Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 21

Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 21
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 21 Pennagrein Hjónin og athafnafólkið Jónas Björgvin Ólafsson og María Júlía Jónsdóttir í Borgarnesi tóku við Matarsmiðju Vesturlands í upphafi árs og blása nú til mikillar sóknar. Þau eru full tilhlökkunar að opna dyrnar fyrir nýsköpun í matvinnslu og matargerð en heimsfaraldurinn hefur gert rekstur Matarsmiðjunn- ar erfitt fyrir síðan Jónas og Júlía tóku við lyklavöldunum í janúar. Matarsmiðjan er nýsköpunar- verkefni á vegum Samtaka sveitar- félaga á Vesturlandi en samtökin eru iðin við að styðja við nýsköpun almennt. Matarsmiðjan var sett á laggirnar fyrir tveimur árum til að styðja sérstaklega við matarfrum- kvöðla og nýsköpun í matargeir- anum. „Við höfum verið að búa til go- urmet mat úr villibráð og selja fyrir jólin í versluninni okkar Fok síðustu tvö ár. Þetta hefur verið tilraun hjá okkur Júlíu sem hefur heppnast mjög vel. Við unnum all- ar okkar vörur í Matarsmiðjunni sem var þá í umsjón Ljómalindar,“ segir Jónas í samtali við Skessu- horn. „Þannig kynntist ég þessari þjónustu.“ Eins og fyrr segir eru Jónas og Júlía nýir rekstraraðilar Matar- smiðjunnar. Jónas er matreiðslu- maður að mennt og hefur starfað við matreiðslu í fjölda ára. Jónas og Júlía reka verslunina Fok saman og saman ætla þau sömuleiðis nú að reka Matarsmiðju Vesturlands. Matarsmiðjan er staðsett á Sól- bakka í Borgarnesi þar sem Eðal- fiskur var til húsa. Þar eru þau með viðurkennda og vottaða aðstöðu til matvælaframleiðslu. Hægt er að leigja Matarsmiðjuna fyrir mat- arþróun, framleiðslu, námskeiða- hald og til einkanota. Leigutíminn er allt frá hálfum degi og niður í heilan dag. Frumkvöðlar sem eru að þróa nýja vöru og nota aðstöð- una meira en fjóra sólarhringa á ári fá 25% afslátt af leiguverði. „Það er allt til alls hérna. Hér er bæði hægt að fullvinna vöru til sölu eða í kistuna heima,“ segir Júlía. „Fólk þarf bara að vera ófeimið og taka fyrsta skrefið,“ bætir hún við. „Það er um að gera að koma og hitta okkur og skoða aðstöð- una. Þarna eru kannski græjur sem líta út fyrir að vera flóknar en eru það alls ekki. Við erum hér til að aðstoða hvort sem það er við leið- sögn á tækin eða meðferð hráefna því það er mikilvægt að fara var- lega í meðferð á hráefninu svo það geymist rétt og ekkert komi upp á. Bara um að gera að vera í sam- bandi,“ bætir Jónas við að end- ingu. Hægt er að setja sig í samband við Matarsmiðjuna í gegnum net- fangið matarsmidjan.vest@gmail. com, finna þau á Facebook; Mat- arsmiðja Vesturlands, Instagram undir Matarsmiðjan eða jafnvel kíkja í heimsókn í verslunina Fok í Hyrnutorgi í Borgarnesi þar sem þau hjónin eru alla jafnan. glh Jónas og Júlía hafa sjálf nýtt sér aðstöðu Matarsmiðjunnar fyrir framleiðslu á gourmet mat úr villibráð sem þau hafa svo selt fyrir jólin í verslun sinni Fok í Hyrnutorgi. Júlía og Jónas taka við Matarsmiðju Vesturlands Jónas er matreiðslumaður að mennt og hlakkar til að koma Matarsmiðju Vestur- lands af stað. Hægt er að leigja Matarsmiðjuna fyrir matarþróun, framleiðslu, námskeiðahald og til einkanota en eldhúsið er viðurkennt og vottað til matvælaframleiðslu. ,,Á Íslandi er lýðræði” og þar með er málið afgreitt og þarf ekki að ræða frek- ar, meirihlutinn ræður – eða er það ekki annars ? Vangaveltur fagfólks, umræða og nánari skoðanir hafa leitt í ljós að þetta er hreint ekki alveg svona einfalt og vaxandi fjöldi fólks er orðin efins, ekki síst vegna aukinnar misskipting- ar, ójafnræðis og forgangsröðunar sem augljóslega geta ekki talist til hagsbóta fyrir meirihlutann. Lýðræði er ekki ástand sem er ákveð- ið í eitt skipti og gildir