Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 18

Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 18
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202018 Embætti umboðsmanns barna hefur sent öllum sveitarfélögum bréf þar sem minnt er á hlutverk og tilgang ungmennaráða og sérstaklega mikil- vægi þess að í ungmennaráðum sitji fulltrúar yngri en 18 ára. Samkvæmt æskulýðslögum skulu sveitarstjórnir hlutast til um að stofnuð séu ung- mennaráð, en markmiðið er að gefa ungmennum kost á því að vera virk- ir þátttakendur í lýðræðissamfélagi. Markmiðið með starfi ungmennar- áða sveitarfélaga, er að gefa börnum sem ekki hafa kosningarétt og geta ekki gefið kost á sér til framboðs í sveitarstjórnarkosningum, tækifæri til þess að hafa áhrif á ákvarðanatöku í eigin nærsamfélagi og þar með eig- ið líf, umhverfi og framtíð. Í nýlegri rannsókn um ungmen- naráð sveitarfélaga kemur fram að 44 af 51 ungmennaráðum í sveitar- félögum landsins hafa verið skipuð, að hluta til eða jafnvel að öllu leyti, ungu fólki sem er 18 ára eða eldra. „Ákveðin hætta er á því að hagsmu- nir yngri hópsins fái minni vægi í ungmennaráðum sem hafa breiða aldurssamsetningu enda getur það reynst börnum erfitt að láta til sín taka í félagsstarfi með fullorðnu fólki þar sem til staðar er augljós aðstöðumunur sem felst í auk- num þroska og lífsreynslu þeirra fullorðnu,“ segir í tilkynningu frá Salvöru Nordal umboðsmanni bar- na. mm Minnir sveitarfélög á hlutverk ungmennaráða Ljósmynd úr safni Skessuhorns af fundi í bæjarstjórn unga fólksins á Akranesi. Myndin tengist því fréttinni ekki með beinum hætti. Bílaþvottastöðin Skagabón var opn- uð við Kalmansvelli á Akranesi í gær, þriðjudaginn 1. september. Það er pálmi Þór Jóhannsson sem stend- ur að stöðinni og mun hann bæði þjónusta fyrirtæki og einstaklinga. pálmi hefur unnið að því undan- farið að kynna framtak sitt í bænum og segir viðtökurnar hafa verið afar góðar, en fullbókað er í bón og bíla- þrif hjá Skagabóni næstu vikurnar. „Það er markaður fyrir þetta“ En hvernig kom það til að pálmi ákvað að opna bílaþvottastöð? „Ég er búinn að vera atvinnulaus í ár og var á leiðinni í skóla, en út af Covid þá klikkaði það. Ég settist því niður einn daginn og hugsaði með mér; „hvernig leysi ég þetta? Ég get ekki verið með 30 þúsund kall á mánuði til að lifa af, þegar að ég er búinn að borga alla reikningana“. Á þessu heila ári lærði ég reyndar að fara með peninga, en svo tók ég þenn- an dag, pældi þetta út og sýnist ég hafa fundið eitthvað sem vantar á Akranesi,“ segir pálmi. „Það vant- ar þjónustu þar sem fyrirtæki geta komið tvisvar á ári með bílana sína í alþrif og einstaklingar geta látið þvo og bóna bílana sína. Þetta er næst- um átta þúsund manna bæjarfélag. Það er markaður fyrir þessu,“ seg- ir hann. „Ég veit um fólk sem hefur ætlað af stað með svona þjónustu en ekki látið verða af því, hafði kannski ekki trú á að hlutirnir myndu virka. Þá náttúrulega virka þeir ekki. En ég er bara þannig í dag að ég trúi og treysti, bæði á eitthvað annað og sjálfan mig,“ bætir hann við. Aðeins mánuður er liðinn frá deg- inum sem um er rætt, þegar pálmi ákvað að láta verða af því að opna bílaþvottastöð. Það er meira en að segja það, en hann segir það allt hafa gengið að óskum. „Það er ekki hlaupið að því að fá iðnaðarhúsnæði á Akranesi og það er í rauninni ekki hlaupið að því að gera neitt. En ein- hvern veginn kom þetta allt til mín, bara nánast á færibandi,“ segir hann ánægður. „Þarna fannst mér kominn tími til að drífa mig af stað, losa mig af bótum og verða minn eigin herra í fyrsta skipti á ævinni. Það er alveg geggjað,“ segir hann og brosir. Nýtur þess að þrífa bíla Og hvaða þjónusta er í boði hjá Skagabóni? „Öll þrif á bílum eins og þau leggja sig; alþrif, djúp- hreinsun og bón. Seinna ætla ég að bæta við mössun og „armor coat“. Ég finn að fólk er að biðja um það en ef ég ætlaði að massa og „coata“ líka þá þyrfti ég stærra húsnæði og mann í vinnu. Ég byrja á þessu, tek eitt skref í einu og bæti hinu við seinna,“ segir pálmi. Hann mun því að minnsta kosti fyrst um sinn starfa einsamall á Skagabóni. Þá er eins gott að honum þyki gaman að þrífa og bóna bíla. Finnst honum það? „Mér finnst þetta geðveikt,“ segir hann og hlær við. „Ég lærði bifvélavirkjun á sínum tíma og var mikið að vasast í bílum. Ég hef alltaf verið bílakarl og bílarnir mínir hafa alltaf verið tandurhreinir. Það er svo gaman að geta fengið útrás fyr- ir gamla áhugamálið í þessu,“ seg- ir pálmi. Eins og áður hefur komið fram segir pálmi viðtökurnar við opnun Skagabóns hafa verið afar góðar og hann sjái fram á að hafa meira en nóg að gera næstu misserin. „Ég tek tvo bíla á dag, þrjá einstöku sinnum og vinn sex daga vikunnar. Ef fyr- irtækin koma öll í hrúgu þá kem- ur vinnutörn. Nokkur voru tilbú- in núna um leið og ég byrjaði. Þá verða þau öll komin á hreina bíla, starfsfólkinu líður betur í vinnunni og svo koma þau aftur í þrif eft- ir nokkra mánuði. Þetta er rosa- leg vinna og harka en mér finnst þetta skemmtilegt. Það er svo gam- an þegar fólk er ánægt með bílana sína,“ segir pálmi Þór hjá Skaga- bóni að endingu. Hægt er að fylgjast með Skaga- bóni á Facebook-síðunni, þar sem jafnframt má sjá verðskrá og panta tíma fyrir bílinn í dekur. . kgk/ Ljósm. kgk. Felgurnar hreinsaðar. Skagabón var opnað í gær „Gaman þegar fólk er ánægt með bílana sína“ Pálmi Þór Jóhannsson opnaði Skagabón í gær. Hér fær einn bíll þrif á meðan Skessuhorn kíkti til Pálma. Tjöruhreinsir borinn á bílinn. Pálmi strýkur af skottinu. „Mér finnst þetta geðveikt,“ segir Pálmi þegar blaðamaður spyr hvort honum þyki gaman að þrífa og bóna bíla.

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.