Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 14
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202014
Akranesi. Eggert segir að meira en helm-
ingur gistirýmanna í Borgarnesi hafi verið
leigður út í fastri leigu til langs tíma snemma
í sumar. „Við erum í þessari ódýrari gistingu
sem höfðar ekki endilega til íslenska ferða-
mannsins. Á meðan við þurftum að treyast á
innanlandstraffík var rólegt að gera í Borg-
arnesi, en um leið og útlendingarnir fóru að
koma til landsins þá varð fínt að gera,“ seg-
ir hann. Staðan er hins vegar önnur á Akra-
nesi. „Þar var bara töluvert að gera í sumar,
kannski einfaldlega vegna þess að hér er lít-
il önnur gisting í boði og Akranes er stutt
frá höfuðborginni. talsvert seldist af golf-
tilboðunum okkar og almennt til þeirra sem
vildu kíkja á Akranesi. Þannig að það gekk
bara vel á Skaga með innlenda ferðamann-
inn,“ segir Eggert.
Hugsa vel um hverja krónu
Spurður hvort einhver sóknarfæri kunni
að leynast fyrir aðila í gistirekstri í ríkjandi
ástandi segir Eggert erfitt að koma auga á þá
í fljótu bragði. „til langs tíma litið þá liggja
sóknarfærin líklega helst í því að menn fari
yfir sinn rekstur, nýti sjálfvirkni eins mik-
ið og hægt er, svo sem sjálfvirkar bókanir
og sjálfvirka innritun, til að lækka kostnað
eins og kostur er. Menn þurfa að gera það
núna á meðan litlar tekjur er að hafa, en það
gæti nýst vel þegar fer að verða eitthvað að
gera aftur,“ segir hann. „Svo er mögulegt að
það verði einhverjar sameiningar fyrirtækja
í geiranum, þó ekkert slíkt sé í kortunum
hjá okkur. En þannig gætu einhverjir nýtt
sér yfirbygginguna fyrir fleiri gistiheimili og
þjónustufyrirtæki, því það þarf að hugsa vel
um hverja krónu ef menn reka gistiþjónustu
í þessu árferði,“ segir hann.
Í stærra samhengi
„En svo er stóra spurningin; hver er fram-
tíð ferðaþjónustu í heiminum almennt?“
spyr Eggert og ræðst ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur. Blaðamaður getur ekki
svarað spurningunni. „Ef svona sóttir koma
til með að geysa með reglubundnu milli-
bili, mun þá ferðavilji ekki koma til með að
minnka í heiminum? Og erfitt efnahags-
ástand sem því fylgir gerir það auðvitað að
verkum að kaupmáttur fólks minnkar, og
þar með möguleikar þess til að ferðast,“ seg-
ir Eggert. „Ég held að það sé alveg framtíð
í ferðaþjónustu að einhverju leyti, en mað-
ur sér ekki fyrir sér að greinin verði aftur
eins og 2018, þegar allir ferðuðust mikið
og flugfélögin buðu upp á bingótilboð til
landsins,“ segir hann. „Flugfélög í heimin-
um eiga auðvitað erfitt og það er spurning
hvernig þeirra starfsemi verður háttað þeg-
ar við verðum komin í gegnum þetta tíma-
bil. Ég held að það sé óumflýjanlegt að verð
á flugi muni hækka og það mun hafa á ferða-
þjónustu alls staðar í heiminum,“ segir Egg-
ert að endingu.
Hótel Fransiskus í
Stykkishólmi
„Hef fulla trú á
ferðamennsku til
framtíðar“
„Það rættist úr sumrinu eins og held ég hjá
flestöllum á landsbyggðinni,“ segir Unnur
Steinsson, hótelstjóri á Hótel Fransiskus í
Stykkishólmi, í samtali við Skessuhorn. „Það
leit ekki vel út fyrirfram en svo byrjaði það
með óvenjumiklu trukki í maí. Svo í júní, júlí
og ágúst vorum við með mjög góða nýtingu
og ég er afskaplega ánægð með það,“ segir
hún og bætir því við að um og upp úr miðjum
júlí hafi hlutfall gesta verið um það bil til
helminga Íslendingar og erlendir ferðamenn.
Er það ólíkt ýmsum öðrum stöðum, þar sem
meginþorri gestanna voru Íslendingar. Hún
segir að margir erlendu gesta hótelsins í sum-
ar hafi verið búnir að bóka með löngum fyr-
irvara, en sömuleiðis hafi þeim borist tölu-
vert af bókunum frá fólki eftir að það kom
til landsins. „Við vorum auðvitað eins og allir
aðrir með lækkuð verð í sumar, töluvert lægri
en undanfarin sumur. Það náttúrulega heillar
bæði Íslendinga sem aðra,“ segir hún og bæt-
ir því við að þrátt fyrir lækkað verð hafi þeim
tekist að halda sjó í rekstrinum. „Við náðum
að halda í starfsfólkið og fleyta okkur í gegn-
um sumarmánuðina,“ segir hún.
Annar skellur í ágúst
„En svo fengum við annan skell í ágústbyrj-
un og eftir fyrstu fréttir [af hertum sóttvarn-
aráðstöfunum; innsk. blms.] þá fóru að berast
afbókanir fyrir lok ágúst og septembermán-
uð. September leit ágætlega út hjá okkur fyr-
ir þann tíma, en það er allt meira og minna
farið og útlit fyrir að það verði fámennt hjá
okkur í september og enn minna í október,
nóvember og desember, sem eru venjulega vel
bókaðir,“ segir Unnur. „Stærstur hluti okkar
gesta frá nóvember og fram í mars síðustu ár
hafa verið Asíubúar. Þeir koma líklega ekki
núna,“ segir hún en bætir því við að vissulega
sé staðan öll mjög óljós. „Almennt planar fólk
heimsóknir til landsins með löngum fyrirvara
og þó við opnum landamærin eftir mánuð þá
held ég að fólk bíði ekki á hurðarhúninum,
ekki frekar en við Íslendingar þegar við för-
um erlendis. Þetta mun taka einhverja mán-
uði að jafna sig,“ segir hún.
Fáliðað í vetur
Aðspurð segir Unnur að ætlunin sé að halda
Hótel Fransiskus opnu í vetur, en hún hef-
ur þurft að draga saman seglin í rekstrin-
um. „Eftir 1. október er ég orðin ein í öll-
um, meira og minna, en ég hef samt gott fólk
að kalla til ef hlutirnir breytast til batnaðar,“
segir hún. „Við höfum því miður þurft að
segja upp fólki. Við erum svo lítil eining og
eigum enga sjóði til að sækja í til að halda öllu
gangandi,“ segir hún. „Hér eru bara 20 her-
bergi og það þarf svolítið meira til að við get-
um haldið lengur áfram óbreyttum rekstri.
En við gerðum það í sumar og ég er stolt af
því að hafa ekki þurft að segja upp fólki í vor,
en því miður þurftum við að gera það núna í
haust,“ segir hún.
Íslensk náttúra
mun áfram heilla
Aðspurð kveðst Unnur ekki eiga von á stór-
lega breyttri ferðahegðun til lengri tíma lit-
Hjónin Eggert Hjelm Herbertsson og Ingibjörg Valdimarsdóttir hjá Stay West. Ljósm. úr safni/ mm.
Ferðamaður hefur það huggulegt á Breiðinni á Akranesi. Ljósm. úr safni/ glh.
Unnur Steinsson hótelstjóri. Ljósm. úr safni.
Hótel Fransiskus í Stykkishólmi. Ljósm. fransiskus.is.