Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Side 19

Skessuhorn - 02.09.2020, Side 19
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 19 SK ES SU H O R N 2 02 0 Bæjarstjórnarfundur 1317. fundur bæjarstjórnar Akraness verður haldinn í bæjarþingsalnum að Stillholti 16-18, þriðjudaginn 8. september kl. 17:00. Fundarsalurinn verður ekki opinn að svo stöddu og eru bæjarbúar hvattir til þess að hlusta á fundinn á FM 95,0. Bæjarmálafundir flokkanna verða sem hér segir: Framsókn og frjálsir á Garðavöllum, • mánudaginn 7. september kl. 20:00. Samfylkingin í Stjórnsýsluhúsinu, 1. hæð, Stillholti 16-18 • laugardaginn 5. september kl. 10:30 Bæjarmálafundur Sjálfstæðisflokksins fellur niður þessa vikuna.• SK ES SU H O R N 2 02 0 Styrkir til greiðslu fasteignaskatts 2020 Auglýst er eftir umsóknum um styrki til greiðslu fasteigna- skatts til aðila með starfsemi á sviði menningar-, íþrótta-, æskulýðs-, tómstunda- eða mannúðarmála. Sótt um rafrænt á heimasíðu Akraneskaupstaðar á þar til gerðu eyðublaði. Umsóknarfrestur er til og með 20. september 2020. Nánari upplýsingar er að finna á www.akranes.is Meistaraflokkur kvenna hjá Ung- mennafélagi Grundarfjarðar hafa ráðið Mladen Svitlica til að sinna þjálfun liðsins. Mladen spilaði blak frá 12 ára aldri og var atvinnumað- ur í greininni í átta ár. Hann er bú- settur í Stykkishólmi með fjölskyld- unni sinni og mun því vera nokkuð á ferðinni í vetur. Hann mun einn- ig sjá um þjálfun á yngri iðkendum hjá Ungmennafélagi Grundarfjarð- ar með meistaraflokksþjálfuninni. Meistaraflokkur UMFG mun taka þátt í 2. deildinni í vetur. Leikið er heima og heiman og því verður hasar í íþróttahúsi Grundarfjarðar í vetur. Ekki er búið að dagsetja leik- ina í vetur en á heimasíðu Blaksam- bands Íslands kemur fram að mótið hefjist í október. tfk Sauðfjárslátrun hefst hjá Sláturhúsi Vesturlands í Brákarey á morgun, fimmtudaginn 3. september. Að sögn Eiríks Blöndals stjórnarfor- manns í rekstrarfélaginu um slát- urhúsið verður sauðfjárslátrun með hefðbundnu sniði. Eingöngu er boðið upp á svokallaða þjón- ustuslátrun í húsinu með mögu- leika á kjötvinnslu ef fyrirfram er pantað. Eiríkur reiknar með að 6-8 muni að jafnaði starfa við vinnslu og slátrun í húsinu í haust. Sauð- fjárslátrun verður 2-3 daga í viku en þess á milli tekið við stórgrip- um; hrossum og nautgripum, til slátrunar og auk þess geitum. Sláturhússtjóri er Guðjón Krist- jánsson. Anna Dröfn Sigurjóns- dóttir mun áfram sinna gæða- stýringu og aðstoða bændur við vinnslu, vöruþróun og afsetningu afurða. „Starfsemin er hægt og síg- andi að aukast hjá okkur. Kjöt frá sláturhúsinu og bændum úr hér- aðinu er nú smám saman að finna á fleiri veitingastöðum í héraðinu sem leggja metnað sinn í sölu hrá- efnis úr héraði. Þá er vaxandi áhugi á staðbundnum mat og margir sem eru því að þróa sölu á kjöti beint frá býli. Starfsemi sláturhúss i héraði styður vel við þá starfsemi,“ segir Anna Dröfn í samtali við Skessu- horn. „Smám saman er verið að þróa betri nýtingu aukaafurða, skinna, innmats og fleira. Þannig hefur sláturhúsið saltað gærur og sent til verkunar í Svíþjóð. Lofar sú tilraun mjög góðu. Þá er nokk- uð af innmat og afskurði selt til framleiðslu gæludýrafóðurs. Svo má bæta við að sláturhúsið hefur fengið stuðning til þróunarverk- efna úr Uppbyggingarsjóði Vestur- lands og frá Framleiðnisjóði land- búnaðarins. Allt hjálpar þetta starf- seminni að koma undir sig fótun- unum.“ Aðspurð segir Anna Dröfn að starfsfólk við slátrun og vinnslu komi allt úr héraðinu. Nánari upplýsingar um starfsemi sláturhússins má finna á heimasíð- unni slaturhus.is, en pantanir þurfa að berast í síma 666-7980 eða á netfangið slaturhus@slaturhus.is. mm Á föstudag veitti heilbrigðisráð- herra almenna undanþágu frá fjöldatakmörkum fyrir réttarstörf, gegn því að farið verði eftir sér- stökum tilmælum sóttvarnalæknis. til að geta fengið undanþágu þarf þannig að halda lista yfir alla sem koma í hverja rétt með upplýsing- um sem má nota til að hafa sam- band við viðkomandi gerist þess þörf. Upplýsingar um sóttvarnar- áðstafanir og tveggja metra regluna þurfa að vera sýnilegar og hand- spritt og aðstaða til handþvottar til staðar. Matvæli þurfa að vera af- greidd í innpökkuðu formi og kaffi hellt í bolla, ekki sjálfsafgreiðsla, sé slík þjónusta á annað borð veitt. talning inn og út af svæðinu þarf að vera skilvirk og lögregla umdæmis- ins og umdæmislæknir sóttvarna þurfa að vera upplýst um undan- þáguna. Þá þurfa ábyrgðarmenn réttarstarfa að vísa fólki í burtu taf- arlaust, sýni það flensueinkenni og fylgjast með því að tveggja metra reglan sé virt. Sækja þarf um undanþáguna til Landssamtaka sauðfjárbænda á netfangið unnsteinn@bondi.is. Samtökin afgreiða umsóknirnar í samráði við landlæknisembættið og heilbrigðisráðuneytið, að því er fram kemur á vef LS. Þá hefur almenn undanþága ver- ið veitt vegna nándarmarka í fjalla- skálum. Þar verður þannig heimilt að viðhafa eins metra fjarlægð milli fólks, þegar því verður ekki við- komið að halda tveggja metra fjar- lægð. kgk Sláturhús Vesturlands í Brákarey. Sauðfjárslátrun og vinnsla að hefjast í Brákarey Anna Dröfn Sigurjónsdóttir sinnir gæðastýringu og aðstoðar bændur við vinnslu, vöruþróun og afsetningu afurða. Svipmynd úr sauðfjárslátrun. Ljósm. úr safni. Undanþága fyrir réttarstörf Sótt um í gegnum Landssamtök sauðfjárbænda Fé í dilk í Þverárrétt síðastliðið haust. Ljósm. úr safni/ mm. Fyrsta æfing vetrarins með nýjum þjálfara en hann er lengst til hægri á myndinni. Nýr blakþjálfari í Grundarfirði

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.