Skessuhorn


Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 24

Skessuhorn - 02.09.2020, Blaðsíða 24
MIÐVIKUDAGUR 2. SEptEMBER 202024 Lilja Alfreðsdóttir, mennta- og menningarmálaráðherra, vill fjölga kennslustundum í íslensku og raun- greinum í grunnskólum landsins frá og með haustinu 2021. Áform- in hafa verið kynnt í samráðsgátt stjórnvalda. Í samráðsgáttinni kem- ur fram að tilefni breytinganna sé viðvarandi slakur árangur nemenda í lesskilningi og náttúrufræði, sam- anborið við önnur lönd. Í því sam- hengi er vísað til pISA-kannanar- innar svokölluðu, sem gerð er með- al 15 ára nemenda grunnskólanna á þriggja ára fresti. Breytingar á öllum stigum Breytingar á viðmiðunarstunda- skrá grunnskóla fela í sér að á yngsta stigi (1.-4. bekk) verður gert ráð fyrir að meðaltali 80 mínút- um á viku í íslensku í hverjum ár- gangi. Á miðstigi (5.-7. bekk) verði tæpri klukkustund á viku varið í ís- lensku í hverjum árgangi. „Með því fer hlutfall íslensku á viðmiðunar- stundaskrá grunnskóla úr 18,08% í 21,5%. Grunnskólar hafa svigrúm og sveigjanleika innan hvors stigs til að útfæra þessa aukningu. Jafn- framt fellur niður svigrúm grunn- skóla til ráðstöfunar tíma á yngsta- og miðstigi grunnskóla, en algengt er að skólar nýti hluta þess tíma til lestrar- og íslenskukennslu,“ segir í samráðsgáttinni. Á unglingastigi (8.-10. bekk) er gert ráð fyrir aukinni áherslu á nátt- úrugreinar, en í staðinn verði dreg- ið úr vali nemenda. „Aukningin er veruleg og er að meðaltali 120 mín- útur á viku í hverjum árgangi,“ seg- ir í samráðsgáttinni. Hlutfall nátt- úrugreina í viðmiðunarstundaskrá fer við þessa breytingu úr 8,33% í rúmlega 11%. Fer nær meðaltali ná- grannaþjóða Í samráðsgáttinni segir að hér á landi sé lægstu hlutfalli kennslu- tíma varið til kennslu móðurmáls í 1.-7. bekk, samanborið við ná- grannalöndin. „Með þessum breyt- ingum færist íslensk viðmiðunar- stundaskrá grunnskóla nær með- altali í móðurmáli- og náttúru- fræðigreinum hjá nágrannaþjóð- um okkar,“ segir í samráðsskjalinu. Þar kemur einnig fram að mennta- stefna til ársins 2030 sé nú í mótun hjá ráðuneytinu, í víðtæku samstarfi við hagsmunaaðila. Þar verði lögð áhersla á að veita framúrskarandi menntun með áherslu á þekkingu, vellíðan, þrautseigju og árangur í umhverfi þar sem allir skipti máli og geti lært. Þá beiti ráðuneytið sér sömuleiðis fyrir aukinni áherslu á íslensku í öðrum námssviðum og almennt í samfélaginu. kgk Á Iðunnarstöðum í Lundarreykja- dal rís nú 13 herbergja hótel. Þeg- ar blaðamaður Skessuhorns átti þar leið hjá fyrir helgi var búið að reisa veggi herbergjaálmu hótelsins og unnið var að því að tengja pípu- lagnir. Á næstu dögum mun þar einnig rísa álma sem hýsir móttöku og matsal. Það eru hjónin Hjördís Geirdal og Þórarinn Svavarsson sem eru að byggja hótelið og að- spurð segjast þau stefna á að opna fyrir gestum næsta vor. „Við erum ekki á neinni hraðferð svona í ljósi ástandsins í heiminum núna,“ segir Hjördís. „Við gerum ekki ráð fyrir að það verði mikið um ferðamenn hér næstu mánuði svo við erum bara alveg róleg,“ bætir Þórarinn við. Herbergi hótelsins verða 13 tals- ins, ellefu tveggja manna herbergi og tvö aðeins stærri, sem gætu hent- að fjölskyldum. Ef vel gengur ætla þau að reisa aðra jafn stóra álmu til viðbótar. „Það er gert ráð fyrir ann- arri herbergjaálmu á teikningum en við ætlum ekki að reisa hana strax, það fer bara allt eftir því hvernig gengur hjá okkur,“ segir Þórarinn. Hjördís og Þórarinn búa á tungu- felli í Lundarreykjadal þar sem þau eru skógarbændur og hafa ræktað upp stóran skóg. Spurð hvort þau séu byrjuð að rækta á Iðunnarstöð- um bendir Hjördís á nokkur tré sem nýlega er búið að planta. „Við erum svona aðeins byrjuð að setja niður,“ segir hún. Aðspurð segjast þau ekki ætla að fara í markvissa skógrækt á Iðunnarstöðum heldur frekar að planta nokkrum trjám til að mynda skjól. „Þetta verður svona yndis- skógur og gestir geta líka fengið að setja niður tré til að kolefnisjafna ferðalagið sitt,“ segir Hjördís. arg Fleiri kennslustundir í íslensku og raungreinum Ungir piltar á leið í skólann. Ljósm. úr safni/ tfk. Grunnurinn að móttökuhúsinu. Hótel rís á Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal Hjördís og Þórarinn við grunninn að móttökunni á hótelinu sem þau eru að byggja á Iðunnarstöðum. Herbergjaálma hótelsins. Útsýnið sem blasir við hótelgestum. Máni mun sjá til þess að gestir fái hlýjar móttökur.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.