Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 23

Skessuhorn - 02.09.2020, Síða 23
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 2020 23 Í liðinni viku var kynnt í ríkis- stjórn og fyrir fulltrúum sveitarfé- laga ný skýrsla starfshóps um áhrif Covid-19 á fjármál sveitarfélaga. Starfshópur sem skrifaði skýrsl- una áætlar að verulegur samdráttur verði í tekjum flestra sveitarfélaga miðað við áætlanir og að neikvæð áhrif á fjárhagsstöðu þeirra nemi alls rúmlega 33 milljörðum króna. Í niðurstöðum segir að gera megi ráð fyrir að samanlögð rekstrarnið- urstaða sveitarfélaganna allra verði 26,6 milljörðum lakari en gert var ráð fyrir í fjárhagsáætlunum ársins 2020. Þá megi búast við að aukn- ar fjárfestingar sveitarfélaga nemi rúmlega 6,5 milljöðrum króna. Samanlagt væru áhrifin því rúm- lega 33 milljarðar króna eða rúm- lega 91 þúsund króna á hvern íbúa í landinu. Í skýrslunni segir að til að setja þessar tölur í samhengi hafi heild- arútgjöld sveitarfélaganna árið 2019 verið rúmlega 390 milljarð- ar króna. Áhrifin nemi því 8,5% af heildarútgjöldum sveitarfélaga frá árinu 2019 eða um 1,1% af vergri landsframleiðslu sama ár. Hér væru því um verulegar upphæðir að ræða í þjóðhagslegu tilliti. Starfshópurinn áætlar að útsvar- stekjur sveitarfélaganna, stærsti einstaki tekjustofn þeirra, muni dragast verulega saman. Sveitarfé- lögin hafi gert ráð fyrir því í fjár- hagsáætlunum sínum að útsvar- stekjur ársins myndu nema rúm- lega 223 milljörðum króna en sam- kvæmt þeim upplýsingum sem nú liggja fyrir má ætla að útsvarstekj- urnar verði nokkuð minni eða um 212 milljarðar króna. mm Hafin er markaðsherferð á Bretlandseyjum til að auka vitund fólks um gæði og heilnæmi íslensks fisks og að fiskistofnar við Ís- land séu nýttir á sjálfbær- an hátt. Best er að borða fisk tvisvar í viku árið um kring eins og segir í nýrri auglýsingu, enda hrein og holl afurð. Íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki hafa sameinast undir slagorðinu „Sea- food from Iceland“ til að auka útflutningsverðmæti með einu upprunamerki. Herferð- inni er einnig ætlað að kynna ís- lenskan uppruna og auka jákvæðni til íslenskra sjávarafurða. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi og Íslands- stofa eru samstarfsaðilar að verk- efninu en að baki því standa 30 fyr- irtæki víðs vegar um landið. „Yfirskrift herferðarinnar er Fis- hmas og verður hún fyrst og fremst keyrð á samfélagsmiðlum. Father Fishmas, sem Egill Ólafsson leikur, er í aðalhlutverki ásamt íslenskum gæðafiski. Húmorinn er ekki langt undan,“ segir í kynningu á verkefninu. Brandenburg framleiddi auglýsinguna, en auk hennar er búið að opna vefinn www.fishmas.com þar sem fólk getur lært að elda tíu einfalda, en gómsæta fiskrétti heima. Vegna COVID-19 hefur fólk neyðst til að dvelja meira heima hjá sér en góðu hófu gegnir og því kjörið að létta lundina með kræsingum af Ís- landsmiðum. Því var blásið til há- tíðar íslenska fisksins í Bretlandi og hver veit nema íslenska fiskin- um verði fagnað víðar um heiminn í framhaldinu,“ segir í tilkynningu frá SFS. mm Sameiginlegum uppsjávarleiðangri Íslendinga, Grænlendinga, Færey- inga, Norðmanna og Dana lauk 4. ágúst síðastliðinn, en hafði þá stað- ið yfir frá 1. júlí. Niðurstöður leið- angursins hafa nú verið teknar sam- an á vef Hafrannsóknastofnunar, en meginmarkmið hans var að meta magn uppsjávarfiska í Norðaustur- Atlantshafi að sumarlagi. Það ber helst að nefna að vísitala lífmassa makríls var metin á 12,3 milljónir tonna, sem er 7% hækkun frá fyrra ári og mesti lífmassi sem mælst hefur frá því mælingar hóf- ust 2007. Mestur þéttleiki mældist í miðju- og norðanverðu Atlantshafi. Hins vegar mældist 72% minna af makríl á hafsvæðinu við Ísland en árið 2019. Mest var af markíl suðaustur af landinu, ólíkt undan- förnum árum þegar mestur þétt- leiki hefur mælst sunnan og vestan landsins. Meira af síld Magn norks-íslensku síldarinn- ar hækkaði einnig og var vísitala lífmassans metin á 5,9 milljónir tonna. Er það 24% meira en á síð- asta ári. „Þessi aukning skýrist af stórum 2016 árgangi sem er að öll- um líkindum að stærstu leyti geng- inn nú úr Barentshafi inn í Nor- egshaf. Þessi árgangur, ásamt þeim frá 2013, vógu um 55% af lífmassa stofnsins,“ segir á vef Hafró. Útbreiðsla síldarstofnsins var svipuð og undanfarin ár. Eldri hluti hans var í mestum þéttleika norður af Færeyjum, fyrir austan