Skessuhorn - 02.09.2020, Qupperneq 21
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 21
Pennagrein
Hjónin og athafnafólkið Jónas
Björgvin Ólafsson og María Júlía
Jónsdóttir í Borgarnesi tóku við
Matarsmiðju Vesturlands í upphafi
árs og blása nú til mikillar sóknar.
Þau eru full tilhlökkunar að opna
dyrnar fyrir nýsköpun í matvinnslu
og matargerð en heimsfaraldurinn
hefur gert rekstur Matarsmiðjunn-
ar erfitt fyrir síðan Jónas og Júlía
tóku við lyklavöldunum í janúar.
Matarsmiðjan er nýsköpunar-
verkefni á vegum Samtaka sveitar-
félaga á Vesturlandi en samtökin
eru iðin við að styðja við nýsköpun
almennt. Matarsmiðjan var sett á
laggirnar fyrir tveimur árum til að
styðja sérstaklega við matarfrum-
kvöðla og nýsköpun í matargeir-
anum.
„Við höfum verið að búa til go-
urmet mat úr villibráð og selja
fyrir jólin í versluninni okkar Fok
síðustu tvö ár. Þetta hefur verið
tilraun hjá okkur Júlíu sem hefur
heppnast mjög vel. Við unnum all-
ar okkar vörur í Matarsmiðjunni
sem var þá í umsjón Ljómalindar,“
segir Jónas í samtali við Skessu-
horn. „Þannig kynntist ég þessari
þjónustu.“
Eins og fyrr segir eru Jónas og
Júlía nýir rekstraraðilar Matar-
smiðjunnar. Jónas er matreiðslu-
maður að mennt og hefur starfað
við matreiðslu í fjölda ára. Jónas
og Júlía reka verslunina Fok saman
og saman ætla þau sömuleiðis nú
að reka Matarsmiðju Vesturlands.
Matarsmiðjan er staðsett á Sól-
bakka í Borgarnesi þar sem Eðal-
fiskur var til húsa. Þar eru þau með
viðurkennda og vottaða aðstöðu
til matvælaframleiðslu. Hægt er
að leigja Matarsmiðjuna fyrir mat-
arþróun, framleiðslu, námskeiða-
hald og til einkanota. Leigutíminn
er allt frá hálfum degi og niður í
heilan dag. Frumkvöðlar sem eru
að þróa nýja vöru og nota aðstöð-
una meira en fjóra sólarhringa á ári
fá 25% afslátt af leiguverði.
„Það er allt til alls hérna. Hér er
bæði hægt að fullvinna vöru til sölu
eða í kistuna heima,“ segir Júlía.
„Fólk þarf bara að vera ófeimið
og taka fyrsta skrefið,“ bætir hún
við. „Það er um að gera að koma
og hitta okkur og skoða aðstöð-
una. Þarna eru kannski græjur sem
líta út fyrir að vera flóknar en eru
það alls ekki. Við erum hér til að
aðstoða hvort sem það er við leið-
sögn á tækin eða meðferð hráefna
því það er mikilvægt að fara var-
lega í meðferð á hráefninu svo það
geymist rétt og ekkert komi upp
á. Bara um að gera að vera í sam-
bandi,“ bætir Jónas við að end-
ingu.
Hægt er að setja sig í samband
við Matarsmiðjuna í gegnum net-
fangið matarsmidjan.vest@gmail.
com, finna þau á Facebook; Mat-
arsmiðja Vesturlands, Instagram
undir Matarsmiðjan eða jafnvel
kíkja í heimsókn í verslunina Fok
í Hyrnutorgi í Borgarnesi þar sem
þau hjónin eru alla jafnan. glh
Jónas og Júlía hafa sjálf nýtt sér aðstöðu Matarsmiðjunnar fyrir framleiðslu á
gourmet mat úr villibráð sem þau hafa svo selt fyrir jólin í verslun sinni Fok í
Hyrnutorgi.
Júlía og Jónas taka við Matarsmiðju Vesturlands
Jónas er matreiðslumaður að mennt og hlakkar til að koma Matarsmiðju Vestur-
lands af stað.
Hægt er að leigja Matarsmiðjuna fyrir matarþróun, framleiðslu, námskeiðahald
og til einkanota en eldhúsið er viðurkennt og vottað til matvælaframleiðslu.
,,Á Íslandi er lýðræði” og þar með er
málið afgreitt og þarf ekki að ræða frek-
ar, meirihlutinn ræður – eða er það ekki
annars ? Vangaveltur fagfólks, umræða
og nánari skoðanir hafa leitt í ljós að
þetta er hreint ekki alveg svona einfalt
og vaxandi fjöldi fólks er orðin efins,
ekki síst vegna aukinnar misskipting-
ar, ójafnræðis og forgangsröðunar sem
augljóslega geta ekki talist til hagsbóta
fyrir meirihlutann.
