Skessuhorn - 04.11.2020, Blaðsíða 1
FRÉTTAVEITA VESTURLANDS – www.skessuhorn.is 45. tbl. 23. árg. 4. nóvember 2020 - kr. 950 í lausasölu
DOMINOS.IS | DOMINO’S APP
1.790 KR.
AÐEINS EF ÞÚ PANTAR Á NETINU EÐA MEÐ
APPINU, GREIÐIR FYRIRFRAM OG SÆKIR
PIZZUR MÁNAÐARINS
EIN STÓR PIZZA
Vökudagar á Akranesi
29. október - 8. nóvember
Upplýsingar
um dagskrána
á www.skagalif.is
Aukin þjónusta
við eldri borgara
arionbanki.is
Í ljósi aðstæðna og tímabundinna lokana á útibúum býður Arion banki
eldri borgurum hraðþjónustu í þjónustuverinu í síma 444 7000.
Með því að velja 4 þegar hringt er í þjónustuverið fá eldri borgarar forgang
að þjónusturáðgjöfum sem aðstoða við hvaðeina sem snýr að bankaþjónustu.
Við tökumst á við þetta saman
Hrekkjavökur eru nú orðnar býsna
almennar. Börn sem fullorðnir gera
sér glaðan dag, búa sig upp og
skreyta hús. Kennarar á yngsta stigi
í Brekkubæjarskóla á Akranesi voru
með þemað gamalt fólk, nemend-
um sínum til ánægju. Þeirra á meðal
var hún Tinna Steindórsdóttir. Sjálf
á hún hálfs annars árs gamla dótt-
ur sem var í leikskólanum á föstu-
daginn. Eftir skóladag kom móð-
irin í búningi Ömmu Zombie til að
sækja dóttur sína en þá brá svo við
að sú stutta þekkti ekki móður sína
og harðneitaði að fara með þessari
ókunnugu gömlu konu, jafnvel þótt
hún væri sjálf í búningi leðurblöku.
Ríghélt hún í leikskólakennarann
og reyndi að stinga af. Reyndar
þekkti kennarinn ekki heldur kon-
una undir gervinu og spurði hæv-
ersk; „hvaða barn ert þú að sækja
væna mín?“ Já, lífið er til að hafa
gaman að því öðru hverju.
mm
Þekkti ekki
mömmu
Nemendafélag Fjölbrautaskóla
Snæfellinga reynir að halda úti
virku félagslífi á þessum undarlegu
tímum sem við lifum núna. Því var
ákveðið að blása til bílabíós síðast-
liðið fimmtudagskvöld, 28. október.
Nemendur komu akandi að Félags-
heimilinu Skildi í Helgafellssveit
og horfðu þar saman á eina ræmu.
Myndinni var varpað á vegg félags-
heimilisins, sem stóð sig með prýði
í hlutverki bíótjalds þessa kvöld-
stund. Hljóðrás kvikmyndarinnar
var síðan útvarpað þannig að hver
og einn gat stillt inn á hana í bíln-
um. Kom bíósýningin vel út og var
vel heppnuð, í tunglsljósi og norð-
urljósaskini, að sögn tíðindamanns
Skessuhorns sem var á staðnum.
kgk/ Ljósm. sá.
Arkitektastofan Studio Bua hef-
ur hlotið verðlaun Bretlandsdeild-
ar Arkitektafélags Bandaríkjanna
(American Institute of Architechts
UK Chapter) sem nýliði ársins.
Verðlaunin hlýtur stofan fyrir end-
urnýjun húsakosts á Nýp á Skarðs-
strönd. Greint var frá valinu síðast-
liðinn fimmtudag, 28. október.
Það voru hjónin Sumarliði Ís-
leifsson og Þóra Sigurðardóttir sem
keyptu Nýp á Skarðsströnd árið
2001, en bærinn hafði þá verið í
eyði frá því seint á sjöunda áratugn-
um. Undanfarin ár hafa þau rekið
lítið gistiheimili á Nýp, samhliða
því að vinna að endurreisn staðar-
ins sem hefur staðið yfir frá því þau
keyptu Nýp. Nú hefur Studio Bua
hlotið verðlaun fyrir endurnýjunina
á Nýp. Stofan er staðsett í Lond-
on og Osló og geta má þess að ein
þeirra sem stendur að stofunni er
Sigrún Sumarliðadóttir arkitekt, en
hún er einmitt dóttir þeirra Sumar-
liða og Þóru á Nýp. kgk
Verðlaunuð fyrir
endurnýjun á Nýp
Að Nýp á Skarðsströnd. Ljósm. Studio Bua.
Frá bílabíói NFSN síðastliðið fimmtudagskvöld.
Bíó undir tunglskini
og norðurljósum
Tilboð gildir út nóvember 2020
Bacon burger meal
1.895 kr.
Máltíð