Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Qupperneq 10

Skessuhorn - 02.09.2020, Qupperneq 10
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202010 Atvinnuleitendum verður gert kleift að hefja nám og fá fullar atvinnu- leysisbætur í eina önn að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Eftir fyrstu önnina tekur Menntasjóður náms- manna við. Frítekjumark vegna skattskyldra tekna einstaklinga sem koma af vinnumarkaði hefur verið hækkað úr 4,1 m.kr. í 6,8 m.kr. til að tryggja þessum hópi rýmri rétt til námslána. Aðgerðirnar eru hluti af átakinu „Nám er tækifæri“ en markmiðið er að koma til móts við atvinnuleitendur með markvissum aðgerðum og hvetja þá til þess að sækja sér formlega menntun til að styrkja stöðu sína á vinnumarkaði. Aðgerðirnar eru hluti af tillögum í mennta- og vinnumarkaðsmálum sem áætlað er að verja samtals 6,2 milljörðum króna í. Nám er tækifæri Í tilkynningu frá félags- og barna- málaráðuneytinu kemur fram að fjármögnun er tryggð fyrir allt að 3.000 atvinnuleitendur sem hafa verið án atvinnu í sex mánuði eða lengur og vilja skrá sig í nám í dag- skóla á vorönn 2021, haustönn 2021 eða vorönn 2022. Kjósi at- vinnuleitendur að hefja nám mun það ekki hafa áhrif á bótarétt og nýtingu hans. Átakið afmarkast við starfs- og tækninám í framhaldsskóla eða háskóla en fyrirsjáanlegur skor- tur er í þeim geirum. Atvinnuleit- endum verður einnig greidd leið í brúarnám. Þá verður háskólamenn- tuðum boðið upp á flýtileiðir til an- narrar prófgráðu þar sem skortur er, til dæmis í og heilbrigðis- og kennslugreinum. Ríflega helmingur þeirra sem hafa verið án atvinnu í sex mánuði eða lengur hafa einungis lokið grunnnámi. 500 milljónir króna verða settar í aðgerðir til að fjölga verulega þátttakendum í vottuðum námsleiðum framhaldsfræðslunnar og símenntastöðvanna í samstar- fi Vinnumálastofnunar og Fræðs- lusjóð. Þá er fjármagn tryggt fyrir allt að 150 námsmenn í háskó- labrýr. Fjölbreyttar aðgerðir til uppbyggingar Hundrað milljónir króna verða settar í sérstakan kynningar- og þróunarsjóð til að skapa svigrúm til þróunar á nýjungum í námi, kennsluaðferðum og mati á reynslu atvinnuleitenda. Þá verður ráðist í fjölbreyttar aðgerðir til uppbygg- ingar. Má þar nefna samskiptatorg atvinnu- og menntamála á Suður- nesjum, aukin áhersla hjá Vinnu- málastofnun til að aðstoða við- kvæmustu hópana aftur inn á vinnu- markað ásamt því að NEEt verk- efni Vinnumálastofnunar, í sam- starfi við VIRK, sem snýr að því að virkja 18-29 ára einstaklinga sem hafa flosnað upp úr námi eða ver- ið inn og út af vinnumarkaði verður útvíkkað á landsvísu. Ásmundur Einar Daðason, fé- lags-og barnamálaráðherra segir að stjórnvöld séu meðvituð um að næstu misseri verða krefjandi á ým- sum vígstöðvum. „Við ætlum að blása til sóknar og gera atvinnulei- tendum betur kleift að stunda nám án þess að missa rétt sinn til atvin- nuleysisbóta. Við ætlum þannig að koma til móts við atvinnuleiten- dur með markvissum aðgerðum, skapa þekkingu og virkja kraft til framtíðar. Það er skynsamlegt fyrir okkur sem samfélag að verja fjár- munum í að virkja atvinnuleiten- dur til náms. Slíkt skilar sér í aukin- ni færni, þekkingu og verðmætum fyrir samfélagið allt til lengri tíma,“ segir Ásmundur Einar. mm Eins og greint var frá í Skessu- horni í júlí hefur byggðarráð Borg- arbyggðar lýst sig andsnúið því að sorpurðun verði aukin í Fíflholt- um með því að sótt verði um auk- ið starfsleyfi. Slíkt