Skessuhorn - 04.11.2020, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 20204
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 3.590 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.100. Rafræn áskrift kostar 2.815 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.595 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Anna Rósa Guðmundsdóttir arg@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Finnbogi Rafn Guðmundsson frg@skessuhorn.is
Auglýsingar og dreifing:
Hrafnhildur Harðardóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Enn vandast valið
óumdeilt er að við erum bókaþjóð. enn gætir nógu mikils af menningu
forfeðranna til þess að slík vara sé skrifuð og seld. en ég held að til séu þeir
sem skrifi bækur af því þeir fá ekkert annað að gera. Afraksturinn verður
því stundum svona hipsum happs enda ekki sjálfgefið að vera gott skáld
þótt tíminn sé nægur. Svo eru aðrir sem senda frá sér bækur þótt þá hafi
skort tíma til að gera þær vel. Dæmi um slíkt gæti verið þverhandarþykk
bók sem kom út fyrir síðustu jólavertíð og fjallaði um síldarpláss norður í
landi. Sú bók var reyndar skotin í kaf af gagnrýnendum fyrir handvömm og
óþægilega frjálslega notkun á textum annarra. Dáldið slæmt fyrir höfund-
inn sem sjálfur hafði í eigin persónu slátrað útgáfu sögu heils byggðarlags
nokkrum árum áður í beinni útsendingu í Kiljunni. Svo eru enn aðrir sem
skrifa alltof langar bækur af því að svo virðist sem þeim annað hvort þyki
svo undur vænt um textann sinn, eða telji þetta vera síðustu bókina sem
skrifuð verður á þessari jörðu. Loks er til sá hópur fólks sem skrifar hæfi-
lega langar, skemmtilegar og eftirminnilegar bækur. Okkar kaupendanna
er svo að ná að skilja hismið frá kjarnanum. Þá vandast hins vegar valið.
enn ein breytan bætist svo við þessar lýsingar hér að ofan, en það er hinn
misjafni smekkur fólks. Það sem mér finnst vera góð bók þarf öðrum síst
að finnast.
en af hverju skyldi ég færa þetta í tal? Jú, framundan er sá skammi tími
ársins sem nær allar bækur hér á landi eru seldar. Mér er tjáð að ríflega níu-
tíu prósent bóksölunnar fari fram vikuna fyrir jól. Þar sem kaupendur jóla-
bóka eru auðvitað orðnir blankir löngu fyrir jól freistast þeir í ofanálag til
að fara í Bónus þar sem nokkrar valdar bækur eru til sölu á heildsöluverði.
Sérhæfðum bókaverslunum hefur þar af leiðandi fækkað svo um munar og
í þeim sem eftir eru, er virkilega slegist um hilluplássið. Því hefur það oft
og iðulega gerst að útgáfa bóka eins og þeirra sem ég lýsti hér að ofan sem
hæfilega löngum og skemmtilegum, hefur algjörlega farið framhjá hinum
almenna bókakaupanda sem langar að vanda valið. Tilurð góðu bókanna
var jafnvel ekki þekkt því Arnaldar- og Yrsuryk hafði blindað gagnrýna sýn
margra. Álíka undarlegt og þeir sem kaupa alltaf ónefnda tegund japanskra
bíla, þótt óútskýrðum milljónum eða tveimur sé smurt ofan á verðmiðann
umfram sambærilega bíla að gæðum.
Ég hef í tvígang komið að útgáfu bóka. Nutu þær ekki velþóknunar bók-
rýnenda og seldust því í takmarkaðra upplagi en að var stefnt. Hafa þó
mjatlast út árin á eftir þegar markhópur þeirra hefur uppgötvað af afspurn
að þær hafi verið gefnar út. Það er kannski engin skömm af því að vera ekki
í innsta kjarna einvalda í bókrýni hér á landi. Jafnvel mætti kalla það lán ef
út í það væri farið að tilheyra ekki þeim kreds. Hins vegar er það hábölv-
að að ekki sé með góðu móti hægt að auka möguleikana á því að allir höf-
undar, stórir sem smáir, fái sambærilega og frambærilega kynningu á bók-
menntaverkum sínum. Á þá ekki að skipta neinu máli hvort þeir eiga ættir í
póstnúmer með lágri tölu eða hárri. ef vandamálið er skortur á útsending-
artíma væri Ríkissjónvarpinu í lófa lagið að fjölga Kiljuþáttum í nóvember
og koma um leið í veg fyrir mismunun.
