Skessuhorn


Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 2

Skessuhorn - 18.03.2020, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 18. MARS 20202 Verum dugleg að hreyfa okk- ur í því ástandi sem nú ríkir í þjóðfélaginu. Góðar göngu- ferðir geta verið gulls ígildi fyrir þá sem eiga tök á því. Á morgun er spáð suðlægri eða breytilegri átt 3-10 m/s. Víða verður léttskýjað en stöku él á Vestfjörðum, við Breiða- fjörð og einnig við suður- ströndina um kvöldið. Frost 1-10 stig. Á föstudag má gera ráð fyrir að gangi í sunnanátt 13-20 m/s með snjókomu og slyddu á Suður- og Vesturlandi og síðar rigningu út við strönd- ina. Þurrt um landið norð- austanvert og hlýnar í veðri, hiti 0-4 stig eftir hádegi. Hæg- ari suðvestanátt vestanlands um kvöldið mé éljum og kóln- ar aftur. Á laugardag er spáð suðvestanátt 8-15 m/s og élja- gangi. Snjókoma eða slydda á austanverðu landinu fram- an af degi en léttur til síðdeg- is. Víða vægt frost. Á sunnudag er útlit fyrir sunnan storm og snjókomu eða slyddu en síðar talsvarða rigningu. Úrkomulítið norðaustanlands. Hlýnar í veðri, hiti 3-8 stig seinni partinn. Á mánudag er útlil fyrir hvassa suðvestanátt með éljum eða slydduéljum, en léttskýjað á Norður- og Austurlandi. Hiti nálgast frostmark. Í síðustu viku var spurt á vef Skessuhorns hvernig lesendur hyggjast skipuleggja sumarfrí- ið. 40% ætla að ferðast innan- lands í sumar en 18% ætla að vera heima hjá sér. 16% ætla að gera sitt lítið af hverju, ferðast til útlandi og innanlands. 14% ætla ekki að taka sumarleyfi og 11% ætla að ferðast til útlanda. Í næstu viku er spurt: Hefur samkomubann áhrif á þína vinnu? Starfsfólk heilbrigðisstofnana, dvalarheimila, skóla og leik- skóla er undir miklu álagi þessa dagana og eru útnefndir Vest- lendingar vikunnar að þessu sinni. Spurning vikunnar Til minnis Vestlendingur vikunnar Áskriftarverð hækkar SKESSUHORN: Um næstu mánaðamót hækkar áskrift að Skessuhorni lít- ið eitt. Það er óhjákvæmi- legt vegna hækkaðs kostn- aðar við útgáfuna, m.a. vegna launa og dreifingar hjá Íslandspósti. Almenn mánaðaráskrift kostar eft- ir breytingu 3.590 krónur en verð til elli- og örorku- lífeyrisþega verður 3.100 kr. Rafræn mánaðaráskrift kostar 2.815 kr. en elli- og örorkulífeyrisþegar greiða 2.595. -mm Sérsveitin kölluð út AKRANES: Lögregla var kölluð að heimili á Akra- nesi á mánudag og kallað var eftir aðstoð sérsveit- arinnar. Að sögn lögreglu tengdist málið veikum ein- staklingi sem þurfti að ná tali af. Aðgerðin gekk vel að sögn lögreglu, en við- komandi kom sjálfur út úr húsinu og lögregla kom honum síðan undir læknis- hendur. Sérsveitin var að- eins kölluð út sem bakland fyrir lögregluþjóna á staðn- um. -kgk Skoða skotæf- ingasvæði við Ölduhrygg BORGARBYGGÐ: Á fundi sveitarstjórnar Borg- arbyggðar síðastliðinn fimmtudag var samþykkt með átta atkvæðum til- laga Lilju Bjargar Ágústs- dóttur þar sem lagt er til að umhverfis- og skipu- lagssviði verði falið að gera sambærilegar athuganir á Ölduhrygg og gerðar voru í Kárastaðalandi vegna hugsanlegs skotæfinga- svæðis þar. Í bókun segir að þetta verði gert til að að bera megi svæðin saman og taka ákvörðun um framtíð skotæfingasvæðisins með tilliti til þeirrar niðurstöðu. -mm Veðurhorfur Stærðfræðikeppni grunnskól- anna á Vesturlandi var haldin í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi föstudaginn 21. febrú- ar síðastliðinn. Keppnin var sem fyrr fyrir nemendur í 8.