samræmist ekki framtíðaráformum stjórnvalda eða stefnumörkun sveitarfélasins, þar sem markvisst væri unnið að því að draga úr urðun meðal íbúa. tilefni umfjöllunar byggðarráðs þá var að Sorpurðun Vesturlands hf. ósk- aði eftir umsögn sveitarfélaganna á Vesturlandi um nýtt starfsleyfi fyr- ir sorpurðunina í Fíflholtum, með heimild til að urða þar árlega 10 þús. tonn til viðbótar við þau 15 þús. tonn sem heimilt er að urða á ári samkvæmt núverandi starfsleyfi. Steinn í götu félagsins Bókun byggðarráðs og sú afstaða Borgarbyggðar sem er lýst var til umræðu á stjórnarfundi Sorpurð- unar Vesturlands 12. ágúst síðast- liðinn. Kristinn Jónasson, formað- ur félagsins, taldi bókunina hugs- anlega leggja stein í götu Sorpurð- unar Vesturlands varðandi núver- andi áform um framtíðarsýn félags- ins. taldi hann að stjórnin þyrfti að eiga samtal við eigendur og nauð- synlegt að boða til hluthafafund- ar. Sorpurðun Vesturlands er sem kunnugt er í eigu sveitarfélaganna í landshlutanum. Óbreytt staða ekki framtíðin Í máli Kristins kom fram að nú- verandi starfsleyfi heimilaði urð- un 15 þús. tonna af sorpi á ári og hvers vegna sóst væri eftir stækk- un upp í 25 þús. tonn. tvö ár í röð hefði verið urðað umfram leyfilegt magn og slíkt gengi ekki. Urðun umfram starfsleyfi kallaði á frávik frá Umhverfisstofnun eins og hefði gerst. Formaður fór yfir þær ástæður sem liggja að baki stöðunni; neyðaraðstoð við Suð- urland, sem þó var tímabundin og móttaka úrgangs frá Vestfjörðun og aukið magn sem kemur til urð- unar frá Vesturlandi. „Báðar þess- ar ákvarðanir voru teknar í sam- ráði/samtali við yfirvöld vegna vanda fyrrnefndra svæða,“ eins og segir í fundargerðinni. Krist- inn sagði að óbreytt staða væri ekki framtíðin, margt þyrfti að breytast og hefði stjórnin unnið að því. Það nýjasta í þeim efnum væri fýsileikakönnun á uppbygg- ingu stórrar brennslustöðvar fyr- ir landið allt. Segir hreppapólitík í spilinu Sævar Jónsson stjórnarmaður frá Akranesi leit svo á að með bókun byggðarráðs hefði Borgarbyggð sett út á störf stjórnar Sorpurðun- ar Vesturlands með því að leggjast gegn aukinni urðun í Fíflholtum. Sagði hann þetta hafa verið gert án þess að rætt hefði verið við for- svarsaðila félagsins. Áréttaði Sæv- ar að hann myndi aðeins sitja í stjórn þar til hans bakland hefði fundið staðgengil. Í svona vinnu tæki hann ekki þátt, hagsmunir félagsins hefðu verið settir til hlið- ar og hreppapólitík komin í spilið. Halldóra Lóa Þorvaldsdóttir stjórnarmaður úr Borgarbyggð ræddi um samfélagslega ábyrgð sveitarfélagsins í tengslum við urðunina í Fíflholtum. Kvartan- ir vegna foks og meindýra hefðu komið inn á borð sveitarfélagsins. Skerpa á stefnumótun Undir lokin umfjöllunarinnar spunnust umræður um áherslur sveitarfélaga landshlutans í úr- gangsmálum almennt og um framtíð málaflokksins. Í fundar- gerð kemur fram að þó sveitarfé- lögin stjórni sorphirðu og flokkun á sínum svæðum þurfi að skerpa á stefnumótun. Stækkun starfsleyfis væri hluti þeirrar vinnu og samtal yrði að eiga sér stað. Samþykkt var að boða til hluthafafundar Sorp- urðunar Vesturlands í byrjun sept- ember. kgk Atvinnuleitendum gert mögulegt að fara í nám án þess að greiðslur falli niður Ásmundur Einar, félags- og barnamálaráðherra að störfum heima í upphafi kóvidfaraldurs. Ljósm. úr safni. Kurr í stjórn Sorpurðunar vegna afstöðu Borgarbyggðar Frá Fíflholtum. Ljósm. úr safni/ sá.

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.