Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Qupperneq 4

Skessuhorn - 02.09.2020, Qupperneq 4
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 20204 Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá- auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 3.590 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða kr. 3.100. Rafræn áskrift kostar 2.815 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.595 kr. Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr. SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is Ritstjórn: Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kristján Gauti Karlsson kgauti@skessuhorn.is Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is Auglýsingar og dreifing: Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is Umbrot og hönnun: Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is Bókhald og innheimta: Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is Prentun: Landsprent ehf. Leiðari Saman í gegnum skaflinn Haustið markar einatt kaflaskil í atvinnu- og mannlífi hvers árs. Þess sjáum við fjölmörg dæmi. Skólastarf er nú komið á fullan skrið og blessunarlega getur til dæmis skólahald farið að mestu fram með eðlilegum hætti. Þó er nemendum og starfsfólki framhaldsskóla settar skorður sem snertir fjölda nemenda í hverju rými bygginga. Af þeim sökum sækja ungmennin að hluta til nám í skólanum sínum, en að hluta í gegnum fjarnám. Flestir eru van- ir því frá fyrri bylgju Covid í fyrravor þannig að þetta gengur býsna smurt eftir því sem ég hef fregnað. Þá má segja að haustvertíðin hjá sjómönnum hafi byrjað af krafti í gær og menn halda til sjós fullir bjartsýni um að vel veiðist og gott verð fáist fyrir aflann. En þessi tímamót eru óvenjuleg sökum skrambans veirunnar sem enn geisar bæði hér á landi en þó ekki síður víða erlendis þar sem hún er í vexti. til að mynda liggur fyrir að göngur og réttir bænda og búaliðs verði með öðrum hætti en venja er. takmarkanir verða á fjölda fólks sem má mæta í réttir og er það miður, þótt ekkert sé við því að segja. Réttir að hausti eru í mínum huga besti möguleiki þéttbýlisbúans til að þreifa á lífinu til sveita. Sannkölluð mannamót sem fólk hefur sóst eftir að mæta á. Nú verður bein- línis bannað að mæta í réttir, nema þeir sem fá leyfi til réttarstarfa frá fjár- eigendum. Öðrum verður ekki hleypt að réttarveggnum. Sótt hefur verið um undanþágur til að í fjárflestu réttum geti fleiri en hundrað manns verið. Ef slíkar undanþágur fást ekki má fastlega búast við að réttarhald dragist meira á langinn en venja er og jafnvel lengur en forsvaranlegt má telja dýr- anna vegna. Þetta mun hins vegar allt skýrast á næstu dögum og vonandi verður veiran í það mikilli rénun þegar líður á mánuðinn að sóttvarnayfir- völd sjái auman á bændum og aðstoðarfólki þeirra. Sú atvinnugrein sem Covid snertir þó mest er ferðaþjónustan. Eftir að reglur voru settar um tvöfalda skimun á landamærum eru fáir erlend- ir ferðamenn sem hingað gera sér ferð að gamni sínu. Bókanir hafa því bókstaflega hrunið fyrir haustið og fjölmörg fyrirtæki í ferðaþjónustu og tengdum greinum hafa ákveðið að pakka í vörn. Sum munu loka og jafn- vel hætta starfsemi, en önnur ætla að þreyja Þorrann og vonandi Góuna líka. Engum blöðum er um það að fletta að staða eigenda og rekstraraðila þessara fyrirtækja er slæm. Verst er náttúrlega óvissan um hvernig veirunni reiðir af í útlöndum þannig að ferðvilji taki að aukast að nýju. Almennt er óvissa það versta sem ríkt getur í rekstri, en viðvarandi óvissa af þessu tagi er beinlínis djöfulleg. Í blaðinu í dag tökum við hús á nokkrum sem reka gistiþjónustu hér á Vesturlandi. Vissulega er þetta ágæta fólk ekkert að fegra stöðuna sem uppi er, en málar hana þó ekki dekkri litum en ástæða er til. Í mínum huga eru þetta allt sannar hvunndagshetjur. Allir ætla að reyna að halda opnu, draga úr kostnaði eins og mögulegt er, en loka ekki. Aldrei hefur verið mikilvægara en einmitt nú að stutt verði við bakið á þessum fyrirtækjum. Þeir Íslendingar sem eru vanir að bregða sér bæjarleið út fyrir landsteinana, til dæmis í svokallaðar borgarferðir, geta allt eins gert sér dagamun með því að styðja við þessi fyrirtæki. Hví ekki að snæða veislu- mat hjá Kela vert, njóta útsýnisins frá St.Fransiskus í Hólminum, Hótel Húsafelli eða flatmaga á Hótel Hamri? Allt eru þetta snyrtilegri