslugreina eru: · íslenska · samfélagsfræði · tungumálakennsla · val · smíði Umsjónarkennsla á miðstigi stigi, meðal kennslugreina eru: · íslenska · náttúrufræði · samfélagsfræði · tungumálakennsla List- og verkgreinakennari, meðal kennslugreina eru: · textíll · heimilisfræði Mikilvægt er að umsækjendur búi að: · færni í samskiptum · frumkvæði í starfi · sjálfstæðum og skipulögðum vinnubrögðum · góðri íslenskukunnáttu Einnig þurfa umsækjendur að vera tilbúnir að vinna eftir stefnu Auðarskóla í teymiskennslu. Umsækjendur þurfa að hafa leyfisbréf til kennslu. Umsóknir um starfið berist á netfangið keli@audarskoli.is. Með umsókninni þurfa að fylgja ferilskrá og ábendingar um meðmælendur. Umsóknarfrestur er til 1. apríl 2020. Upplýsingar um starfið veitir Þorkell aðstoðarskólastjóri í síma 430 4757. Landbúnaðarráðherra hefur undir- ritað nýja reglugerð um innflutning hunda og katta. Lágmarkstími fyrir einangrun dýranna við innflutning verða nú tvær vikur í stað fjögurra. Reglugerðin heimilar einnig að einangrun tiltekinna hjálparhunda fari fram í heimaeinangrun. Reglu- gerðin hefur það að markmiði að tryggja heilbrigði dýra og manna með því að fyrirbyggja að smitsjúk- dómar berist til landsins. Reglu- gerðin er afrakstur nýs áhættumats um innflutning hunda og katta til landsins, sem unnið var af Preben Willeberg, fyrrverandi yfirdýra- lækni Danmerkur, að beiðni ráðu- neytisins. Þá hefur Matvælastofn- un einnig skilað ítarlegri skýrslu byggða á vinnu Willeberg og lagt til þær breytingar sem tilgreindar eru í reglugerðinni. „Með þessum breytingum er verið að stuðla að skilvirkara ferli við innflutning hunda og katta en um leið tryggja heilbrigði dýra og manna. Með reglugerðinni er því ekki verið að slaka á kröfum heldur er öðrum aðferðum beitt til þess að halda uppi sömu eða jafnvel betri vörnum gegn smitsjúkdómum en nú er gert,“ sagði Kristján Þór Júlí- usson, sjávarútvegs og landbúnað- arráðherra af þessu tilefni. mm Jarðgöng, öryggismál og umferðar- þjónusta var efni fyrirspurnar sem Guðjón S. Brjánsson, þingmað- ur Samfylkingarinnar í NV kjör- dæmi, lagði fram á dögunum fyrir Sigurð Inga Jóhansson samgöngu- og sveitastjórnarráðherra. Guðjón spurði hvernig veigamestu þætt- ir öryggismála í jarðgöngum hér á landi væru skilgreindir, hvort ör- yggismál, öryggiseftirlit og umferð- arþjónusta í jarðgöngum væri sam- ræmd og hvernig aðstæður væru með tilliti til öryggismála í hverjum og einum jarðgöngum fyrir sig. Þá spurði hann ráðherra hvort hann hygðist vinna skipulega að úrbót- um ef misræmi reyndist vera á milli jarðganga hvað varðar mikilvæga öryggisþætti. „Á ferðum mínum gegnum jarð- göng á Vesturlandi, Vestfjörðum og jafnvel Austfjörðum reynast að- stæður og umferðarþjónusta mis- munandi hvað þessi atriði snertir. Hvernig stendur á viðvarandi mis- ræmi og ætlar ráðherra að vinna að bragarbótum,“ spurði Guðjón og vísaði þar til öryggis vegfarenda. mm Spurði ráðherra um öryggis- þætti í jarðgöngum Einangrun innfluttra hunda stytt í tvær vikur

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.