Lýðræði er ekki ástand sem er ákveð-
ið í eitt skipti og gildir sjálfkrafa að öllu
leyti endalaust, það er heldur ekki óum-
breytanlegur staðall sem virkar eins við
allar aðstæður og áskoranir. Það eru
jafnmargar missterkar útgáfur af lýð-
ræði og þau lönd sem kenna sig við
það eru þó afar ólík vegna mismun-
andi kringumstæðna frá þeim tíma sem
hefðirnar urðu til. Nútímalegri þætt-
ir hafa einnig mikið að segja; ójafn-
ræði áhrifavalda sem gæti lýst sér t.d. í
eignarhaldi fjársterkra hagsmunahópa á
fjölmiðlum með tilheyrandi stjórnun,
þöggun, brogaðar umfjöllunar eða upp-
lýsingastreymis á staðreyndum. Eins
og allar lifandi og mannlegar uppfinn-
ingar í samfélögum sem eru í sífelldri
þróun af einhverju tagi, (sum taka skref
aftur ábak svo tvö fram) þarf skipulagið
lýðræði aðhald, upplýsingar, umræðu
og opnar áhrifaleiðir ólíkra hagsmuna
og þrýstihópa, þ.e. lifandi afskipti. En
stundum bera starf og aðgerðir fjöldans,
þ.e. lýðsins sem á að ráða, ekki árangur
sem skyldi og jafnvel fulltrúar lýðsins
sjá hag sínum betur borgið með því að
skipta leynt eða ljóst um umbjóðendur
og taka auðveldu leiðina út. Sérstaklega
gengur almenningur á vegg þegar mik-
ir hagsmunir liggja undir hjá þeim sem
hafa hag af óbreyttu ástandi og þeirra
sem að hag af því að vera þeim hlið-
hollir. Við vitum það bæði vegna sögu-
legra staðreynda og vegna atburða líð-
andi stundar víða um lönd að lýðræði
á ekki alltaf auðvelt uppdráttar, jafnvel
í svokölluðum lýðræðisríkjum. Efna-
hagslegir, atvinnulegir eða félagsleg-
ir hagsmunir aðila sem sumir hverjir
eru kosnir á þing áratugum saman eru
ekki alltaf þeir sömu og almennings.
Vald spillir, hagsmunir skapa viðhorf,
ráða atkvæðum og fáir fara upp á móti
straumnum. Grundvöllurinn og lykill-
inn að öllu alvöru lýðræði er að lýður-
inn, fólkið, þjóðin, þ.e. almenningur í
landinu sé hinn eini sanni höfundur
þeirrar stjórnarskrár sem það hefur, -
ekkert annað er lýðræði. Í lýðræði á það
að vera fólkið sem setur leikreglurnar
og valdhöfunum mörk, eins og í ,,eftir
þessu megið og eigið þið að starfa fyr-
ir okkur “ því stjórnarskrá lýðveldisins
Íslands er æðstu lög landsins og þingið
má ekki setja lög í bága við hana, hún
er undirstaða alls annars þó löggjafar-
valdið liggi hjá alþingi og dómsvaldið
hjá dómstólum. t.d. mætti ekki selja
fyrir slikk, veiðiheimildir eða vatnsafls-
réttindi til vildarvina, styrktaraðila eða
annara valdamikilla aðila ef ákvæði væri
í gildi sem segði að þjóðin ætti auðlind-
ir landsins (sem ekki eru í einkaeigu) og
þ.a.l. ætti hún rétt á sanngjörnu mark-
aðsverði fyrir þær. Það verður að teljast
á móti hagsmunum þjóðar að geta ekki
lögleitt þessa kröfu, arðins er þörf, t.d. í
uppbyggingu innviða.
Almenningur er farin að skipuleggja
sig þó seinþreyttur sé til vandræða því
að ört stækkandi hluta hans er farið að
ofbjóða rækilega og sér merki greini-
legrar misskiptingar, spillingar og
ójafnræðis. Sýnir Íslandssaga síðustu
áratuga okkur það ekki?
Það góða við erfiðleika er að þeir
geta kennt okkur svo mikið. Hrunið
2008 og árin eftir það skildu eftir sig
mikil og stór skilaboð. Stjórnvöld sem
áttu að tryggja efnahagsleg öryggi,
fagleg vinnubrögð, regluverk og af-
komu þjóðarinnar brugðust stórkost-
lega. Fulltrúarnir sem við ákváðum að
treysta í verkefnin reyndust því miður
ekki traustsins verðir. Hrikaleg stað-
reynd blasti við íslendingum. Eðlilega
voru þeir ekki ánægðir með forystu sem
ekki var treystandi til stjórnunar eða
fyrir hagsmunum okkar.
Hvað gerðum við þá ? – við beisluð-
um ólguna og sættumst á að taka málin
í eigin hendur, þar sem þau eiga heima
og héldum lýðræðislegan þjóðfund
sem vann ötullega að því að komast að
því hvaða gildi við Íslendingar vildum
leggja áherslu á.