hótel held- ur en ég þekki almennt í stórborgum erlendis. Engin keðja er sterkari en veikari hlekkurinn. Þegar á bjátar í efnahagslífinu, eins og vissulega gerir, eigum við að gera allt sem í okkar valdi til að styðja við þá starfsemi sem við viljum umfram allt að haldi velli. Saman förum við í gegnum þennan skafl og sól tekur að hækka á lofti að nýju. Magnús Magnússon Nítjánda bindi Árbókar Akurnesinga er komið út. Meðal efnis er grein Illuga Jökulssonar um fyrsta málið sem rekið var fyrir Hæstarétti Íslands, en þar var deilt um viðardrumb sem rak í Bjargsvör. Í fót- spor foringjans nefnist grein eftir Hjördísi Hjart- ardóttur og Ari Jóhannesson skrifar um Kristján Fjeldsted sem gerðist lögreglumaður í Kanada. Sögugangan „Hvaða kellingar?“ sem farin var 2015 er nú birt myndskreytt en umsjón með henni höfðu Guðbjörg Árnadóttir, Hallbera Jóhannesdóttir og Halldóra Jónsdóttir. Listamaður árbókarinnar er bæjarlistamaðurinn tinna Royal og ljósmyndar- inn er að þessu sinni Ragga á Grund, Ragnheiður Þórðardóttir en nýverið var Ljósmyndasafni Akra- ness afhent stórt filmusafn hennar. Kristján Krist- jánsson ritstjóri er síðan höfundur þriggja greina. Annálar og æviágrip eru á sínum stað. -fréttatilkynning peningastefnunefnd Seðlabanka Ís- lands kynnti í síðustu viku ákvörð- un sína um að vextir bankans verði óbreyttir. Meginvextir bankans, vextir á sjö daga bundnum innlán- um, sem jafnan eru kallaðir stýri- vextir, verða því áfram 1%. Horfur eru á að landsframleiðsla dragist saman um 7% í ár og út- lit fyrir að atvinnuleysi verði ná- lægt 10% í árslok. En þótt horf- ur fyrir seinni hluta árs séu lakari en spáð var í maí er talið að sam- drátturinn verði nokkru minni en gert var ráð fyrir í vor. Vegur þar þyngst að einkaneysla var kröft- ugri í vor og sumar. „Óvissan er hins vegar óvenju mikil og þróun efnahagsmála mun ráðast af fram- vindu farsóttarinnar,“ segir í yfir- lýsingu peningastefnunefndar frá því á miðvikudag. Verðbólga mældist 2,5% á öðrum ársfjórðungi en var komin í 3% í júlí. Frá því farsóttin barst til lands- ins hefur gengi krónu hækkað um ríflega 12% og vegur það þungt, að því er fram kemur í yfirlýsingunni. Verðbólguvæntingar til meðallangs og langs tíma hafa hins vegar lítið breyst. Spár Seðlabankans gera ráð fyrir því að verðbólga verði í kring- um 3% það sem eftir lifir árs. Mik- ill slaki í þjóðarbúinu, ásamt lítilli alþjóðlegri verðbólgu, geri það að verkum að verðbólga taki að hjaðna á næsta ári og verði um 2% að með- altali á seinni hluta spátímans. kgk Ríkisstjórnin samþykkti í síð- ustu viku frumvarp félagsmála- ráðherra um breytingu á lögum er varða vinnumarkaðinn til að mæta efnahagslegum áhrifum Covid-19 heimsfaraldursins. Með frumvarp- inu mun réttur til tekjutengdra at- vinnuleysisbóta fara úr þremur mánuðum í sex mánuði, enda séu ákveðin skilyrði uppfyllt. Hluta- bótaleiðin verður sömuleiðis fram- lengd um tvo mánuði. Greiðslur launa vegna einstaklinga í sóttkví munu einnig halda áfram. „Markmiðið með framlengingu á rétti til tekjutengdra atvinnuleysis- bóta úr þremur mánuðum í sex er að komið verði til móts við einstak- linga sem orðið hafa fyrir atvinnu- missi vegna Covid-19 faraldursins og munu búa við skerta möguleika á atvinnu næstu misseri. Réttur til tekjutengdra atvinnuleysisbóta í sex mánuði tekur gildi þegar lög- in verða samþykkt og gert er ráð fyrir að hægt verði að nýta réttinn fyrir 1. október 2021,“ segir í til- kynningu um frumvarpið. „Réttur til greiðslu atvinnuleysisbóta sam- hliða minnkuðu starfshlutfali vegna tímabundins samdráttar í starfsemi vinnuveitenda, hlutabótaleiðin svo- kallaða, hefur verið lengdur til 31. október 2020. Ekki eru lagðar til efnislegar breytingar en samkvæmt lögunum getur fólk sem verið hefur í fullu starfi farið niður í allt að 50 prósenta starfshlutfall og átt rétt á bótum. Þeir sem eru með 400 þús- und eða minna í mánaðarlaun fá fullar bætur á móti skertu hlutfalli í vinnu.“ Loks verða tímabundnar greiðslur vegna einstaklinga sem sæta sóttkví án þess að vera sýktir, samkvæmt fyrirmælum heilbrigðis- yfirvalda, heimilaðar áfram á tíma- bilinu 1. október 2020 til og með 31. desember 2021. mm Tekjutengdar atvinnuleysisbætur og hlutabótaleiðin framlengd Árbók Akurnesinga er komin út Óbreyttir stýrivextir Peningar. Ljósm. úr safni/ mm.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.