og norð- an Ísland, en yngri síldin í norð- austurhluta Noregshafs. Minna af kolmunna Áhersla var lögð á að ná yfir allt út- breiðslusvæði kolmunna og meta stærð þess stofns. Vísitala stofn- stærðarinnar var metin 1,8 milljón- ir tonna, sem er 11% minna en árið 2019. Kolmunni fannst víðast hvar á rannsóknarsvæðinu, nema í köld- um sjó við Austur-Grænland og í Austur-Íslandsstraumnum milli Ís- lands og Jan Mayen, sem og fyr- ir vestan og sunnan Ísland. Undan Íslandsströndum mældist mest af kolmunna suðaustan og austan við landið, en ólíkt fyrri árum varð ekki vart við kolmunna við landgrunns- brúnina sunnan við Ísland. kgk Síðastliðinn föstudag var stig- ið skref í að bæta endurhæfingar- ferli krabbameinsgreindra á lands- byggðinni. Skrifað var undir samn- ing samgöngu- og sveitarstjórn- arráðuneytis og heilbrigðisráðu- neytis við Ljósið, endurhæfingar- og stuðningsmiðstöð fyrir krabba- meinsgreinda, um fjarheilbrigðis- þjónustu í endurhæfingu krabba- meinsgreinda. Þeir sem greinast með krabbamein og eru búsettir á landsbyggðinni hafa hingað til í litlum mæli haft kost á að nýta sér þjónustu Ljóssins, enda er hún eins og sakir standa nær eingöngu að- gengileg í húsnæði þess að Lang- holtsvegi í Reykjavík. Samning- urinn hljóðar upp á 34 milljónir króna og hefur það að markmiði að veita fólki með krabbamein, sem búsett er á landsbyggðinni, og að- standendum þeirra, þjónustu með rafrænum hugbúnaði og bæta að- gengi íbúa um land allt að starfsemi Ljóssins. Styrkurinn er veittur á grundvelli stefnumótandi byggðaáætlunar til að efla fjarheilbrigðisþjónustu. Um er að ræða tilraunaverkefni til tveggja ára og munu fjármunirnir gera sérfræðingum Ljóssins kleift að auka faglega þjónustu í gegnum fjarfundabúnað og efla samvinnu við aðra fagaðila á landsbyggðinni. Ljósið hefur frá stofnun lagt metn- að í að þróa þjónustuna að þörfum notenda og hefur nú með samning- um verið gert kleift að auka faglega þjónustu sérfræðinga sinna til íbúa landsbyggðarinnar í gegnum fjar- fundabúnað. Auk þess verður leit- ast við sem mestri samvinnu fag- aðila á landsbyggðinni. „Samningurinn er mikilvægt skref í að bæta endurhæfingarferli krabbameinsgreindra um allt land. Þeir sem greinast með krabbamein og eru búsettir á landsbyggðinni hafa aðeins í litlum mæli átt kost á að nýta sér þjónustu Ljóssins hing- að til,“ segir Erna Magnúsdóttir, forstöðukona Ljóssins. mm Starfsemi Ljóssins gerð aðgengilegri í gegnum fjarfunda- búnað Búist er við að auknar fjárfestingar sveitarfélaga nemi rúmlega 6,5 millj- öðrum króna á þessu ári. Hér eru ljósleiðararör sem bíða niðurdráttar í Borgarfirði. Áætla að neikvæð áhrif Covid-19 á sveitarfélög nemi 33 milljörðum Hátíð íslenska fisksins hafin í Bretlandi Krókabátar á makrílveiðum. Ljósm. úr safni/ af. Markíllinn langt frá miðunum Síðastliðinn miðvikudag hófst átak á vegum Almannaróms og Háskól- ans í Reykjavík þar sem einstakling- ar sem hafa íslensku sem annað mál eru hvattir til að lesa setningar inn í gagnasafnið samrómur.is, sem not- að verður til að þróa máltækni sem kennir tölvum og tækjum að skilja íslensku. Átakið íslenska er alls- konar er sett af stað til að tryggja að tækin skilji þá sem hafa íslensku sem annað mál jafn vel og þá sem hafa íslensku að móðurmáli. Allir sem geta lesið íslensku, með hvaða hreim sem er, eru hvattir til að fara á vefsíðuna samromur.is og lesa þar nokkrar setningar inn í gagnasafn- ið. „til að tryggja góðan árang- ur verkefnisins þarf safna miklum fjölda setninga frá mörgum ein- staklingum af ólíkum uppruna sem bera íslensku fram með mis- munandi hætti. Fólk nýtir röddina í auknum mæli til að stýra tækjum og tólum og því er brýnt að tækin skilji alla - konur, börn og karla - á öllum aldri og með hvaða hreim eða mállýsku sem er. Raddir og framburður okkar allra er ólíkur - og tryggja þarf að tækin skilji okkur öll. Einstaklingar sem hafa íslensku sem annað mál eru því hvattir til að fara á vefinn samrómur.is og lesa þar inn nokkrar setningar á ís- lensku og taka þannig þátt í að gera íslensku aðgengilega fyrir alla,“ segir í tilkynningu vegna verkefn- isins. Landmenn eru hvattir til að taka höndum saman og tryggja að tækin skilji okkur öll. mm Eliza Reid forsetafrú reið á vaðið og las inn á vefinn samromur.is. Skjáskot af upptökunni. Átakinu „íslenska er alls- konar“ hrundið af stað

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.