Næsta skref var lýðræðislega kosið
stjórnlagaráð. Ráðið fékk niðurstöður
þjóðfundar til hliðsjónar. Því fór svo að
á herðum þúsund manna þjóðfundar og
árslangri sérfræðivinnu 7 manna stjórn-
laganefndar samdi 25 manna þjóðkjör-
ið stjórnlagaráð drög að nýrri stjórnar-
skrá eftir langa og stranga vinnutörn,
umræður og endalausar málamiðlan-
ir. Niðurstaðan var allt að því krafta-
verk því að fjölmargir komu að þessu
ferli og auk þess erum við Íslendingar
erum ekki beinlínis þekkt fyrir að sam-
þykkja aðrar skoðanir en okkar eigin.
Þess skal einnig getið að stærstu stjórn-
málaflokkar landsins hafa haft stjórnar-
skrárnefnd árangurslaust að störfum í
nokkra áratugi.
tillaga Stjórnlagaráðs að nýrri stjórn-
arskrá 2011 byggir að stærstum hluta
(ca. 80%?) til á grunni gömlu stjórnar-
skrárinnar sem er næstum 150 ára göm-
ul, (reyndar í raun eldri en frá 1874 því
sú var ekki mikið breyttri frá endalok-
um einveldis í Danmörku árið 1849) –
sem er ansi gamalt, ekki síst í ljósi mik-
illa þjóðfélagsbreytinga, t.a.m. kom ekki
ein einasta kona að tilurð hennar og
ekkert minnst á ansi mörg málefni sam-
tímans. Þessi sameiginlega niðurstaða
stjórnlagaráðsins var samþykkt í þjóða-
atkvæðagreiðslu af meirihluta kjósenda.
Þjóðin hafði eignast lýðræðislega
unna eigin stjórnarskrá og ferilið var
hárétt. Stjórnsýsluumbætur og nokkur
ný atriði sem eiga heima i nútímanum
voru þar, t.m.a. ákvæði um; Náttúru-
auðlindir til sjós og lands sem sam-
eiginleg og ævarandi eign þjóðarinn-
ar, verndun náttúru Íslands sem undir-
stöðu lífs í landinu, upplýsingaréttur,
félagsleg réttindi og réttur til heilbrigð-
isþjónustu. Félagafrelsi, fundafrelsi,
ferðafrelsi, trúfrelsi, atvinnufrelsi. Frelsi
fjölmiðla, menningar og mennta. Frið-
helgi Alþingis og sjálfstæði þingmanna.
Ráðherraábyrgð, Hagsmunaskráningu
og vanhæfi. Réttláta málsmeðferð og
bann við ómannúðlegri meðferð og
herskyldu, 10% kjósenda geta krafist
þjóðaratkvæðagreiðslu innan 3 mánaða
frá lagasetningu. Upplýsinga- og sann-
leikskyldu og sjálfstæðar ríkisstofnanir.
Framsal ríkisvalds, t.d. vegna alþjóð-
legra samninga, skal alltaf vera aftur-
kræft.
Nýja íslenska stjórnarskráin er til í
öllum helstu bókabúðum landsins og á
rafrænu formi. Svik stjórnvalda við að
innleiða þessa einu lýðræðislega unnu
stjórnarskrá þjóð-
arinnar, þ.e. hina
einu réttu stjórnar-
skrá, - eru ekki til-
komin vegna hags-
muna þjóðarinnar
heldur teljast þessi svik þvert á móti
vinna á móti hagsmunum hennar. Það
má eflaust rekja til ýmissa efnisatriða
hennar, t.d. um eignarhald þjóðar-
innar á auðlindunum og kröfuna um
sanngjarnt markaðsverð fyrir nýtingu
þeirra. Nema stjórnvöld séu beinlín-
is á móti raunverulegu lýðræði sem
er næstum óhugsandi - nema þau hafi
óbeinan hag af öðru. Þau hafa a.m.k.
lagt nokkuð á sig fyrir sýndarlýðræði
til að friða og blása ryki í augu almenn-
ings, t.a.m. ,,rökræðukönnun“ – þar
sem helstu hagsmunamál eins og t.d.
auðlindaákvæði nýju stjórnarskrárinnar
var ekki til umræðu. Ástæðan sem gef-
in var, byggðist á því að það væri búið
að ganga frá því máli – af formönnum
stjórnmálaflokkanna sem þó eru ekki
raunverulegir eigendur auðlindanna,
það er fólkið í landinu. Þegar leiðir
stjórnvalda og þjóðar liggja augljóslega
alls ekki saman, þá hlýtur sú spurning
að skjóta upp kollinum, hver eigi þetta
samfélag, landið og miðin, er það nokk-
uð munaðarlaust og varnarlaust gegn
arðráni og ódýrri sölu eða ætlum við al-
menningur að bera gæfu til að taka það
sem er okkar? - Ég hvet alla landsmenn
til að taka þátt í undirskriftasöfnuninni
á nystjornarskra.is
Bergljót Gunnarsdóttir
Höfundur er Evrópufræðingur, upp-
lýsingafræðingur með kennsluréttindi,
stjórnsýslugráðu og lærður leiðsögu-
maður.
Hvað er málið með stjórnarskrána?