Skessuhorn - 02.09.2020, Qupperneq 12
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202012
Vart þarf að taka fram að hinir fordæma-
lausu tímar sem við lifum hafa komið illa
við ferðaþjónustuna. Langtum færri gest-
ir hafa sótt landið heim en undanfarin ár.
Í lok vetrar voru Íslendingar hvattir til
að ferðast innanhúss, en með hækkandi
sól og bjartari tímum tók við hvatning til
þjóðarinnar um að ferðast innanlands.
Og Íslendingar biðu ekki boðanna. Þeg-
ar slakað var á sóttvarnakröfum í sumar-
byrjun fóru margir á flakk um eigið land
og víðast hvar rættist úr sumrinu með-
al ferðaþjónustuaðila. En nú er innlenda
ferðasumarið á enda. Hert var á sóttvarn-
aráðstöfunum að nýju í byrjun ágúst og
óvissa ríkir fyrir komandi vetri í grein-
inni. Skessuhorn heyrði hljóðið í nokkr-
um aðilum í hótel- og gistirekstri í lands-
hlutanum, sem flestir hafa svipaða sögu
að segja.
Langaholt
Guesthouse
í Staðarsveit
„Voða erfitt að spá
í framtíðina eins
og staðan er í dag“
Við vissum svo sem ekkert hvernig sumarið
yrði og það var erfitt að gera áætlanir í vor.
En svo fengum við ágætt að gera í júní og
júlí. Þá voru helstu vandræði okkar að við
höfðum varla nóg af starfsfólki, sem var ein-
mitt eitt af því sem ekki var hægt að sjá fyrir
um vorið,“ segir Þorkell Sigurmon Símon-
arson í Langaholti, betur þekktur sem Keli
vert, í samtali við Skessuhorn. „Júlí bjarg-
aði miklu, en þetta var ekkert metsumar eða
neitt svoleiðis. En svo þegar tveggja metra
reglan varð skylda í lok júlí þá var það bara
eins og algjör handbremsa,“ segir hann.
Allir að reyna að lifa af
En þó ræst hafi úr sumrinu segir hann róð-
urinn erfiðan í gisti- og veitingarekstri
þessi misserin og kveðst ekki reikna með
að ferðamenn verði margir á komandi vetri.
„Landamærin eru tæknilega séð lokuð og
ég á svo sem ekki von á að það verði mik-
ið af túristum í vetur,“ segir Keli, en bætir
því við að óvissan sé mikil. „Það eina sem
maður veit er að maður veit lítið og gerir
bara áætlanir viku fram í tímann eða svo.
Allir eru einhvern veginn að reyna að lifa af
og það er ekkert hægt að plana neitt lengra.
Maður veit ekkert hvað þessi heimsfarald-
ur gerir, hvað verður nauðsynlegt að gera í
framhaldinu eða hvaða reglur verða í gildi
hér innanlands. Ef einhverjum ráðstöfun-
um verður aflétt, hvenær verður það gert og
þá með hvaða skilyrðum? Mér sýnist svo að
allir sem eru að velta fyrir sér hvenær bólu-
efnið kemur, að það sé mest fólk að lýsa því
sem það langar að sjá, frekar en að ræða það
af einhverju viti. Það er voða erfitt að spá
í framtíðina eins og staðan er í dag,“ seg-
ir hann.
Á meðan staðan sé þannig telur Keli að
allir sem ætla að reyna að halda starfsemi
sinni gangandi í vetur verði að vera á tán-
um og reiðubúnir að hrinda hugmyndum
sínum í framkvæmd með skömmum fyrir-
vara. Hann, eins og aðrir, vonast vitaskuld
til að geta haldið Langaholti opnu í vet-
ur, en það verði bara að koma í ljós hvort
það verði hægt og þá með hvaða hætti. „til
þess að hafa opið þurfa að vera einhver við-
skipti og til þess að loka þá þarf maður að
vera viss um að það verði engin viðskipti.
Það er voðalega erfitt að spá fyrir um það,“
segir hann. „En auðvitað vonumst við til að
hafa opið. Þegar fyrirtæki eru orðin ákveð-
ið stór þá verða að koma inn tekjur. Það er
engin miskunn, það þarf að borga reikninga
og standa skil á öllu sama hvað. Fólk lifir á
þessu og fólkið sem maður er með í vinnu
treystir á þetta,“ bætir hann við.
Þjóðin naut eigin lands
En þrátt fyrir að árið hafi heilt yfir reynst
ferðaþjónustunni þungbært og erfiður vetur
geti verið framundan má þó ef til vill finna
ljósa punkta. Keli lítur þar til Íslendinganna
sem ferðuðust um eigið land í sumar. „Þeir
Íslendingar sem komu til okkar í sumar voru
glaðir og ánægðir og ég er að vona að út úr
þessu komi að þjóðin hafi lært að meta eig-
ið land og valkosti ferðaþjónustunnar. Mér
sýndist að mjög margir vissu ekki almenni-
lega hvað væri í boði hér og voru gleðilega
undrandi á því hvað er margt hægt að sjá
og gera á Íslandi,“ segir hann. „Þannig að
ef maður á að reyna að taka eitthvað jákvætt
út úr stöðunni þá vonandi hefur þetta ár
sáð fræjum sem verða til þess að Íslending-
ar muni njóta síns eigin lands í ríkara mæli í
framtíðinni,“ segir Keli vert að endingu.
Icelandair Hótel
Hamar í Borgarnesi
Prýðilegt sumar
en erfið staða
komin upp
Eins og greint var frá í Skessuhorni í byrj-
un júlí höfðu þá flestir leyst út ferðagjöf
stjórnvalda hjá Icelandair Hótel Hamri í
Borgarnesi, af öllum þeim stöðum sem tóku
við gjöfinni. Guðveig Lind Eyglóardóttir
aðstoðarhótelstjóri segir enda að sumarið
hafi verið prýðilega gott. „Það má segja að
hótelið hafi verið fullbókað frá í maí og út
ágúst og enn er vel bókað út september, að
minnsta kosti um helgar,“ segir Guðveig í
samtali við Skessuhorn. Hún segir Íslend-
inga hafa verið langfjölmennasta hópinn
meðal gesta hótelsins í sumar og þá mik-
ið til kylfingar, enda stendur hótelið við
Hamarsvöll. „Við vorum heppin með veð-
ur og völlurinn er auðvitað ekkert venju-
legur, heldur 18 holu vinsæll völlur með
gott orðspor,“ segir hún. „Staðsetningin er
líka góð, stutt frá Reykjavík og svo hef ég
heyrt að margir sumarhúsaeigendur kjósi
að vera hér í nágrenninu út af nálægðinni
við golfvöllinn. Þeir koma margir inn til
okkar í mat og drykk,“ segir hún. „Íslend-
ingar hafa verið duglegir við að njóta lífs-
Víða rættist vel úr sumrinu í gistiþjónustu
En framundan er erfiður vetur og mikil óvissa
Svipmynd frá Grundarfirði. Ljósm. tfk
Keli vert í Langaholti. Ljósm. úr safni/ Lýður Guðmundsson.
Í eldhúsinu í Langaholti. Ljósm. úr safni.