Skessuhorn


Skessuhorn - 09.08.2020, Qupperneq 19

Skessuhorn - 09.08.2020, Qupperneq 19
MIÐVIKUDAGUR 9. SEptEMBER 2020 19 Krossgáta Skessuhorns Hér er ný krossgáta fyrir lesendur að spreyta sig á. Athygli er vak- in á því að ný krossgáta er birt í blaðinu aðra hverja viku. Þeir sem vilja geta sent Skessuhorni lausnarorð/in á netfangið: krossgata@ skessuhorn.is fyrir klukkan 15:00 á mánudögum, 12 dögum eftir að hún birtist. Athugið að fullt nafn og heimilisfang þarf að fylgja með lausninni. Þeir sem ekki hafa aðgang að tölvupósti sendi lausnir á: „Skessuhorn - krossgáta, Kirkjubraut 56, 300 Akranesi (póstleggja þarf lausnir í síðasta lagi á fimmtudegi í vikunni eftir að hún birt- ist). Dregið er úr réttum innsendum lausnum og fær vinningshafinn bók að launum. Lausn á síðustu krossgátu var: „Samstaða.“ Heppinn þátttakandi er Svandís Bára Steingrímsdóttir, Þórólfsgötu 4, Borgarnesi. Máls- háttur Öldu- gjálfur Mistur Grugg Tangi Póll Eldur Jörð Mögl Elskar Dund Skallinn Firðir Tóm Smælki Ras Þys Deig Vík Arinn Nes Kl.15 Veisla Alda Valdir 7 Mjöður Keyrði Taut Hálsar Þar til Tæja 5 Spil Örlar Flan Hylur Bardagi Sniðugur Menn Skyldar Ærslast Dvelja Svertir Slá Oddur Upphr. Kusk Slit Núna Siða Eðli Fúsk Röðin Pípa Hlupu Röskur Röð Alda Mjó Til Hringa Vænir Kyn Eiga 3 Hita Níska Kann Skaði Tötrar Sjó Loga Rölt Hætta Slæm Að fullu Spyr Sund Í ógáti 8 Yfir- höfn Dag- leiðir Fædd Rot Segja 6 Lítil Tölur Flýti Eiði Tipl Utan Óskar Sífellt Leyfist 1 Hás Leikni Hljóma Átt Fugl Átt Á fæti Ágóða Æð Aðgát Ask Sk.st. Eldstó 4 Rót Samhlj. Átt 9 Ílát Eyða Glóra Dvelja 2 Hlass Naut Læti Sérstök 1 2 3 4 5 6 7 8 9 F J Ö L S K Y L D A A X A L I N A S F L J Ó Ð D A N S N Æ A Ð E I N S A S S A F T I N S L Ó A F T A N N A N E E E M O R G U N N K N E T T I R H L É I Ð J A U L L S K O E D E N R Ö K U T A N U M L L L N A R T E N N Ö R M D Æ L D V A L D O G G N Ó A R B A R N Ö F G A R I Ð A U H A G L R Ó A K U R G Ó A D Ý R K A B R A M B O L T F A R A N D L A K U R R A T A R S Æ R Á L A R Ú T R I T Ó K R Ó S A M S T A Ð A L A U S N Ú R S ÍÐ A S T A B L A Ð I trausti Eyjólfsson var fæddur í Vestmannaeyjum árið 1928, son- ur Sigurlínu Sigurðardóttur verka- konu þar og Eyjólfs Þorsteinsson- ar bónda á Hrútafelli. Uppeldis- árin átti hann í Eyjum en flutti upp á land og sótti sér menntun í Bændaskólanum á Hvanneyri í Borgarfirði. Árið 1949 giftist hann Jakob- ínu Björgu Jónasdóttur. Hún var dóttir Jónasar Helgasonar, bónda og hreppstjóra á Grænavatni í Mý- vatnssveit og konu hans Hólmfríð- ar Þórðardóttur. Þau trausti og Jakobína hófu búskap í Gunnars- holti á Rangárvöllum og byggðu þar býlið Kornbrekku en fluttu tveimur árum síðar til Vestmanna- eyja og bjuggu þar uns þau festu kaup á jörðinni Volaseli í Lóni, reistu þar íbúðarhús og ráku þar blandað bú í 10 ár uns þau fluttu aftur til Vestmannaeyja árið 1968. Þar reistu þau sér hús, þótt ekki yrði af því að þau flyttu í það vegna óvæntra atburða sem urðu í janú- ar árið 10973, þegar eldgos hófst í Heimaey. trausti hafði fyrr um haustið fengið orlof frá störfum í Vestmannaeyjum til þess að taka að sér að sinna félagsstarfi nem- enda Bændaskólans á Hvanneyri um eins ár skeið. Þegar gosið hófst í Heimaey flutti Jakobína kona hans ásamt börnum þeirra og fjölskyldan sam- einaðist á Hvanneyri. Þar varð heimili