Skessuhorn


Skessuhorn - 09.08.2020, Síða 8

Skessuhorn - 09.08.2020, Síða 8
MIÐVIKUDAGUR 9. SEptEMBER 20208 Bíllinn girtur af BORGARBYGGÐ: Eigandi bifreiðar í Borgarnesi kom að afgirtu bílastæði við heimili sitt í vikunni sem leið og var ekki par sáttur. Hringdi hann í Neyðarlínuna og sagði far- ir sínar ekki sléttar, en erindið var áframsent á lögreglu. Kom þá á daginn að málari hafði girt bílastæði af, svo ekki sull- aðist málning á bíla á meðan hann var að störfum. Honum hafði hins vegar láðst að til- kynna áðurnefndum bifreið- areiganda hvað til stæði. -kgk Skólaeftirlit hafið VESTURLAND: Eftirlit lögreglu við leik- og grunn- skóla í landshlutanum er hafið, samhliða upphafi skólaársins. Lögregla mun í vetur fylgjast með umferð við skólana eins og var síðasta vetur, hafa eft- irlit með aksturshraða, hvort börn og fullorðnir séu spennt í bílbelti og fleira í þeim dúr. -kgk Runnið á lyktina VESTURLAND: Að sögn lögreglu eru íbúar í umdæm- inu nokkuð duglegir að til- kynna ef þeir finna kannabis- lykt úr heimahúsum í lands- hlutanum. Lögregla skoð- ar allar slíkar tilkynningar og kannar málinu. Stundum kemur ekkert út úr því en ef fíkniefni finnast á staðnum eða ef einhverjir eru staðn- ir að notkun fíkniefna. tvær slíkar tilkynningar bárust í lið- inni viku, en að sögn lögreglu kom ekkert út úr þeim. -kgk Covidstyrkir til fjölmiðla LANDIÐ: Lilja Alfreðsdótt- ir, mennta- og menningar- málaráðherra, hefur samþykkt tillögu fjölmiðlanefndar um úthlutun sérstaks einskipt- is rekstrarstuðnings til einka- rekinna fjölmiðla, til að mæta efnahagslegum áhrifum Co- vid-19 faraldursins. Styrkveit- ingin, sem samþykkt var á Al- þingi í vor, hljóðar upp á 400 milljónir króna og skiptist á milli 23 fjölmiðla, en þrem- ur umsóknum var hafnað. Sjálft fjölmiðlafrumvarp ráð- herra, sem fæli í sér stuðning við einkarekna fjölmiðla, hef- ur hins vegar ekki verið sam- þykkt á Alþingi. Árvakur hf. fær hæsta styrkinn, eða rétt tæplega 100 milljónum króna vegna Morgunblaðsins, mbl. is og K100. Sýn hf, sem rek- ur Vísi, Stöð 2 og Bylgjuna, fær þann næsthæsta, eða rúm- lega 91 milljón og torg ehf., sem rekur Fréttablaðið, DV og Hringbraut fær tæpar 65 milljónir í styrk. Sé litið til héraðsmiðla fá Víkurfrétt- ir 7,9 milljóna króna styrk, Skessuhorn fær 7,3 milljónir vegna blaðs og vefs og Eyja- sýn ehf, sem rekur Eyjafréttir og eyjafrettir.is., fær rétt tæpa 3,1 milljón í styrk. Steinprent ehf., sem gefur út Bæjarblað- ið Jökul í Ólafsvík, fær tæplega 1,7 milljón króna í styrk. -kgk Aflatölur fyrir Vesturland 29. ágúst - 4. september Tölur (í kílóum) frá Fiski- stofu Akranes: 2 bátar. Heildarlöndun: 25.679 kg. Mestur afli: Matthías SH-21: 13.076 kg í tveimur löndunum. Arnarstapi: 3 bátar. Heildarlöndun: 4.778 kg. Mestur afli: Bárður SH-811: 3.952 kg í fjórum róðrum. Grundarfjörður: 5 bátar. Heildarlöndun: 289.109 kg. Mestur afli: Sigurborg SH-12: 82.309 kg í einni löndun. Ólafsvík: 13 bátar. Heildarlöndun: 161.983 kg. Mestur afli: Steinunn SH-167: 43.791 kg í fimm róðrum. Rif: 8 bátar. Heildarlöndun: 192.944 kg. Mestur afli: tjaldur SH-270: 82.089 kg í tveimur löndunum. Stykkishólmur: 2 bátar. Heildarlöndun: 4.119 kg. Mestur afli: Sjöfn SH-707: 4.118 kg í þremur róðrum. Topp fimm landanir á tímabilinu: 1. Sigurborg SH-12 - GRU: 82.309 kg. 31. ágúst. 2. Farsæll SH-30 - GRU: 73.150 kg. 31. ágúst. 3. Hringur SH-153 - GRU: 67.271 kg. 31. ágúst. 4. Runólfur SH-135 - GRU: 62.338 kg. 31. ágúst. 