sjálfkrafa að öllu leyti endalaust, það er heldur ekki óum- breytanlegur staðall sem virkar eins við allar aðstæður og áskoranir. Það eru jafnmargar missterkar útgáfur af lýð- ræði og þau lönd sem kenna sig við það eru þó afar ólík vegna mismun- andi kringumstæðna frá þeim tíma sem hefðirnar urðu til. Nútímalegri þætt- ir hafa einnig mikið að segja; ójafn- ræði áhrifavalda sem gæti lýst sér t.d. í eignarhaldi fjársterkra hagsmunahópa á fjölmiðlum með tilheyrandi stjórnun, þöggun, brogaðar umfjöllunar eða upp- lýsingastreymis á staðreyndum. Eins og allar lifandi og mannlegar uppfinn- ingar í samfélögum sem eru í sífelldri þróun af einhverju tagi, (sum taka skref aftur ábak svo tvö fram) þarf skipulagið lýðræði aðhald, upplýsingar, umræðu og opnar áhrifaleiðir ólíkra hagsmuna og þrýstihópa, þ.e. lifandi afskipti. En stundum bera starf og aðgerðir fjöldans, þ.e. lýðsins sem á að ráða, ekki árangur sem skyldi og jafnvel fulltrúar lýðsins sjá hag sínum betur borgið með því að skipta leynt eða ljóst um umbjóðendur og taka auðveldu leiðina út. Sérstaklega gengur almenningur á vegg þegar mik- ir hagsmunir liggja undir hjá þeim sem hafa hag af óbreyttu ástandi og þeirra sem að hag af því að vera þeim hlið- hollir. Við vitum það bæði vegna sögu- legra staðreynda og vegna atburða líð- andi stundar víða um lönd að lýðræði á ekki alltaf auðvelt uppdráttar, jafnvel í svokölluðum lýðræðisríkjum. Efna- hagslegir, atvinnulegir eða félagsleg- ir hagsmunir aðila sem sumir hverjir eru kosnir á þing áratugum saman eru ekki alltaf þeir sömu og almennings. Vald spillir, hagsmunir skapa viðhorf, ráða atkvæðum og fáir fara upp á móti straumnum. Grundvöllurinn og lykill- inn að öllu alvöru lýðræði er að lýður- inn, fólkið, þjóðin, þ.e. almenningur í landinu sé hinn eini sanni höfundur þeirrar stjórnarskrár sem það hefur, - ekkert annað er lýðræði. Í lýðræði á það að vera fólkið sem setur leikreglurnar og valdhöfunum mörk, eins og í ,,eftir þessu megið og eigið þið að starfa fyr- ir okkur “ því stjórnarskrá lýðveldisins Íslands er æðstu lög landsins og þingið má ekki setja lög í bága við hana, hún er undirstaða alls annars þó löggjafar- valdið liggi hjá alþingi og dómsvaldið hjá dómstólum. t.d. mætti ekki selja fyrir slikk, veiðiheimildir eða vatnsafls- réttindi til vildarvina, styrktaraðila eða annara valdamikilla aðila ef ákvæði væri í gildi sem segði að þjóðin ætti auðlind- ir landsins (sem ekki eru í einkaeigu) og þ.a.l. ætti hún rétt á sanngjörnu mark- aðsverði fyrir þær. Það verður að teljast á móti hagsmunum þjóðar að geta ekki lögleitt þessa kröfu, arðins er þörf, t.d. í uppbyggingu innviða. Almenningur er farin að skipuleggja sig þó seinþreyttur sé til vandræða því að ört stækkandi hluta hans er farið að ofbjóða rækilega og sér merki greini- legrar misskiptingar, spillingar og ójafnræðis. Sýnir Íslandssaga síðustu áratuga okkur það ekki? Það góða við erfiðleika er að þeir geta kennt okkur svo mikið. Hrunið 2008 og árin eftir það skildu eftir sig mikil og stór skilaboð. Stjórnvöld sem áttu að tryggja efnahagsleg öryggi, fagleg vinnubrögð, regluverk og af- komu þjóðarinnar brugðust stórkost- lega. Fulltrúarnir sem við ákváðum að treysta í verkefnin reyndust því miður ekki traustsins verðir. Hrikaleg stað- reynd blasti við íslendingum. Eðlilega voru þeir ekki ánægðir með forystu sem ekki var treystandi til stjórnunar eða fyrir hagsmunum okkar. Hvað gerðum við þá ? – við beisluð- um ólguna og sættumst á að taka málin í eigin hendur, þar sem þau eiga heima og héldum lýðræðislegan þjóðfund sem vann ötullega að því að komast að því hvaða gildi við Íslendingar vildum leggja áherslu á. Næsta skref var lýðræðislega kosið stjórnlagaráð. Ráðið fékk niðurstöður