þeirra hjóna síðan og yngri barna þeirra. Fyrstu árin og um allnokkra hríð bjuggu þau hjónin sér heimili á heimavist skólans og sinntu því starfi, að aðstoða nem- endur skólans við hversdagsleg- ustu hluti í daglegu lífi og urðu mörgum þeirra hollráðir vinir og ráðgjafar enda gengu þeir inn og út af heimili þeirra eins og það væri heimili foreldra þeirra. Þegar farið var að reka þvottahús við heima- vist skólans tók Jakobína að sér þá starfsemi um árabil en trausti hafði það starf að sinna nemend- um á heimavistinni, sá m.a. um að styrkja félagslíf þeirra með ýmsum hætti auk þess að vinna ýmis störf önnur fyrir skólann. Þá var um árabil rekið sumarhótel á heima- vist skólans sem trausti sá um og má nærri geta að Jakobína kona hans hefur lagt þar gjörva hönd að verki með honum. Þegar fram liðu stundir reistu þau hjónin sér hús við túngötu 7 á Hvanneyri og undu þar hag sínum vel. Heimili þeirra var hlýlegt og myndarlegt og þau hjón góð heim að sækja enda félagslynd bæði og tóku virkan þátt í félagslífi sveitar- innar. trausti hafði haga hönd og fékkst m.a. við að binda inn skjöl og bæk- ur fyrir skólann. Hann orti einnig ljóð og þýddi söngtexta og fékkst við það í frítíma sínum að mála myndir fyrir sjálfan sig og aðra. Kirkjan sem nú stendur á Hvanneyri var á sínum tíma reist af Bændaskólanum og átti að veita nemendum hans kirkjulega þjón- ustu meðan á námi þeirra stóð, jafnframt því að vera sóknarkirkja Hvanneyrar og nærliggjandi bæja. trausti fékk það hlutverk meðfram öðrum störfum við Bændaskól- ann og síðar Landbúnaðarháskól- ann, að sinna kirkjunni og opna fyrir aðkomufólki sem vildi skoða hana. Það fórst honum svo vel úr hendi að hann var fenginn til þess að vera meðhjálpari kirkjunnar og gegndi því starfi frá hausti 1972 til ársins 2017 eða um 45 ára skeið. Þessi þjónusta hans við kirkjuna fyrir skólann, söfnuðinn, sóknar- prestana og organista hennar var ómetanleg. Hún var unnin af ein- stakri trúmennsku, elskusemi, hlýju og mikilli vandvirkni. Fyrir athafnir fór hann um kirkjuna og týndi suðandi flugurnar úr glugg- um og lagði í lófa sinn og bar þær út á stétt til þess að sleppa þeim út í frelsið. Þær áttu sinn rétt til lífs eins og við mennirnir sagði hann. Og þegar hringt var til helgra tíða og við upphaf athafna var allt til reiðu í kirkjunni, fágað og fínt. trausti stóð gjarnan á kirkjutröpp- unum eða í kirkjugættinni og tók fagnandi á móti söfnuðinum með hlýjum og elskulegum orðum. Betri aðstoðarmann í guðshúsi var vart hægt að hugsa sér og fyrir þessa eftirminnilega þjónustu hans ber honum nú heilshugar þökk frá söfnuði Hvanneyrarkirkju að hon- um látnum. Fyrir hönd Hvanneyrarsafnaðar segjum við því sem þetta skrifum í kveðjuskyni: Haf þú þökk fyrir allt og allt, þú trúfasti þjónn í húsi Guðs, fyrir vináttu þína og elsku- semi alla. Megir þú nú hvíla í friði Guðs sem skóp þig! Við sem eftir lifum kveðjum nú trausta, góðan trúfastan vin, þakk- látum huga og minnumst hans með söknuði um leið og við þökkum honum samfylgdina. Við vottum fjölskyldu hans og vinum samúð okkar við fráfall hans. Hann hvíli í friði og minning hans lifi. Flóki Kristinsson, fv. sóknar- prestur Guðmundur Sigurðsson, sóknar- nefndarformaður Hvanneyrarkirkju Trausti Eyjólfsson - minningarorð

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.