Skessuhorn - 04.11.2020, Blaðsíða 6
MIÐVIKUDAGUR 4. NóVeMBeR 20206
Fresta sölu
Neyðarkalls til
febrúar
LANDIÐ: Slysavarnafélag-
ið Landsbjörg hefur ákveðið
að fresta árlegri sölu Neyð-
arkallsins til febrúar á næsta
ári í ljósi ástandsins vegna
Covid-19. Salan mun því
að óbreyttu fara fram 3. –
7. febrúar 2021. Sala Neyð-
arkallsins er ein stærsta fjár-
öflunarleið björgunarsveita
landsins á hverju ári, auk sölu
flugelda og nú upp á síðkast-
ið stuðnings Bakvarða. -mm
Vilja fjölga
strætóleiðum
AKRANES: Útboð á innan-
bæjarstrætó á Akranesi var
til umræðu á síðasta fundi
skipulags- og umhverfisráðs
kaupstaðarins. Lagði ráðið
til að bætt verði við vagni við
þann eina sem fyrir er. Með
því yrði hægt að bæta við
nýjum leiðum og auka þjón-
ustu á álagstoppum, svo sem
í tengslum við skólana og
starf íþróttahreyfingarinn-
ar, eins og áður hafði kom-
ið fram við umfjöllun á fundi
ráðsins 12. október. -kgk
Hætta þátttöku
í spilakössum
LANDIÐ: SÁÁ hefur
ákveðið að hætta þátttöku í
rekstri spilakassa og mun fé-
lagið slíta á tengsl sín við Ís-
landsspil. Íslandsspil, sem
er í eigu Rauða krossins,
SÁÁ og Landsbjargar, eiga
og reka spilakassa um allt
land. Aðkoma SÁÁ að rekst-
ir spilakassa hefur lengi verið
umdeild í ljósi þess að SÁÁ
veitir ráðgjöf og meðferð við
spilafíkn. -arg
Öryggi aukið
við höfnina
BORGARNES: Vefmynda-
vél hefur nú verið sett upp
í Borgarneshöfn til að auka
öryggi tengt bátum og um-
ferð almennings á svæðinu.
Streymt er frá vélinni á vef
Faxaflóahafna. -arg
Greiða upp lán
HVALFJ.SV: Sveitarstjórn
Hvalfjarðarsveitar sam-
þykkti samhljóða á fundi sín-
um þriðjudaginn 27. októ-
ber sl. að greiða upp tvö
lán hjá Lánasjóði sveitarfé-
laga. Samtals er upphæð lán-
anna 62,2 milljónir króna, en
bæði lánin eru verðtryggð.
Uppgreiðsluverðmæti þeirra
með uppgreiðsluálagi er um
67 milljónir króna, að því
er fram kemur í fundargerð.
-kgk
Veirutölur í gær
Alls greindust 27 innanlands-
smit kórónuveirunnar í gær skv.
tölum á covid.is, og þar af voru
17 í sóttkví. engin smit voru
greind á landamærum í gær.
Á þriðjudag voru 74 á sjúkra-
húsum landsins, þar af fjórir á
gjörgæslu. 872 voru í einangr-
un vegna veirunnar og 2.083
í sóttkví. Nýgengi smita var
188,4 sem var lækkun frá deg-
inum áður þegar það var 198. Á
Vesturlandi voru í gær 25 í ein-
angrun og hafði fækkað um þrjá
frá deginum áður. Það fækkaði
um einn á Akranesi og voru 22
þar í einangrun. einnig fækkar
um einn í Borgarnesi þar sem
þrír eru nú í einangrun. enginn
er í einangrun í hinum sveitar-
félögum landshlutans. enn eru
160 í sóttkví í landshlutanum,
eins og á mánudag. enn eru 150
í sóttkví á Akranesi, sjö í Borg-
arnesi, einn í Stykkishólmi og
tveir í Búðardal. -arg
Grímuskylda
komin á
AKRANES: Talsvert er um
að lögreglu sé tilkynnt um
ýmis brot á sóttvarnalögum og
reglum settum samkvæmt þeim.
