Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Qupperneq 1

Skessuhorn - 02.09.2020, Qupperneq 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 36. tbl. 23. árg. 2. september 2020 - kr. 950 í lausasölu Fæst m.a. í Apóteki Vesturlands Nýverið voru kynnt úrslit í ljósmyndasamkeppni Snæfellsbæjar 2020. Sigurmyndina tók Andri Viðar Kristmannsson. Hann segir um hana: „Myndin var tekin í Presta- hrauni, rétt við afleggjarann hjá Eysteinsdal. Ég var á leiðinni upp á Sjónarhól þar sem sólsetrið var einstaklega fallegt þetta kvöld. Á leið minni sá ég skyndilega glitta í tófu sofandi uppi á hæð í hrauninu þar sem hún hafði góða yfirsýn yfir svæðið sitt. Ég gat ekki látið þetta framhjá mér fara og smellti því nokkrum myndum af henni þar sem hún lá í makindum sínum.“ Ljósm. avk. Í nýjasta tölublaði framkvæmda- frétta Vegagerðarinnar má sjá yfirlit yfir helstu framkvæmdir í vega- og brúargerð á árinu 2020. Þar eru taldar upp ellefu fram- kvæmdir á Vesturlandi. Flestar framkvæmdanna eru í Borgarfirði og á Mýrum. Fyrst skulu talin þau verk í landshlutanum sem áformað er að ljúka í ár. Þau eru: Endurbygging og klæðning eins km kafla Þverár- hlíðarvegar milli Borgarfjarðar- brautar og Hvítársíðuvegar, end- urbætur og klæðning 5,8 km kafla Grímsstaðavegar milli Hvann- eyrarvegar og Hvítárvalla, endur- bætur og klæðning 3,7 km kafla Skorradalsvegar frá Vatnsendahlíð að Dagverðarnesi, endurbygging og klæðning 1,6 km kafla Mófels- staðavegar frá Borgarfjarðarvegi að Hreppslaug, endurbætur og klæðning 3,4 km kafla Snæfells- nesvegar frá Blönduhlíð að Ketils- stöðum , nýbygging og klæðning á 4,5 km kafla Fróðárheiðar og kant- lýsing auk ljósleiðarakerfa og end- urbóta í Hvalfjarðargöngum. Verk sem verður/er unnið að á þessu ári og áformað að ljúka á því næsta eru: Nýbygging hring- vegarins á 2,1 km kafla um Heið- arsporð á Holtavörðuheiði, end- urbætur og klæðning 3 km kafla Hvítársíðuvegar frá Kalman- stungu að Kaldadalsvegi, endur- bygging og klæðning 8 km kafla Álftaneshreppsvegar frá Snæfells- nesvegi að Leirulæk og endurgerð og grjótvörn Faxabrautar á Akra- nesi. kgk Vegaframkvæmdir víða í landshlutanum Nýr vegur um Fróðárheiði malbikaður nú fyrir skemmstu. Ljósm. úr safni/ af. Í gærmorgun hófust framkvæmdir við endurgerð Faxabrautar á Akranesi og grjótvörn. Ljósm. mm Arion appið Einfaldara og öruggara Borgum með símanum eða úrinu Tilboðið gildir út september 2020 Smurt rúnstykki & Kókómjólk 499 kr. ALLA LEIÐ Við tökum vel á móti þér .com/skagafiskur Fiskverslun Kirkjubraut 40, Akranesi Opið alla virka daga frá kl. 11 til 18

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.