5. tjaldur SH-270 - RIF: 46.590 kg. 4. september. -kgk Alþingi samþykkti í síðustu viku frumvarp Ásmundar Einars Daða- sonar, félags- og barnamálaráð- herra, um hlutdeildarlán sem ætl- að er að auðvelda tekju- og eigna- litlum einstaklingum að eignast sína fyrstu íbúð. Hlutdeildarlánin eru að skoskri fyrirmynd og brúa bil- ið á milli lána veittum af fjármála- fyrirtækjum og lífeyrissjóðum ann- ars vegar og kaupverðs hins vegar. Hægt verður að sækja um lánin frá 1. nóvember næstkomandi. Hlutdeildarlán virka þannig að kaupandi leggur til að lágmarki 5% eigið fé við kaup á íbúð og tekur 75% fasteignalán hjá lánastofnun. Ríkið lánar síðan einstaklingum sem eru að kaupa sína fyrstu eign, að vissum skilyrðum uppfylltum, ákveðið hlut- fall af verði þess íbúðarhúsnæðis sem þeir hyggjast kaupa. Hlutdeildarl- ánin bera hvorki vexti né afborgan- ir á lánstímanum, þó bera þau vexti hækki tekjur lántaka á lánstímanum umfram ákveðin tekjumörk. Lántak- endurnir endurgreiða hlutdeildar- lánið þegar íbúðin er seld. Ásmundur Einar Daðason, fé- lags- og barnamálaráðherra fagnar mjög að frumvarpið hafi verið sam- þykkt. „Með þessari nýju og róttæku aðgerð erum við að taka mikilvægt skref í þá átt að lækka þröskuld ungs fólks og tekjulágra inn á fasteigna- markaðinn. Hlutdeildarlánin eru eitt af helstu áherslumálum mínum og ríkisstjórnarinnar, og mikilvægt innlegg inn í lífskjarasamningana. Lægstu tekjutíundir hafa verið fast- ar á leigumarkaði og við vitum að mikill meirihluti þeirra vill komast í eigið húsnæði. Nú er ríkið að stíga myndarlegt skref til þess að aðstoða þetta fólk og við sem samfélag erum að segja að við sættum okkur ekki við að einungis þeir sem eru með sterkt bakland eigi að geta eignast eigið húsnæði,“ segir Ásmundur Einar. mm Börnum fjölgar í öllum leik- og grunnskólum Borgarbyggðar í ár en sveitarfélagið rekur samtals sex skólastofnanir; Grunnskólann í Borgarnesi, Grunnskóla Borgar- fjarðar (í þremur starfsstöðvum), og leikskólana Hnoðraból, Kletta- borg, Andabæ og Ugluklett. Í frétt á vef sveitarfélagsins segir að leik- skólarnir í sveitarfélaginu verði þéttsetnir í haust en 42 nýinnrit- uð börn á ýmsum aldri hefja skóla- vist á næstu vikum sem er talsverð fjölgun á milli ára. „Innritun barna er mismunandi eftir leikskólum en reynt verður eftir bestu getu að taka á móti nýjum börnum allt árið um kring. Þá fjölgar nemendum einn- ig í grunnskólum sveitarfélagsins á milli ára en alls hófu 13 ný grunn- skólabörn skólagöngu í haust. „Í Borgarbyggð er hægt að stunda nám á öllum skólastigum og því er gaman að greina frá því að einnig hefur verið talsverð fjölgun nemenda í Háskólanum á Bifröst, Landbúnaðarháskóla Ísland og Menntaskóla Borgarfjarðar, bæði í stað- og fjarnámi. Borgarbyggð óskar öllum nemendum góðs geng- is á nýju skólaári,“ segir í frétt sveit- arfélagsins. mm Hjá Blossa ehf. í Grundarfirði er rekið þvottahús og byggingavöru- verslun sem býður upp á ótrúlega breitt vöruúrval. Nú í sumar bætt- ist enn við flóruna þegar eigend- urnir opnuðu litla matvöruverslun í anda kaupmannsins á horninu. Þar er hægt að fá ýmsar nauðsynjavör- ur eins og brauð, ost og mjólk, svo eitthvað sé nefnt. Systkinin Helga Sjöfn og Sigurður Heiðar sjá að mestu um reksturinn ásamt móður þeirra sem rekur þvottahúsið. „Búið er að stytta opnunartíma matvöru- verslunarinnar töluvert síðustu misseri og því sjáum við ákveðið tækifæri í þessu“ segir Helga Sjöfn í stuttu spjalli við Skessuhorn. „Okkur fannst sjálfum ómögulegt að hvergi sé hægt að kaupa mjólk eða brauð eftir klukkan 18:00 virka daga og eftir klukkan 17 um helg- ar,“ bætir hún við, en opnunartím- inn hjá þeim er til klukkan átta öll kvöld. „Við vildum auka þjónustu- stigið í bæjarfélaginu enda ekki ver- ið rekin sjoppa hér í mörg ár,“ seg- ir Helga. Þau segja viðbrögð í bæj- arfélaginu vera góð og viðskiptin alltaf að aukast. Gott vöruúrval er í versluninni allt frá hinum ýmsu nauðsynjavörum til gómsæts kruð- erís. tfk Helga Sjöfn og Sigurður Heiðar taka vel á móti viðskiptavinum alla daga til klukkan 20:00. Opnuðu sjoppu í þvottahúsi Svipmynd úr safni frá Grunnskóla Borgarness. Nemendum á öllum skólastig- um fjölgar í Borgarbyggð Hlutdeildarlán samþykkt sem lög frá Alþingi

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.