Algengast er að kvartað sé yfir
að grímuskyldu sé ekki sinnt í
verslunum og öðrum fyrirtækj-
um og stofnunum. Lögregla
fylgir slíkum ábendingum allt-
af eftir auk þess sem hún sinnir
slíku eftirliti reglubundið. –frg
He itavatnslaust
fimmtudag
BORGARNES: Vegna við-
gerða verður heitavatnslaust
frá Borgarbraut 66 í Borgar-
nesi að Brautarholti á morgun,
fimmtudaginn 5. nóvember á
milli klukkan 9 og 18. Frá þessu
er greint á vef Borgarbyggð-
ar. Íbúar eru beðnir velvirðing-
ar á þeim óþægindum sem þetta
kann að valda. -arg
Síðastliðinn föstudag hófu starfs-
menn Snóks ehf. jarðvegsskipti
undir væntanlega reiðhöll hesta-
mannafélagsins Dreyra á Æðar-
odda við Akranes. Þar verður byggt
1.250 fm. hús sem verður 25 metr-
ar á breidd og 50 metra langt. Auk
hestamanna koma sveitarfélögin
Akraneskaupstaður og Hvalfjarðar-
sveit, að framkvæmdum. BM Vallá/
Smellinn tekur við jarðvegsskiptum
grunni og reisir sökkla en samið
hefur verið við Kára Arnórsson ehf.
um að reisa burðarvirki reiðhallar-
innar sem verður úr límtré.
Verkefni þetta hefur verið draum-
ur hestamanna um árabil. Hreyf-
ing komst á málið í maíbyrjun
2018 þegar skrifað var undir samn-
ing um byggingu reiðhallarinnar
og vonir stóðu til að hægt yrði að
hefja framkvæmdir síðar sama ár.
Það tafðist hins vegar vegna flókins
eignarhalds á lóðinni. Um veturinn
var hins vegar gengið frá kaupum á
landinu og fyrsta skóflustungan að
reiðhöll á Æðarodda var tekin við
hátíðlega athöfn 1. maí 2019. Þá
var vonast til að hægt yrði að vígja
húsið ári síðar, í byrjun maí nú í
vor. Verkið mun því tefjast um eitt
ár miðað við þær fyrirætlanir. mm
Kaupfélag Skagfirðinga og dótt-
urfyrirtæki þess í matvælafram-
leiðslu hafa ákveðið að gefa fólki í
erfiðleikum matvöru, sem svarar til
40.000 máltíða, fram til jóla. Frá
þessu var greint í Morgunblaðinu
í dag. Vitnað er til Ásgerðar Jónu
Flosadóttur formanns Fjölskyldu-
hjálpar sem segir gjöfina algjöra
himnasendingu fyrir bágstadda.
Í tilkynningu segir Þórólf-
ur Gíslason kaupfélagsstjóri KS:
„Þetta er viðleitni okkar til þess að
aðstoða fólk sem á í tímabundnum
erfiðleikum vegna kórónuveirunn-
ar og afleiðinga hennar. Það krepp-
ir víða að í þjóðfélaginu þessa dag-
ana, en það á enginn að líða neyð
vegna þess. Það er mikilvægt að við
stöndum saman í þeirri baráttu.“
Matargjöfin sem um ræðir verður
hágæða kjöt og fiskur, mjólkurvör-
ur og fleira.
Ásgerður Jóna segir að þörfin
fyrir aðstoð til bágstaddra sé gríð-
arlega mikil og aukist dag frá degi.
„Þetta er stærsta matargjöf allra
tíma og hún gæti ekki komið á betri
tíma,“ segir Ásgerður Jóna í Morg-
unblaðinu og bætir við að þörfin
hafi aldrei verið meiri, ekki einu
sinni í hruninu. mm
Þórólfur Gíslason kaupfélagsstjóri, hér við vígslu á nýju skipi FISK í Grundarfirði á
síðasta ári. Ljósm. úr safni/ tfk.
Kaupfélag Skagfirðinga
lætur gott af sér leiða
Framkvæmdir hafnar við
byggingu reiðhallar á Æðarodda