þjóðfundar til hliðsjónar. Því fór svo að á herðum þúsund manna þjóðfundar og árslangri sérfræðivinnu 7 manna stjórn- laganefndar samdi 25 manna þjóðkjör- ið stjórnlagaráð drög að nýrri stjórnar- skrá eftir langa og stranga vinnutörn, umræður og endalausar málamiðlan- ir. Niðurstaðan var allt að því krafta- verk því að fjölmargir komu að þessu ferli og auk þess erum við Íslendingar erum ekki beinlínis þekkt fyrir að sam- þykkja aðrar skoðanir en okkar eigin. Þess skal einnig getið að stærstu stjórn- málaflokkar landsins hafa haft stjórnar- skrárnefnd árangurslaust að störfum í nokkra áratugi. tillaga Stjórnlagaráðs að nýrri stjórn- arskrá 2011 byggir að stærstum hluta (ca. 80%?) til á grunni gömlu stjórnar- skrárinnar sem er næstum 150 ára göm- ul, (reyndar í raun eldri en frá 1874 því sú var ekki mikið breyttri frá endalok- um einveldis í Danmörku árið 1849) – sem er ansi gamalt, ekki síst í ljósi mik- illa þjóðfélagsbreytinga, t.a.m. kom ekki ein einasta kona að tilurð hennar og ekkert minnst á ansi mörg málefni sam- tímans. Þessi sameiginlega niðurstaða stjórnlagaráðsins var samþykkt í þjóða- atkvæðagreiðslu af meirihluta kjósenda. Þjóðin hafði eignast lýðræðislega unna eigin stjórnarskrá og ferilið var hárétt. Stjórnsýsluumbætur og nokkur ný atriði sem eiga heima i nútímanum voru þar, t.m.a. ákvæði um; Náttúru- auðlindir til sjós og lands sem sam- eiginleg og ævarandi eign þjóðarinn- ar, verndun náttúru Íslands sem undir- stöðu lífs í landinu, upplýsingaréttur, félagsleg réttindi og réttur til heilbrigð- isþjónustu. Félagafrelsi, fundafrelsi, ferðafrelsi, trúfrelsi, atvinnufrelsi. Frelsi fjölmiðla, menningar og mennta. Frið- helgi Alþingis og sjálfstæði þingmanna. Ráðherraábyrgð, Hagsmunaskráningu og vanhæfi. Réttláta málsmeðferð og bann við ómannúðlegri meðferð og herskyldu, 10% kjósenda geta krafist þjóðaratkvæðagreiðslu innan 3 mánaða frá lagasetningu. Upplýsinga- og sann- leikskyldu og sjálfstæðar ríkisstofnanir. Framsal ríkisvalds, t.d. vegna alþjóð- legra samninga, skal alltaf vera aftur- kræft. Nýja íslenska stjórnarskráin er til í öllum helstu bókabúðum landsins og á rafrænu formi. Svik stjórnvalda við að innleiða þessa einu lýðræðislega unnu stjórnarskrá þjóð- arinnar, þ.e. hina einu réttu stjórnar- skrá, - eru ekki til- komin vegna hags- muna þjóðarinnar heldur teljast þessi svik þvert á móti vinna á móti hagsmunum hennar. Það má eflaust rekja til ýmissa efnisatriða hennar, t.d. um eignarhald þjóðar- innar á auðlindunum og kröfuna um sanngjarnt markaðsverð fyrir nýtingu þeirra. Nema stjórnvöld séu beinlín- is á móti raunverulegu lýðræði sem er næstum óhugsandi - nema þau hafi óbeinan hag af öðru. Þau hafa a.m.k. lagt nokkuð á sig fyrir sýndarlýðræði til að friða og blása ryki í augu almenn- ings, t.a.m. ,,rökræðukönnun“ – þar sem helstu hagsmunamál eins og t.d. auðlindaákvæði nýju stjórnarskrárinnar var ekki til umræðu. Ástæðan sem gef- in var, byggðist á því að það væri búið að ganga frá því máli – af formönnum stjórnmálaflokkanna sem þó eru ekki raunverulegir eigendur auðlindanna, það er fólkið í landinu. Þegar leiðir stjórnvalda og þjóðar liggja augljóslega alls ekki saman, þá hlýtur sú spurning að skjóta upp kollinum, hver eigi þetta samfélag, landið og miðin, er það nokk- uð munaðarlaust og varnarlaust gegn arðráni og ódýrri sölu eða ætlum við al- menningur að bera gæfu til að taka það sem er okkar? - Ég hvet alla landsmenn til að taka þátt í undirskriftasöfnuninni á nystjornarskra.is Bergljót Gunnarsdóttir Höfundur er Evrópufræðingur, upp- lýsingafræðingur með kennsluréttindi, stjórnsýslugráðu og lærður leiðsögu- maður. Hvað er málið með stjórnarskrána?

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.