-10. bekk í öllum grunnskólum og grunn- skóladeildum á Vesturlandi auk grunnskólanum á Hólmavík og Klébergsskóla á Kjalarnesi. Að þessu sinni voru 106 nem- endur sem tóku þátt í keppn- inni og komu þeir frá sjö skól- um eða skóladeildum; Auðar- skóla í Búðardal, Brekkubæjar- skóla og Grundaskóli á Akra- nesi, Heiðarskóla úr Hvalfjarð- arsveit, Grunnskóla Borgarfjarð- ar bæði frá Kleppjárnsreykjum og Varmalandi og Grunnskól- anum í Borgarnesi. Úr áttunda bekk tóku 30 nemendur þátt, úr níunda bekk voru 53 keppendur og 23 nemendur úr tíunda bekk. Venja er fyrir því að bjóða 10-12 efstu nemendumí hverjum bekk til verðlaunaafhendingar í FVA en vegna COVID-19 veirunnar var ákveðið að aflýsa verðlauna- afhendingunni sem átti að vera 14. mars sl. Þess í stað voru við- urkenningar og verðlaun send í pósti en þrír efstu í hverjum bekk fá verðlaun og 10 efstu fá viður- kenningarskjöl. Styrktaraðilar keppninnar voru Akraneskaupstaður, Blikksmiðja Guðmundar, Tölvuþjónustan og Landsbankinn. Verðlaunahafar úr 8. bekk: Í fyrsta sæti var Marijonas Valdas Varkulevicius úr Grunnskólanum í Borgarnesi. Í öðru sæti var Ágúst Davíð Steinarsson úr Grunnskólanum í Borgarnesi. Í þriðja sæti var Nökkvi Snorra- son úr Grundaskóla á Akranesi. Verðlaunahafar í 9. bekk: Í fyrsta sæti var Mikael Bjarki Óm- arsson úr Heiðarskóla í Hvalfjarð- arsveit. Í öðru sæti var Ísak Emil Sveins- son úr Brekkubæjarskóla á Akra- nesi. Jöfn í þriðja og fjórða sæti voru Jara Natalía Florence Björnsdótt- ir úr Grunnskóla Borgarfjarðar á Kleppjárnsreykjum og Daði Már Alfreðsson úr Grundaskóla á Akra- nesi. Verðlaunahafar í 10. bekk Í fyrsta sæti var Díana Dóra Bergman Baldursdóttir úr Grunn- skólanum í Borgarnesi. Í öðru sæti var Stefán Ingi Þor- steinsson úr Auðarskóla í Búðar- dal. Jöfn í þriðja og fjórða sæti voru Hólmfríður Erla Ingadóttir og Ólafur Ían Brynjarsson, bæði úr Grundaskóla á Akranesi. arg Fjölbrautaskóli Vesturlands stóð sem fyrr fyrir keppninni. Að þessu sinni var verðlaunahöfum ekki boðið til móttöku heldur sendar viðurkenningar sínar. Ljósm. glh. Verðlaunahafar í stærðfræði- keppni grunnskólanna Hafa opið til víxl á veitingastöðunum Veitingahúsin Narfeyrarstofa og Sjávarpakkhúsið í Stykkishólmi hafa tekið höndum saman og hafa opið á víxl aðra hverja viku. Þetta er gert í hagræðingarskini með- an lítið er af ferðafólki og þann- ig reynt að bregðast við því for- dæmalausa ástandi sem nú ríkir. Fjöldi starfsfólks á veitingastöð- unum er í lágmarki. Þessi rástöfun gerir það að verkum að báðir stað- irnir geta haldið áfram starfsemi þótt í smærra umfangi sé. Því má við þetta bæta að nánast allar bókanir hótelgesta á stærstu hótel bæjarins hafa verið afbókað- ar undanfarna daga. Framkvæmd- ir standa nú yfir við stækkun Hót- el Stykkishólms. Þær munu halda áfram og lögð áhersla á að þeim verði lokið þegar sjá fer að nýju til sólar í ferðaþjónustunni hér á landi. mm/sá Narfeyrarstofa. Sjávarpakkhúsið. VEIÐIEFTIRLITSMÖNNUM FISKISTOFA VILL BÆTA Í SINN GÓÐA HÓP: Sjá nánar á http://www.fiskistofa.is/umfiskistofu/storfibodi/

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.