Bókaútgáfa er þrátt fyrir allt að aukast en því stýrir umfram annað sú
ákvörðun Alþingis að styrkja með beinum hætti fjórðung af útgáfukosnaði
íslenskra bókmennta. Ég er sannfærður um að sú ákvörðun hafi verið til
heilla fyrir íslenskt mál og menningu og okkur bókmenntaþjóðina. en það
sem helst skortir er að góðar bókmenntir fái þá kynningu sem þeim er sam-
boðið. Sérstaklega á þeirri sjónvarpsstöð sem okkur er skylt að greiða hluta
skatta okkar til. Það er nógu slæmt að til staðar sé fákeppni í bókverslun
svo ekki þurfi að bætast við að varan fái þar jafnvel ekki hillupláss. Góð bók
eftir lítt þekktan höfund getur því hæglega endað eins og jólabjórinn frá
Steðja sem fær ekki hillupláss í ríkisbúðinni.
Gefum okkur því góðan tíma í bókabúðinni fyrir þessi jól. Skoðum vel
hvað í boði er og þá munum við örugglega finna skemmtilega og eftir-
minnilega bók til gjafa fyrir þá sem okkur þykir vænt um, nú eða okkur
sjálf.
Magnús Magnússo
Laugardaginn 24. október stöðvaði
lögregla við reglulegt eftirlit bifreið
við Hvalfjarðargöng. Við nánari at-
hugun reyndist ökumaður undir
áhrifum fíkniefna. Ökumaður var
handtekinn og fluttur á lögreglu-
stöð. Síðar kom í ljós að ökumaður
var smitaður af Covid-19. Þrátt fyr-
ir að lögreglumennirnir væru með
grímur og hanska og hefðu unn-
ið samkvæmt varúðarráðstöfunum
lögreglu eru þeir nú báðir smitaðir
af Covid-19 og í einangrun ásamt
fjölskyldum sínum og aðstandend-
um. frg
Ákveðið hefur verið að fresta íbúa-
kosningu um sölu á ljósleiðara-
kerfi Hvalfjarðarsveitar. Áður hafði
kosningunni verið frestað í maí síð-
astliðnum, þar sem óvíst var talið
hvort hæstbjóðandi stæði við til-
boð sitt. „Aðdragandinn var erindi
frá Mílu í kjölfar greiningar Póst-
og fjarskiptastofnunar sem orsakaði
breytta stöðu Mílu um kaup á kerf-
inu en taldi fyrirtækið þó rétt að
halda málinu opnu,“ segir í fund-
argerð sveitarstjórnar frá í síðustu
viku. endanleg greining Póst- og
fjarskiptastofnunar liggur þó ekki
fyrir og óvíst er hvenær svo verður,
að því er fram kemur í fundargerð-
inni. Þar með er staða Mílu óbreytt
enn sem komið er.
Almenn íbúakosning um sölu á
ljósleiðarakerfi Hvalfjarðarsveitar
á skv. sveitarstjórnarlögum að fara
fram fyrir 16. desember næstkom-
andi, eða innan eins árs frá því að
ósk um slíka kosningu berst. Í ljósi
þess að staða væntanlegs kaupanda
er óbreytt frá því í maí samþykkti
sveitarstjórn að fresta íbúakosn-
ingunni að sinni. en komi til sölu
á kerfinu verður boðað til íbúa-
kosningar um málið áður en gengið
verður frá sölunni, að því er fram
kemur í samþykkt sveitarstjórnar.
kgk
Flutningaskipið Fa-
mita lagðist að bryggju
í Grundarfjarðarhöfn
síðastliðinn föstu-
dag þar sem salti var
skipað upp í salthús-
ið á hafnarsvæðinu.
Það var því mikil um-
ferð um höfnina síð-
asta föstudag en iðn-
aðarmenn voru sömu-
leiðis á fullu við fram-
kvæmdir á svæðinu.
Menn gættu þess þó
vel að vera ekki fyrir
hver öðrum á þessum
háannatíma. tfk
Tökulið frá Glassriver þurfti að
stytta veru sína í Grundarfirði
vegna hertra samkomutakmark-
anna og síðastliðinn sunnudag var
síðasti tökudagur þeirra í Grund-
arfirði. Þá var verið að taka útitök-
ur við Heilbrigðisstofnun Vestur-
lands í Grundarfirði. Þetta var því
væntanlega síðasti dagurinn sem að
takmarkað aðgengi var um götur
Grundarfjarðar vegna tökumanna
og leikara. Aðstandendur þáttanna
Vitjanir reikna með að klára svo
tökur í Reykjavík en þær eru flestar
innandyra. einhverjir starfsmenn
verða þó eftir við frágang.
tfk
Dópaður ökumaður
smitaði lögreglumenn
Frá lagningu ljósleiðara í Hvalfjarðarsveit sumarið 2014. Ljósm. úr safni.
Fresta íbúakosningu að sinni
Salti skipað upp
Mikið gekk á fyrir utan
Hrannarstíg 7 á sunnu-
daginn var.
Síðasti tökudagur í Grundarfirði